Fréttablaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 28
Meðlimir banda-r í s k u k v i k-m y n d a a k a -demíunnar velja eins og frægt er orðið þá lista-
menn og verk sem fá tilnefningar
til Óskarsverðlaunanna ár hvert.
Á hverju ári er nýjum meðlimum
boðin aðild að akademíunni og er
fjölmiðlum tilkynnt um þá sem
hlotið hafa þann heiður. Aðild renn-
ur svo aldrei út, jafnvel þó að frægð-
arsól listamannsins kunni að dala
síðar meir. Akademíuaðild er skipt
í 17 f lokka, eftir því á hvaða sviði
viðkomandi starfar. Undanfarin ár
hefur akademían legið undir ámæli
fyrir að meðlimir hennar, sem eru
hátt í sjö þúsund talsins, séu full
einsleitur hópur. Mikill meirihluti
hennar er hvítur á hörund, karlkyns
Heba Þórisdóttir hefur starfað í
Hollywood í fjölmörg ár og m.a.
séð um förðunina í kvikmyndunum
Bridesmaids, Spiderman, The Hate-
ful Eight og Django Unchained.
Það vakti athygli
á dögunum að
tónskáldinu Hildi
Guðnadóttur var
boðið sæti í banda-
rísku kvikmynda-
akademíunni. Hún
er þó ekki fyrsti
Íslendingurinn sem
fær slíkt kostaboð
heldur sá fimmti.
Íslendingarnir
í akademíunni
og yfir fimmtugu. Frá árinu 2016
hafa verið stigin markviss skref til
að jafna þennan hlut þar sem fleiri
konum og hörundsdökkum hefur
verið boðin aðild.
32 prósent konur
Nú þegar 842 nýjum einstaklingum
var boðin aðild að akademíunni,
þar á meðal Hildi okkar, hækkaði
hlutfall kvenna upp í 32 prósent frá
25 prósentum árið 2015. Forsvars-
menn akademíunnar virðast hafa
tekið gagnrýni undanfarinna ára
alvarlega og var hlutfall kynjanna
jafnt á meðal þeirra 842 sem nú
fengu boð um aðild.
Fimmta Íslendingnum boðið
Ljóst er að það er mikill heiður að
vera boðin aðild að akademíunni
en á undan Hildi hefur, eins og fyrr
segir, fjórum Íslendingum verið
boðin aðild um leið og hróður
íslenskra listamanna virðist fara
vaxandi síðustu ár. Ísland er komið
á kortið. Árið 2015 urðu þau Fríða
S. Aradóttir förðunarfræðingur og
Jóhann heitinn Jóhannsson tón-
skáld, meðlimir akademíunnar.
Árið eftir, eða 2016 fékk Heba
Þórisdóttir förðunarmeistari svo
boð og á síðasta ári bættist Elísabet
Ronaldsdóttir kvikmyndaklippari í
hópinn. Hildur er því fimmti Íslend-
ingurinn til að hljóta þennan heiður
en allir þessir listamenn hafa getið
sér gott orð ytra og unnið að stórum
kvikmyndum við góðan orðstír um
árabil. Óskarsverðlaunaathöfnin
verður næst haldin þann 9. febrúar
2020 og þangað til þarf okkar fólk
aldeilis að poppa og henda sér
á sófann!
bjork@frettabladid.is
Jóhann Jóhannsson var einn okkar virtustu tónlistar-
höfunda og átti til að mynda heiðurinn af tónlistinni
í kvikmyndunum Arrival, Sicario og The Theory
of Everything. Jóhann lést aðeins 48 ára gamall í
upphafi síðasta árs. NORDICPHOTOS/GETTY
Elísabet Ronaldsdóttir kvikmyndaklippari
hefur svo sannarlega getið sér gott orð á sínu
sviði og klippt stórmyndir á við John Wick
með Keanu Reeves í aðalhlutverki, Contra-
band og Deadpool 2. NORDIC PHOTOS/GETTY
Fríða S. Aradóttir hefur um árabil
starfað við stórmyndir þar sem
hún hefur bæði komið að hári
leikara og förðun. Kvikmyndir
sem hún hefur starfað að eru
allt frá Dirty Dancing og Forrest
Gump að Ocean’s Thirtenn og
sjónvarpsþáttaröðinni Big Little
Lies. NORDICPHOTOS/GETTY
Hildur Guðnadóttir var nýverið til-
nefnd til Emmy verðlaunanna fyrir
tón listina í þáttaröðinni Chernobyl
sem vakið hefur heimsathygli en áður
hafði hún til að mynda unnið að tón-
list með Jóhanni Jóhannssyni, m.a
að Sicario kvikmyndunum tveimur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR GÍSLASON
1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
1
0
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
B
-A
3
C
4
2
3
B
B
-A
2
8
8
2
3
B
B
-A
1
4
C
2
3
B
B
-A
0
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
9
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K