Skessuhorn - 03.01.2007, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006
^úasunu..
Nýr doktor í
fiskifræðum
Elvar Hall-
freðsson úr
Stykkishólmi
varði á dög-
unum dokt-
orsritgerð
sína í fiski-
fræðum við
Sjávarútvegs-
háskólann í Tromsö í Noregi.
Doktorsritgerð hans ber heitið
„Fish predation on capelin
larvae Mallotus villosus in the
Barents Sea, in relation to
recruitment" sem mættd þýða á
íslensku sem ,Afföll af loðnu-
seiðum (Mallotus villosus) í
Barentshafi af völdum affáns og
áhrif þess á nýliðun.“ Ritgerðin
samanstendur af 5 vísindagrein-
um ásamt sameiginlegum inn-
gangi. Fjórar þeirra annað hvort
hafa, eða eru á leið til að verða
birtar i alþjóðlegum vísinda-
tímaritum en eina þeirra hefur
Elvar ekki enn sent frá sér. Þá
grein mun hann kynna á ráð-
stefhu í mars og verður hún birt
að því loknu. Frá þessu var
greint í Stykkishólmspóstinum.
HJ
Til mtnnis
Við minnum á sýningu í Land-
námssetrinu í Borgarnesi, Svona
eru menn, en þar fara Einar Kára-
son og KK á kostum og rifja upp
ævintýralegan lífsferil tónlista-
mannsins með frásögn í tónum
og tali. Þetta er öðruvísi sýning
og kvöldinu er vel varið með því
að skella sér á hana.
Veðivrhorffrr
Á morgun, fimmtudag verður
vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s
og slydda, en síðar rigning sunn-
an- og vestanlands síðdegis og
hiti 1 til 5 stig. Það má búast við
suðvestlægri eða breytilegri átt á
föstudaginn, éljum víða um land
og hita í kringum frostmark. Á
laugardag fer hann í norðaustan
13-18 m/s með vægu frosti. Á
sunnudag og mánudag mun
ríkja norðanátt og snjókoma eða
él, en bjart suðvestan til. Frost
um alit land.
SpiVrniruj viKifrmar
Síðustu tvær vikur var spurt á
Skessuhornsvefnum: „Var árið
2006 þér og þínum hagfellt? Sú
var raunin því „Já frekar eða
mjög" svöruðu samtals 70%
netverja. 12% sögðu árið hafa
verið hlutlaust. „Eiginlega ekki"
svöruðu 10% og „Alls ekki" svör-
uðu 8%. Við vonum því fyrir
hönd þessara 18% að árið 2007
verði betra.
í næstu viku spyrjum við í
hverju aukin hamingja er
fólgin?
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlendiníjfrr
vikiAnnar
Vestlendingur vikunnar er Bragi
Þórðarson, bókaútgefandi og
skáti. Hann skrapp á Bessastaði í
fyrradag og tók þar við medalíu
fýrir störf að útgáfu og æskulýðs-
málum. Bragi hefur í gegnum tíð-
ina lagt rækt við skráningu heim-
ilda um samtímamenn og eldra
fólk og verið duglegur að koma
þeim upplýsingum á prent og er
því afar vel að riddarakrossi hinn-
ar íslensku fálkaorðu kominn.
Aðhefst ekki vegna breytinga
á bæjarmálasamþykkt
Umboðsmaður Alþingis telur
ekki tilefni til frekari athugunar af
sinni hálfu, vegna kvörtunar Gunn-
ars Arnar Gunnarssonar bæjarfull-
trúa minnihluta bæjarstjórnar Snæ-
fellsbæjar yfir úrskurði félagsmála-
ráðuneytisins ffá 10. ágúst. í þeim
úrskurði var ekki gerð athugasemd
við málsmeðferð bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar við endurskoðun
samþykktar um stjórn Snæfellsbæj-
ar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Upphaflega hafði bæjarstjórn
samþykkt umræddar breytingar að
lokinni seinni umræðu þann 27.
apríl 2006. Áður en ráðuneytið
hafði staðfest þá breytingu sam-
þykkti bæjarstjórn ffekari breyting-
ar að lokinni fyrri umræðu á fundi
þann 15. júní. Þar sem bæjarstjórn
samþykkti einnig á þessum fundi
tillögu um sumarffí í júlí og ágúst
var málinu vísað til seinni umræðu í
bæjarráði, sem bæjarstjóm hafði
veitt fullt umboð tdl starfa sem bæj-
arstjórn.
