Morgunblaðið - 28.05.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 28.05.2019, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Það var stór stund í fjölskyldu okkar þegar prins- inn á Raufarhöfn fæddist árið 1976, frumburður elsta bróður okkar Þórarins Stefánssonar og Sigurbjargar Jónsdóttur. Drengurinn bjarti fékk nafnið Hafþór og lífið á Raufarhöfn breytti um lit. Fleiri börn fylgdu í kjölfarið og áður en hendi væri veifað átti Tóti stærsta barnahópinn af okkur systkinum. Þau sem komust á legg voru Hafþór, Petrína Soffía, Jón og Þorbergur. Tóti lifði fyrir hafið og hafið var fyrir hann, eins og fleiri hrausta menn af hans kynslóð. Strax og strákarnir höfðu aldur til fóru þeir á sjóinn með pabba sínum, hörkuduglegir og fisknir. Nafnið á Hafþóri var réttnefni. Starfsvalið var augljóst og ein- falt. Hann ætlaði sömu leið og pabbinn. Hafþór þótti einstak- lega duglegur og var eftirsóttur um borð í togurum. Leti var ekki til í orðaforða Tóta og Haf- þór ólst upp við það að vinna og vinna vel. Í öllu þessu gleymdist kannski aðeins að hlúa að sál- inni, hrósa og faðma. Íslensk hraustmenni eru ekki sérstak- lega góð í þeim málum og lítið svigrúm gefið til þess að staldra við og spyrja um líðan hver annars. Hafþór átti ekki alltaf auðvelt með sig og á stundum gat hann verið sjálfum sér verstur. Þrátt fyrir góða greind og ríka hæfi- leika var sjálfsmyndin ekki sterk og auðveldara að nota stóryrði og bera sig vel en að fella tár á erfiðum stundum. Hafþór missti mikið þegar pabbi hans féll frá í maí 2010, eftir stutt en ströng veikindi. Hann talaði stundum um að hann vildi fara að hætta á sjón- um og gera eitthvað annað með líf sitt, enda með börn og fjöl- skyldu. Sjómennska er ekki fjöl- skylduvæn. Ekkert varð þó úr þeim áformum og hann var ný- kominn heim úr túr þegar dökkt Hafþór Þórarinsson ✝ Hafþór Þór-arinsson fædd- ist 20. apríl 1976. Hann lést 10. maí 2019. Útför Hafþórs fór fram 24. maí 2019. ský lagðist yfir. Eins og hendi væri veifað var Hafþór allur og hans nán- ustu í sárum. Yfir þessa fjölskyldu hafa dunið óvenju- lega mörg áföll og auðvelt að fá verk fyrir hjartað og kökk í hálsinn þeg- ar áfallasagan er rifjuð upp. Hvernig er hægt að leggja allt þetta á eina konu? Lífið er ekki réttlátt. Eftir stendur móðir hans, bein í baki, og tekst á við enn eitt verkefnið sem nú felst í því að fylgja elsta syninum til grafar. Með Hafþóri er genginn vel gerður og vel gefinn drengur, dulur og hlédrægur. Við í föð- urfjölskyldunni hans vonum að Hafþór finni fengsæl fiskimið hinum megin og vottum dætrum hans, móður, systkinum, ömmu, maka og fósturbörnum dýpstu samúð. Elsku Hafþór, farðu í friði og megir þú njóta vors og ljóss hin- um megin. Sigrún, Gunnhildur, Árni og Ólöf Stefánsbörn. Einu sinni prjónaði ég frosk. Þetta var flottur froskur, grænn með fléttaða fætur. Ég ákvað að gefa frænda mínum honum Haf- þóri hann í jólagjöf þegar hann var sjö ára. 25 árum seinna kom hann mér á óvart með því að draga upp froskinn. Hann hafði þá haldið upp á hann og passað öll þessi ár. Þetta gladdi mig mjög. Annað skipti gaf ég mömmu og pabba Hafþórs í jólagjöf lítið reiðhjól sem ég hafði útbúið úr vír og var hugsað sem skraut- gripur. Hann sagði mér síðar að þetta hjól hefði verið honum inn- blástur og fór hann að búa til ótrúleg listaverk úr vír svo