Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2007, Side 17

Skessuhorn - 03.01.2007, Side 17
S2ESS1HSOEF3 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2007 17 Margt á döfinni í Reykhólahreppi í Reykhólahreppi hefur ýmislegt verið um að vera á árinu sem leið. Blaðamaður Skessuhoms kom sér í samband við sveitarstjórann, Oskar Steingrímsson og fékk hjá honum helsm tíðindi nýhðins árs. „Nýtt íþróttahús var teldð í notk- un á Reykhólum á árinu og fór vígsla þess fram 29. apríl sl. með hátíðar- dagskrá. Bætir það mannh'f og lífs- skilyrði í hreppnum og er almenn ánægja með þetta framtak,“ segir Óskar. Hann heldur áfram: „Hótel Bjarkalundur, sem er elsta sumar- hótel landsins, skipti um eigendur á árinu þegar Stekkjarlundur ehf keypti af Bjarkalundi ehf. Eigendur Stekkjarlundar em Ami Sigurpáls- son og Mikael Jóhann Traustason. Eigendur Bjarkalundar era Guð- mundur Ólafsson og Asta Sjöfn Kristjánsdóttir.“ Óskar segir endurbygging gam- alla húsa mikla í Flatey. Minjavemd standi fyrir endurbyggingu þriggja húsa; Eyjólfspakkhúss, Samkomu- hússins og Stórapakkhúss en þessi hús era öll í eigu Reykhólahrepps. Þegar hefur hluti húsanna verið endurbyggður og tekinn í notkun sem Hótel Flatey en það er í eigu Plássins ehf og Sæferða ehf. I sum- ar var þar rekin veitingastaður og hótel og á næsta ári bætist verulega við gistirýmið þegar Eyjólfspakkhús verður fullendurbyggt en við þetta muni þjónusta við ferðamenn í Flat- ey aukast og batna verulega. Fj arskiptamastur í Flatey „Búið er að sækja um leyfi tdl þess að reisa 40 metra ijarskiptamastur og tækjahús í Flatey sem Neyðarlín- an mun nota íyrir neyðarfjarskipti og einnig stendur til að mastrið verði notað fyrir GSM símaþjónustu.Við það stórbamar farsímasamband á svæðinu og mun dekka stærra svæði við norðanverð- an Breiðafjörð en margir sendar { landi.Við þetta ákvað stjórn Fjar- skiptasjóðs að hafa Flatey með í fyrsta útboði í uppbyggingu GSM sambands við þjóðvegi. Þetta verður til þess að GSM samband hér um slóðir bamar til muna fyrr en ella og mun t.d. ná til nærri því helmings leiðarinnar um Barðaströnd sem er GSM sambandslaust í dag“. Mikið byggt og íramkvæmt Á árinu sem er að líða hafa verið óvenjumiklar byggingaframkvæmdir í Reykhólahreppi. „Nú era í smíð- um þrjú einbýlishús og eitt parhús á Reykhólum eða fimm íbúðir. Þör- ungaverksmiðjan er að ljúka við stækkun verksmiðjuhússins og mtm viðbyggingin hýsa pökkunarbúnað sem keypmr var af Kísilgúrverk- smiðjunni við Mývam. Orkubú Vestfjarða er að ljúka við nýja dælu- stöð og einnig rofahús. Bændur hafa verið duglegir að byggja nýtt og stækka útihús. Stöðugt bætast við fleiri og fleiri sumarhús vítt um sveitina,“ bætir Óskar við. Andans maður heiðraðm- Reykhólahreppur hefur alið marga andans menn og eirrn þeirra var Jón Thoroddsen sýslumaður og skáld, (1818-1868). Hann skrifaði meðal annars bækumar Maður og kona og Piltur og stúlka og ortd hið gullfallega kvæði Hlíðin mín ffíða sem flestdr íslendingar kunna. Óskar segir að þann 16. september sl. hafi minnismerki um Jón verið afhjúpað í blíðskaparveðri á fæðingarstað hans, Reykhólum við Breiðafjörð, að viðstöddum fjölda gesta. ,Jón Thoroddsen skipar heiðurssess í ís- lenskri bókmenntasögu vegna skáld- sagna sinna, en á því sviði var hann brautryðjandi hérlendis. Minnis- varðinn er úr harðviði í mynd bóka og er það glæsilegt. Hönnuður er Finnur Amar Amarson. Listskreyt- ingasjóður og Lionsklúbbur Búðar- dals og Reykhólahrepps komu að fjármögnun verkefnisins.