Skessuhorn - 03.01.2007, Síða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 2007
^AtssunuB.
Tölvuþjónustan - SecurStore
fær vottun
Alexander Eirtksson, fi-amkvœmdasljóri Tölvuþjónustunnar - SecurStore ehf. (t.v) tekur
við ISO 27001 vottunarskjalinu úr hendi Ama H. Kristinssonar, framkvæmdastjóra
BSI á íslandi.
Verðlaun í umferðar-
getraun afhent
Tölvuþjónustan - SecurStore ehf.
hefur fengið alþjóðlega öryggisvott-
un á starfsemi sína á Islandi og í
Bretlandi samkvæmt staðlinum ISO
27001. Við innleiðingu staðalsins
var sérstök áhersla lögð á Secur-
Store afiritunarlausnina. Tölvuþjón-
ustan - SecurStore ehf., TÞS, var
stofnuð árið 1991 og hefur ffá þeim
tíma sérhæft sig í rekstri tölvu- og
upplýsingakerfa fyrirtækja. Alexand-
er Eiríksson, framkvæmdastjóri
TÞS segir vottunina ekki aðeins
staðfestingu memaðarfullrar stefhu
fýrirtækisins, heldur einnig nauð-
synlegan þátt í útrás þess til Bret-
lands. Fyrirtækið hóf þar starfsemi
fyrr á þessu ári og hefur þegar náð
fótfesm þar ytra með SecurStore af-
ritunarlausn sína. Á meðal viðskipta-
vina hér heima eru nú þegar mörg af
stærstu fyrirtækjum landsins.
„Vottunin tekur yfir alla starfsemi
fyrirtækisins, bæði hér á landi og í
Bretlandi. TÞS er með uppsetta
gagnamiðstöð í Lundúnum, þar sem
flestir erlendir viðskiptavinir kjósa
að afrita gögn sín. ISO 27001 er
staðall þar sem tekið á stjórnkerfi
upplýsingaöryggis. Þessi vottun er
mikilvæg fýrir viðskiptavini fýrir-
tækisins og hún er vitnisburður um
þá áherslu sem fýrirtækið leggur á
öryggi gagna viðskiptavina sinna,“
segir Alexander.
Kröfur um geymslu gagna, öryggi
og leynd þeirra hafa orðið stöðugt
strangari með hverju árinu. Secur-
Store affitunarlausnin gerir notend-
um hennar kleift að affita gögn sín
sjálfvirkt um netið, á hraðvirkan og
öruggan hátt. Oll gögn eru dulkóð-
uð og þjöppuð áður en þau eru send
til gagnamiðstöðva SecurStore á Is-
landi eða í Bretlandi. Þannig er hægt
að endurheimta öll gögn fýrirtækis á
einum stað, jafhvel þótt starfsstöðv-
ar séu víða um heim. Affitunar-
lausnin styður fjölda stýrikerfa, m.a.
Windows, Linux, Unix, Novell,
As/400 og Macintosh.
BSI á Islandi annaðist votmnina.
Ami H. Kristinsson, framkvæmda-
stjóri BSI, segir auknar kröfur gerð-
ar til fýrirtækja sem annast affitun-
arþjónustu, um að öryggi staffænna
gagna sé tryggt og vottað af þriðja
aðila. „I ratm felur öryggisvottunin í
sér viðtukenningu á því að viðkom-
andi fýrirtæki sé með virkt áhættu-
mat og uppfýlli ströngustu kröfur
um öryggi,“ segir Arni. BSI er
skammstöfun á bresku staðlastofn-
uninni, Britdsh Standards Institute.
„TÞS var eitt af fýrstu fyrirtækj-
unum á Islandi til að hljóta vottun
samkvæmt ISO 27001,“ segir Jónas
S. Sverrisson, en hann og Ólafur R.
Rafnsson hjá Capacent sáu um ráð-
gjöf við innleiðingu staðalsins.
„Innleiðingin hjá TÞS tókst í alla
staði mjög vel og tók stuttan tíma.
Starfsfólk fýrirtækisins var tilbúið að
tileinka sér nýja og bætta starfshætti,
sem tryggja meiri gæði og áreiðan-
leika í allri þjónustu. Vottunin á eff-
ir að auðvelda TÞS markaðssókn
sína bæði á Islandi og í útlöndum,“
segir Jónas.