I áliti Umboðsmanns segir m.a.:
„Það er ljóst að samkvæmt þessu að
breytingin sem gerð var á ákvæði
67. gr. samþykktarinnar fólst í því
að bæjarstjóra var falið ráðningar-
vald í málefnum almennra starfs-
manna í stað bæjarstjórnar Snæ-
fellsbæjar. Með tilliti til eðlis þess-
arar breytingar tel ég ekki vera til-
efni til að gera athugasemd við þá
niðurstöðu félagsmálaráðuneytisins
að sveitarstjórn Snæfellsbæjar hafi
ekki borið að hafa tvær umræður
um efini breytingartillögunnar. Það
hafi verið heimilt að hafa eina um-
ræðu um efiii hennar.“ HJ
Dalabyggð útundan í
GSM uppbyggingu
Sveitarstjóm Dalabyggðar hefur
samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir
áhyggjum yfir því að ekki verði
byggt upp GSM samband víða í
Dalabyggð samkvæmt fýrirhggjandi
áædtm Fjarskiptasjóðs. Nefnir sveit-
arstjóm sem dæmi Eiríksstaði, sem
er helsti ferðamannastaðurinn í
Dölum að mati sveitarstjómar og
vegurinn um Laxárdal sem er vara-
leið milli Vesturlands og Norður-
lands.
Gunnólfur Lámsson, sveitarstjóri
í Dalabyggð segir það afar óheppi-
legt að ekki skuli hafa verið horff til
þessara staða nú við uppbyggingu
GSM kerfisins. I því sambandi nefn-
ir hann að mikilvægi vegarins tun
Laxárdal, sem tengingu milli Vest-
urlands og Norðurlands, hafi komið
mjög vel í ljós þegar loka þurfti veg-
um í Borgarfirði vegna vamavaxta
skömmu fýrir jól. Því sé mjög brýnt
að halda þessari leið vel við og búa
hana nauðsynlegum öryggistækjum
eins og GSM sambandi sem í dag er
ekkert. HJ
Ríkið kaupir St. Frandskus-
spítalann í Stykldshóbni
Arni Mathiesen, fjármálaráð-
herra, og systir Belén Aldanondo,
fulltrúi St. Franciskusreglunnar
undirrituðu skömmu fýrir jól sam-
komulag um kaup ríkisins á eignar-
hluta reglunnar í St.
Franciskusspítalanum í Stykkis-
hólmi. Greiddar verða 140 milljón-
ir fýrir hlut reglunnar og ríkið tek-
ur auk þess að sér að standa undir
lífeyrisréttindum starfsmanna sem
þeir hafa áunnið sér. Siv Friðleifs-
dóttir, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra tók við spítalanum til
reksturs frá og með áramótum við
sama tækifæri.
Breytingar verða ekki á rekstri
spítalans eða þjónustunni sem þar
hefur verið veitt undanfarið. Þjón-
ustusamningur sem í gildi var um
rekstur og þjónustu spítalans milli
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins og stofhunarinnar fellur
úr gildi við kaupin. Á spítalanum
eru 40 sjúkrarúm, 17 fýrir almenna
sjúklinga, eitt bráðarými, 9 hjúkr-
unarrými og 13 rúm fýrir háls- og
baksjúklinga. Á fýrstu hæð hússins
er rekin heilsugæslustöð í tengslum
við rekstur spítalans. Húsnæði
heilsugæslustöðvarinnar er ekki í
eigu St. Franciskusreglunnar.
