Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
✝ Baldur Ágústs-son fæddist á
Ásgrímsstöðum í
Hjaltastaðasókn 13.
febrúar 1933. Hann
lést 1. maí 2019.
Foreldrar hans
voru Helga Jó-
hanna Ágústs-
dóttir, f. 15. maí
1912 í Bakkagerði í
Desjarmýrarsókn,
d. 28. nóvember
1996, og Ágúst Georg Steins-
son, f. 5. desember 1912 í
Fremri-Fitjum í Miðfirði, d. 21.
desember 1998. Baldur var elst-
ur af fimm sonum þeirra hjóna,
en bræður hans eru: Vilhelm
Ágúst, f. 1937, Birgir Valur, f.
1939, Skúli Gunnar, f. 1943, og
Eyjólfur Steinn, f. 1951. Baldur
kvæntist síðasta vetrardag, 18.
apríl 1956, Önnu Maríu Halls-
dóttur, f. í Reykjavík 18. júlí
1936, d. 28. febrúar 2019. For-
eldrar hennar voru Guðbjörg
Sigurlín Bjarnadóttir húsfreyja,
f. 1904 í Vestmannaeyjum, d.
1991, og Hallur Helgason vél-
stjóri, f. 1900 á Akureyri, d.
1956. Börn Baldurs og Önnu
Maríu eru: 1) Halla Elín
Baldursdóttir, f. 27. júní 1955,
fræðaskóla Akureyrar og 1955
lauk hann verslunarprófi frá
verslunarskóla sænska sam-
bandsins í Stokkhólmi eftir árs-
dvöl þar. Baldur var í fim-
leikahópi á unglingsaldri,
stundaði skíði og skauta frá
barnæsku fram á fullorðinsár
og golf og sund síðari árin.
Baldur og Anna María áttu
fyrst heimili að Ránargötu 10 á
Akureyri, þar sem einnig
bjuggu foreldrar Baldurs og
yngri bræður hans, en bjuggu
síðar í Austurbyggð 7. Árið
1964 fluttust þau búferlum til
Reykjavíkur og áttu þar heimili
æ síðan. Fyrstu árin bjuggu þau
í Vesturbæ Reykjavíkur en
lengst af á Barðaströnd á Sel-
tjarnarnesi og í Hlíðargerði í
Reykjavík. Bróðurpart starfs-
ævinnar var Baldur verslunar-
stjóri í kjörbúðum á Akureyri
og í Reykjavík, m.a. hjá KEA á
Akureyri og hjá Silla og Valda í
Reykjavík. Í þrjá áratugi veitti
hann forstöðu útibúi Bílaleigu
Akureyrar í Reykjavík. Baldur
var einn stofnenda Freeport-
klúbbsins, sem síðar kom að
stofnun SÁÁ, og var um árabil
virkur félagi í Frímúrara-
reglunni á Íslandi.
Útför Baldurs fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 28. maí
2019, og hefst athöfnin klukkan
15.
gift Jóni Kr. Sól-
nes, f. 1948, d.
2011. Börn þeirra
eru Lilja Björk,
Baldur Már, Jón
Ragnar, Valgerður
og Kristín, og eiga
þau sex barnabörn.
2) Helga Guðbjörg
Baldursdóttir, f.
10. desember 1957,
gift Gísla Baldri
Garðarssyni, f.
1950. Börn þeirra eru Garðar
Páll, Anna María, Grímur Helgi
og Gísli Baldur, og eiga þau
átta barnabörn. 3) Ágúst Bald-
ursson, f. 23. mars 1960. 4)
Sigurlín Baldursdóttir, f. 7. júní
1961, gift Guðjóni Ómari
Davíðssyni, f. 1960. Synir þeirra
eru Andri Steinn og Ágúst Úlf-
ar, og eiga þau eitt barnabarn.
Baldur ólst upp á Þórshöfn á
Langanesi og Akureyri. Hann
var í sveit á sumrin, fyrst á Ás-
grímsstöðum í Hjaltastaðasókn
hjá ömmu sinni og afa, Guð-
björgu Alexandersdóttur og
Ágústi Ásgrímssyni, og síðar í
Kollavík í Þistilfirði hjá hjón-
unum Jakobi Sigurðssyni og
Kristjönu Jónsdóttur. Baldur
lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
Nú þegar komið er að kveðju-
stund hellast yfir mig allar hvers-
dagslegu minningarnar úr dag-
lega lífinu, öll fallegu orðin.
- Pabbi! Pabbi! Ertu kominn
heim úr vinnunni?
