Skessuhorn - 03.01.2007, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 2007
i I
iKMÍSTJNN SH 7l.a*»
Jákvæð afkoma af rekstri
Grundarfj arðarbæj ar
Bæjarstjórn Grundarfjarðar sam-
þykkti á dögunum með fjórum at-
kvæðum fjárhagsáætlun bæjarfé-
lagsins og stofnana þess fyrir næsta
ár. Samkvæmt henni verða skatt-
tekjur sveitarfélagsins rúmar 270
milljónir króna, ffamlög úr jöfhun-
arsjóði sveitarfélaga eru áætluð
rúmar 128 milljónir króna og aðrar
tekjur rúmar 150 milljónir króna.
Samtals eru tekjur því áætlaðar
tæpar 549 milljónir króna. Sam-
kvæmt áætluninni hækka skatttekj-
ur um 7,4% á milli ára.
Gert er ráð fyrir að laun og
launatengd gjöld sveitarfélagsins
og stofnana þess verði tæpar 254
milljónir króna. Annar rekstrar-
kosmaður er áætlaður tæpar 188
milljónir króna, afskriftir rúmar 40
milljónir króna og fjármagnsgjöld
rúmar 59 milljónir króna. Rekstr-
arniðurstaða er því áætluð jákvæð
um tæpar 8 milljónir króna. Gert er
ráð fyrir að veltufé ffá rekstri verði
rúmar 96 milljónir króna og hand-
bært fé ffá rekstri verði rúmar 76
milljónir króna.
I greinargerð Guðmundar Inga
Gunnlaugssonar bæjarstjóra með
fjárhagsáætluninni segir að til fjár-
festinga á næsta ári verði varið
rúmum 80 milljónum króna. Þar
vega þyngst hafnarframkvæmdir en
til þeirra verður varið um 50 millj-
ónum króna og 10 milljónum
króna verður varið til undirbúnings
byggingar íþróttamiðstöðvar.
Þá kemur ffam í greinargerðinni
að gert sé ráð fyrir halla af rekstri
ársins 2006 samkvæmt endurskoð-
aðri fjárhagsáætlun og brýnt sé að
snúa þeirri þróun við. „Rekstrar-
niðurstöður B-hluta stofnana er
ekki viðunandi að undanskilinni
ffáveitu. Allt of mikill halli er á
rekstri leiguíbúða og sorpmála. A
þessu þarf að taka á komandi miss-
erum,“ segir í greinargerðinni.
Þá segir að þrátt fyrir að staðan
sé þröng og ffamkvæmdaþörf mik-
il verði leitast við að heildarskuldir
hækki ekki meira „en brýna nauð-
syn ber til í hlutfalli af heildartekj-
um,“ eins og segir í greinargerð
bæjarstjóra.
Bæjarfulltrúar minnihlutans sátu
hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar-
innar. I bókun minnihlutans er velt
upp þeirri spurningu hvaða for-
sendur liggi að baki því að áætla
hækkun skatttekna um 7,4% því
samkvæmt útreikningi sambands
sveitarfélaga muni þær hækka að
meðaltali um 5,5% á milli ára. Er á
það bent að landaður afli smábáta
hafi til dæmis dregist saman um
800 tonn á milli ára og að landaður
afli í Grundarfirði hafi minkað um
liðlega tvö þúsund tonn og engin
teikn séu um að aflaheimildir munu
aukast ffekar á næsta ári, eða störf-
um fjölga umtalsvert.
„Þá segir minnihlutinn skulda-
stöðuna orðna „með því hæsta sem
þekkist“ og því sé greiðslubyrði að
skapi orðin of mikil og því ekki
mikið svigrúm til framkvæmda
nema með nýjum lántökum.
HJ
Kristinn SH-712 kemur til heimahafnar i Ólafsvtk.
Nýr bátur; Kristinn SH kemur
til heimahafiiar í Olafsvík
Þorsteinn Bárðarson og Bárður Guðmyndsson ásamt fjölskyldum sínum.