MM
Skömmu fýrir jól var dregið úr
innsendum úrlausnum í umferðar-
getraun grunnskólabarna á Akra-
nesi. Er hér um að ræða árvissan
viðburð sem Umferðarstofa,
grunnskólarnir og lögregla standa í
sameiningu að. Að þessu sinni bár-
ust 309 úrlausnir og voru 55 réttar
lausnir dregnar út. Lögreglan dró
úr réttum lausnum og kom verð-
launum til vinningshafa en fýrir-
tæki í bæjarfélaginu styrktu get-
raunina með því að leggja ffam fé
til verðlaunakaupa.
A meðfylgjandi myndum eru
annarsvegar Jónas Ottósson, Sig-
urður Halldórsson og Arnar Geir
Magnússon að fara yfir lausnir sem
bárust og svo hinsvegar Sigurður
Halldórsson að afhenda Hörpu
Rós Daníelsdóttur verðlaun.
KH
Samstarfssamningum Akraness
og Hvalfj arðarsveitar sagt upp
Bæjarráð Akraness ákvað í síðustu
viku að fela bæjarstjóra að segja upp
samstarfssamningum við Hvalfjarð-
arsveit og óska eftir viðræðum við
sveitarfélagið um gerð nýrra samn-
inga. Fyrri hluta þessa árs náðu full-
trúar Akraneskaupstaðar og fjögurra
sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar,
sem nú heitir Hvalfjarðarsveit, sam-
komulagi um samstarfssamninga um
ýmsa þætti í rekstri sveitarfélaganna.
Talsvert var tekist á um samningana
í bæjarstjóm Akraness og lýstu full-
trúar þáverandi minnihluta bæjar-
stjórnar þeirri skoðun sinni að rétt
væri að ffamlengja fýrri samninga
þar sem stutt væri til sveitarstjóma-
kosninga. Ekki var á það fallist og
vom samningamir undirritaðir 12.
maí.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sem þá vom í minnihluta bæjar-
stjómar Akraness skipa nú meiri-
hlutann ásamt bæjarfulltrúa Frjáls-
lynda flokksins. Á fundi bæjarráðs í
morgun var bókað að samkvæmt
viljayfirlýsingu sem gerð var sam-
hliða undirritun samninga hafi verið
gert ráð fýrir viðræðtun að afloknum
kosningum um nánara og víðtækara
samstarf í ýmsum málum. „Bæjarráð
telur eðlilegt að samhhða þeim við-
ræðum verði samningar á milli sveit-
arfélaganna endurskoðaðir hvað
varðar kosmaðarskiptingu og önnur
ákvæði samninganna, sér í lagi vegna
mikillar uppbyggingar íþróttamann-
virkja og tónlistarhúsnæðis," segir
orðrétt í bókuninni.
Því samþykkti bæjarráð að fela
bæjarstjóra að segja upp umræddum
samningum í samræmi við uppsagn-
arákvæði og óska eftir viðræðum um
gerð nýrra samninga. Jafnffamt var
bæjarstjóra og bæjarritara falið að
leita samninga við Viðskiptaþjón-
usm Akraness um úttekt á kostnað-
arskiptingu samninganna.
Uppsögnin veldur von-
brigðum
Hallffeður Vilhjálmsson oddviti
Hvalfjarðarsveitar segir ákvörðun
bæjarráðs Akraness um uppsögn á
samstarfssamningum sveitarfélag-
anna valda sér vonbrigðum, sérstak-
lega vegna þeirrar miklu vinnu sem
hann segir hafa verið lagða í samn-
ingagerðina fýrr á þessu ári. Harrn
segir uppsögrúna þó ekki hafa kom-
ið sér á óvart því fulltrúar núverandi
meirihluta í bæjarstjórn Akraness
hafi við samningagerðina í vor lýst
nokkurri andstöðu við samningana.
Hallff eður segir það sitt mat að sam-
starfssamningarnir hafi verið hag-
kvæmir báðum sveitarfélögunum og
því telji hann það fýrsta kost í stöð-
unni sem nú er upp komin að samn-
ingar við Akraneskaupstað verði
endumýjaðir. Hvaða forsendur bæj-
arstjóm Akraness gefi sér við kom-
andi samningagerð verði hins vegar
að koma í ljós. Þá nefhir hann að
undanfarið hafi komið fram vilji
sveitarfélaga á svæðinu til aukins
samstarfs og nefnir í því sambandi
Borgarbyggð.
