Mosfellingur - 12.09.2019, Blaðsíða 12
- Fréttir úr bæjarlífinu12
tel : 552 - 66 - 66
Y A M
2 7 0 M o s f e l l s b æ
yamrestaurant@gmail.com
Allur matur er eldaður eftir
pöntun og því er enginn matur
tilbúinn fyrirfram. Þar af
leiðandi er alltaf allavega
10 mínútna bið eftir matnum
stundum þegar mikið er að
gera getur því biðin verið löng.
Kíkið nýja matseðil á.
w w w . y a m . i s
Nýr Opnunartími
THAI FOOD RESTAURANT
Y A M
THAI FOOD RESTAURANT
Nýr matseðil
Nýtt bragð
Nýr réttir
.............
K j a r n a , Þ v e r h o l t 2
..............
..............
good and delicious food
16.30 – 20.30
og betri smekkur
Mosfellingurinn Birta Abiba Þórhallsdóttir
var á dögunum krýnd Miss Universe Ice-
land 2019 eftir val alþjóðlegrar dómnefnd-
ar. Birta verður því fulltrúi Íslands í Miss
Universe keppninni.
„Þessi keppni hef-
ur ýtt mér vel út úr
þægindarammanum
og undirbýr mann vel
fyrir framtíðina. Það
sem ég hef helst lært
af þátttökunni er að
með mikilli vinnu og
staðfestu getur maður
gert allt sem maður
ætlar sér,“ segir Birta. Hún er nú á 4 vikna
ferðalagi um Bandaríkin sem er hluti af
undirbúningi fyrir aðalkeppnina.
Birta hefur vakið athygli fyrir baráttu
sína gegn kynþáttafordómum. „Að vinna
svona keppni gefur manni góðan vettvang
til að vekja athygli á þeim málefnum sem
brenna á manni. Þrátt fyrir að ég passi ekki
inni í staðalímynd af íslenskri fegurð þá
er ég samt stoltur Íslendingur og ákvað að
taka þátt í þessari keppni vegna þess að mig
langaði til þess.“
Út fyrir þægindarammann • Vettvangur til að vekja athygli á verðugum málefnum
Krýnd Miss Universe Iceland
Birta verður fulltrúi
íslands í miss universe
Mosfellsbær hefur keyrt þróunarverkefnið
„Heilsueflandi samfélag“ í samvinnu við
Heilsuvin og Embætti landlæknis í þónokk-
ur ár og eins og áður miðar verkefnið að
því að setja heilsueflingu í forgrunn í allri
þjónustu sveitarfélagsins.
Í mannauðsstefnu Mosfellsbæjar er
lagður metnaður í að skapa heilsueflandi
vinnustaðamenningu fyrir starfsmenn og
gera starfsmönnum aðgengilegra að huga
að hreyfingu og auknu heilbrigði.
Til að framfylgja mannauðsstefnu
bæjarins og með það að markmiði að ýta
undir heilsueflingu starfsmanna hefur
Mosfellsbær síðustu rúmu tvö árin boðið
starfsmönnum sínum að sækja fjölbreytta
íþróttatíma, þeim að kostnaðarlausu, í
íþróttamiðstöð Lágafells.
Í anda heilsueflandi samfélags
„Tímarnir eru í boði eftir hefðbundinn
vinnutíma starfsmanna og þarf að skrá sig
áður en mætt er,“ segir Hanna Guðlaugs-
dóttir mannauðsstjóri hjá Mosfellsbæ.
„Er þetta liður í að hvetja alla starfsmenn
til að hreyfa sig reglubundið, bæta heilsufar
sitt, vellíðan og hreysti í anda heilsueflandi
samfélags Mosfellsbæjar. Þeir starfsmenn
sem kjósa geta skráð sig í tímana og mætt,
óháð því hvort viðkomandi er með líkams-
ræktarkort eða ekki.“
Í átt að betri líðan
Fyrirkomulagið hófst veturinn 2017-2018
og var upphaflega hugsað sem tilraun-
verkefni en hefur frá upphafi verið tekið
einstaklega vel.
„Með þessu teljum við Mosfellsbæ
styðja við bakið á starfsmönnum og veita
þeim fleiri tækifæri til
að stunda reglubundna
hreyfingu ásamt því að
taka skrefin í átt að betri
heilsu og líðan,“ segir
Hanna.
Fjölbreyttir tímar
Í haust geta starfs-
menn sótt tíma í jóga,
vatnsleikfimi eða Tab-
ata. Tímarnir verða í
boði til 1. desember en það fer eftir ásókn
og ástundun starfsmanna hversu langt inn
í veturinn þeir halda áfram.
„Við hvetjum starfsmenn okkar að nýta
sér þessa heilsueflandi viðbót við sam-
göngustyrk og ókeypis sundkort.“
Heilsuefling í forgrunni í allri þjónustu sveitarfélagsins • Starfsmenn Mosfellsbæjar hvattir til reglulegrar hreyfingar
Bjóða upp á íþróttatíma eftir vinnu
Hanna
Guðlaugsdóttir
þorBjörg íþróttakennari
stýrir vatnsleikfimi
Alþjóðlegur dagur friðar 21. september • Eldri konur skipa ráð evrópskra formæðra
Friðardagur hefst í Mosfellsbæ
Alþjóðlegur dagur friðar hefur verið haldinn þann 21. september
að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna frá 1981.
Dagana 20.–22. september 2019 heldur „Ráð evrópskra
formæðra“ friðarþingið hér á Íslandi. Þá koma 22 eldri konur frá
14 löndum auk gesta til Íslands.
Í samvinnu við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fer fram
skipulögð dagskrá sem opin er almenningi.
Friður í leik og starfi
Laugardaginn 21. september, hefst friðardagurinn hér í Mos-
fellsbæ með því að bæjarfulltrúar opna sýningu með listaverkum
frá leikskólabörnum í Kjarna. Yfirskriftin er: Hvernig upplifa og
túlka börnin frið í leik og starfi. Dansað verður ævintýri um „Lily
Butterfly“ og sungið. Kl. 14 opnar friðardagurinn formlega í Þjóð-
minjasafninu og á eftir verður farið í friðargöngu um Tjörnina.
Á sunnudeginum verður farið í þakklætisathöfn. Lagt er af stað
úr Mosfellsdal kl. 9 og ferðinni heitið á Reykjanesskaga þar sem
móður jörð er þakkað fyrir skilyrðislausa ást.
Nánari upplýsingar um friðardaginn og ráð evrópskra
formæðra má finna á www.councileugrandmothers.eu
ráð evrópskra formæðra
heldur friðarþing á íslandi