Mosfellingur - 12.09.2019, Page 10
Enn berst mengun
úr regnvatnslögnum
Hvítleit mengun í Varmá var
tilkynnt Heilbrigðiseftirliti Kjós-
arsvæðis sunnudaginn 25. ágúst.
Heilbrigðisfulltrúi fór á staðinn
skömmu eftir tilkynninguna og
staðfesti að mengun bærist í Varmá.
Uppruni mengunar var í regnvatns-
lögn frá Greni- og Furubyggð en
hún liggur út í læk sem síðan rennur
út í Varmá. Farið var um Greni- og
Furubyggð en ekki tókst að finna í
hvaða húsi mengunin átti upptök
sín en ekkert var sjáanlegt utandyra.
Að öllum líkindum hefur einhver
verið í framkvæmdum og t.d. verið
að skola málningaráhöld í bílskúrn-
um og er sá aðili ábyrgur fyrir
menguninni sem barst í ána þennan
dag. Menn ættu ekki að tjöruþvo
bíla eða hella niður eða skola niður
skaðlegum efnum í regnvatns-
lagnir í bílskúrum, á plani eða úti
í götu. Hægt er að skoða tengingar
regnvatnslagna og fráveitulagna á
kortasjá Mosfellsbæjar og hvar þær
fara út í umhverfið.
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Verslun Krónunnar í Mosfellsbæ hefur tekið miklum breytingum á
síðustu vikum og má segja að um enduropnun sé að ræða.
Búið er að opna bæði kjúklingastað og sushivinnslu í búðinni og
verslunin almennt tekin í gegn. Sjálfsafgreiðslukassar hafa verið
teknir í notkun, nammibarinn fjarlægður og plastpokar á útleið.
Krónan er stór vinnustaður en þar eru um 80 manns á launaskrá
og margt ungt fólk byrjar sinn starfsferil innan fyrirtækisins. Við
hittum verslunarstjóra Krónunnar, Baldur Jónasson.
Nýr kjúklingastaður og sushivinnsla á staðnum
„Við höfum beðið spennt eftir þessum nýjungum sem nú eru
komnar í gagnið. Við höfum lækkað alla rekka og tekið í notkun
nýja og orkusparandi kæla. Anddyrið hefur verið opnað betur og
yfirsýnin yfir búðina er miklu betri,“ segir Baldur. Sjálfsafgreiðslu-
kassar eru nú í boði í versluninni og hefur þeim verið tekið framar
vonum. „Þetta hefur hjálpað okkur að halda búðinni betri. Við höf-
um ekki sparað eina einustu vinnustund, heldur bætt þjónustuna.
Við sjálfsafgreiðslukassana er alltaf starfsmaður sem er tilbúinn að
aðstoða og kenna. Fólk hefur samt auðvitað val hvernig það gengur
frá kaupunum.“
Tokyo Sushi hefur opnað í Krónunni ásamt kjúklingastaðnum
Rotissiere. „Það gerir íbúum auðveldara að grípa með sér tilbúinn
mat. Sushivinnsla er á staðnum og verður hægt að kaupa úr borði
eða panta eftir óskum. Kjúklingastaðurinn á eftir að verða mjög
vinsæll en þar er hægt að ná sér í eldgrillaðan kjúkling ásamt öllu
helsta meðlæti sem til þarf.“
Ávaxtamarkaður í stað nammibars
Krónan er hætt með nammibar og býður þess í stað upp á
ávaxtamarkað þar sem hægt er að kaupa 5 ávexti á 220 kr. „Það er
eini nammibarinn okkar í dag. Þú kemur aldrei fyrst að sykruðum
vörum í versluninni, nammið er ekki nálægt kössunum og áherslan
hjá okkur er fyrst á vatn og sódavatn. Fólk hefur tekið mjög vel í
þetta.“
Baldur segir breytingum á versluninni lokið og eru nú allar versl-
anir Krónunnar svipað uppbyggðar.
Krónan tekið miklum breytingum • Ferskt sushi og eldgrillaður kjúklingur í boði
Enduropnun Krónunnar eftir
breytingar og betrumbætur
Hárstofan Sprey stofnuð fyrir áratug • Eigendur stofunnar þær Katrín Sif og Dagný Ósk
Fagna 10 ára afmæli Sprey
Baldur Jónasson
verslunarstJóri
Katrín sif og dagný ósK
í afmæli þann 6. septemBer
Hárstofan Sprey fagnaði á dögunum 10
ára afmæli með mikilli veislu. Hárstofan
er staðsett í Háholti við hlið Krónunnar.