Hallfreður segir rétt Akranes-
kaupstaðar til uppsagnanna skýran
en viðurkennir að óþægilegt sé að
allir samningarnir skuli settir undir
sama hatt þar með talin öryggismál
eins og brunavarnir.
Uppsögnin beinist að
ljárhagslegnm atriðum
Gísh S. Einarsson bæjarstjóri á
Akranesi segir uppsögnina eingöngu
koma til af fjárhagslegum ástæðum
því núverandi meirihluti bæjar-
stjórnar telji kostnaðarskiptingu
sveitarfélaganna þurfa að breytast. I
því sambandi bendir hann á mikla og
kosmaðarsama uppbyggingu
íþróttamannvirkja og tónhstarhús-
næðis á Akranesi sem íbúar Hval-
fjarðarsveitar nýti samkvæmt sam-
starfssamningunum. „Samstarf
þessara sveitarfélaga hefur um margt
verið með miklum ágætum og það er
síður en svo vilji til þess að minnka
þau samskipti. Þvert á móti viljum
við auka þau enn ffekar og þau mál
verða skoðuð í komandi viðræðum“
segir Gísli.
Aðspurður hvort ekki hefði verið
eðlilegra að reyna að ná samningum
án uppsagnar segir Gísli að engin
knýjandi þörf hafi
verið á uppsögn.
Bæjarráð hefði hins
vegar talið eðlilegra
og hreinskiptara að
segja samningunum
upp með þeim sex
mánaða uppsagnar-
ffesti sem um getur.
Slíkt tryggi skilvirk-
ari vinnubrögð við
samningagerð að
sínu mati.
Eins og áður kom
fram hefur Við-
skiptaþjónustu
Akraness verið falið að gera úttekt á
kostnaðarskiptingu samninganna.
Spurður hvort ekki hefði verið eðli-
legra að slík úttekt færi fram áður en
til uppsagnar kom segir Gísli svo
ekki vera. „Með aðkomu Viðskipta-
þjónustunnar sem óháðs aðila vild-
um við tryggja að sem bestar upplýs-
ingar væru fýrir hendi þegar til
samningagerðar kemur,“ segir Gísli
að lokum.
Uppsögnin rýrir álit á
Akraneskaupstað
Sveinn Kristinsson fulltrúi minni-
hluta bæjarstjórnar í bæjarráði Akra-
ness segir ákvörðun bæjarráðs um
uppsögn á samstarfssamningum við
Hvalfjarðarsveit með öhu tilefnis-
lausa því engin reynsla sé komin á
samningana sem tmdirritaðir voru í
vor. Hann segir að mikil vinna hafi
verið lögð í samningagerðina og
niðurstaðan hafi virst ásættanleg fýr-
ir báða aðila en þannig eigi samning-
ar á milli góðra granna að vera að
sögn Sveins sem sat í meirihluta bæj-
arstjómar Akraness á þeim tíma sem
samningamir vom gerðir.
„Nú hefur meirihlutinn hins veg-
ar sagt upp öllum samningum við
Hvalfjarðarsveit og hyggst með því
knýja ffam aðrar niðurstöður. Meiri-
hlutinn ákvað að beita valdi eins og
honum er svo tamt og sýndi ná-
grönnum okkar mikla óvirðingu
með því að kaha sveitarstjórann og
oddvitann á teppið hálffíma fýrir
bæjarráðsfund tdl að tilkynna þeim
þetta. Þetta er gott dæmi um „opnu
stjómsýsluna," þar sem ákvarðanir
era tilkynntar áður en þær era tekn-
ar í bæjarráði,“ segir hann og bætir
við að fjótfærni og hugsunarleysi
einkenni málið af hálfu meirihlut-
ans. Sveinn telur að nægur tími hafi
verið til viðræðna því samkvæmt
ákvæðum samninganna sé uppsagn-
arffestur þeirra sex mánuðir núðað
við áramót og því séu þeir ekki laus-
ir fyrr en um áramót 2007/2008.
Uppsögn nú hafi því sama ghdi og
uppsögn 30. júm' á næsta ári. „Sú
staðreynd staðfestir að þarna var
hlaupið af stað, hrapað að öllu og
málum klúðrað. Þetta er vond
stjómsýsla sem rýrir álit manna á
Akraneskaupstað sem traustum við-
semanda,“ segir Sveinn að lokum.
«7