“ Bóndi sýknaður „Ibúi Reykhólahrepps var sýknað- ur fyrir Héraðsdómi Vestfjarða fyrir brot á lögum um vernd, ffiðun og veiðar á villtum fuglum og spendýr- um. Var honum gert að sök að hafa komið fyrir gasbyssu í Breiðafirði í mars 2005 í þeim tilgangi að fæla emi með hvellum úr byssunni ffá hreiðurstæði í hólma nokkrum og hindra þannig varp þeirra. Akærði neitaði allri sök og kvaðst þess full- viss að öm hefði aldrei orpið á um- ræddum stað. I hólmanum væri hins vegar setstaður arna, staður þar sem ernir sætu mikið á haustin og að vetrinum. Niðurstaða dómsins gladdi æðarbændur á svæðinu mjög,“ segir Óskar. Verulegar vegabætur Um samgöngumál segir Óskar íbúa Reykhólahrepps fagna því að lokið var við vegagerð á Svínadal sem þýði að nú sé hægt að aka á milli Reykhóla og Reykjavíkur á btrndnu slitlagi alla leið. „Vegalengdin er 230 km og tekur nú aðeins um 2 1/2 til 2 3/4 klst. að aka þessa leið.Einnig fagna íbúar hreppsins að búið sé að bjóða út vegagerð á Vestfjarðavegi nr. 60 í Kollafirði á kaflanum Skála- nes-Eyri. Skal því verki lokið fyrir 1. nóvember 2008. Síðan má nefna vegagerð um Arnkötludal. Fyrir liggur að sú ff amkvæmd verður boð- in út effir áramótin. Ætlunin er að ljúka framkvæmdinni haustið 2008. Þetta er mjög mikilsverð fram- kvæmd fyrir íbúa Reykhólahrepps og aðra Vestfirðinga.. Hún styttir leiðina um heila 40 kílómetra til Reykjavíkur fyrir mjög marga og er það samsvarandi styttingunni sem varð þegar Hvalfjarðargöngin vom tekin í notkun. Það skyggir á sam- göngumáhn að ennþá hefur ekki verið úrskurðað um fyrirhugað vegstæði á leiðinni Bjarkalundur - Eyri, en þar koma tveir kostir til greina, svokölluð D leið og B leið. Langflestir íbúar Reykhólahrepps og allir sveitarstjórnarmenn á Vest- fjörðum styðja leið B og það sama gerir Vegagerðin. D leiðin er yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls og er það brattur ijallvegur sem fer í 336 m y.s. B leiðin er fýrir Hallsteinsnes og þvert fyrir Djúpafjörð og Gufufjörð. B leiðin er vegtæknilega besti kost- urinn, mun öraggari og liggur öll um láglendi. Hér er um að ræða gríðarlega mikilvæga ffamkvæmd og bráðnauðsynlegt að hún liggi um láglendi en ekki um hálsana tvo sem nú era famir, Ódrjúgsháls og Hjall- háls. Bíða menn spenntir efrir úr- skurði umhverfisráðherra sem hefði átt að vera búinn að úrskurða fyrir löngu“. Heilsuhótel? „Atvinnumál hafa verið góð á ár- inu og er atvinnuleysi nánast óþekkt fýrirbrigði hér. Helsta vandamáfið í atvinnumálunum er skortur á starfs- fólki og skortur á húsnæði fýrir fólk sem vill flytja hingað í Reykhóla- hrepp. Sumir atvinnurekendur hafa leyst vandann með erlendu vinnu- afli. Það hefur gefist vel og mun þessi möguleiki örugglega verða meira notaður í ffamtíðinni ef á þarf að halda. Unnið er að hugmynd um heilsuhótel hér á Reykhólum og verður lokið við gerð viðskiptaáætl- unar fýrir það verkefrii á fýrrihluta næsta árs.Verslunarmál hafa verið í brennidepli á árinu, Kaupfélag Króksfjarðar lokaði verslun sinni í Króksfjarðarnesi sl. siunar, en Nes- verslun tók við rekstrinum til ára- móta en þeirri verslun var lokað þá. Aðili hefur sýnt því áhuga að taka verslunarhúsnæðið á leigu og reka þar verslun áffam“. Að lokum kemur Óskar inn á þær hugmyndir sem hafa vaknað um sæeyrnaeldi (skelfiskstegund) á Reykhólum sem gæti orðið vænleg- ur kostur í eflingu atvinnu í sveitar- félaginu. Aðstæður era taldar góðar þar sem jarðhiti er notaður við rækt- unina og nóg er af honum á Reyk- hólum. Um áffameldi á skelinni yrði að ræða en ekki klak. KH Frá Flatey. Þar verður m.a. komiöfyrir fjarskiptamastri sem tryggja mun betri GSM sendingar um allt sveitarfélagið. Björtframtíð ef rétt er haldið á málum 7^enninti^-~-, og geta sér til um hvað framtíðin muni bera í skauti sér. Þegar ég lít til baka og rifja upp 25 ára starf sem skólastjóri Grandaskóla sannfærist ég betur og betur um hversu myndarlegt og mannvænlegt ungt fólk við eigum í landinum. Unga fólkið hefur menntun, kjark og getu til að búa okkur betra samfélag í framtíðinni. Það mun tryggja áframhaldandi velferð í landinu ef okkur tekst að veita þessu unga fólki jöfn tækifæri til að þroska hæfileika sína. Eg hef ákveðið með ffamboði mínu til Al- þingis að leggja mitt af mörkum til að svo megi verða. Jákvæða