- Hæ, Lína, tína, mína, sína –
ég saknaði þín svo.
- Pabbi! Mér er illt í eyranu!
- Ég skal fara með þig strax til
læknis.
- Pabbi, viltu hjálpa mér með
skautana?
- Alveg sjálfsagt, ástin mín.
- Pabbi, sjáðu hvað ég er dug-
leg að skíða!
- Duglegust, ástin mín.
- Pabbi, ég náði bílprófinu!
- Vissi alltaf að þú myndir ná
því.
- Pabbi, mig vantar smá-
hjálp …
- Hvernig get ég hjálpað þér,
ástin mín?
- Pabbi, ég náði öllum prófun-
um!
- Stoltur af þér, ástin mín.
- Pabbi, ég er að fara að gifta
mig!
- Hlakka til að leiða þig inn
kirkjugólfið.
- Pabbi, megum við Andri og
Ágúst koma í heimsókn?
- Auðvitað, ástin mín, hlakka til
að hitta afastrákana mína.
- Pabbi, ég sakna þín svo mik-
ið.
- Ég verð alltaf hjá þér, ástin
mín.
- Pabbi, ég elska þig.
- Ég elska þig líka, ástin mín.
Þín dóttir,
Sigurlín.
Ef ég ætti að lýsa afa mínum
og nafna, Baldri Ágústssyni, í
fáum orðum þá var hann í mínum
huga mikill herramaður og bæði
duglegur og örlátur. Baldur afi
lagði sig allan fram í vinnu og
heimafyrir, þar sem hann hugaði
fyrst og fremst að öðrum en sjálf-
um sér.
Í vinnunni voru viðskiptavinir
hans og samstarfsfólk í fyrirrúmi
og heima var það Anna María
amma ásamt stórum hópi barna,
barnabarna og langafabarna. Afi
hugaði að hverjum einstaklingi í
þessum stóra hópi, var örlátur á
tíma sinn og hvatti okkur öll til
dáða hvert á sínu sviði.
Þau afi og amma hafa alltaf
verið til staðar fyrir mig á ólíkum
tímapunktum í lífinu. Ég minnist
sérstaklega gleðistundanna með
þeim á golfvellinum árin eftir að
ég fluttist suður til að stunda há-
skólanám.
Amma hafði okkur nafnana
iðulega undir með sinni öruggu
spilamennsku og eftir golfhring
nutum við góðs matar í golfskál-
anum eða eldamennsku ömmu í
Hlíðargerði. Ekki aðeins voru
þessar stundir einstök tilbreyt-
ing frá einhæfu háskólalífinu
heldur hafði það mikil áhrif á mig
að sjá þau afa og ömmu svo glöð
og samstiga í lífinu.
Á síðari árum, eftir starfslok
afa, gafst meira næði til að líta yf-
ir farinn veg og rifja upp gamla
tíma í lífi þeirra ömmu. Hann
sagði stoltur frá æskunni á Þórs-
höfn á Langanesi og ferðum sín-
um til afa síns og ömmu sem vildu
svo gjarnan halda þessum táp-
mikla dreng þegar foreldrar hans
fluttust burt, fyrst til Þórshafnar
og síðan til Akureyrar.
Baldur afi naut þess að læra og
náði góðum námsárangri í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar, þar sem
hann var m.a. inspector og
hringdi inn í tíma. Honum stóð
skólavist til boða í Menntaskól-
anum á Akureyri en átti þess ekki
kost að sækja frekara nám heldur
þurfti hann að vinna sér inn kaup
í þágu heimilisins, foreldra sinna
og bræðra. Afi sá alla tíð á eftir
þessu námstækifæri, þótt hann
nyti þess að lesa sér til yndisauka
ævina á enda.
Nokkrum árum eftir að skóla-
vist hans við gagnfræðaskólann
lauk, bauðst honum að leggja
stund á verslunarnám í Svíþjóð.
Þar dvaldi afi í rúmt ár við nám í
Stokkhólmi og Dölunum, oft við
þröngan kost, og naut þess að
læra um nýjustu stefnur og
strauma í verslunarrekstri.
Afi hafðir mikla ánægju af því
að rifja upp íþróttaiðkun þeirra
bræðranna á æskuárunum á Ak-
ureyri, þar sem þeir áttu fyrst
heimili á Háteigi og síðar í Rán-
argötunni.
Bræðurnir iðkuðu skautahlaup
á ísilögðum Pollinum og skíða-
stökk og stórsvig í Hlíðarfjalli,
þar sem gengið var í fjallið jafn-
vel marga daga í röð.
