Skessuhorn - 03.01.2007, Side 15
^tttssvnu^i
MIÐVIKUDAGUR 3.JANÚAR 2007
15
Lögreglubíllinn í Búðar-
dal bilar tvisvar í mánuði
Á dögunum varð alvarleg bilun í
lögreglubflnum í Búðardal og
stendur hann því nú við bílaverk-
stæði þar til varahlutir berast. Ekki
væri þetta fréttnæmt nema vegna
þess að þetta er í 58. skiptið á síð-
ustu tveimur árum sem bifreiðin
bilar. Að jafnaði hefúr því bfllinn
verið á verkstæði tvisvar í mánuði.
Viðgerðir hafa tekið mislangan
tíma en ekki er óalgengt að þær
hafi tekið tvær vikur.
Bifreiðin, sem er af gerðinni
Isuzu Trooper árgerð 2000, kom
notuð til Búðardals fyrir nokkrum
árum og að sögn Jóhannesar Björg-
vinssonar varðstjóra var þá rætt um
að hún yrði þar til bráðabirgða.
Henni hefur nú verið ekið ríflega
272 þúsund kflómetra. Jóhannes
segir að biffeiðin hafi nánast ffá
upphafi verið gallagripur hinn
mesti og nefhir sem dæmi að í 33
skipti á undanförnum tveimur
árum hafi hún verið á verkstæði
vegna alvarlegra bilana. Ekki hefur
Jóhannes undir höndum tölur yfir
viðgerðarkosmað en telur augljóst
að hann sé gríðarlegur.
Jóhannes segist afar þreyttur á
þessu ástandi því umdæmið sé stórt
og því sé mjög mikilvægt að hægt
sé að treysta einu lögreglubiffeið
embættisins. Hann segir mjög
erfitt og hættulegt að að fara í for-
gangsakstur um slæma vegi á bif-
reið sem ekki sé hægt að treysta
fullkomlega. Slíkt sé ekki ásættan-
legt. Þegar lögreglubifreiðin hefúr
verið til viðgerðar hefur Jóhannes
off lagt embættinu til sinn eigin
fjölskyldubfl. Hann segir það mikið
neyðarbrauð sérstaklega vegna þess
að slflcir bflar séu ekki tryggðir til
forgangsaksturs.
Þessa dagana ekur Jóhannes á
gamalli lögreglubifreið úr Borgar-
nesi en lögregluumdæmið í Búðar-
dal var um áramótin fært undir lög-
reglustjórann í Borgarnesi. Jó-
hannes segist vonast til þess að ferli
áðurnefndrar Isuzu Trooper bif-
reiðar sem lögreglubifreiðar ljúki
sem allra fyrst og umdæminu verði
siimt með búnaði sem hæfi aðstæð-
um.
HJ/ Ijósm. BAE
Nokkur munur á
rekstrarkostnaði
leikskóla í Borgarbyggð
Nokkur mtmur er á rekstrar-
kostnaði á hvert barn í leikskólum
Borgarbyggðar. Þetta kemur ffam í
minnisblaði sem Ásthildur Magn-
úsdóttir fræðslustjóri Borgar-
byggðar lagði ffam á fúndi byggða-
ráðs Borgarbyggðar á dögimum
vegna rekstrarkostnaðar við rekstur
leikskólans Hraunborgar á Bifföst.
I minnisblaðinu kemur fram að ný
deild hafi verið tekin í notkun á
Hraunborg á þessu skólaári og ald-
ursmark barna hafi verið lækkað í
tólf mánaða aldur. Kostnaðarhækk-
un við þessa stækkun nemi um 35
milljónum króna.
Við samanburð á rekstrarkostn-
aði leikskólanna Hraunborgar og
Andabæjar á Hvanneyri kemur í
ljós að kostnaður á hvern 41 nem-
anda í Andabæ sé 1.156 þúsund
krónur en kostnaður við hvern 44
nemanda Andabæjar sé 1.220 þús-
und krónur. Skýringarnar telur
Ásthildur vera þær helstar að dval-
arstundir á Hraunborg séu mun
fleiri eða 393 á móti 309 í Andabæ
og þá sé forgangsgjald greitt með
flestum börnum á Hraunborg þ.e.
þau njóti flest um 40% afsláttar af
dvalargjaldi.
HJ
Sekt og fangelsi
fyrir ofbeldi
Héraðsdómur Vesturlands hefur
dæmt mann í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og annan
mann til greiðslu sektar fyrir hót-
anir í garð lögregluþjóna og einnig
að hafa sparkað í lögreglumann.
Lögregla var kölluð að veitinga-
staðnum Café Mörk á Akranesi þar
sem mönnunum hafði verið vísað
út af staðnum. Lögreglumenn
gerðu mönmmum grein fyrir því að
nærveru þeirra væri ekki óskað.
