Morgunblaðið - 28.05.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.05.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Pepsi Max-deild kvenna ÍBV – Stjarnan ......................................... 5:0 Valur – Selfoss .......................................... 4:1 Fylkir – HK/Víkingur .............................. 1:2 Staðan: Valur 5 5 0 0 17:3 15 Breiðablik 4 4 0 0 13:2 12 Þór/KA 5 3 0 2 10:11 9 Stjarnan 5 3 0 2 5:7 9 ÍBV 5 2 0 3 9:7 6 Fylkir 5 2 0 3 6:9 6 HK/Víkingur 5 2 0 3 3:7 6 Selfoss 5 2 0 3 6:11 6 KR 4 1 0 3 3:7 3 Keflavík 5 0 0 5 4:12 0 England B-deild, umspil: Derby – Aston Villa ................................. 2:1  Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna- hópi Aston Villa.  Villa leikur í efstu deild á næsta tímabili. Svíþjóð Hammarby – Norrköping....................... 2:2  Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn fyrir Hammarby og skoraði fyrra mark liðsins.  Guðmundur Þórarinsson lék allan leik- inn fyrir Norrköping, en Alfons Sampsted var ekki í leikmannahópi liðsins. Staða efstu liða: Malmö 11 7 3 1 22:8 24 Gautaborg 11 6 3 2 20:11 21 Djurgården 11 6 3 2 19:10 21 AIK 11 6 3 2 14:9 21 Häcken 11 6 2 3 17:10 20 Hammarby 11 5 4 2 20:14 19 Elfsborg 11 4 4 3 16:17 16 Norrköping 11 3 6 2 16:15 15 Sirius 11 4 1 6 16:19 13 Östersund 11 3 4 4 12:17 13 Kalmar 11 2 6 3 10:12 12 Örebro 11 3 2 6 14:20 11 Helsingborg 11 2 4 5 12:18 10 Sundsvall 11 2 3 6 13:17 9 Eskilstuna 11 1 3 7 9:21 6 Falkenberg 11 1 3 7 9:21 6 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Kópavogsvöllur: Breiðablik – KR........19:15 Bikarkeppni karla, Mjólkurbikarinn: Eimskipsvöllurinn: Víkingur – KA...........18 Mustadvöllurinn: Grindavík – Vestri .......18 Nettóvöllurinn: Keflavík– Njarðvík ....19:15 Í KVÖLD! 6. UMFERÐ Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Skagamenn halda áfram að slá í gegn í Pepsi Max-deild karla í knatt- spyrnu en nýliðarnir eru enn einir án taps og hafa þriggja stiga forskot á toppnum eftir fyrstu sex umferð- irnar. ÍA hefur nú unnið fjögur af þeim fimm liðum sem spáð var efstu sætum deildarinnar og fengið aðeins á sig eitt mark gegn Val, FH, Breiðabliki og nú síðast Stjörnunni þar sem Skagamenn unnu 2:0. Þá hefur liðið bæði skorað mest, 12 mörk, og fengið fæst á sig, aðeins fjögur eins og Breiðablik. Það sem hefur hins vegar komið í veg fyrir að Skagamenn einoki um- ræðuna á kaffistofum landsins með góðu gengi sínu er skelfileg byrjun Íslandsmeistara Vals. Liðið tapaði um helgina sínum fjórða leik, 1:0 fyr- ir Breiðabliki, er aðeins með fjögur stig og enn án sigurs á heimavelli. Til samanburðar tapaði Valur aðeins tveimur deildarleikjum í fyrra. Með sigri sínum á Hlíðarenda má hins vegar segja að Breiðablik hafi staðist fyrsta prófið gegn þeim liðum sem spáð var efstu sætunum. Nú er kapphlaup hafið til þess að halda í við Skagamenn, sem bíður það verk- efni á næstunni halda dampi gegn þeim liðum sem spáð var lakara gengi en þau sem þegar hafa legið í valnum. Þessi frábæra byrjun gegn „stóru“ liðunum er til lítils ef ekki verður hægt að fylgja henni eftir gegn öðrum liðum líka. Afstýrði að færi verr Hannes Þór Halldórsson, mark- vörður Vals, er leikmaður 6. umferð- ar að mati Morgunblaðsins. Hannes gat ekki komið í veg fyrir 1:0 tap sinna manna fyrir Breiðabliki en átti þó stórleik, afstýrði að færi verr „og varði hvert dauðafærið á fætur öðru“, eins og sagði í umfjöllun Morgunblaðsins um leikinn. Hannes er 35 ára gamall og kom til Íslandsmeistara Vals í byrjun apríl eftir sex ár í atvinnumennsku. Erlendis spilaði hann í Noregi, Hol- landi, Danmörku og síðast í Aserba- ídsjan. Áður en hann hélt út varð hann meðal annars tvívegis Íslands- og bikarmeistari með KR. Hannes hefur verið aðalmarkvörður lands- liðsins síðustu ár og á að baki 59 landsleiki fyrir Íslands hönd. Orðinn fastamaður Blika Í annað sinn í sumar er Kolbeinn Þórðarson úr Breiðabliki besti ungi leikmaður umferðarinnar að mati Morgunblaðsins. Hann fékk tvö M fyrir frammistöðu sína gegn Val á sunnudag þar