umfjöllun um unga fólkið Það var ánægjulegt að fýlgjast með skörulegum málflutningi á „bæjarstjórnarfundi unga fólksins“ á Akranesi nú í byrjun desember. Það vakti sérstaka ánægju mína hve unga fólkið horfði mikið til fram- tíðar í sínum ræðum, hve margt það hafði til málanna að leggja og af hve mikilli ábyrgð og jákvæðni það lagði málin fram. Það er rétt sem einn „bæjarfrilltrúinn" sagði: „Unglingar era duglegir og skyn- samir“. Sjálfir höfðu þessir ung- lingar áhyggjur af neikvæðum mál- flutningi um þeirra málefni, töldu að of oft gleymdist að fjalla um allt það sem þeir væru að gera jákvætt, en dregið fram hvert og eitt skipti er einhver úr þeirra hópi misstigi sig. Unga fólkið benti á kostina við að búa á Akranesi, bentu á marga ánægjulega viðburði s.s. rokkverkefnið „Ungir og gamlir", sem þau töldu að hefði ekki fengið verðskuldaða athygli fjölmiðla. Þá var bent á „landsfræga“ skóla á Akranesi, söngleikina í Grunda- skóla og eina bestu íþróttaaðstöðu landsins. Unglingarnir bentu á mikilvægi forvarna og á ýmis verkefni sem hefðu forvarnargildi. En unga fólkið horfði ekki að- eins til málefna hér á Akranesi, því inn í umræðuna komu umhverfis- mál, eyðing ósonlagsins og ábyrgð hvers og eins varðandi flokkun sorps og endurvinnslu hvers konar. Eg nefni þetta hér því ég veit af kynnum mínum af grannskólum og framhaldsskólum víða um land- ið að unglingarnir á Akranesi era ekkert einsdæmi. Eg fékk t.d. tækifæri til að sjá sýningu grunn- skólans í Stykkishólmi á söng- leiknum Frelsi, stórt verkefni sem unglingarnir leystu vel af hendi undir öryggri stjórn kennara sinna. Slík verkefni eru árlegur viðburður grannskólans þar og var sérlega ánægjulegt að sjá hvernig ungling- arnir skiluðu hlutverkum sínum og þá ekki hvað síst hljómsveitin, sem minnir á hið öfluga tónlistarlíf sem blómstrar í hinum ýmsu sveitarfé- lögum. Það er okkar allra að draga fram það sem jákvætt er gert. Það er okkar að tryggja þátttöku þeirra í alls kyns íþrótta- og tómstunda- starfsemi. Það er einnig okkar verkefni að virkja unga fólkið í á- kvarðanatöku og tillögugerð í skólum, sveitarfélögum og samfé- laginu í heild. Búum ungu fólki samfélag jafhra tæki- færa og réttlætis Sjálfrir hef ég þó óttast þá sér- hyggju eða einstaklingshyggju sem hefur vaxið í samfélaginu. Við þurfum að ala unga fólkið upp í þeim hugsunarhætti að nýta hæfi- leika sína og menntun, viljann og kjarkinn til að takast á við ný verk- efni og grípa tækifærin sem bjóð- ast. En það er ekki síður mikilvægt að temja ungu fólki réttlætiskennd, skyldurækni og samábyrgð, sem era svo mikilvægar forsendur þess að við fátun lifað sem ein þjóð í landinu. Ein af meginástæðum þess að ég býð mig fram til Alþingis nú í vor er að ég vil berjast gegn því mis- rétti og þeim vaxandi ójöfnuði sem við búum við. Eg vil ekki sjá okk- ar mannvænlega unga fólk alast upp við ójöfn tækifæri og misskipt- ingu; skiptingu í ríka og fátæka, innfædda og innflytjendur, öryrkja og heilbrigða. Við þurfum að ala okkar unga fólk upp í þeim anda að við séum öll ólík en einstök. Við eigum öll að fá okkar tækifæri óháð búsetu, efriahag, útliti, kyni, þjóðerni og trúarbrögðum. Við þurfum líka að tryggja að við skil- um landinu okkar og auðlindum þess í hendur komandi kynslóða í jafrigóðu ástandi og við tókum við því. Það er verkefni okkar, sem viljum vera í stjórnmálum, að tryggja með lögum, reglum og málflumingi að jöfriuður verði sem best tryggður í landinu, að rétt sé gefið í samfélaginu. Ég vil óska Vestlendingum og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári, með ósk um að þetta ár megi færa okkur fram á veginn til réttlátara samfélags. Með ykkar smðningi mun ég leggja mig frarn um að snúa við af leið vaxandi ójöfnuðar. Guðbjartur Hannesson skólastjóri og efsti maóur á framboðslista Sam- fylkingarinnar í NV-kjördami.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.