Morgunblaðið - 28.05.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Arnar Þór Ingólfsson
arnarth@mbl.is
Félag í eigu athafnamannsins
Björgólfs Thors Björgólfssonar tók
þátt í skuldafjárútboði flugfélags-
ins WOW air í haust og skráði sig
fyrir 3 milljónum evra af þeim
50,15 milljón evrum sem alls söfn-
uðust í útboðinu. Þetta er á meðal
þess sem kemur fram í nýrri bók
Stefáns Einars Stefánssonar,
fréttastjóra viðskipta á Morgun-
blaðinu, sem fjallar um ris og fall
flugfélagsins.
Í bókinni, sem kemur út í dag, er
greint frá því í fyrsta skipti hverjir
það voru sem skráðu sig fyrir
skuldabréfum í útboðinu í haust.
Athygli vekur að yfir helmingur
þess fjár sem safnaðist í útboðinu,
51%, kom frá einstaklingum og
fyrirtækjum sem stóðu flugfélag-
inu og Skúla Mogensen stofnanda
þess nærri, ýmist persónulega eða
vegna viðskiptahagsmuna.
Fór helmingur upp í skuldir?
Stefán Einar segir í bók sinni að
listinn sem hann hafi undir hönd-
um um þátttakendur í skuldabréfa-
útboðinu bendi sterklega til þess
að ríflega helmingur þess fjár-
magns sem safnaðist hafi í raun
runnið frá þátttakendunum til
þeirra sjálfra í gegnum fléttu sem
miðaði að því að breyta eðli skulda
félagsins úr skammtímaskuldum,
sem sumar voru gjaldfallnar, í
langtímaskuld í formi skuldabréfs.
Þannig hafi það fé sem WOW air
safnaði í útboðinu ekki nema að
takmörkuðu leyti skilað sér til fé-
lagsins sem nýtt rekstrarfé.
Þeir aðilar sem höfundur segir
að hafi tekið þátt í skuldafjár-
útboðinu á þessum forsendum eru
flugvélaleigufyrirtækin Avolon og
AirLease Corporation (ALC), flug-
vélaframleiðandinn Airbus, félagið
Reliquum, sem er í eigu Björgólfs
Thors, Arion banki, REA ehf., Ör-
yggismiðstöðin og S9 ehf., sem er í
eigu Margrétar Ásgeirsdóttur,
fyrrverandi eiginkonu Skúla.
Hverjir keyptu hvað?
Skúli Mogensen keypti sjálfur
skuldabréf fyrir 5,5 milljónir evra í
útboðinu eins og áður hefur verið
greint frá, Avolon tók fimm millj-
ónir evra, ALC skráði sig fyrir 2,5
milljónum evra og Airbus keypti
fyrir sömu upphæð. Arion banki,
sem var viðskiptabanki WOW air,
tók 4,3 milljónir evra og félag Mar-
grétar tók 1,5 milljónir evra.
REA ehf., móðurfélag Airport
Associates sem þjónustaði WOW
air á Keflavíkurflugvelli, keypti
skuldabréf fyrir milljón evrur og
Öryggismiðstöðin, sem hafði átt í
viðskiptum við WOW, keypti fyrir
500.000 evrur.
Félag Björgólfs Thors keypti
skuldabréf fyrir þrjár milljónir
evra, eins og áður segir. Orðrómur
hefur verið á kreiki í mörg ár um
að Björgólfur Thor hafi haft ein-
hverja aðkomu að flugfélaginu, en
ekkert hefur komið fram þess efnis
fyrr en nú. Hann og Skúli Mogen-
sen eru gamlir vinir og stóðu sam-
an í skemmtistaðarekstri í Reykja-
vík á tíunda áratug síðustu aldar.
Eaton Vance keypti mest
Aðrir sem tóku þátt í skulda-
bréfaútboðinu voru innlend fjár-
málafyrirtæki og erlendir fjár-
festar og sjóðir. Tveir sjóðir í
stýringu GAMMA keyptu sam-
anlagt skuldabréf fyrir tvær millj-
ónir evra, annar þó stærri hlutann
eða fyrir 1,8 milljónir evra. Kvika
banki lagði svo eina milljón evra í
útboðið.
Bandaríska fjárfestingafélagið
Eaton Vance var stærsti einstaki
kaupandinn í skuldabréfaútboðinu
og keyptu þrír vogunarsjóðir fé-
lagsins samtals skuldabréf fyrir 10
milljónir evra og nam fjárfesting
Eaton Vance því um 20% af heild-
arumfangi útboðsins.
Ýmsir evrópskir fjárfestingar-
sjóðir, alls 20 talsins, keyptu svo
skuldabréf fyrir samanlagt 11,4
milljónir evra.
Norski lífeyrissjóð-
urinn MP Pensjon
lagði þeirra mest
til, eða 2 milljónir
evra. Sjóður sænska
bankans Swedbank,
sem stýrt er frá
Lúxemborg, lagði svo
til 1,5 milljónir evra
og sænska sjóðstýr-
ingarfyrirtækið Peak
AM lagði til sömu fjár-
hæð. Aðrir evrópskir
fjárfestar lögðu minna
til, eða á bilinu 0,1-1
milljón evra.
Hulunni svipt af útboði WOW
Björgólfur Thor Björgólfsson var á meðal þeirra sem tóku þátt Aðilar með persónuleg tengsl
við Skúla Mogensen eða viðskiptatengsl við WOW air keyptu yfir helming allra skuldabréfanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
WOW Skuldafjárútboði flugfélagsins lauk 18. september síðastliðinn og alls söfnuðust þar 50,15 milljónir evra. Ríflega helmingurinn kom frá tengdum aðilum.
Morgunblaðið/Eggert
Flug Bandaríska fjárfestingafélagið Eaton Vance keypti skuldabréf í útboði
WOW air fyrir alls 10 milljónir evra í gegnum þrjá vogunarsjóði.
Stefán Einar Stefánsson kynnir
nýja bók sína um málefni WOW
air á hádegisfundi í Norræna
húsinu í dag kl. 12. Þar kynnir
Stefán Einar helstu efnistök bók-
arinnar, en í henni varpar hann
ljósi á áður óþekktar ástæður
þess að flugfélagið varð gjald-
þrota, en fjallar einnig um
það hvernig Skúla Mogen-
sen tókst á örfáum árum
að byggja upp flugfélag
sem hafði áður en yfir
lauk flutt yfir tíu millj-
ónir farþega yfir Atl-
antshafið. Jóhannes
Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónust-
unnar, flytur einnig
erindi um áhrif WOW
air á uppgang og síð-
ar samdrátt íslenskr-
ar ferðaþjónustu.
Kynnir efni
bókarinnar
RIS OG FALL WOW AIR