Skagamenn vilja breyta
sýslumannsumdæmum
Bæjarráð Akraness hefur ítrekað
fyrri samþykkt sína um að umdæm-
um sýslumannsembættanna í Borg-
arnesi og á Akranesi verði breytt á
þann veg að umdæmið á Akranesi
stækki á kostnað Borgarness. Var
bæjarstjóra falið að koma þessum
sjónarmiðum á ffamfæri við dóms-
málaráðuneytið. Málið var tekið
upp á fundi bæjarráðs þegar til um-
ræðu var umsögn bæjarfélagsins á
nýrri reglugerð um stjórnsýsluum-
dæmi sýslumanna og lögregluum-
dæmi lögreglustjóra sem er í smíð-
um í ráðuneytinu.
Samkvæmt nýrri reglugerð verða
umdæmi sýslumannsembættanna
þau sömu og verið hafa og nær um-
dæmi sýslumannsins í Borgarnesi
að Hvalfjarðarbotni í suðri á móti
lögreglu í Reykjavík og að Berja-
dalsá og Leyni í suðri á móti lög-
reglu á Akranesi. Embættið á Akra-
nesi nær hins vegar yfir Akranes-
kaupstað og næsta nágrenni hans.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segir bæjarráð hafa talið rétt að ít-
reka nú þá skoðun bæjaryfirvalda á
Akranesi að umdæmamörkum
verði breytt á þann veg að þau nái
ffá Botosá í Hvalfirði að Hafnará.
Rökin séu einföld í þessu efhi því
lögreglan á Akranesi sé eðli málsins
samkvæmt fljótari á vettvang á
þessa staði en lögreglan í Borgar-
nesi. Með þessari breytingu yrði
stóriðjufyrirtækin á Grundartanga
og Hvalfjarðargöng innan um-
dæmis sýslumannsins á Akranesi.
Það skipulag yrði mun skilvirkara
og þjónusta öruggari þar sem um
skemmri veg sé að fara bæði fyrir
íbúa og lögreglu.
HJ
Misjöfii hækkun fast-
eignamats á
Um áramótdn tekur gildi nýtt
fasteignamat og almennt hækkar
matið um 10% á milli ára. A þeirri
hækkun eru þó margar undantekn-
ingar. Má þar nefha að matsverð
íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Borgar-
nesi, Stykkishólmi og í þéttbýli í
Snæfellsbæ hækkar um 15% og
Vesturlandi
sömu sögu er að segja af atvinnu-
húsum og atvinnuhúsalóðum í
Borgarnesi. Mat íbúðarhúsa og
íbúðarlóða í Grundarfirði hækkar
hinsvegar um áramótin um 5 % en
fyrr á árinu hækkaði matið þar eft-
ir endurmat um 37% að meðaltali.
HJ
Leitað leiða til að ljúka
endurbótum á Logalandi
Félagsheimilið Logaland. Nýhyggingin er byggð ofan á anddyri hússinsfi-á 1968.
Ljásm. BHS
Á fundi byggðaráðs Borgar-
byggðar skömmu fyrir jól var tekið
fyrir bréf frá stjóm Ungmennafé-
lags Reykdæla þar sem félagið fer
þess á leit að fá fjárstuðning ffá
sveitarfélaginu til að ljúka fram-
kvæmdum við stækkun félagsheim-
ilisins Logalands. Húsið er að öllu
leyti í eigu UMFR og hefur svo
verið ffá fyrstu tíð. Elsti hluti þess
er tæplega 100 ára gamall. Síðar var
byggt við húsið árin 1928, 1945 og
1968. Fyrir um þremur áram síðan
var síðan byggt ofan á flatt þak nýj-
ustu álmu hússins um 240 fm.
bygging sem nú er ríflega fokheld.
Þar er fyrirhugað að bæta við sam-
komusal, eldhúsi, búningaaðstöðu
og fleiru sem styrkja mun t.d. leik-
listarstarfsemi í húsinu. Þegar ný-
byggingin kemst í notkun aukast
nýtingarmöguleikar hússins veru-
lega og fleiri ólíkar samkomur og
félagasamtök geta þá rúmast þar
samtímis.
