Fréttablaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 12
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Lilju Sigurðardóttur frá Hrísey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir umönnun og hlýju í hennar og okkar garð. Sigurður Sigmannsson Henný Pétursdóttir Hanna Sigmannsdóttir Jakob Þorsteinsson Margrét Sigmannsdóttir Guðmundur Skarphéðinsson Tryggvi Sigmannsson Gísli Sigmannsson börn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn og fjölskyldur. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristrúnar Aðalbjargar Guðjónsdóttur frá Gröf, Grenivík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk dvalarheimilisins Grenilundar, Grenivík, LSH við Hringbraut og Hafblikssystur fá þakkir fyrir hjálp og stuðning. Guðjón Indriðason Sigríður Indriðadóttir og fjölskyldur. Móðir mín, Kolbrún Þorláksdóttir frá Skálum á Langanesi, sem lést þann 27. ágúst síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 13. september kl. 13.00. Einar Þór Rafnsson Ástkær faðir okkar og bróðir, Ómar Ármannsson sérkennari, áður til heimilis að Hólalandi 12, Stöðvarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju laugardaginn 28. september klukkan 14.00. Freyja Yeatman Ómarsdóttir Sunnefa Yeatman Ómarsdóttir og systkini hins látna. Faðir minn og bróðir, Jón Sveinsson lést á hjúkrunarheimilinu Fellsenda, föstudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 12. september kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Fellsenda, kt. 520169-6019, banki 0312-26-839. Halldór Páll Jónsson, Ásta Svanhvít Sindradóttir, Eiríkur Sveinsson Elskulegur faðir minn, afi og langafi, Þorkell Zakariasson Brandagili, Hrútafirði, lést á sjúkrahúsinu Hvammstanga 26. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinst látna. Sigurður Þorkelsson Irena Barinova Jóhanna Íris Sigurðardóttir Hinrik Frank Pétursson Patrik Óli Pétursson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Símon Ólason lögfræðingur, Bugðulæk 9, Reykjavík, varð bráðkvaddur á Krít föstudaginn 23. ágúst 2019. Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 12. september kl. 15.00. Þorbjörg Jónsdóttir Anna Karen Símonardóttir Serena Björg Karenardóttir Kristinn Nikulás María Del Mar Minuesa Anna Guðrún Edvardsdóttir Kristján Arnarson Ragnar Edvardsson Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir og fjölskyldur. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Guðmundar Snorra Ingimarssonar Innilegar þakkir fær starfsfólk blóðlækningadeildar 11 G á Landspítala fyrir góða umönnun. Kolbrún Finnsdóttir Áslaug Snorradóttir Ingimar Guðmundsson Arna Björk Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Magnús Magnússon fv. verkstjóri íþróttavalla Reykjavíkurborgar, lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn 20. ágúst í faðmi fjölskyldunnar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til Fjölnis Elvarssonar læknis og hjúkrunarfólks á skilunardeild Landspítalans. Kristrún Bjarney Hálfdanardóttir Þórdís Jónsdóttir Ólafur Helgi Kjartansson Jón Magnús Jónsson Gyða Viðarsdóttir Sigríður Jóna Jónsdóttir Magnús Ásgeirsson Tómas Huldar Jónsson Guðlaug Birna Kristmannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hörður var mikill lista-maður, hann var afar fjölhæfur en aldrei að trana sér fram,“ segir Margrét Guðna-dóttir þar sem hún er að hengja upp verk látins vinar síns, Harðar Haraldssonar kennara. Hann dó árið 2010 en hefði orðið níræður á morgun, 11. september. Af því tilefni verður sýning á myndverkum hans opnuð í Herberginu á Vesturgötu 4, milli klukkan 17 og 19. Hann var kennari í viðskipta-og hagfræði á Bif- röst í 36 ár og teiknaði skopmyndir af nemendum skólans í árbók þerra Ecce homo. Þær eru til sýnis og líka teikni- myndaseríur af Trölla sem hann gerði fyrir sjónvarpið. Þá var Hörður margfaldur Íslands­ meistari í spretthlaupum og Ólympíu­ fari 1952. Einnig  liðtækur í tónlist, lærði  á gítar hjá Oddgeiri Kristjáns­ syni og spilaði sér og öðrum til ánægju alla tíð, að sögn Margrétar. „Þó hann væri kominn með Alzheimer og gæti ekki tjáð sig spilaði hann fallega,  þar hafði hann engu gleymt.“ gun@frettabladid.is Hann var afar fjölhæfur  Yfirlitssýning á verkum Harðar Haraldssonar, kennara á Bifröst og frjálsíþróttamanns, verður opnuð á morgun í Herberginu, sýningarsal Kirsuberjatrésins á Vesturgötu 4. Margrét heiðrar minningu Harðar með því að opna sýningu með verkum hans daginn sem hann hefði orðið níræður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 0 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B B -A D A 4 2 3 B B -A C 6 8 2 3 B B -A B 2 C 2 3 B B -A 9 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.