Morgunblaðið - 28.05.2019, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
Undarlegir eru ýmsir menn
(ljóðið aðeins umorðað) má með
sanni segja. Á okkar dögum er
það svo að réttlæti eða ranglæti
sama verknaðar fer eftir gerand-
anum, hvort hann aktar af meint-
um réttum eða röngum hvötum.
Yfirlýstur aðdáandi Stalíns tjáir
aðdáun sína á fjöldamorðingj-
anum í útvarpi á Íslandi. Yfirlýst-
ur aðdáandi Hitlers yrði vísast
saksóttur – með réttu. En af
hverju ekki stalínistinn? Honum
er bara hampað.
Ísrael er virki mannréttinda
Ísrael er virki mannréttinda í
Mið-Austurlöndum í samanburði
við nágranna sína. Nema ef vera
skyldi hluti Líbanons í og vestur af Beirút. Þar njóta sam-
kynhneigðir réttinda og enginn þarf að óttast af þeim sök-
um. Í fornaldarríkinu Íran þaðan sem ráðherrann er sem
fjölmiðlar dásama þegar hann birtist hér, þar er samkyn-
hneigð refsiverð og þar hafa margir orðið að gjalda þá
hneigð með lífinu. Hamas, öðlingarnir hans Sveins Rúnars í
Palestínu, fara eins að. Samt finnst Íslendingum bara í
himnalagi að vefja sig fána Palestínu drifnum blóði samkyn-
hneigðra. Útvarpsstjórinn mætir eins og ekkert sé að taka á
móti þeim sem móðga og smána Ísraelsmenn og upphefja
hryðjuverkamenn.
Hvað ræður hatrinu á Ísrael?
Ja, hvað skyldi það nú vera? Hér eru flóttamenn, en eink-
um þeir sem þykjast vera það, í miklum metum. Svo til allir
borgarar í Ísrael eru flóttamenn og afkomendur þeirra. Ann-
ars vegar þeir sem flúðu Evrópu nasismans og svo (meiri-
hlutinn) þeir sem hröktust ofsóttir frá arabalöndunum. Ísra-
el er lýðræðislegt réttarríki gagnstætt flestum nágrannaríkj-
unum. Tyrkland, nágranni Ísraels í vestri, ofsækir minni-
hluta Kúrda í landinu svo að öllum blöskrar þótt enginn segi
orð nema ef vera skyldi Ögmundur. Þar hefur frelsið verið
afnumið eftir næstum 100 ára lýðræði.
Hvað er það þá sem gerir Ísrael sjálfsagt skotmark
vinstrimanna á Vesturlöndum? – Fyrir utan það jákvæða
sem að framan er talið, hvað er það þá? Hvað veldur því að
nú er svo komið að m.a.s. talsmenn samkynhneigðra af öllum
fordæma Ísrael en upphefja hatur á Ísrael?
Kannski að vinstrimenn útskýri nú einu sinni, svona til til-
breytingar, afstöðu sína. Þeir eru nú einu sinni ekki mikið
fyrir rökræðu gefnir, en öllu meira fyrir að tjá tilfinningar
sínar um pólitík. Ekki skyldi það þó vera gyðingdómurinn
sem ræður ferðinni? Miðað við afstöðu Loga gagnvart
kristnum má ekki útiloka það. En ég held að það sé raunar
hinn forni fjandi vinstrimanna, hræðslugæðin, sem ræður.
Halla sér að Stalín, koma sér í mjúkinn hjá andstæðingum
Ísraels; allir vita hverjir það eru.
Eftir Einar S.
Hálfdánarson
» Í fornaldar-
ríkinu Íran
er samkynhneigð
refsiverð.
Einar S. Hálfdánarson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Gyðinga-Hatari
Af og til berast frétt-
ir af óánægju kennara
og foreldra vegna
óboðlegra aðstæðna í
skólum borgarinnar
sem koma m.a. niður á
börnum með sérþarfir.
Nýlegar fréttir um mál
af þessu tagi komu frá
Dalskóla. Þar er hús-
næðið sprungið og
byggingarfram-
kvæmdir hafa dregist á langinn.
Ástandið kemur illa niður á nem-
endum og ekki síst börnum með sér-
þarfir. Í Dalskóla er engin aðstaða
fyrir sérkennslu og börnin hafa eng-
an stað til að vera á, eins og segir í
frétt um skólastarfið.
Óvissa fer sérlega illa í börn með
sérþarfir. Ástand sem þetta ýtir
undir kvíða sem hefur áhrif á líðan
barna í skólanum. Foreldrar eru
orðnir langþreyttir og hafa sumir
þess vegna sótt um pláss fyrir börn
sín í öðrum skólum. Að sækja um
pláss fyrir barn með sérþarfir í öðr-
um skóla er ekki einfalt mál. Þeir
fáu sérskólar og sérdeildir sem rek-
in eru í Reykjavík eru full og biðlist-
ar langir.
Vaxandi vanlíðan barna hefur ver-
ið mikið til umræðu í vetur. Birtar
hafa verið niðurstöður
kannana og einnig kom
út skýrsla frá land-
læknisembættinu þar
sem fram komu upp-
lýsingar um aukna
vanlíðan nemenda í
skólum. Skólaforðun er
vandi sem hefur farið
vaxandi samhliða auk-
inni vanlíðan barna í
skólum sínum. Í gögn-
um landlæknis segir að
rúmlega 9% ungmenna
á Íslandi hafi gert til-
raun til sjálfsvígs.