Katrín Sif Jónsdóttir stofnaði fyrirtækið
fyrir áratug, þá 21 árs, og á Sprey í dag
með Dagnýju Ósk Dagsdóttur.
„Okkur líður vel hér og íbúum Mos-
fellsbæjar fjölgar ört. Tíminn hefur verið
ótrúlega fljótur að líða og svo margt sem
ég hef lært og upplifað ásamt því að stofan
hefur dafnað og stækkað með dásamlegu
fólki,“ segir Katrín Sif.
„Það var pabbi, Jón Jósef, sem ýtti mér
út í þetta fyrir 10 árum og taldi mér trú
um að best væri að vera sinn eigin herra.
Þannig hófst þetta ævintýri en í dag erum
við tíu sem vinnum hérna, allt algjörir
snillingar. Sem betur fer greip ég tækifær-
ið sem gafst á sínum tíma og lét drauminn
rætast. Það eru miklir demantar sem
hafa komið að Sprey, má þar nefna Unni
Hlíðberg og Svövu Björk sem áttu stofuna
með mér lengi og settu blóð, svita og tár í
að byggja upp fyritækið.“
Við sama tilefni var því fagnað að Katrín
Sif var á dögunum kosin Hármeistari
Íslands 2019 á Nordic Hair Awards & Expo
sem fram fór í Kaupmannahöfn í sumar.
Heilsuhátíðin Heimsljós fer fram í Lága-
fellsskóla um helgina og er nú haldin í 10.
skipti. Þar verður mikinn fróðleik að finna
um allar hliðar heilsunnar, líkamlegar sem
andlegar. Framkvæmdaaðilar hátíðarinnar
eru þau Vigdís Steindórsdóttir og Guð-
mundur Konráðsson.
„Hátíðin hefur vaxið að gæðum og
vinsældum síðustu ár, það sjáum við af
gestafjölda og ánægju þeirra,“ segir Vigdís.
„Það er gaman að velta fyrir sér hvar hver
og einn setur heilsuna á forgangslistann
sinn. Teljum við það sjálfsagðan hlut að
vera frísk?“
Boðið verður upp á fjölda fyrirlestra og
kynninga, m.a. mun Kjartan Pálmarsson
guðfræðingur fjalla um undirrót með-
virkni og afleiðingu áfalla. „Áhrif streitu
á uppeldi eru í dag talin vera orsök flestra
andlegra vandamála í æsku og á unglings-
og fullorðinsaldri og því mjög mikilvægt að
skilja hvað á sér stað og ekki síst hvað er
hægt að gera til að sporna við eða laga.”
Þá verður boðið upp á áhugaverðar kynn-
ingar á mat, myndlist, námskeiðum o.fl.
Fólki gefst kostur á að mæta í prufutíma
þar sem því gefst kostur á að prófa ýmsar
meðferðir sér til heilsubótar og vellíðunar.
Kaffihúsastemning á göngunum, spáð í
spilin og kynning á mörgum aðferðum
hugleiðslu.
Hátíðin hefst í Lágafellskirkju föstudag-
inn 13. september kl. 20 með heilunarguð-
þjónustu. Haldið verður áfram í Lágafells-
skóla laugardag kl. 11-17 og sunnudag kl.
11-18.30
Vigdís hvetur heimamenn til að koma
gangandi, hjólandi eða sameinast í bíla því
bílastæði eru af skornum skammti
Nánari upplýsingar á www.heimsljos.is.
Heimsljós í 10. sinn • Spennandi fyrirlestrar og fjölbreytt dagskrá í Lágafellsskóla
Heilsuhátíð haldin um helgina
Aukavagnar leiðar 15
að morgni úr Mosó
Strætó hefur, að frumkvæði
Mosfellsbæjar, ákveðið að bæta
tímabundið við aukavagni á leið 15
úr Mosfellsbænum virka daga kl.
7:15 og 7:30. Þetta er gert til þess að
mæta aukinni eftirspurn á þessum
tíma dags og verður fyrirkomulagið
endurskoðað eftir þörfum. Mosfells-
bær vill hvetja sem flesta til að nýta
sér þann umhverfisvæna ferðamáta
sem Strætó er. Það er ánægjulegt að
sjá hversu margir Mosfellingar velja
að nota almenningssamgöngur.
Íbúar hafa orðið varir við þunga
morgunumferð til Reykjavíkur
þessar fyrstu skólavikur haustsins.
vigdís steinþórsdóttir