Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2007, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 03.01.2007, Blaðsíða 23
3HSSIÍ1í©bki MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2007 23 Fjárskortur harnlar því að skógar- bændur nái settum markmiðum í fréttabréfi Félags skógarbænda á Vesturlandi sem kom út nýlega er m.a. gerð grein fyrir árangri í plöntun skógarplanta hér í lands- hlutanum á nýliðnu ári. Þar kemur fram að alls voru gróðursettar á liðnu ári 820.000 plöntur og stildingar, 593.000 um „vorið“, þ.e. í maí-júlí og 227.000 plöntur í ágúst-október í haustgróðursetn- ingu. Ovenjuhátt hlutfall heildar- gróðursetningar var að þessu sinni um haustið. Stafar það af því að vorið var með eindæmum kalt enda frost flestar nætur í maí. Júní var ill- viðrasamur, kaldur og votur og vannst gróðursetningin illa af þeim sökum. Jafhffamt höfðu kuldamir í ágúst og september á sl. ári orðið til þess að hluti þeirra plantna sem ffamleiddar vora fyrir skógarbænd- ur á Vesturlandi urðu síðbúnar. T.d. varð megnið af lerki ekki gróður- semingarhæff fyrr en í ágúst. -Vr ■ sÆm jíímátm PS ‘i i L m.p Ný gróðursetningarvél í eigu Einars í Söíulsholti ogAuðuns á Rauðkollsstöðum reynd á Söðulsholti i sumar. Guðmundur Sigurðsson starfsmaður Vesturlandsskóga situr hér við vélina. Afföll á uppeldis- stöðvum plantna Þótt illa hafi viðrað til vinnu við gróðursetningu var jafhan nægur raki í jörðu. Því má gera ráð fyrir, segir í fréttabréfmu, að afföll plantna sem gróðursettar voru fyrripart sumars hafi orðið lítil. Síðsumars- og haustgróðursetning gekk hins vegar afar vel. Þótt aldrei hafi verið gróðursett meira á starfssvæði Vesturlands- skóga en þetta árið, hefði mátt koma mun fleiri plöntum í jörðu. Til stóð að gróðursetja tæplega eina milljón plantna þetta árið. Vegna affalla í gróðrarstöðvum varð niðtu-staðan nær 20% minni gróðursetning en til stóð. „En segja má, að vandræðin í gróðrarstöðv- um hafi komið sér vel fyrir Vestur- landsskóga að einu leyti: Fjárveit- ingar fyrir árið 2006 urðu mun minni en vonast hafði verið til. Því verður væntanlega farið yfir fjár- lagaheimildir á árinu. Má nærri geta, að hefðu allar pantaðar plönt- tn- skilað sér, hefði fjárhagsleg yfir- keyrsla orðið veruleg,“ segir í bréf- inu. Margir á biðlista Á öðrum stað í fréttabréfinu skrifar Sigvaldi Ásgeirsson, ffam- kvæmdastjóri Vesturlandsskóga og fjallar m.a. um að fjárskortur heffi eðlilega fjölgun í röðum skógar- bænda. Gefum Sigvalda orðið: „Sem stendur eru 42 jarðir á biðlista hjá Vesturlandsskógum. Að vísu er það aðeins á 17 þeirra sem menn eru tilbúnir til að hefja fram- kvæmdir strax og Vesturlandsskóg- ar geta gefið þeim grænt ljós. En þá er líka þess að geta að sökum fjár- skorts hefur engin áhersla verið á útbreiðslustarfsemi af hálfu Vestur- landsskóga. Tel ég einsýnt, að mið- að við núverandi fjölda skógarjarða á Vesmrlandi gætum við gróðursett árlega hálfu fleiri plöntur í lands- hlutanum en nú er gert. Jafnframt væri hægt með útbreiðslustarfi að búa svo um hnútana að innan þriggja ára væri hægt að tvöfalda ffamkvæmdir frá því sem nú er. Mér sýnist því, að Alþingi og ríkis- stjórn þurfi að taka sig saman í and- htinu og veita því fé til LUV, sem þörf er á, svo standa megi við mark- miðið um að klæða 5% láglendis skógi á 40 árum. Til að það mark- mið geti náðst, þurfa fjárveitingar til Vesturlandsskóga og annarra síðbúinna landshlutaverkefna í skógrækt, s.s. Skjólskóga á Vest- fjörðum, Norðurlandsskóga og Austurlandsskóga að gera gott bet- ur en tvöfaldast á næstu 5 árum. Einnig þarf verulega aukningu til Suðurlandsskóga. Héraðsskógar munu hins vegar nokkurn veginn ná að standa við þau markmið, sem þeim voru sett í lögum, þótt fjár- veitingar geri ekki betur en að halda í við verðbólguna næstu ára- ■ jpSg Styrktarátak Sparisjóðsins sldlaði 21,4 milljónum tíl geðheilbrigðismála 21,4 milljónir króna söfnuðust í styrktarátaki Sparisjóðsins fyrir átta félagasamtök til verkefna á sviði uppbyggingu, ffæðslu og þróunar í geðheilbrigðismálum. Styrktar- átakinu lauk á aðfangadag jóla en styrkirnir voru afhentir forsvars- mönnum félaganna fyrir skömmu. Til að taka þátt í átakinu þurftu