Þeir vildu hins vegar ekki halda á
brott og var annar þeirra mjög
ógnandi í garð lögreglu. Hann var
því færður í járn og fluttur á lög-
reglustöð. Þegar hann var fluttur
úr lögreglubfl í fangaklefa sparkaði
hann í fæmr lögreglumanna og
hótaði þeim lífláti. Hinn maðurinn
sem ákærður var hindraði lögreglu-
menn í störfum sínum á vettvangi
og kom síðar á lögreglustöðina og
sinnti ekki tilmælum um að hverfa
þaðan. Var hann því einnig hand-
tekinn og færður í fangaklefa.
Fyrir dómi þvertók annar hinna
ákærðu að hafa haff í hótunum og
einnig neitaði hann að hafa sparkað
í lögreglumenn. Með framburði
vitna þótti dómara sök hans sönn-
uð. Hinn játaði afdráttarlaust brot
sitt.
Eins og áður sagði var annar
hinna ákærðu dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
fellur sú refsing niður haldi hann
skilorð í þrjú ár. Hinn var dæmdur
til greiðslu 50 þúsund króna sektar
og verði hún ekki greidd innan
fjögurra vikna sætir hann fangelsi í
fjóra daga. HJ
Starfsmenn Akraneskaupstaðar
geti gengið í VLFA
Verkalýðsfélag Akraness (VLFA)
hefur óskað eftir því að starfsmönn-
um bæjarins verði heimilað að
ganga í félagið eftir að sameining
Starfsmannafélags Akraness og
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar varð að veruleika um ára-
mótin. Bæjarráð Akraness hefur
ffestað afgreiðslu málsins og óskað
eftir álitri lögffæðings á því.
I bréfi formanns VLFA til bæjar-
ráðs segir að samingar VLFA og
Starfsmannafélags Akraness við
bæjarfélagið séu nánast eins fyrir
þau störf er ófaglærðir starfsmenn
bæjarins starfa við. Þá segir að for-
maðurinn hafi verulegar áhyggjur
af því að með sameiningu áðtn-
nefndra félaga mtrni laun ófag-
lærðra standa í stað og í stunum til-
fellum lækka. Þá kemur einnig ffam
að samanburður sem félagið vann á
samningum Reykjavíkurborgar og
launanefúdar sveitarfélaga að æðstu
stjórnendur, millistjórnendur og
forstöðumenn „muni hækka um
tugi þúsunda á mánuði," eins og
segir orðrétt í bréfinu.
Því ítrekar VLFA þá ósk sína að
starfsmenn bæjarins muni hafa val
um hvaða stéttarfélagi þeir tilheyri
þegar sameiningin hefúr átt sér
stað. Þá óskar félagið einnig eftir
því að þegar auglýst eru störf á veg-
um bæjarins sé ekki einungis getið
um að laun séu greidd eftir kjara-
samningi Starfsmannafélags Akra-
ness heldur einnig bent á samning
VLFA við Launanefnd sveitarfé-
laga. Telur félagið að veruleg brota-
löm hafi verið á þessu þegar störf
hafa verið auglýst. HJ
Atvinnuleysi eykst
I síðustu viku voru 71 án atvinnu á atvinnu í landshlutanum. Konur án Vesmrlands voru í liðinni viku aug-
Vesturlandi og hefur atvinnuleysi atvinnu eru mun fleiri en karlar eða lýst laus m'u stöðugildi hjá fjórum
því auldst nokkuð ffá því í nóvem- 42 talsins en karlarnir eru 29 að atvinnurekendum á Vesturlandi.
ber en þá voru 47 að meðaltali án tölu. Á vef Svæðisvinnumiðlunar HJ
Tveir dreifbýlisfulltrúar
Ráðinn hefur verið annar dreifbýl-
isfulltrúi í Borgarbyggð, Þórvör
Embla Guðmundsdóttir í Björk.
Sigurjón Jóhannsson á Valbjamar-
völlum hefur fram að þessu verið
eini dreifbýlisfulltrúi Borgarbyggð-
ar. I sameiningammræðunum var
rætt um að þörf yrði fyrir annan
dreifbýlisfúlltrúa og hefur Þórvör
Embla Guðmundsdóttir verið ráð-
in sem dreifbýlisfulltrúi fyrir Borg-
arfjarðarsýslu, en Sigurjón verður
fyrir Mýrasýslu. Bæði em í 50%
stöðugildum. Þórvör Embla er
jafúffamt ritari landbúnaðarnefnd-
ar, en Sigurjón gegndi því starfi
áður. Hann sér hinsvegar alfarið
um eyðingu minka og refa í sveitar-
félaginu. Vakið hefur athygli að
staða dreifbýlisfulltrúa var ekki
auglýst. Að sögn Páls S Brynjars-
sonar, sveitarstjóra kemur það til af
því að Þórvör Embla var áður skrif-
stofumaður hjá Borgarfjarðarsveit.
