Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
„LÁTTU OKKUR BARA FÁ EITTHVAÐ SEM
VIÐ GETUM SEINNA ÁTT VIÐ.”
„ÞETTA VERÐUR BARA TÍMABUNDIÐ,
STEFÁN, LAFÐIN ÞARF AÐ VENJAST ÞVÍ AÐ
GAMLI SEPPINN SÉ DAUÐUR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að muna góðu
stundirnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPURÐU HUNDINN.
HVORIR ERU STERKARI?
KETTIR EÐA HUNDAR?”
HUNDAR, EN BARA
EF LITIÐ ER TIL
ANDREMMU
ÉG LAS ÞAÐ AÐ
UTANBÆJARMENN VÆRU
LITNIR HORNAUGA Á
ÞESSUM BAR!
HVAR
LASTU
ÞAÐ?
ÚR ANDLITUM
ÞEIRRA!
Embla Rún, Sölvi Rafn, Briet Dóra
og Kolbrún Ýr; 3) Heiða Kristín, f.
20.4. 1983, framkvæmdastjóri Efnis
ehf. Eiginmaður hennar er Guð-
mundur Kristján Jónsson skipu-
lagsfræðingur. Synir Heiðu Krist-
ínar eru Benedikt Espólín og Snorri
Espólín; 4) Snorri, f. 1.6. 1984,
tónlistarmaður. Eiginkona hans er
Saga Garðarsdóttir leikkona og
dóttir þeirra er Edda Kristín.
Bræður Helga eru: Ísleifur, f. 4.7.
1947, fv. starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna, kvæntur Auði Alberts-
dóttur; Kristinn, f. 29.4. 1956, kenn-
ari í Gautaborg, í sambúð með Evu
Lenu Hartwig og Gissur, f. 2.4.
1958, ráðuneytisstjóri, kvæntur
Arnheiði Gígju Guðmundsdóttur,
sérfræðingi hjá Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins.
Foreldrar Helga voru hjónin
Pétur Kristjónsson, f. 23.4. 1926, d.
14.4. 2007 starfaði lengi hjá
Samvinnutryggingum, og Kristín
Ísleifsdóttir, f. 13.2. 1927, d. 24.11.
1969, húsmóðir í Reykjavík og
Kópavogi.
Helgi Pétursson
Pétur Kristjónsson
skrifstofumaður í Rvík og Kópavogi
Sigþrúður Pétursdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Pétur Þorsteinsson
steinsmiður í Reykjavík
Kristín Sigurðardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Daði Daðason
bóndi á Litla-Vatnshorni
Guðbjörg S. Jóhannesdóttir
húsmóðir á Litla-Vatnshorni í Haukadal í Dölum
Kristjón Daðason
múrarameistari í Reykjavík
Rósa Daðadóttir Hjörvar
húsmóðir í RvíkÚlfur Hjörvar rithöfundur
Helgi Hjörvar fv.
alþingismaður
Guðbjörg
Kristjónsdóttir
húsmóðir í
Reykjavík
Kristján Einarsson
fv. bæjarfulltrúi og
slökkviliðsstjóri í Árborg
Kristjón
Daðason
trompet-
leikari
Daði Einarsson
tónlistarkennari
og básúnuleikari
Daði Freyr
Pétursson
tónlistarmaður
í Berlín
Pétur Einarsson
hljóðmeistari
Einar Sigurðsson
bóndi í Fróðholtshjáleigu á Rangárvöllum
Soffía Ísleifsdóttir
húsmóðir í Tjarnar-
húsum á Seltjarnarnesi
Ísleifur Einarsson
bóndi á Læk
Kristín Jóhannsdóttir
húsfreyja á Læk í Ölfusi
Jóhann Hannesson
bóndi í Eyvakoti og á
Baugsstöðum
Elín Magnúsdóttir
húsmóðir í Eyvakoti á Eyrarbakka
og Baugsstöðum í Flóa
Úr frændgarði Helga Péturssonar
Kristín Ísleifsdóttir
húsmóðir í Rvík og Kópavogi
Fía á Sandi setti á sunnudageina veðurvísu heldur en
ekki á Leirinn með þeim fyr-
irvara þó að veðurspána væri að
marka:
Öll er tíð með elegans
eins og fyrir borgun,
en skítlegt eðli skaparans
skilar sér víst á morgun.
Á laugardag setti Friðrik Stein-
grímsson á Leirinn afmæliskveðju
frá sér til sín – og lét þess getið
að hann hefði fengið nýtt hné í
fyrra:
Við elli berst með vopni og verju
virðist sigur hafa brátt,
yngist nú með ári hverju
og endurnýjast smátt og smátt.
Fía sendi honum afmæliskveðju
með þessari athugasemd: „Þú
sigrar nú ellina með glans!“:
Með aldri mun sjarminn af þér skín-
a þú átt bara að fylgja lukkunni.
Borða þitt konfekt og bergja vín
og bótoxið reddar svo hrukkunni,
– þessari einu!
Pétur Stefánsson sagði: „Til
lukku með 65 árin“:
Friðrik er ennþá ern og hress,
ei í huga skýjaður.
Hleypur um grund sem göfugt ess
glaður og endurnýjaður.
Og Davíð Hjálmar í Davíðshaga
óskaði Friðriki til hamingju með
afmælið og yngri búk:
Víst má Friðrik verjast sliti
og virðist aldrei ráðalaus
en mun hann áfram yrkj’af viti
með ólærðan og nýjan haus?
Hér koma svo þakkir frá Frið-
riki:
Öll við lullum lífsins veg
loks að grafar bakka,
kæru vinir, klökkur ég
kveðjur góðar þakka.
Helgi R. Einarsson skrifar að
stundum verði maður klumsa og
yrkir um málþóf á þingi:
Þingflokkurinn mærir
sig mjög og einnig stærir.
Hér og þar
í höll, á bar
hrokinn liðið nærir.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir
um andvökunætur:
Vornótt marga vekur þrá
vaknar líf af dvala.
Flestir sætast sofa þá
en sumir þurfa að tala.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Eðli skaparans og
afmæliskveðjur
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.