Fréttablaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 10.09.2019, Blaðsíða 24
FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 A F S L ÁT T U R 25% KO M D U N Ú N A ! T E M P U R-D A G A R Nýjar gerðir og fjölbreytt úrval heilsukodda TEMPUR® Hybrid Hönnuð fyrir sneggra viðbragð TEMPUR® Original Hönnuð fyrir meiri stuðning TEMPUR® Cloud Hönnuð fyrir meiri mýkt ALLT ÞAÐ NÝJASTA FRÁ TEMPUR ... TEMPUR-DAGAR ... MEÐ 25% AFSL ÆT TI Í BETRA BAKI AÐ SOFA ER EIT T AÐ HVÍL AST ER ANNAÐ HÖFUM LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 10. SEPTEMBER 2019 Dans Hvað? Milonga Tangófélagsins og Tangóævintýrafélagið Hvenær? 20.30 - 22.30 Hvar? Iðnó, Vonarstræti 3 Argentínskur tangó dunar í Iðnó, Dj er Þórður, gestgjafi er Guðbjörg. Allir velkomnir og ekki þarf að mæta með dansfélaga. Aðgangs- eyrir er 1.000 krónur en frítt er fyrir 30 ára og yngri. Orðsins list Hvað? Opin ráðstefna um sam- félagslega þátttöku ungmenna á norðurslóðum Hvenær? 12.-.16 Hvar? Fyrirlestrasalur Þjóðminja- safnsins, Suðurgötu 41 Áhersla verður á forvarnir í geð- heilbrigðismálum með áfallamið- aðri nálgun og virkri þátttöku ung- menna, virðingu fyrir menningar- legum fjölbreytileika og sjálfbærni. Hvað? Óravíddir tungumálanna Hvenær? 16.30 Hvar? Veröld, stofnun Vigdísar Ragnar Karlsson flytur fyrirlestur sem nefnist Hnattvæðing, fjöl- miðlun og menning: Ofsögum sagt af heimsþorpinu? Tónlist Hvað? Tíbrártónleikar Hvenær? 19.30 Hvar? Salurinn, Kópavogi Strokkvartettinn Siggi flytur strengjakvartetta eftir fimm kven- tónskáld, þær Kaiju Saariaho, Fanny Mendelssohn, Karólínu Eiríksdóttur, Sofiu Gubaidulina og frumflytur verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur. Hvað? Bjarni Sveinbjörnsson og hljómsveit Hvenær? 20.30 Hvar? Kex hostel, Skúlagötu 28 Bassaleikarinn Bjarni Sveinbjörns- son er með eigið efni. Með honum leika Kjartan Valdemarsson á hljómborð, Snorri Sigurðarson á trompet og Gunnlaugur Briem á trommur. Tónlistin er fönkskotinn bræðingur ýmissa stíla. Strokkkvartettinn Sigga skipa þau Helga Þóra Björgvinsdóttir á fiðlu, Sig- urður Bjarki Gunnarsson á selló, Una Sveinbjarnardóttir á fiðlu, og Þórunn Ósk Marínósdóttir á víólu. Kvartettinn verður í Salnum í kvöld. Lifum lengur FRETTABLADID.IS á frettabladid.is hlustaðu þegar þér hentar 1 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÓNLIST Brúðkaup Fígarós eftir Mozart í uppfærslu Íslensku óperunnar. Óperusýning Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason. Leikstjóri: John Ramster. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Sviðshreyfingar: Katrín Gunnarsdóttir. Helstu hlutverk: Andrey Zhilikhovsky, Eyrún Unnarsdóttir, Andri Björn Róbertsson, Þóra Einarsdóttir, Karin Björg Torbjörnsdóttir, Davíð Ólafsson og Hanna Dóra Sturludóttir. Kór og hljómsveit Íslensku óperunnar. Kórstjóri: Magnús Ragnarsson. Kv ik my ndin The Shawshank Redemption er byggð á sögu eftir Stephen King og fjallar um mann ranglega dæmdan í fangelsi. Aðal- persónan, sem leikin er af Tim Robbins, fær það verkefni að setja upp bókasafn í fangelsinu. Hann þarf að fara í gegnum gnægð bóka og rekst á kassa með hljómplötum. Þar á meðal eru atriði úr óperum eftir Mozart. Hann læsir þá fanga- vörðinn inni á klósetti, tengir kall- kerfi fangelsins við plötuspilarann og leyfir föngunum að njóta tón- listarinnar um stund. Þetta er ein áhrifamesta senan í myndinni, feg- urð tónlistarinnar er svo háleit að