sem eins og tvíþekjuflugvél og þriggja mastra skútu með full- um seglum og voru þetta mikil listaverk. Sköpunargleði og handlagni var Hafþóri í blóð borin og oft fór þetta saman við góðan húmor og glettni, eins og þegar hann færði pabba sínum gaffal að gjöf. Pabbi hans vildi borða hratt og Hafþór fékk þá hugmynd að búa til gaffal sem var tvíbreiður og gaf möguleika á „hraðáti“. Eftir Hafþór liggja margir gripir og allt bar þetta vitni um mikinn hagleik og hug- myndaflug. Hafþór var einstakur verk- maður, ósérhlífinn og fórnfús og alltaf til í að hjálpa öðrum við hvað sem var. Hann skyldi koma og hjálpa ætti hann þess nokk- urn kost. Einnig var honum um- hugað um að ættingjarnir ættu fisk í frysti og tók hann þar við af föður sínum. Þeir voru ótrú- lega líkir í sér; þótti vænt um sitt fólk en gáfu það kannski frekar í skyn með öskju af fiski en svo mörgum orðum. Ég var aldrei með Hafþóri til sjós en hef heyrt af þeim sem það voru að þar hefði hann verið frábær, getað gert hvað sem var, gengið í öll verk og fundið viðeigandi lausnir. Hann var fyrsti vélstjóri en var alveg til í að koma í að- gerð ef þurfti. Með Hafþóri er fallinn frá kjarnadrengur, hörkutól sem ekkert virtist bíta á en það var yfirborðið. Á sama tíma var hann mjúkur maður og breyskur eins og við erum ef til vill öll þótt fronturinn segi ann- að. Elsku Hafþór frændi, þín verður sárt saknað. Lena, Harpa Mjöll, Lotta, Sigga, Pétý, Jón, Beggi og aðrir aðstandendur, innilegar samúð- arkveðjur. Páll Stefánsson. Við spyrjum drottin særð, hvers vegna hann hafi það dularfulla verklag að kalla svo vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag. Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst, að sá með rétti snemma hvílast megi í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst, fundið svo til, að nægði löngum degi. (Jóhann S. Hannesson) Hafþór Þórarinsson er hrifinn á brott og ekkert stendur eftir nema tómleikinn. Sonur, stolt móður sinnar og föður, fallegur, duglegur og góð sál. Hvernig er hægt að koma orðum að svo að þau veiti stuðn- ing og styrk þegar harmurinn er svo mikill? Með orðunum hans Bubba Morthens í Kveðju sendi ég þér, elsku Sigga og fjölskylda, ósk um að allar góðar vættir verði með ykkur á þessum erfiðu tím- um. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljóss lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd. Og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. Megi minning um góðan son, bróður og pabba ylja ykkur og styrkja um ókomna framtíð. Kristín Helga Guðmundsdóttir. Á rólegu laugardagskvöldi er ég stödd erlendis. Ég stend í hópi fólks sem er að ræða hvers- dagsleg mál nútímans þegar ég fæ boð frá elstu dóttur minni um að hafa samband heim sem allra fyrst. Ég vissi strax að um eitt- hvað alvarlegt var að ræða. Símtalið var vont, svo vont og óraunverulegt, „Hafþór vinur þinn er dáinn“. Þetta gat ekki verið satt, við vorum að tala saman rétt áður en ég fór til út- landa um létt og alvarleg mál- efni þar sem við reyndum að stappa stálinu hvort í annað. Minningarnar um þig eru svo ótrúlega margar enda nær vin- skapur okkar langt aftur í tíma, allt til þess er við lékum okkur saman á leikskóla á Raufarhöfn. Samband okkar var stundum sterkt en stundum lítið eins og gengur og gerist í þroskaferli fullorðins fólks, allir fara sínar leiðir. Það var þó alltaf gaman hjá okkur þegar við hittumst, við gátum alltaf hlegið að vitleys- unni hvort í öðru en einnig deilt sorg og erfiðleikum. Þú hefur alltaf skipt mig miklu máli, elsku Hafþór minn. Ég mun alltaf sakna þín og kveð þig með miklum trega. Þín vinkona Rakel Jóna. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, HALLBJÖRN EÐVARÐ ÞÓRSSON Stórhóli 29, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík þann 15. maí. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 30. maí klukkan 14. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga. Helena Eydís Ingólfsdótir Hera Karín Hallbjörnsdóttir Arna Júlía Hallbjörnsdóttir Helga Hallbjörnsdóttir Eyjólfur Magnússon Þór Ottesen Pétursson og systkini Faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN HERJÓLFUR EÐVARÐSSON, Höfðabraut 16, Akranesi, lést þriðjudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 29. maí klukkan 13. Sóley Guðrún B. Ásrúnard. Sveinn Bjarni Magnússon Þóranna Hildur Kjartansd. Hendrik Björn Hermannsson Eðvarð Árni Kjartansson og barnabörn Okkar ástkæra SIGURLÍN MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 25. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Gunnarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÓLRÚN ELÍASDÓTTIR, verkakona og húsmóðir, Suðurgötu 6, Siglufirði, lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn 20. maí. Útförin fer fram í kyrrþey laugardaginn 1. júní klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á björgunarsveitina Stráka og slysavarnadeildina Vörn á Siglufirði. Ómar Geirsson Lísa Dögg Ómarsdóttir Arnþór Helgi Ómarsson Stenunn Helga Ómarsdóttir Sigurður Karl Guðnason og barnabörn ✝ Lára Vigfús-dóttir innan- hússarkitekt fædd- ist í Vestmanna- eyjum 25. ágúst 1929. Hún lést á öldrunarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal 19. apríl 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Vigfús Sigurðsson, skipstjóri og útgerðarmaður, f. 24. júlí 1893, d. 25. febrúar 1970, og Jóna G. Vilhjálms- dóttir, húsmóðir, f. 28. sept- ember 1905, d. 5. júlí 1993. Lára giftist Hilmari Daníelssyni flug- manni, en hann lést í flugslysi árið 1959. Seinni eig- inmaður hennar var Jóhann F. Guð- mundsson flugum- ferðarstjóri, en hann lést 2012. Láru verður minnst í minningarathöfn sem fram fer í Háteigskirkju í dag, 28. maí 2019, klukkan 13. Hún Lára hefur nú kvatt þessa jarðvist. Hún var gift föður mínum og við þekktumst í yfir fimm ára- tugi. Lára hefði orðið níræð nk. ágúst þannig að hún hafði lifað langa ævi, en ég veit að eftir að pabbi dó, fyrir sex árum, varð hún södd lífdaga. Hún saknaði hans svo mikið. Tómarúmið var svo stórt. Þau voru svo samhent í öllu. Þau voru alltaf dugleg að bjóða fjölskyldunni okkar og vinum heim og þar var dekrað við okkur af allri alúð með alls kyns veit- ingum og gestrisnin var 100%. Lúðan hennar var í uppáhaldi hjá okkur flestum. Þau voru alla tíð mjög góðir vinir tengdapabba míns og tengdamömmu. Heimili þeirra var fallegt og auðsjáanlega hugsað um hvern krók og kima, enda var hún inn- anhússarkitekt. Hennar augu sáu líka hvað mátti fara betur á okkar heimili því við leituðum oft til hennar með það. Sumarbústaðurinn þeirra var vinsæll aðkomustaður og oft gestkvæmt þar. Þar eyddi maður mörgum stundum í fegurð nátt- úrunnar; veiðitúrar, fífur