Íþróttaáhuginn fylgdi Baldri
afa alla tíð og þau amma fóru í
langar og röskar göngur, t.d. um
Elliðaárdalinn, og stunduðu golf-
íþróttina af kappi um allt land og
utan landsteinanna. Þess utan
iðkaði afi sund og lyftingar síð-
ustu áratugina. Þá naut afi þess
að ferðast bæði hér á landi og er-
lendis og þau amma áttu afar
góðar stundir á ferðalögum, eftir
að börnin voru orðin fullorðin, og
alltaf komu þau færandi hendi
heim.
Afi hefur verið mér fyrirmynd
á svo ótalmörgum sviðum í lífinu.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að njóta samvista við hann
í svo langan tíma.
Baldur Már Helgason.
Elsku afi minn hefur kvatt
þennan heim. Það er skrýtið til
þess að hugsa að það eru ekki
nema rúmir tveir mánuðir síðan
ég sat og skrifaði nokkur orð um
elsku ömmu.
Þó er það kannski ekki svo
skrýtið. Amma og afi voru ein-
staklega samrýnd hjón og sam-
taka í lífinu. Það sást kannski
best þegar amma veiktist og afi
gat ekki hugsað sér annað en að
sitja hjá henni frá morgni til
kvölds.
Afi var einstakur maður. Hann
var duglegur, ljúfur og hafði drif-
kraft á við heilan her. Það var
alltaf hægt að leita til afa og hann
undi sér best í því að hugsa um
fólkið sitt. Hann var „reddarinn“
í fjölskyldunni og þannig vildi
hann hafa það.
Þolinmæði var hins vegar ekki
hans sterkasta hlið. Hann var til
dæmis alltaf mættur hálftíma
fyrr í öll barnaafmæli og var und-
irrituð yfirleitt enn að blása á sér
hárið þegar þau hjónin hringdu
bjöllunni. Hann var líka þekktur
fyrir það að vera alltaf kominn út
í bíl löngu á undan samferðafólki
sínu, að eigin sögn til að „hita bíl-
inn“, þó það væri sumar. Já, það
er óhætt að segja að afi var ekki
mikið fyrir eitthvert hangs.
Afi elskaði að ferðast og átti
hann ótal minningar frá ævin-
týraferðum um allan heim. Það
var yndislegt að hlusta á hann
segja okkur sögurnar af ferðalög-
um þeirra ömmu. Hann mundi
hvert einasta smáatriði úr hverri
ferð og naut þess að segja frá.
Flórída var griðastaður þeirra
hjóna. Fyrst á Casa Del Mar þar
sem afi kafaði eftir skeljum og
öðrum dýrmætum hlutum úr
Mexíkóflóanum, og svo síðar í
húsi þeirra á University Park,
þar sem þau hjónin smituðust af
golfbakteríunni og höfðu gaman
af.
Afi var mikill bílakall. Það var
ósjaldan sem Bjarni sló á þráðinn
til hans þegar við hjónin vorum í
einhverjum bílapælingum og
þótti afa virkilega vænt um það.
Það var alltaf dýrindis matur í
Hlíðargerðinu hjá ömmu og afa
þar sem amma galdraði hverja
veisluna af annarri fram úr eld-
húsinu. Það var hins vegar ein-
ungis einn maður sem sá um að
ganga frá eftir matinn og það var
afi. Hann setti á sig svuntu, rak
alla út úr eldhúsinu og gekk frá á
methraða. Þetta fannst mér frá-
bær verkaskipting hjá þeim hjón-
um.
Afi fylgdist alltaf vel með okk-
ur barnabörnum sínum (og svo
seinna barnabarnabörnum) og
var óendanlega stoltur af okkur
öllum. Þegar við kíktum í heim-
sókn til hans síðastliðin ár þá
fannst honum alltaf skemmtileg-
ast að fá fréttir af fólkinu sínu.
Það var líka alltaf notalegt fyrir
barnabarnabörnin að kíkja í
heimsókn til langömmu og lang-
afa. Á meðan við fullorðna fólkið
fengum okkur kaffi setti afi eitt-
hvað í sjónvarpið fyrir krakkana,
laumaðist svo inn í eldhús og náði
í kók fyrir þau. Þetta var bara
leyfilegt hjá langafa og fannst
þeim þetta mikið sport.