Að sögn Þórvarar Emblu Guð-
mundsdóttur, formanns UMFR er
gert ráð fyrir að það kosti um 12
milljónir að ljúka framkvæmdum
við bygginguna og nú sé leitað ásjár
Borgarbyggðar um stuðning sem
nemur allt að helmingi þess kosto-
aðar. „Við höfum leitað margra
leiða til að fjármagna bygginguna
og það er ljóst að róðurinn verður
þungur þar sem rekstur félagsins og
hússins er einvörðungu borinn uppi
af áhuga- og sjálfboðaliðastarfi. Við
leitum því til fyrirtækja um stuðn-
ing, banka um hagstæða lánafyrir-
greiðslu og félagsmenn gera hvað
þeir geta til að afla tekna með ýms-
um samkomum og söfhunum með-
al „Vina Logalands." Stóri draumur
okkar er að geta tekið nýtt og end-
urbætt hús í notkun á 100 ára af-
mæli Ungmennafélags Reykdæla í
apríl árið 2008. Vonumst við þá til
að geta á sama tímapunkti tekið
nýtt og glæsilegt samkomu- og
leikhús í notkun en það ætti að vera
metoaður allra og meðal annars
sveitarfélagsins að geta boðið upp á
samkomur í myndarlegu félags-
heimili eins og Logaland vissulega
er,“ segir Þórvör Embla í samtali
við Skessuhorn.
MM
Skorradalshreppur o g Helgafells-
sveit með lægsta útsvar
íbúar í Skorradalshreppi og
Helgafellssveit greiða á þessu ári
lægsta útsvar sem lög leyfa eða
11,24%. Þetta kemur fram í til-
kynningu fjármálaráðuneytisins
um staðgreiðslu opinberra gjalda á
nýbyrjuðu ári. Sveitarfélög hafa
heimild til að ákvarða útsvar á bil-
inu 11,24% til 13,03%. Af 79
sveitarfélögum ætla 61 þeirra að
innheimta hámarksútsvar en 3
þeirra innheimta lágmarksútsvar.
Meðalálagning útsvars á næsta ári
verður 12,97%.
Af tíu sveitarfélögum á Vestur-
landi innheimta sex þeirra há-
marksútsvar; þ.e. Akraneskaup-
staður, Borgarbyggð, Grundar-
fjarðarbær, Stykkishólmsbær, Snæ-
fellsbær og Dalabyggð. Eyja- og
Miklaholtshreppur innheimtir
12,80% og Hvalfjarðarsveit inn-
heimtir 11,61%.
Ef álagning útsvars er sett í ann-
að tölulegt samhengi má nefna að
hjón með 5 milljóna króna tekjur
greiða rúmar 651 þúsund krónur í
útsvar þar sem það er hæst en 562
þúsund krónur þar sem það er
lægst. Munurinn er tæpar 90 þús-
und krónur á ári eða tæpar 7.500
krónur á mánuði.
HJ
hinn glæsilegasti og er ff ágangur til
fyrirmyndar. Að sögn þeirra feðga
Bárðar Guðmundssonar og Þor-
steins Bárðarsonar, eigenda Breiða-
víkur sem gerir Kristinn út, reynd-
ist bátorinn vel í prufusiglingunni
og var ganghraði bátsins um 22 sjó-
mílur og eru þeir feðgar mjög
ánægðir með hann.
Vélin er af gerðinn Caterpillar,
1050 hestöfl, ljósavél er af gerðinni
Koler og er hún 21 kw. Siglinga-
tæki eru af Simrad gerð og sá Mar-
eind í Grundarfirði um ísetoingu
tækjanna. Einnig er báturinn búinn
krapískerfi frá Kælingu. Línukerfi
er frá Beiti.
Að sögn Bárðar er báturinn
einnig útbúinn bógskrúfum að aft-
an og ffaman og er þetta fyrsti smá-
bátorinn sem er með þennann bún-
að. „Við prófun reyndust bógskrúf-
unar mjög vel og erum við einnig
með AIS kerfi, sem auðveldar okk-
ur af leggja línuna. Brú er vel búin
tækjum og góð aðstaða er fyrir
áhöfnina en það verða 4 í henni,“
segir Bárður. Báturinn verður geð-
ur út á línu og segir Þorsteinn
Bárðarson að þeir verða með land-
beitta línu. AF
Daginn fyrir gamlársdag kom
nýr og glæsilegur 15 tonna bátor,
Kristinn SH-712 til heimahafnar í
Olafsvík. Bátorinn er af gerðinni
Cleopatra 38, smíðaður hjá Trefj-
um í Hafnarfirði. Báturinn er hærri
en sambærilegir bátar sem Trefjar
smíða, er hann t.d. dýpri og hærri
en venjulegir bátar af þessari gerð
en það er gert til þess að auka
lestarrýmið og tekur báturinn 450
lítra kör í lest. Báturinn er allur