Starfi hennar var breytt við samein-
inguna og henni var þá boðið þetta
starf, sem hún þáði. BGK
Fjárhagsáædun Snæfellsbæjar
samþykkt samhljóða
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam-
þykkti í gær með atkvæðum meiri-
og minnihluta bæjarstjórnar fjár-
hagsáætlun bæjarfélagins og stofn-
ana þess fyrir árið 2007. Samkvæmt
henni verður reksturinn neikvæður
um rúmar 35 milljónir króna.
Heildartekjur bæjarfélagsins og
stofúana þess era áætlaðar tæpar
1.178 milljónir króna. Þar af era
skatttekjur tæpar 487 milfjónir
króna, ffamlög jöfmmarsjóðs rúm-
ar 208 milljónir króna og aðrar
tekjur tæpar 483 milljónir króna.
Laun og launatengd gjöld era
stærsti einstaki kostnaðarliðurinn
eða rúmar 503 milljónir króna.
Annar rekstrarkostnaðar er áætlað-
ur tæpar 552 milljónir króna og af-
skriftir eru rúmar 62 milljónir
króna. Fjármagnskostnaðurinn
verður samkvæmt áætluninni rúm-
ar 95 milljónir króna. Reiknað er
með að handbært fé frá rekstri
verði tæpar 109 milljónir króna.
Samkvæmt fjárhagsáætluninni
verður rúmum 125 milljón-
um króna varið til fjárfestinga
á árinu 2007. Má þar nefna
að til hafnarframkvæmda
verðin varið um rúmtnn 92
milljónmn króna og er hlutur
hafiiarsjóðs um 38 milljónir
króna, til gatnagerðar verður
varið um 25 milljónum króna
og til byggingar hjúkranar-
heimilis við Dvalarheimilið
Jaðar verður varið 60 milljónum
króna og er hlutur bæjarsjóðs í
þeim ffamkvæmdum um 10 millj-
ónir króna.
Eins og áður sagði greiddu bæj-
arfulltrúar J-listans, sem situr í
minnihluta, fjárhagsáætluninni at-
kvæði. I bókun sem þeir lögðu ffam
á fundinum kemur fram að starfs-
og rekstrarumhverfi meðalstórra
og smærri sveitarfélaga hafi stöðugt
versnað síðastliðin ár og sveitarfé-
lög hafi aukið skuldir sínar svo
milljörðum skiptdr, „á meðan ríkis-
sjóður hefúr rétt sinn hlut að miklu
leiti á kosmað sveitarfélaga,“ segir í
bókun minnihlutans. „I ljósi þessa
ætlum við ekki að leita að söku-
dólgum heima í héraði, heldur
miklu ffekar að sameina kraftana í
bæjarstjórn Snæfellsbæjar fyrir því
að breyting verði á högum sveitar-
félaga við næstu Alþingiskosningar.
Við teljiun fjárhagsáætlunina fyrir
árið 2007 eins vel úr garði gerða og
hægt er miðað við aðstæður og
gleðjumst yfir því að margar af okk-
ar tillögum vora samþykktar," segir
orðrétt í niðurlagi bókunar minni-
hlutans. HJ
Sjálfstæðisflokkurinn tapar
miklu fylgi í NV-kjördæmi
Sjálfstæðisflokkurinn hefur tapað
miklu fylgi og Vinstri hreyfingin-
grænt framboð hefur aukið mikið
fylgi sitt á undanförnum vikum,
samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.
Könnunin var unnin af starfsfólki
Capacent Gallup dagana 28. nóv-
ember til 28. desember. Samkvæmt
könnuninni fengi Framsóknar-
flokkurinn nú 17% atkvæða en fékk
16% í könnun fyrir einum mánuði
síðan. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
28% atkvæða nú en fékk 35% at-
kvæða fyrir um mánuði síðan og
hefur því tapað miklu fylgi. Frjáls-
lyndi flokkurinn fengi 16% at-
kvæða og er í sókn því fyrir mánuði
síðan fékk flokkurinn 14% fylgi.
Samfylkingin fengi nú 15% at-
kvæða eða sama fylgi og í síðustu
könnun. Vinstri-grænir fengju nú
25% greiddra atkvæða og er í mik-
illi sókn því fyrir um mánuði síðan
fékk flokkurinn 20% greiddra at-
kvæða.
Fylgi Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi er það mesta
sem flokkurinn fær á landinu öllu
og sömu sögu er að segja af Frjáls-
lynda flokknum. Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu er það
minnsta á landinu og sömu sögu er
að segja af fylgi Samfylkingarinnar.
Aðeins í Norðausturkjördæmi er
fylgi Vinstri grænna meira, eða
27%.
Við síðustu Alþingiskosningar
hlaut Framsóknarflokkurinn 21,7%
greiddra atkvæða í Norðvesturkjör-
dæmi, Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
29,6% greiddra atkvæða, Frjáls-
lyndi flokkurinn hlaut 14,2%, Sam-
fylkingin 23,2% og Vinstri hreyf-
ingin-grænt framboð hlaut 10,6%.
HJ