Mosfellingur - 12.09.2019, Síða 22
- Mosfellingurinn Bjarney S. Einarsdóttir22
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Bjarney Einarsdóttir eða Badda eins og hún er ávallt kölluð er mikill fagurkeri og leggur mikinn metn-
að í allt sem hún gerir. Heimili hennar
ber þess sannarlega merki enda er þar
fallegt um að litast.
Badda hefur lengi haft brennandi
áhuga á öllu sem viðkemur tísku og
förðun og fylgist ávallt með því nýjasta á
markaðnum. Hún rak kvenfataverslunina
Lady hér í bæ í mörg ár en í dag nýtur hún
lífsins með fjölskyldu og vinum og veit
ekkert skemmtilegra en að taka lagið með
söngfélögum sínum í Vorboðunum, kór
eldri borgara í Mosfellsbæ og Kirkjukór
Lágafellssóknar.
Bjarney er fædd á Akranesi 13. júní 1943.
Foreldrar hennar eru þau Elín Elíasdóttir
húsmóðir og Einar Magnússon verkamaður.
Systkini Böddu eru þau Georg f. 1940, Viðar
f. 1942, Einar f. 1944 og Dröfn f. 1945.
Elskaði að vera búðarkona
„Ég er alin upp á Akranesi og það var
dásamlegt að alast upp þar. Systkina- og
frændsystkinahópurinn var stór svo það
var alltaf nóg um að vera.
Æskuminningarnar eru ansi margar,
þegar pabbi kom af sjónum og lék við okkur
krakkana og svo jólin, þegar mamma sat og
saumaði jólafötin á okkur öll.
Við lékum okkur oft á skautum á Petutúni
og svo vorum við vinkonurnar duglegar að
trampa á háum hælum á frosinni mold til
að heyra hljóðið.
Búðarleikur í eldhúsinu var í miklu uppá-
haldi og ég elskaði að vera búðarkona,“ seg-
ir Badda og brosir sínu fallega brosi.
Kynntist æskuástinni á Akureyri
„Ég gekk í barnaskóla Akraness og svo
Gagnfræðaskólann og mér fannst mjög
gaman í skólunum. Var meira að segja
kladdastjóri allan Gagnfræðaskólann.
Uppáhaldsfögin mín voru leikfimi og krist-
infræði og uppáhaldskennarinn minn var
Þórunn Bjarnadóttir, en hún var tignarleg
kona með flott og sítt hár.
Eftir útskrift fór ég að vinna hjá Slátur-
félagi Akraness þar sem ég starfaði í tvö
ár en árið 1962 lá leið mín til
Akureyrar þar sem ég hóf störf á
Hótel Kea. Þetta átti að verða 3
mánaða dvöl en varð að 8 árum
því ég kynntist æskuástinni
minni og eiginmanni til 50 ára þar.“
Bjuggu í vinnuskúr á Álafossi
Badda giftist Páli Helgasyni tónlist-
armanni 8. maí 1965 en hann lést úr
krabbameini árið 2016. Þau eignuðust
þrjú börn, Helga f. 1963, Einar f. 1966
og Anítu f. 1967. Barnabörnin eru 13 og
barnabarnabörnin 4.
Fjölskyldan flutti í Mos-
fellsbæ árið 1973 og bjó fyrst í
vinnuskúr á Álafossi í eitt ár á
meðan þau byggðu sér raðhús í Byggðar-
holti. Badda starfaði í barnafataversluninni
Anítu í Álfheimum og síðar á Álafossi, Apó-
tekinu í Mosfellsbæ, Kaupfélagssjoppunni,
Varmárskóla og leikskólanum Kátakoti á
Kjalarnesi.
Badda og Palli voru ákaflega samrýnd
hjón, tónlist, söngur og dans voru sameig-
inleg áhugamál þeirra. Badda söng í öllum
blönduðu kórunum sem Palli stjórnaði,
Álafosskórnum, Kirkjukór Kjalarness,
Kirkjukór Kjósverja, Mosfellskórnum,
Landsvirkjunarkórnum og Vorboðunum.