St. Franciskusreglan lét upphaf-
lega reisa sjúkrahúsið í Stykkis-
hólmi árið 1934 og var það tekið
formlega í notkun 17. september
1936. Fyrir rúmum aldarfjórðungi
réðust St. Franciskusreglan, ríkis-
sjóður og hrepparnir sem þá ráku
heilsugæslustöðina í að stækka
sjúkrahúsið. Með sölu St.
Franciskusspítalans lýkur formleg-
um afskiptum reglunnar af heil-
brigðisþjónustu á íslandi. Þar með
er punkturinn settur aftan við 70
ára farsæla heilbrigðisþjónustu
systrareglunnar sem kennir sig við
heilagan Frans ffá Assisí. HJ
Stofiiaour verði klúbbur
fyrir öryrkja á Akranesi
Vinnuhópur, sem skipaður var
fulltrúum frá Sjúkrahúsinu og
heilsugæslustöðinni á Akranesi
(SHA) og Akraneskaupstað, um
málefni öryrkja á Akranesi leggur
til að stofnað verði klúbbhús fýrir
öryrkja sem opið verði alla virka
daga. Þar verði iðjuþjálfi og félags-
ráðgjafi með fasta viðverutíma.
Tilgangurinn er að auka færni ör-
yrkja í daglegu lífi. Oskað er eftir
því að bæjarfélagið útvegi hús-
næði. Rekstrarkostnaður er áætl-
aður um sjö milljónir króna á ári.
Forsaga málsins er sú að SHA
hafði árið 2005 frumkvæði að við-
ræðum við Akraneskaupstað um
málefni öryrkja á Akranesi. Beind-
ist athyglin að mestu að yngra og
miðaldra fólki sem SHA hefur lið-
sinnt með eftirfýlgd, ráðgjöf og
endurhæfingu og einnig skjólstæð-
ingum félagsþjónustu Akranes-
kaupstaðar. Tilgangur viðræðn-
anna var sá að fá yfirsýn yfir hvaða
þjónusta er til staðar fyrir þennan
hóp og hvort hægt væri að bæta þá
þjónustu.
Ákveðið var að skipa vinnuhóp
sem færi yfir málið. I störfum
hópsins kom í ljós að í bæjarfélag-
inu er breiður hópur öryrkja með
margvísleg vandamál, meðal ann-
ars vegna líkamlegra sjúkdóma,
geðsjúkdóma og þroskaraskana. I
kjölfarið voru þessir einstaklingar
heimsóttir og kannaður áhugi
þeirra og óskir um þjónustu.
Einnig var kannað hvaða úrræði
eru í boði í Reykjavík, á Selfossi og
víðar.
I tillögum hópsins er gert ráð
fýrir að stofnaður verði nokkurs
konar endurhæfingarklúbbur sem
opinn sé alla virka daga frá kl. 8-16
„sem gerir þessu fólki kleift að
auka færni sína í daglegu lífi með
því að geta mætt í klúbbinn og
gengið í ákveðin verkefhi eða hlut-
verk að eigin ósk,“ eins og segir í
tillögum vinnuhópsins. Lagt er til
að starfsmaður verði ráðinn í fullt
starf sem sjái um daglegan rekstur
og að SHA og Akraneskaupstaður
leggi til húsnæði og ákveðna
starfsmenn með fastan viðveru-
tíma. Með því að sækja klúbbinn
verði fólki auðveldað að brjóta fé-
lagslega einangrun sína, auka
virkni sína og færni við dagleg
störf. Þannig verði fólki auðveldað
að komast út á vinnumarkaðinn
eða í nám. I klúbbnum verði hægt
að vinna að ýmsum verkefhum og
einnig geti fólkið fengið aðstoð við
nám og starfsþjálfun.
Eins og áður sagði er reiknað
með að rekstur klúbbsins kosti um
sjö milljónir króna á ári og að auk
SHA og bæjarfélagins verði leitað
til nágrannasveitarfélaga, Rauða
kross Islands, félagsmálaráðuneyt-
isins, fýrirtækja og félagasamtaka.
Vinnuhópurinn reiknar með að
um tilraunaverkefni verði að ræða
í 2-3 ár og síðan verði stefnt „að
því að komast inn á fjárlög ríkisins,
eins og dæmi eru um annars stað-
ar,“ segir í áliti vinnuhópsins.