fangarnir upplifa sig frjálsa í nokkur augnablik. Tónlistin er úr Brúðkaupi Fígarós, sem var frumsýnd í Íslensku óper- unni á laugardagskvöldið. Þetta er gamanópera, söguþráðurinn er farsi sem gengur út á misskilning á misskilning ofan. Fólk bregður sér í dulargervi, villir á sér heimildir og upplifir öfgakenndar tilfinninga- sveif lur. Sagan er óttaleg della, en tónlistin er ægifögur og meistara- lega samsett, með ótal grípandi melódíum. Hringsviðið kom vel út Að þessu sinni er sýningin í Þjóð- leikhúsinu, en ekki í Hörpu eins og undanfarin ár. Ég veit ekki hvort þetta er framtíðarstefna Íslensku óperunnar, en breytingin er ekki slæm. Eldborg Hörpu er vissulega góður tónleikasalur með voldug- um hljómburði, og sem slíkur ber hann höfuð og herðar yfir sal Þjóð- leikhússins. Hins vegar er sviðið í Eldborginni ekki leiksvið; þar er enginn turn til að geyma leikmynd á milli atriða, og svo er ekkert hring- svið. Það sem hér var notað var ein- staklega skemmtilegt, sífellt var eitthvað að gerast. Hin svokallaða kóreógrafía, sem var stýrt af Katrínu Gunnarsdóttur, byggðist á stöðugri hreyfingu á milli sviðsmynda. Meginþráðurinn var ávallt áhugaverður, þrunginn togstreitu sem þó leitaði alltaf jafn- vægis, og smáatriðin í bakgrunn- inum vöktu kátínu. Hvort tveggja hélt manni föngnum, hvergi var dauður punktur. Fyndið og spennandi Leikstjórnin, sem var í höndunum á John Ramster, var sérlega líf leg og vel heppnuð. Leikurinn var eðlileg- ur og fyndinn. Söngvarar eru ekkert endilega trúverðugir leikararar, en þeir voru það svo sannarlega hér. Útkoman einkenndist af óheftu flæði, spennu og léttleika. Tónlist a r f lut ning u r inn va r frábær. Hljómsveitin var í bana- stuði undir öf lugri stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Samspil hljóðfæraleikara og söngvara var í góðu samræmi. Tónlistin byggir að hluta á f lóknum samsöngsatriðum sem voru snilldarlega útfærð, skýr og fumlaus. Hver einasti söngvari skilaði þar hlutverki sínu af fag- mennsku. Stórbrotinn söngur Einsöngvararnir voru hver öðrum betri. Andrey Zhilikhovsky og Andri Björn Róbertsson voru magnaðir, söngurinn lifandi og glæsilegur. Eyrún Unnarsdóttir var líka stórfengleg, sem og Þóra Einarsdóttir. Sérstaka aðdáun vakti frammistaða Karinar Bjargar Tor- björnsdóttur, sem lék unglinginn Cherubino. Söngur hennar var svo föngulegur og dillandi að einstakt var. Í minni hlutverkum voru Davíð Ólafsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Sveinn Dúa Hjörleifsson, Eyjólfur Eyjólfsson og f leiri. Leikur þeirra allra var kostulegur og hnyttinn. Oft er valin sú leið að færa óper- ur til nútímans, með misjöfnum árangri. Að þessu sinni tilheyrðu búningarnir fornri tíð og komu prýðilega út. Búningarnir voru gerðir af Bridget Kimak, og voru smekklegir og sköpuðu f lotta heildarmynd. Almennt talað er þessi uppfærsla á Brúðkaupi Fígarós afar skemmti- leg, full af húmor og mikilfengleik. Hér verður enginn svikinn. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Ákaflega vel heppnuð frumsýning sem einkenndist af gleði og fagmennsku. Svo sannarlega verður enginn svikinn. Í senn fyndin og mikilfengleg Útkoman einkenndist af óheftu flæði, spennu og léttleika. 1 0 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B B -9 4 F 4 2 3 B B -9 3 B 8 2 3 B B -9 2 7 C 2 3 B B -9 1 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 3 2 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.