Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 6

Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Verið er að leggja akfæran veg út vest- ari brimvarnargarð Landeyjahafnar en slíkur vegur er á eystri garðinum. Við enda beggja garðanna verða svo byggð- ar innsiglingartunnur. Þær eru hugs- aðar til að hægt sé að koma krana út að hafnarmynninu og nota hann til að slaka niður dælubúnaði til að dæla burt sandi. Í innri höfninni er verið að koma fyrir innsiglingartunnu og byggja garð út að henni. Það er gert til að skýla sjálfu skipalæginu, að sögn Jóhanns Þórs Sig- urðssonar tæknifræðings hjá Vegagerð- inni. Hreyfing hefur verið í höfninni svo ferjan hefur færst til og frá við bryggj- una. Þetta á að hindra það. Innri höfnin hefur verið stækkuð og er það liður í að kyrra hreyfingar í höfninni. Verkið var boðið út í fyrra og bárust tvö tilboð, það lægra frá Ístaki hf. upp á tæpar 744 milljónir. Samkvæmt tilboði á verkinu að vera lokið eigi síðar en 15. september 2019. Björgun hf. vinnur einnig að dýpkun í höfninni. gudni@mbl.is Unnið við hafnargarða, lengingu garðs innan hafnar og stækkun rýmis í höfninni til að draga úr sogi við bryggjuna Landeyja- höfn löguð og bætt Morgunblaðið/GSH Framkvæmdir Gröfur, krani og dýpkunarskip eru notuð við framkvæmdir og dýpkun í höfninni. Fyrir miðri mynd sést „tunna“ sem verður endi fram- lengingar garðsins innan hafnar. „Tunnur“ verða einnig settar við enda beggja hafnargarðanna og munu þær afmarka innsiglinguna. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég sló á laugardaginn sem er 10 til 14 dögum fyrr en vanalega. Að- stæður voru sérstakar, ég átti ekki von á því að tvíært rýgresið myndi lifa veturinn af og að ég gæti slegið það þriðja árið í röð,“ segir Arnar Bjarni Eiríksson, bóndi í Gunn- bjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi. Arnar bætir við að hann hafi ein- ungis slegið montblettinn. Hann sé oft sleginn fyrstur þar sem blett- urinn sé nálægt íbúðarhúsinu og grænt grasið geri ásýndina heim að bænum fallegri. Arnar segir næringuna halda sér vel í þriðju uppskerunni af rýgresi sem hann ræktar bæði á sléttum fleti og í brekku. Hann segir lifunina betri í brekkunni þar sem klaki hafi ekki náð að liggja á grasinu. ,,Rýgresi sprettur gríðarlega hratt og þegar það kemur vel undan vetri er það fljótara á sér en hefð- bundnar grastegundir eins og vall- arfoxgras og vallarsveifgras sem notað er í túnblöndum,“ segir Arnar sem vonast til þess að geta slegið fjórum til fimm sinnum í sumar. Þórir Már Ólafsson, bóndi í Bolla- koti í Fljótshlíð, sló nýrækt frá því í fyrra á laugardagskvöldið. Þórir sem ekki hefur stundað búskap lengi segir að hann hafi aldrei séð aðra eins sprettu og slátturinn á laug- ardaginn sé mun fyrr en almennt tíðkist. ,,Skilyrði hafa verið gríðarlega hagstæð í vor. Hlýtt og rakt og sprettan hefur vaðið áfram. Ég reikna með að við náum a.m.k. ein- um aukaslætti í sumar ef við fáum veðurfar til þess að ná inn gæða- heyi,“ segir Þórir en mikil bleyta var í heyinu eftir síðasta sumar. Að sögn Þóris sló hann um 12 hektara sem sé fín stærð til þess að prófa hvort allar græjur virki. Það komi svo í ljós þegar