við- skiptavinir Sparisjóðsins ekki að kosta neinu til, heldur aðeins að velja eitt af verkefnunum átta og gaf Sparisjóðurinn jafnharðan þús- vmd krónur til þess verkefnis. Við- skiptavinir voru þó hvattir til að bæta við viðbótarframlagi, en einnig var opnaður söfnunarsími svo allir landsmenn gætu tekið þátt. Styrkirnir skiptust samkvæmt vilja viðskiptavina og annarra þáttakenda og kom því ekki ná- kvæmlega sama upphæðin í hlut hvers félags. Hæstan styrk hlaut Geðhjálp 4,8 milljónir króna sem verður varið til eflingar og upp- byggingar félagsins á landsbyggð- inni með stofnun sjö nýrra deilda. Að meðaltali hlaut hvert félag ríf- lega 2,5 milljónir í styrk. Styrkþeg- ar voru ADHD samtökin, Forma, Geðhjálp, Hugarafl, Klúbburinn Geysir, Ný leið, Rauði krossinn og Spegillinn. Sparisjóðirnir hafa á undanföm- um árum stutt vel við ýmis málefni í heimabyggð. I ár hafa þeir varið um 200 milljónum króna til styrkt- ar íþrótta-, líknar- og menningar- málum. MM Misjafiit hátíðagengi í körfimni Skallagrímur tapaði sínum fyrsta leik í Iceland Express deildinni, í langan tíma þegar liðið mætti IR í Seljaskóla 29. desember síðastlið- inn. Liðið hefur ekki tapað leik síð- an spilað var gegn Njarðvík í annarri umferð og situr nú í fjórða sæti deildarinnar. Skallagrímur leiddi ffaman af og var yfir í hálf- leik. Eftir leikhlé gekk Sköllum ekld sem skildi, IR-ingar gengu á lagið og leikurinn fór 95-82. I liði Skallagríms áttu Jovan Zadravevsld og Darrel Flake góðan leik og Hreggviður Magnússon og Svein- bjöm Claessen í liði IR-inga ásamt Steinari Arasyni sem hitti vel úr þriggja stiga skotum sínum. Snæfell áfram í forystu Snæfell sigraði Keflavík 80-67 í hörku spennandi leik 30. desember í Fjárhúsinu, í Stykkishólmi. Snæ- fellingar verma nú toppsætið ásamt KR og Njarðvík. Leikurinn fór vel af stað og heimamenn voru sterkari í fyrstu tveimur leikhlutunum. Sama gilti um þriðja leikhluta en í þeim fjórða áttu Snæfellingar í basli en tókst samt að landa sigri og úr- slitin urðu 80-67. I liði heima- manna stóð fyrirliðinn Hlynur Bæringsson sig afar vel svo og Justin Shouse. Hjá Keflvíkingum var Gunnar Einarsson á skotskón- um í fyrri hálfleik en í síðari hálf- leik var Magnús Gunnarsson at- kvæðamestur. BGK Yngri landsliðin í körfii undirbúa komandi átök Landsliðsþjálfarar yngri landsliða Islands í körfuknattleik hafa valið æfingahópa til undirbúnings Norð- urlandamóti yngri landsliða sem fram fer í maí á næsta ári. Æfingar hófust nú milli jóla og nýárs. Körfuknattleiksliðin sigursælu á Vesturlandi eiga að sjálfsögðu sína fulltrúa í æfingahópunum. Benedikt Guðmundsson þjálfari landsliðs í körfuknattleik skipað leikmönnum undir sextán ára aldri valdi í sinn hóp Egil Egilsson leik- mann Snæfells í Stykkishólmi og Sigurð Þórarinsson og Trausta Ei- ríksson leikmenn Skallagríms í Borgamesi. Þá valdi Einar Ami Jóhannsson þjálfari landsliðs skipað leikmönn- um undir 18 ára aldri Atla Rafn Hreinsson leikmann Snæfells í sinn hóp. Loks valdi Ágúst Björgvinsson þjálfari landsliðs kvenna undir 18 ára aldri Guxmhildi Gunnarsdóttir leikmann Snæfells í sinn hóp. HJ SkallagTÍmur mætir IR í bikamum Lið Skallagríms í Borgarnesi mætir liði IR í átta liða úrslitum bikarkeppni Körfuknattleikssam- bands Islands í karlaflokki. Leikur- irm fer fram í Reykjavík 7. janúar. Þessi lið hafa átt mjög misjöfnu gengi að fagna í vetur. Skallagríms- menn eru sem kunnugt er á toppi úrvalsdeildarinnar með 16 stig en lið IR er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig. Liðin mætmst einmitt í síðasta leik sínum í úrvalsdeildinni þann 29. desember sl. í Reykjavík. I átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna verða stúlkurnar í Snæfelli í eldlínunni og mæta þar liði Ham- ars og fer leikurinn ffarn í Stykkis- hólmi 7. janúar. Lið Snæfells sló út lið KR í 1. umferð bikarkeppninn- ar með 63-56. Lið Hamars er sem stendur í fimmta sæti úrvalsdeildar kvenna með tvö stig en lið Snæfells er í fimmta sæti 2. deildar með átta stig. HJ lceland-Express deildin í körfubolta Skallagrímur- Keflavík Laugardaginn 6. jan. kl. 16:00 í íþróttamiðstöðinni Borgarnesi ALLIRÁ VÖLLINN!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.