Palli spilaði einnig á heimili eldri borgara
í Hæðargarði í mörg ár með sveitungum
sínum, þeim Úlfhildi og Guðbjörgu.
Badda er þekkt fyrir að vera alltaf með
mörg járn í eldinum, hún er mjög listræn
og nýtur þess að mála myndir. Hún hefur
einnig verið í glerlist, línudansi, spilað
boccia, starfað í pólitík, hún söng með
sönghópnum Hafmeyjunum í 10 ár og situr
nú í menningarnefnd FaMos.
Dugleg að ferðast með fjölskylduna
„Fyrir utan tónlistina þá var hesta-
mennska sameiginlegt áhugamál okkar
hjóna en við byrjuðum í hestamennsku
þegar Aníta dóttir okkar fékk hest í ferm-
ingargjöf.
Palli söng með karlakórnum Stefni og ég
var þá formaður Stefnanna, eiginkvenna
kórdrengjanna. Við fórum í margar utan-
landsferðir með kórfélögum og í útilegur.
Við vorum líka dugleg að ferðast með fjöl-
skylduna, þvældumst mikið til Akureyrar
og á Akranes. Við hjónin elskuðum að fá til
okkar gesti og vinaboðin voru mörg.
Árið 2010 fengum við Palli okkur hjól-
hýsi og í því áttum við okkar bestu stundir
svona á seinni árum, þvældumst víða um
landið.“
Lofaði Palla að halda áfram veginn
„Að missa Palla var mér mjög erfitt, það
tók tíma að átta sig á hlutunum og vinna
úr þessum stóra missi. Ég lofaði Palla að
halda áfram veginn og hlúa að öllu okkar
og hef gert það, ég er ákveðin í því að njóta
lífsins til fulls.
Veistu, mér leiðist aldrei, ég á yndislega
fjölskyldu sem er mér allt og stóran og
góðan vinahóp sem er mér mjög kær. Ég fer
mikið erlendis og skoða mig um með öllu
þessu góða fólki í kringum mig.“
Dásamlegur staður fyrir fólk eins og mig
„Í ágúst sl. fór ég til Gdansk í Póllandi
ásamt syni mínum og tengdadóttur.
Gdansk er dásamlegur staður fyrir fólk eins
og mig sem elskar að vera í fólksmergð, fara
á markaði, kaffihús, matsölustaði og versl-
unarmiðstöðvar.
Nú í september er ég að leggja í ferð til
Ítalíu með vinum mínum í Vorboðunum
þar sem við ætlum að halda tónleika. Í
desember ætla ég svo aftur til Gdansk til
að njóta aðventunnar en ég ætla að halda
jólin hér heima.
Fyrir tveimur árum hélt ég jólin með
dóttur minni og fjölskyldu hennar á Tene-
rife og það var mjög skemmtilegt upplifelsi.
Við fórum út að borða á aðfangadag og allir
fengu jólapakka.“
Allt í gríni sagt
„Nú er ég að láta mig dreyma um að fara
eitthvað á næsta ári, hvert veit ég ekki en
það kemur í ljós. Ég elska að vera í marg-
menni og þar sem kátínan er. Ég hef sagt
í gamni mínu við börnin mín að þegar
ég kveð þetta jarðríki væri hægt að letra
á steininn okkar Palla: Hér hvíla hjónin,
Páll Helgason tónlistarmaður og Bjarney
Einardóttir gleðikona. En þetta er auðvitað
allt í gríni sagt,“ segir Badda og brosir er við
kveðjumst.
Þetta átti að verða 3
mánaða dvöl á Akureyri en
varð að 8 árum því ég kynntist
æskuástinni minni þar og eigin-
manni til 50 ára.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Bjarney S. Einarsdóttir nýtur lífsins til fulls og er dugleg að ferðast um heiminn
HIN HLIÐIN
Besta lykt í heimi?
Lyktin af Palla mínum.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Hreinskilni og glaðværð.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Leirurnar, þær hafa alltaf heillað
í góðu veðri.
Hvað óttastu mest?
Stóra Schäfer hunda.