týndar (með Jónu, mömmu hennar), sól- in sleikt og maturinn hennar Láru var einstakur. Maður hlakkaði alltaf til að sjá hvað yrði á borðum og flestöll árin var mat- urinn eldaður á kolaeldavél. Gítarinn var oftar en ekki tek- inn fram og leiddi Lára okkur í söngvum með sinni tónfögru rödd sem minnti mig á Ellý Vil- hjálms. Hún tók þátt af öllu hjarta þegar pabbi hlýddi kallinu um að hefja fangastarf. Þá fór Lára með gítarinn og söng fyrir fangana en pabbi prédikaði fagnaðarerindið um Krist. Mörg hjörtu voru snert þau ár sem þau sinntu þessu starfi. Alltaf var farið með páska- liljur til fanganna á páskum. Þegar þau heimsóttu okkur til Ameríku, þá var leitað vel að litlum gjöfum sem þau gætu fært föngunum heima á Íslandi. Þau voru í þessu saman af lífi og sál. Þau létu gera kort sem ber nafnið „líftrygging“ og það hann- aði Lára listilega. Margir kann- ast við þetta kort úti um allt land og jafnvel víðar. Fólk hefur kom- ið til mín og tjáð mér að þetta kort hafi bjargað lífi þeirra. Áður en Lára fór á hjúkrunar- heimilið í Vík í Mýrdal áttum við og bóndinn margar góðar stundir yfir fimmréttuðum kínamat sem okkur fannst öllum svo góður. Þá var mikið spjallað um þjóðmálin. Mörg voru símtölin milli okkar Láru. Þau voru oft löng því hún hafði frá svo mörgu skemmtilegu að segja og við hlógum oft dátt. Ég sakna þeirra. Við nutum þess að hafa hana hjá okkur á aðfangadagskvöld- um, í afmælum og útskriftum barnabarnanna og erum þakklát fyrir að hafa fengið að njóta sam- vista við hana á þeim stundum. Þegar hún fluttist til Víkur í Mýrdal á hjúkrunarheimilið var erfiðara að mæta með kínamat og hún átti erfitt með að taka símtöl frá okkur því heyrnin var farin að svíkja hana. Við fylgdumst vel með henni í gegnum frábært hjúkrunarfólk á staðnum. Við erum þakklát þeim fyrir umönnunina. Nú er hún komin á betri stað þar sem ekkert íþyngir, engar sorgir hrjá, engir sjúkdómar herja á og enginn söknuður ríkir. Blessuð sé minning hennar Láru, sem skilur eftir sig margar góðar minningar í lífi okkar sem eftir erum. Árný Björg Jóhannsdóttir Blandon. Lára Vigfúsdóttir Komið er að leið- arlokum hins jarð- neska lífs Hilmars. Margt má segja um þann mæta, ljúflynda og trausta dreng, en hér skal umfram allt þakkað fyrir þátttöku hans í kristilega starfinu frá unga aldri fram á elliár. Hann studdi við bakið á kristniboðsstarfinu með ýmsum hætti og fylgdist með í því sem um var að vera í innan- landsstarfi og alþjóðastarfi Kristniboðssambandsins og lagði því lið með ýmsum hætti. Þar á meðal má nefna að hann kom alla Hilmar E. Guðjónsson ✝ Hilmar E. Guð-jónsson fæddist 15. nóvember 1938. Hann lést 15. maí 2019. Útför Hilmars fór fram 24. maí 2019. leið frá Hellu síð- ustu árin, á meðan heilsan leyfði, til að spila undir almenn- um söng á samkom- um í Kristniboðs- salnum. Hann lét ekki veður og vind aftra sér nema ef heiðin lokaðist. Þessari þjónustu sjálfboðaliðans sinnti hann með gleði og þakklæti sem hann tjáði þegar við tókumst í hendur í lok samkomunnar. Það var gott að syngja með Hilmar sem undir- leikara. Hann þjónaði Drottni í trúfesti með þeim gjöfum sem honum voru gefnar. Hann hefur fullnað skeiðið, varðveitt trúna og á nú sveig réttlætisins sem Drottinn gefur. Hann blessi minningu Hilmars. Ragnar Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.