I vinnuhópnum sátu Sigurður
Þór Sigursteinsson iðjuþjálfari
heilsugæslu SHA, Sveinborg
Kristjánsdóttir sviðsstjóri fjöl-
skyldusviðs Akraneskaupstaðar og
Sigrún Ásmundsdóttir iðjuþjálfari
endurhæfingardeildar SHA.
HJ
Verkefiú færð til
syslumanna
LANDIÐ: Björn Bjarnason
dóms- og kirkjumálaráðherra hef-
ur með nýrri reglugerð ákveðið
flutning ýmissa verkefna úr dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu til
sýslumarmsembætta víða á lands-
bygginni. Meðal verkefnanna sem
flytjast er skráning kaupmála fyrir
landið allt sem færast mun til
sýslumannsins í Stykldshólmi og
sýslumaðurinn í Búðardal mun
annast veitingu leyfa til ætdeið-
ingar. -hj
Netsambands-
laust
HV/4ITJ. SVT'IT: Langlundar-
geð íbúa sunnan Akrafjalls í
Hvalfjarðarsveit er á þrotum
gagnvart ástandi netsambands
sem þessir íbúar kaupa ffá fyrir-
tækinu e-Max. Síðan á laugardag
og a.m.k. þar til í gær, þriðjudag,
hafði netsambandið legið niðri
hjá notendum sem taka geisla ffá
Tindstöðum. „Við höfum marg-
ítrekað verið án netsambands
ýmist dagparta eða nokkra daga í
senn á liðnu ári og erum afar
óhress með ástandið. Háhraða-
tengingin sem hér er skilar auk
þess ekki nægjanlegum hraða til
að flytja gögn, t.d. um netbanka.
Það eykur enn á gremju okkar
íbúanna að erfitt hefur reynst að
láta fýrirtækið vita af bilunum
þegar þær eiga sér stað, sem oft er
utan hefðbundins vinnutíma,“
sagði Jóhanna Harðardóttir,
blaðamaður í Hlésey, eji hún er
meðal þeirra íbúa sem treysta á
gott netsamband vinnu sirrnar
vegna. -mm
LeikskóH í 30 ár
GRUNDARFJ ÖRÐUR: Þann
4. janúar nk. eru 30 ár síðan fyrst
var opnaðtu- leikskóli í Grundar-
firði. Af því tilefhi verður opið
hús í leikskólanum Sólvöllum ffá
kl. 14:00 - 16:00. Gestum verður
boðið upp á að skoða leikskólann
og þiggja veitingar. -mm
Öllundir
kostnaðaráædun
SNÆFELLSBÆR: Berghn ehf.
bauð lægst í endurbyggingu 16,9
km kafla Umesvegar ffá Háa-
hratmi að Saxhóh á Snæfellsnesi.
Um er að ræða 6,5 m breiðan veg
með klæðningu. Tilboð Berlínar
ehf. var að upphæð rúmar 159,6
milljónir króna sem er aðeins
74,5% af kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar sem var að upphæð
tæpar 214 milljónir króna. Alls
bárust átta tilboð í verkið og at-
hyglisvert er að öll vora þau und-
ir kostnaðaráætlun. Það hæsta
var frá Glaumi ehf. að upphæð
tæpar 210 milljónir króna. -hj
íbúum fjölgar
um þriðjung
HVANNEYRI: Þann 1. desem-
ber vora íbúar á Hvanneyri 304
talsins samkvæmt bráðabirgða-
tölum Hagstofu Islands. Hafði
þeim fjölgað um 74 á einu ári eða
um tæpan þriðjung. Á síðasta
áratug hefur íbúum á Hvanneyri
fjölgað á hverju ári að undan-
skyldu árinu 2004 en þá stóð
íbúatalan í stað. Þann 1. desem-
ber 1997 vora íbúar á Hvanneyri
148 að tölu og hefur íbúafjöldinn
því ríflega tvöfaldast á þessu
tímabili. -hj