Elsku afi minn, það er gott að
hugsa til þess að nú ertu kominn
til ömmu, laus við veikindin og
líður betur. Ég á eftir að sakna
þess að fá þig í heimsókn, heyra
þig hvísla að mér hvort ég eigi
nokkuð sódavatn og horfa á fal-
lega brosið þitt þegar ég svara
játandi.
Við fjölskyldan kveðjum þig
með þakklæti í hjarta. Megi
minning um góðan mann lifa.
Anna María Gísladóttir
og fjölskylda.
Komið er að kveðjustund. Elsti
bróðir okkar, Baldur, er fallinn
frá á áttugasta og sjötta aldurs-
ári. Kraftarnir höfðu hratt dvínað
á síðustu mánuðum og lífsneist-
inn dofnaði enn frekar við fráfall
Önnu Maríu, eiginkonu Baldurs
og mágkonu okkar til meira en
sex áratuga, fyrir röskum tveim-
ur mánuðum.
Að leiðarlokum streyma minn-
ingarnar fram. Uppvöxturinn
austur á Þórshöfn á Langanesi og
síðar á Akureyri birtist í rósrauð-
um bjarma. Þetta voru góð ár og
við brölluðum margt. Að vonum
litum við upp til okkar elsta bróð-
ur og auðvitað var ekki ónýtt að
eiga hann að þegar hann hafði
tekið bílpróf. Baldur var óspar á
að skutla okkur yngri bræðrun-
um þangað sem við þurftum að
fara enda þótti honum ekki leið-
inlegt að vera undir stýri.
Eftir að hafa sótt sér verslun-
armenntun til Svíþjóðar og starf-
að sem verslunarmaður á Akur-
eyri um nokkurra ára skeið lá leið
Baldurs suður yfir heiðar. Hann
hóf að starfa hjá Silla & Valda og
tengdist Silla afar sterkum bönd-
um. Baldur einkenndi alla tíð að
vera vinur vina sinna og hann átti
stóran vina- og kunningjahóp.
Á áttunda áratugnum þegar
við þrír bræðurnir, Villi, Biggi og
Skúli, stofnuðum Höld/Bílaleigu
Akureyrar kom fljótlega í ljós að
nauðsynlegt væri, til þess að
reksturinn mætti dafna sem best,
að við settum á stofn útibú í
Reykjavík, þar sem markaðurinn
væri stærstur. Baldur var feng-
inn til þess að stýra útibúinu og
gerði það af stakri trúmennsku í
á þriðja tug ára. Rekstur útibús-
ins óx ár frá ári undir stjórn Bald-
urs, enda var þjónustulund hans
einstök og í verslunarstörfum
sínum hafði hann byggt upp víð-
tækt tengslanet sem kom sér vel
fyrir okkar rekstur.
Snemma hóf Eyfi, yngstur
okkar bræðra, að starfa hjá Bíla-
leigu Akureyrar og því störfuðum
við allir fimm árum saman hjá
fyrirtækinu. Samstarf okkar
bræðra, hvort sem var við störf
okkar hjá fyrirtækinu eða utan
þess, hefur alltaf einkennst af
trúmennsku og gagnkvæmri
virðingu. Við höfum alla tíð verið
samrýndir og samstiga og það er
mikil gæfa.
Baldur kom í hinsta sinn í
stutta heimsókn til Akureyrar á
sólríkum júnídegi á síðasta ári.
Heimsóknin var gleðileg og okk-
ur öllum minnisstæð. Það fór vel
á því við enda heimsóknarinnar
að við bræður settumst niður á
Bautanum og snæddum saman
hamborgara, í sama húsi og Bíla-
leiga Akureyrar opnaði forðum
daga fyrstu afgreiðslu sína á
Akureyri.
Þakklæti er okkur efst í huga
fyrir öll árin sem við áttum með
okkar elsta bróður í leik og starfi.
En það hafði hratt húmað að
kveldi og hann var hvíldinni feg-
inn.
Blessuð sé minning hans.
Börnum Baldurs, Höllu Elínu,
Helgu, Ágústi og Sigurlín, og fjöl-
skyldum þeirra sendum við ein-
lægar samúðarkveðjur.
Vilhelm, Birgir, Skúli og
Eyjólfur Ágústssynir.
Elsku Baldur, nú er komið að
kveðjustund eftir langt og far-
sælt samstarf um langa tíð.
Það var erfitt að horfa upp á
það hversu þungbært það var þér
að kveðja hana Önnu Maríu þína
fyrir rétt rúmum tveimur mán-
uðum eftir erfið veikindi hennar
síðustu árin. Stóðst þú eins og
klettur við hlið hennar. Heimsótt-
ir hana daglega og engum duldist
sú ást sem þið báruð hvort til
annars.