Tillögur að úrbótum og lausn-
um ýmist felldar eða vísað frá
Flokkur fólksins hefur lagt fram
tillögur í borgarstjórn sem lúta að
aðgengi barna að sérfræðiþjónustu
og tillögur um fjölgun eða stækkun
sérskólaúrræða. Tillögur hafa ýmist
verið felldar eða þeim vísað frá.
Snemma á nýju kjörtímabili lagði
ég fram tillögu um að skólasálfræð-
ingur skyldi vera í sérhverjum skóla
í a.m.k. 40% starfshlutfalli.
Þá lagði ég fram tillögu um bið-
listalaust aðgengi barna að sérfræð-
ingum borgarinnar. Það er á ábyrgð
skóla- og frístundaráðs að tryggja
aðgengi barna að skólasálfræðing-
um og að í skólum starfi nægjanlega
margir sálfræðingar og aðrir sér-
fræðingar til að sinna ólíkum náms-
og félagslegum þörfum barnanna. Á
þessu hefur verið mikill misbrestur í
langan tíma. „Skóli án aðgreiningar“
virkar einmitt ekki sem skyldi
vegna þess að í hinu almenna skóla-
kerfi er ekki fjölbreytt flóra fagfólks
til að sinna börnum með ólíkar
þarfir.
Allir vita að talmeinavandi sem
ekki er meðhöndlaður af fagaðila
getur brotið niður sjálfstraust
barns. Á vorönn lagði ég fram til-
lögu um að borgarstjórn samþykkti
að grunnskólar í Reykjavík sæju
börnum fyrir áframhaldandi tal-
meinaþjónustu í grunnskóla væri
það faglegt mat að frekari þjónustu
væri þörf.
Nokkrar tillögur sem snúa beint
að sérskólaúrræðum hafa verið
lagðar fram í vetur. Lagt var til að
fleiri sérskólaúrræði eins og Kletta-
skóli yrðu sett á laggirnar þar sem
hann er sprunginn. Klettaskóli er
eini sérskólinn í Reykjavík af sinni
gerð. Það er réttur hvers barns að
fá skólaúrræði við hæfi þar sem því
líður vel, þar sem námsefni er við
hæfi og félagslegum þörfum þess er
mætt. Í þessum efnum eiga foreldr-
ar ávallt að hafa val enda þekkja for-
eldrar börn sín og vita hvað hentar
þeim náms- og félagslega.
Þá freistaði Flokkur fólksins þess
að leggja til að breyta inntökuregl-
um í þátttökubekk Klettaskóla
þannig að þær verði rýmkaðar og
þátttökubekkjum fjölgað eftir þörf-
um. Eins og staðan er í dag eru inn-
tökuskilyrði í þátttökubekk þau
sömu og í Klettaskóla. Þetta eru of
ströng skilyrði og fælir mögulega
foreldra frá að sækja um fyrir börn
sín. Aðsókn væri meiri án efa ef skil-
yrðin væru ekki svona ströng. Vitað
er að hópur barna berst í bökkum í
almennum bekk með eða án stuðn-
ings eða sérkennslu.
Ofangreindar tillögur hafa ekki
hlotið hljómgrunn hjá meirihlutan-
um í borginni.
Nýlega lagði Flokkur fólksins til
að byggt yrði við Brúarskóla til þess
að hann gæti stækkað og tekið við
fleiri nemendum. Staðsetning Brú-
arskóla, sem er í Vesturhlíð, er afar
hentug fyrir skóla eins og Brúar-
skóla þar sem staðsetningin er
ótengd m.a. íbúðarhverfi og versl-
unum. Núna eru 19 börn á biðlista.
Brúarskóli er eini sinnar tegundar. Í
honum stunda nám börn sem eiga
við djúpstæðan hegðunarvanda að
stríða sem rekja má til ólíkra orsaka
og raskana. Þessari tillögu var vísað
til skóla- og frístundarráðs.
Biðlistar rótgróið
vandamál í Reykjavík
Börn eiga ekki að þurfa að bíða
eftir sérfræðiþjónustu af neinu tagi
en biðin eftir að komast til sálfræð-
ings, ýmist í viðtöl eða í greiningu,
og til talmeinafræðings er stundum
margir mánuðir. Biðlistar eru til-
komnir af því að þjónusta við börn
hefur ekki fengið nægjanlegt fjár-
magn. Þessi málaflokkur hefur verið
sveltur. Barn sem er sett í þær að-
stæður að stunda nám þar sem það
fær þörfum sínum ekki mætt og er
ekki meðal jafningja á á hættu að
veslast smám saman upp andlega.
Einn góðan veðurdag neitar þetta
barn kannski að fara í skólann.
Þetta barn er einnig í mun meiri
áhættu með að grípa til örþrifaráða
eins og sjálfskaða og jafnvel
sjálfsvígstilrauna síðar ef aðstæður
hafa verið því óhollar um langan
tíma.
Eftir Kolbrúnu
Baldursdóttur » Flokkur fólksins hef-
ur lagt fram all-
nokkrar tillögur sem
lúta að aðgengi barna að
sérfræðiþjónustu og til-
lögur um fjölgun eða
stækkun sérskóla-
úrræða
Kolbrún Baldursdóttir
Höfundur er sálfræðingur og
borgarfulltrúi Flokks fólksins.
Tillögur er varða börn og
skólamál ýmist felldar eða vísað frá
Í körfubolta Líflegt hefur verið á Miklatúni í veðurblíðunni að undanförnu og upplagt að bregða sér í boltaleik.
Eggert