Mosfellingur - 12.09.2019, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 12.09.2019, Blaðsíða 8
Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá 15–16. Ingólfur Hrólfsson formaður s. 855 2085 ihhj@simnet.is Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður s. 896 5700 bruarholl@simnet.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.is Snjólaug Sigurðardóttir ritari s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi s. 898 3947 krist2910@gmail.is Halldór Sigurðsson 1. varamaður s. 893 2707 dori007@simnet.is Jóhanna B. Magnúsdóttir 2. varamaður s. 899 0378 hanna@smart.is StJÓrn FaMoS FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Þéttbýlið í samband við Ljósleiðarann Lokið er tengingu allra heimila í þéttbýli Mosfellsbæjar við Ljósleið- arann. Af þessu tilefni afhenti Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra skjöld til vottunar á þessum áfanga í uppbyggingu innviða í sveitar- félaginu. Fleiri áfangar eru fram undan því í vor samþykkti bæjarráð samning við Fjarskiptasjóð um stuðning við ljósleiðaratengingu í dreifbýli sveitarfélagsins. Erling Freyr fagnar þessum áfanga. „Þetta er mikilvægt skref í uppbyggingu nútímasamfélaga að hafa svo trausta innviði fyrir gagnaflutninga af öllu tagi sem Ljósleiðarinn er. Nú eiga heimilin í bænum kost á þjónustu sem er einhver sú besta sem býðst á byggðu bóli.“ Öllum heimilum í þéttbýli Mosfellsbæjar stendur nú til boða Eitt gíg gæða- samband Ljósleiðarans, sem gefur kost á 1.000 megabitum bæði til og frá heimili. Uppsetning á ljósleiðara alla leið inn á heimili er íbúum að kostnaðarlausu og síðan er greitt mánaðargjald fyrir notkun. GaMan SaMan GAMAN SAMAN byrjar í dag 12. sept. þegar krakkar frá Leirvogstunguskóla koma til okkar í heimsókn. GAMAN SAM- AN verður aðra hverja viku á dagskrá hjá okkur í vetur á fimmtudögum kl. 13:30. Bridge og félagsvist Bridge verður spilað alla þriðjudaga á Eirhömrum í borðsal kl. 13:00. Byrjaði 3. sept. Ef þú hefur áhuga á að vera með, endilega kíktu, allir velkomnir. Félagsvist verður spiluð alla föstudaga, byrjar 13. sept. kl. 13:00. Bingó verður svo bæði fyrir jól og eftir :) Stólajóga Verður kennt í íþróttasal Eirhamra á þriðjudögum kl. 13:00-14:00. Fyrsti tíminn er 3. sept. Kennari verður Edit Ólafía. Mánuðurinn kostar 5.000 kr. og er ekki posi á staðnum. Lágmarksþátttaka er 12 manns. - Fréttir úr bæjarlífinu8 Mosfellsbær tekur á móti 11 flóttamönnum frá Úganda og Súdan þann 12. september. Flóttafólkið hefur verið í flóttamannabúð- um í Kenía en kemur til landsins í dag. Þetta er í annað skipti sem Mosfellsbær tekur við flóttafólki en í mars 2018 komu 10 manns frá Úganda. Ein af ástæðunum fyrir því að leitað var aftur til Mosfellsbæjar er hversu vel bæjarfélagið tók á móti hópn- um síðast og hversu vel gekk hjá þeim að aðlagast. Móttakan liður í ákvörðun ríkisstjórnar Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti erindi félagsmálaráðuneytisins á dögunum. Móttakan er liður í ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að bjóða allt að 75 flóttamönnum til landsins á þessu ári. Í mars síðastliðnum komu fimmtíu sýr- lenskir flóttamenn til landsins og settust að á Blönduósi og Hvammstanga og núna koma 11 í Mosfellsbæ, 10 í Garðabæ og 4 á Seltjarnarnes. Verkefnastjóri ráðin til eins árs Hulda Margrét Rútsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri til eins árs til að sinna verkefninu. Verkefnastjórinn hefur umsjón með móttöku flóttafólksins og er tengilið- ur við ráðuneytið og Rauða krossinn sem verður til aðstoðar í málum þess. Vakin er athygli á að fjölskyldusvið Mos- fellsbæjar er á höttunum eftir leiguhúsnæði fyrir fólkið. Óskað er eftir að þeir sem hafa áhuga á að leggja lið hafi samband við verkefnastjóra. Flóttamenn frá Úganda og Súdan væntanlegir til Mosfellsbæjar í dag Tekið á móti 11 flóttamönnum Samstarfsverkefni World Class og Mosfellsbæjar heldur áfram í vetur l aU S P l Á S S ! ! ! Enn eru laus pláss í byrjendahóp sem kenndur verður á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 9-10. Fyrsti tíminn verður þriðjudaginn 17. september, námskeiðið er fyrir fólk 67 ára og eldra sem er með lögheimili í Mosfellsbæ. Kennslan fer fram í formi alhliða leikfimi og styrktaræfinga í leikfimisal auk æfinga í tækjasal. Framhaldshóparnir verða tveir í vetur, kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum. Hópur 1, tími 10:00-11:00 er orðin fullur. ATH! Ennþá eru laus pláss í hóp 2, tími 11:00-12:00. Framhaldshóparnir eru ætlaðir þeim sem eru vanir leikfimi og eru þessir hópar opnir óháð búsetu (þ.e.a.s þú þarft ekki að hafa lögheimili í Mosfellsbæ til að mæta í þessa hópa). Þátttakendur í námskeiðinu hafa fullan aðgang að World Class og Lágafellslaug á öðrum tímum dags meðan á námskeiðinu stendur. Kennarar verða þær Halla Karen og Berta. Námskeiðið stendur í 12 vikur og er greitt fyrir námskeiðið með eingreiðslu við skráningu 15.000 kr. allar nánari upplýsingar og skráning fer fram í World Class lágafellslaug Horft yfir flóttamannabúðirnar í kenía þar sem fólkið Hefur dvalið HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG / hönnunarstaðlar GRAFÍSK HÖNNUN / HREYFIMYNDAGERÐ / MYNDSKREYTINGAR sími 898 4796 / stinamaja@atarna.is Nýtt aðkomutákn Mosfellsbæjar var ný- verið reist við bæjarmörkin hjá Hamra- hlíðarskógi. Þetta er fyrsta tákn af þremur sem mun varða komuleiðir að Mosfells- bæ. Aðkomutáknið hönnuðu Anna Björg Sigurðardóttir arkitekt og Ari Þorleifsson arkitekt og byggingafræðingur. Árið 2017, í tilefni 30 ára afmælis Mosfellsbæjar, efndi bæjarstjórn í samstarfi við Hönn- unarmiðstöð Íslands til hugmyndasam- keppni um aðkomutákn fyrir bæinn. Alls bárust 34 tillögur og bar tillaga Önnu og Ara sigur úr býtum. Hið nýja aðkomutákn er úr þrenns kon- ar efnivið, járni, grjóti og tré og er hæsti stöpull hvers aðkomutákns einkennandi fyrir staðsetningu þess. Hæsti hluti þess aðkomutákns sem nú hefur risið er tré sem vísar til Hamrahlíðarskógar. Merki Mosfellsbæjar sem hannað var af Kristínu Þorkelsdóttur prýðir öll aðkomutáknin. Nýja aðkomutáknið verður vígt form- lega mánudaginn 16. september. Vígsla við Hamrahlíð á mánudaginn • 30 ára afmælisgjöf nýtt aðkomutákn rEist við mörkin til rEykjavíkur

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.