Ég var svo lánsamur að kynn-
ast þér árið 1978, aðeins 15 ára
gamall, er ég kom til vinnu hjá
Bílaleigunni í Reykjavík, óharðn-
aður unglingur sem fékk hlýjar
og góðar móttökur. Hjartalag
ykkar, kraftur og röggsemi mót-
aði mig til framtíðar. Enda
unnum við frábærlega saman í 25
ár eða til ársins 2003 þegar þú
lést af störfum sem stjórnandi
Bílaleigu Akureyrar í Reykjavík
og ég tók við keflinu.
Framlag þitt við uppbygg-
inguna á fyrirtækinu þegar
ferðaþjónustan var að slíta
barnsskónum og dugnaður þinn
var stór þáttur í farsælli og góðri
sögu. Þér lá alltaf á, allt varð að
gerast strax. Nokkurra mínútna
matartími var alveg nóg og síðan
var bara að drífa sig að vinna.
Hlutina varð þó að gera vel og
þjónustan átti að vera framúr-
skarandi. Þessi atriði hafa verið
gott veganesti fyrir okkur sem
tókum við og höldum áfram þar
sem þú skildir við þegar þú hætt-
ir störfum.
Ég kynntist því strax sem ung-
ur maður hversu vel þú vildir
gera við þína nánustu. Ef eitt-
hvað var í gangi varstu alltaf
tilbúinn til þess að rétta hjálpar-
hönd, hvað sem það var sem
þurfti að gera. Ég var svo hepp-
inn að vera eins og hluti af þess-
ari fjölskyldu og hefur okkur
Báru allaf liðið eins og við værum
tengd ykkur Önnu Maríu fjöl-
skylduböndum. Þið kennduð okk-
ur meðal annars að njóta Flórída
sem var ykkar uppáhaldsstaður.
Þú fylgdir mér í frímúrarastarfið
og við áttum margar góðar stund-
ir sem of langt væri að telja upp.
Það voru samvistirnar í vinnunni
sem voru mér þó kannski dýr-
mætastar og lærdómsríkastar.
Ég var svo lánsamur að spila golf
með ykkur Önnu Maríu á Hval-
eyrinni í eitt síðasta skiptið sem
hún treysti sér á völlinn. Þú vildir
endilega draga bæði þitt sett og
hennar til þess að gera henni auð-
veldara fyrir, þrátt fyrir að þú
værir kominn á níræðisaldurinn.
Það var alltaf gaman að fá þig í
heimsókn í vinnuna í Skeifunni og
nú er gott er að hugsa til þess
hversu stoltur þú varst af þeim
sem tóku við og héldu áfram upp-
byggingu á fyrirtækinu sem þú
varst svo stoltur af. Ég get aldrei
að fullu þakkað það uppeldi, vin-
arþel og hlýju sem þú sýndir mér
og okkur í gegnum tíðina. Þú
varst hreinn og beinn, tilfinninga-
næmur og sanngjarn við sam-
starfsmenn og viðskiptavini. Allt-
af til í að fórna þér til þess að
sinna öðrum á hvern þann hátt
sem þú gast.
Við kveðjum þig Baldur og
þökkum fyrir allt það er þú gafst
okkur með þinni ást og kærleika í
gegnum tíðina.
Við elskum þig og söknum.
Bergþór Karlsson,
Bára Kristjánsdóttir.
Baldur Ágústsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
HALLGRÍMS A. VIKTORSSONAR,
fyrrverandi flugstjóra.
Ragnheiður V. Rögnvaldsdóttir
Kristján Hallgrímsson Guðrún Brynjólfsdóttir
Hrannar Hallgrímsson Heiða Guðbrandsdóttir
Auður Hallgrímsdóttir
og barnabörn
Okkar heittelskaða eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
EMMA SIGURJÓNA RAFNSDÓTTIR,
Urðarvegi 35, Ísafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði,
föstudaginn 24. maí, umvafin ást og hlýju.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
1. júní klukkan 14.
Páll Helgi Sturlaugsson
Rafn Pálsson Ingibjörg Heba Halldórsdóttir
Þórunn Pálsdóttir Hermann Jón Halldórsson
Fanney Pálsdóttir Ingvar Jakobsson
Arnar Pálsson Halla Björk Þorláksdóttir
Birna Pálsdóttir Rögnvaldur Magnússon
og barnabörn