Morgunblaðið - 28.05.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
HÁDEGIS-
FYRIRLESTUR
í Norræna húsinu
í dag kl. 12–13
Stefán Einar Stefánsson kynnir helstu
efnistök nýútkominnar bókar sinnar og
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri
SAF, flytur erindi um áhrif WOW á uppgang
og síðar samdrátt ferðaþjónustunnar.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Gústaf A. Skúlason skrifar:
ESB-þingmenn og ráðherrarríkisstjórnarinnar láta líta
svo út að Mið-
flokkurinn
„stöðvi“ framgang
mála á Alþingi.
Ekkert er fjar-
stæðukenndara.
Forseta þings-ins er hæg-
leikið að taka önn-
ur mál fyrir og
láta orkupakka 3 mæta afgangi
og fresta fram á haust. Þannig
gæti Alþingi farið í sumarfrí skv.
áætlun og enginn þyrfti að vinna
á nóttunni.
En það er ekki vilji ESB-þingmanna né forseta þings-
ins sem fer með dagskrármálin.
Forseti þingsins – leiðtogi svika-
baráttu Icesave gegn þjóðinni tal-
ar um að „leiða í ljós þingvilj-
ann“. ESB-þingmenn vilja ekkert
frekar en að afhenda yfirráð ork-
unnar á Íslandi til Brussel. Þeir
halda áfram með fundarpíningu á
fullveldisþingmönnum og starfs-
mönnum Alþingis sem eiga fáa
möguleika aðra en að fylgja þeim
fundartíma sem forseti Alþingis
setur.
Er látið líta svo út að fullveld-issinnar á þingi séu að
„eyðileggja störf Alþingis“ með
því að ræða málin næturlangt.
Síðan kemur „dómur“ meirihluta
alþingismanna: Lokað á umræðu
með atkvæðagreiðslu til að „Al-
þingi geti starfað áfram“.
ESB-þingmenn vilja engar um-ræður um orkupakka 3,
heldur ætla að keyra þingsáætl-
unina ofan í kok þjóðarinnar með
þjósti án þess að hún fái að koma
að málinu.“
Gústaf A.
Skúlason
Annað sjónarhorn
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Við vildum geta stutt verkefni sem
eru ekki bara ein flugeldasýning
heldur tækju yfir lengri tíma og
fælu í sér þróun
og vandaðan
undirbúning,“
segir Kolbrún
Halldórsdóttir,
formaður Barna-
menningarsjóðs
Íslands, um það
að tæp 20% út-
hlutana úr
Barnamenning-
arsjóði hafi fallið
Borgarbókasafn-
inu í hlut. Kolbrún segir verkefnið
sem safnið hlýtur styrk fyrir,
„Söguheiminn NORD“, umfangs-
mikið en það spannar yfir tvö ár.
„Þetta er margslungið verkefni
og að því koma margir samstarfs-
aðilar, þó að Borgarbókasafnið sé í
forsvari fyrir umsóknina.“
Meðal þeirra sem koma að verk-
efninu eru danska sendiráðið og
skóla- og frístundasvið Reykjavík-
ur. „Verkefnið er byggt á sagnaarfi
Norðurlandanna. Vissulega er þetta
hátt hlutfall af heildarupphæð
sjóðsins en við óskuðum eftir um-
sóknum um stærri verkefni sem við
vitum að list- og menningartengdar
stofnanir hafa ekki haft tök á að
fara út í,“ segir Kolbrún. Ekkert
sérstakt þak sé á því hversu stóru
hlutfalli sjóðsins sé úthlutað til ein-
staka verkefna en verkefni Borg-
arbókasafnsins fékk 18.585.000
krónur í styrk.
Úthlutað var úr sjóðnum á
sunnudag en opinberar stofnanir,
Borgarbókasafnið, Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum
og Listasafn Íslands í samstarfi við
Þjóðminjasafn Íslands, hlutu þrjá
hæstu styrkina. Spurð hvort það sé
ekki umhugsunarvert segir Kol-
brún: „Þetta var eitt af stóru álita-
efnunum í upphafi, hvort stofnan-
irnar ættu yfirhöfuð að vera
gjaldgengar í þetta eða ekki.“
Fjármagn hefur
ekki skilað sér
Ástæðan fyrir því að ákveðið var
að opinberar stofnanir gætu fengið
styrkina er sú að aðgerðaáætlun í
menningu barna og ungmenna hafi
ekki verið fjármögnuð nægilega
fram að þessu. „Aðgerðaáætlun í
menningu barna og ungmenna
gerði ráð fyrir ákveðnum verkefn-
um sem stofnanirnar áttu hlut að á
árabilinu 2014-2017, en fjármagnið í
áætlunina hefur ekki skilað sér sem
skyldi.“
Vegna þessa hefði verið óeðlilegt
að skilja stofnanirnar út undan því
þær hafa beinlínis hlutverki að
gegna gagnvart aðgerðaáætluninni.
Barnamenningarsjóði, sem er tíma-
bundið átaksverkefni í fimm ár, er
að hluta til ætlað að koma aðgerða-
áætlun í menningu barna og ung-
menna í framkvæmd,“ segir Kol-
brún og bætir við að list- og
menningartengdar stofnanir Íslend-
inga séu margar hverjar undirfjár-
magnaðar. Barnamenning hafi
goldið fyrir þetta ástand um langa
hríð.
„Það kemur til dæmis fram í því
að þær hafa ekki haft næga fjár-
muni til að fylgja eftir hugmyndum
og áætlunum varðandi menntun
barna og ungmenna.“
Fjármagn til barna-
menningar vantar
Ríkisstofnanir fengu stóran hlut barnamenningarsjóðs
Kolbrún
Halldórsdóttir
Ökumenn reyndu að troða sér
framhjá lokunum lögreglu á vett-
vangi alvarlegs slyss á Bústaðavegi í
fyrradag. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu segir óskiljanlegt hversu
oft ökumenn reyni þetta og láti sig
engu skipta þótt um vettvang slyss
sé að ræða.
Tilefni ádrepu lögreglu er umferð-
arslys sem varð á mótum Sogavegar
og Austurgerðis, rétt norðan Bú-
staðavegar, í fyrradag. Bifreið hafði
verið ekið á barn á reiðhjóli og var
strax ljóst að slysið var alvarlegt.
Lögreglan var kölluð til og setti upp
lokun á Bústaðavegi svo sjúkraflutn-
ingamenn og aðrir viðbragðsaðilar
gætu athafnað sig á öruggan hátt á
vettvangi. Þrátt fyrir að ökutæki
lögreglu væru á staðnum, bæði bílar
og bifhjól með blikkandi ljós, freist-
uðu ökumenn þess að troða sér
framhjá og tókst einhverjum það eða
þar til þeir þurftu að nema staðar við
slysstaðinn. Lögreglan segir að
þetta sé ólíðandi framferði.
Troða sér framhjá lok-
unum á slysavettvangi
Allt um sjávarútveg