Uppáhaldsverslun? Skóbúðir og svo er
ég svolítið heit fyrir verkfærabúðum.
Hvaða litur lýsir þér best? Var gylltur
lengi vel en er að hallast mikið að silfri.
Besta ilmvatnið? Christina Aguilera.
Hvað myndi ævisaga þín heita?
Með mörg járn í eldinum.
Fjölskyldan á Englandi árið 1976.
Helgi, Badda, Palli, Aníta og Einar.
Á brúðkaupsdaginn 8. maí 1965
Á fermingardaginn ung að Árum
Elskar að vera þar sem kátínan er
í brúðkaupi dóttur sinnar Árið 2013
BOLTATILBOÐ Í
GANGI Á ÖLLUM
LEIKJUM Í BEINNI
12” pizza með
tveimur áleggjum
1.990 kr.
Eðlan með Nachos
1.890 kr.
Boneless wings 10-12 stk.
(fer eftir stærð)
2.490 kr.
Kjúklingavængir 20 stk.
Krispý eða hefðbundnir
2.490 kr.
Stór á krana
990 kr.
Gos með áfyllingu
290 kr.
Laugardagur 14. september
Premier League
11:30 Liverpool - Newcastle
14:00 Man Utd. - Leicester
16:30 Norwich - Man City
Sunnudagur 15. september
Premier League
13:30 Bournemouth - Everton
15:30 Watford - Arsenal
Mánudagur 16. september
Premier League
19:00 Aston Villa - West Ham
Föstudagur 20. september
Premier League
19:00 South. - Bournemouth
Laugardagur 21. september
Premier League
11:30 Leicester - Spurs
14:00 Everton - Sheffield Utd
16:30 Newcastle - Brighton
Sunnudagur 22. september
Premier League
13:30 West Ham - Man Utd
15:30 Chelsea - Liverpool
Laugardagur 28. september
Premier League
11:30 Sheffield - Liverpool
14:00 Spurs - Southampton
16:30 Leicester - Newcastle
Sunnudagur 29. september
Premier League
15:30 Everton - Man City
Mánudagur 30. september
Premier League
19:00 Man Utd - Arsenal
BOLTINN Í BEINNI
www.keiluhollin.is
FYLGSTU MEÐ DAGSKRÁNNI Á FACEBOOK.COM/KEILUHOLLIN
ÞAÐ ER NÓG UM AÐ VERA Í KEILUHÖLLINNI
HAPPY HOUR Á BARNUM RÚTUFERÐIR Í BÆINN
FRÍTT
INN
21. SEPTEMBER / FRÁ 23 TIL 01
SVEITABALL Í KEILUHÖLLINNI
27. SEPTEMBER
ÞRÍR FYRIR TVEIR AF PIZZU Í SAL
ÖLL BÖRN FÁ FROSTPINNA FR Á EMMESSÍS
FJÖLSKYLDU
RISA
S V E PPA
29. SEPT. KL. 18SUNNUDAGURINN
STÓRSKEMMTILEGT FÓTBOLTA-
QUIZ HJÖRVARS HAFLIÐA
HJÖBB
QUIZHAPPY HOURFRÁ KL. 21TVEIR FYRIR EINN AF ÖLLU Á BARNUM
FIM. 12.09 KL. 21
HELGI & H JÁLMAR
P Ö B B - Q U I Z
19. SEP T EMBER K L . 21:00
HAPPY
HOUR
FRÁ KL. 21
TVEIR FYRIR
EINN
AF ÖLLU Á B
ARNUM
28. SEPTEMBER 28. SEPTEMBER 28. SEPTEMBER
VS.NELSON EDWARDS
HVAR ÆTLAR ÞÚ AÐ HORFA Á BARDAGANN?
HAPPY HOUR
FRÁ KL. 21-23
TVEIR FYRIR
EINN AF ÖLLU
Á BARNUM
27/9
S T R A X OG FM95BLÖ K L ÁR AS T
K L . 18
F M95BL Ö V E R ÐUR Í BE INNI F R Á K E IL UHÖL L INNI F R Á 16 T IL 18