heyið er tekið saman hvernig uppskeran sé og hvort tækin virki eftir að hafa staðið óhreyfð frá síðasta sumri. Þórir tel- ur að almennt hafi bændur ekki ver- ið tilbúnir undir slátt og vorverk svona snemma en flest sé í fyrra fall- inu, nema sauðburðurinn sem var á venjulegum tíma. Þórir segir að vegna góðra aðstæðna hafi sauð- burður verið léttari og nær strax hefði verið hægt að setja lömbin út á grænt grasið. Bjartmar Hannesson, bóndi á Norðurreykjum í Hálsasveit í Borg- arfirði, sló á laugardaginn og kláraði að rúlla eftir hádegi í gær. Hann segir að það létti feikilega lundina að geta slegið svona snemma. Það sé líka miklu meira fóðurígildi í grasinu nú en í rigningunni í fyrra þegar sláttur hófst 25. júní ,,Við erum að slá þremur vikum fyrr en vant er, það hefur aldrei gerst í 44 ára búskap mínum. Nú slæ ég alla vega tvisvar ef ekki þrisvar,“ segir Bjartmar sem var bæði and- lega og líkamlega tilbúinn í sláttinn og segir bændur sátta og glaða. Sláttur í fyrra fallinu hjá bændum Ljósmynd/Kolbrún Sveinsdóttir Góðviðri Bjartmar Hannesson, bóndi á Norðurreykjum í Borgarfirði, sló í blíðunni í byrjun síðustu viku maí. Það er þremur vikum fyrr en vanalega. Bændur á Suðurlandi nýttu veðrið og slógu einnig fyrsta sláttinn á laugardaginn.  Tún slegin 10 til 12 dögum fyrr  Tvíært rýgresi slegið þriðja árið í röð  Sprettan vaðið áfram í hlýju og röku veðurfari  Sláttur hafinn á Suðurlandi og í Borgarfirði  Montbletturinn sleginn fyrst Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin mun greiða pólsku skipasmíðastöðinni Crist fjárhæð sem samsvarar rúmum 200 milljón- um króna til viðbótar við umsamið smíðaverð nýs Herjólfs til að leysa deilur um afhendingu skipsins. Sömuleiðis fellur Vegagerðin frá kröfu um bætur vegna tafa á afhend- ingu skipsins upp á tæplega 280 milljónir kr. Þótt lok séu að komast í málið má búast við að nokkrar vikur líði þar til skipið kemst í áætlunar- siglingar frá Vestmannaeyjum. Smíði nýs Herjólfs er löngu lokið og hefur skipið beðið fullbúið úti í Póllandi eftir að deilur um auka- reikninga skipasmíðastöðvarinnar yrðu leystar. Stöðin krafðist 8,9 milljóna evra viðbótargreiðslu sem svarar til liðlega 1,2 milljarða króna. Vegagerðin taldi kröfuna ekki í sam- ræmi við efni samnings um smíði skipsins og neitaði staðfastlega að greiða. Skipasmíðastöðin neitaði sömuleiðis að afhenda skipið fyrr en greiðsla bærist. Þegar bankaábyrgð vegna þeirra greiðslna sem Vega- gerðin hefur innt af hendi var að renna út tilkynnti Vegagerðin um innköllun hennar. Það mál hefur ver- ið í vinnslu og var komið að því að tryggingin yrði greidd út. Vegagerðin gerði skipasmíðastöð- inni tilboð í gærmorgun og var því tekið samdægurs. Undirrita á samn- inga fljótlega. Heildarkaupverð Herjólfs verður með þessu 31 milljón evra eða 4,3 milljarðar króna. Eftir að ferjan fæst afhent þarf að prófa hana úti, sigla heim og þjálfa áhöfn við þær aðstæður sem hér eru áður en áætlunarsiglingar hefjast. Greiðir 200 milljónir í „lausnargjald“ fyrir Herjólf  Ný Vestmannaeyjaferja í notkun á næstu vikum Ljósmynd/Vegagerðin Sigling Nýi Herjólfur í Póllandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.