sem hann var mjög öflugur á miðjunni og stýrði þaðan sóknarleiknum. Morgunblaðið valdi hann einnig í 3. umferð eftir sigur Blika á Víkingi R., en hinn 19 ára gamli Kolbeinn skoraði þrjú mörk í fyrstu þremur umferðunum. Eftir að hafa komið inn á sem varamaður í fyrstu tveim- ur leikjunum hefur hann fest sig í sessi í byrjunarliðinu hjá uppeldis- félaginu og staðist traustið vel. Dæmdi einn og hálfan leik Í fyrsta sinn í sumar útnefnir Morgunblaðið dómara umferð- arinnar, enda er ekki hægt að horfa framhjá því hvernig Sigurður Hjört- ur Þrastarson stal senunni um liðna helgi. Hann fékk 9 í einkunn Morg- unblaðsins fyrir frammistöðuna í leik ÍA og Stjörnunnar á sunnudag, en daginn áður hafði hann hlaupið í skarðið á Akureyri og dæmt síðari hálfleikinn í leik KA og ÍBV eftir að Vilhjálmur Alvar Þórarinsson meiddist. Þar fékk Sigurður einnig 9 fyrir frammistöðuna og uppskar því ríkulega í einkunnagjöf blaðsins í umferðinni. Fetuðu í fótspor fjölskyldunnar Tveir ungir leikmenn skoruðu sín fyrstu mörk í efstu deild í umferð- inni. Hinn 19 ára gamli Kolbeinn Birgir Finnsson skoraði fyrir Fylki gegn FH, en hann var að spila sinn 14. leik í efstu deild. Hann steig sín fyrstu skref sumarið 2015, þá 15 ára gamall, en fór þá um haustið til Gronigen í Hollandi. Hann er nú á mála hjá Brentford á Englandi, en var lánaður til uppeldisfélagsins í Árbænum til 1. júlí næstkomandi. Kolbeinn á tvo A-landsleiki að baki, vináttuleiki gegn Eistlandi og Sví- þjóð í janúar. Faðir Kolbeins er Finnur Kolbeinsson sem lék með Fylki frá 1989 til 2005, var í fyrsta liði félagsins sem lék í efstu deild og vann báða stóru titlana í sögu Ár- bæjarliðsins, þegar það varð bik- armeistari 2001 og 2002. Þá skoraði hinn 19 ára gamli Nökkvi Þeyr Þórisson, leikmaður KA, sitt fyrsta mark í þriðja leik sín- um í efstu deild. Hann er ekki síður af íþróttafólki kominn en Kolbeinn eins og Skapti Hallgrímsson vakti athygli á. Faðir Nökkva er Þórir Guðmundur Áskelsson sem spilaði 197 leiki í meistaraflokki, þar af 77 í efstu deild. Þá er Halldór Áskels- son, föðurbróðir Nökkva, einn leik- reyndasti leikmaður Þórs síðari ár. Móðurbróðir Nökkva er svo Heið- mar Felixson, fyrrverandi landsliðs- maður í handknattleik. Tvíburabróð- ir Nökkva, Þorri Mar Þórisson, leikur einnig með KA en þeir komu frá Dalvík/Reyni í vetur eftir að hafa áður verið á mála unglingaliðum Hannover í Þýskalandi. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Óskar Örn Hauksson, KR 6 Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 6 Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 6 Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 6 Damir Muminovic, Breiðabliki 5 Einar Logi Einarsson, ÍA 5 Guðmundur Kristjánsson, FH 5 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 5 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 5 Jónatan Ingi Jónsson, FH 5 Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki 5 Almarr Ormarsson, KA 4 Ásgeir Marteinsson, HK 4 Björn Berg Bryde, HK 4 Björn Daníel Sverrisson, FH 4 Brandur Olsen, FH 4 Einar Karl Ingvarsson, Val 4 Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 4 Elias Tamburini, Grindavík 4 Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni 4 Brandur Olsen, FH 3 Halldór Orri Björnsson, FH 3 Björgvin Stefánsson, KR 3 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 3 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 3 Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki 3 Nikolaj Hansen, Víkingi R. 3 Pálmi Rafn Pálmason, KR 3 Markahæstir ÍA 39 Breiðablik 33 KA 31 FH 29 KR 29 Víkingur R. 26 Grindavík 25 HK 25 Stjarnan 24 Valur 24 Fylkir 23 ÍBV 16 Lið: Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 6. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019 3-4-3 Hannes Þór Halldórsson Val Stefán Teitur Þórðarson ÍA Kolbeinn Birgir Finnsson Fylki Daníel Hafsteinsson KA Kolbeinn Þórðarson Breiðabliki Andri Rafn Yeoman Breiðabliki Óskar Örn Hauksson KR Kennie Chopart KR Hallgrímur Jónasson KA Jónatan Ingi Jónsson FH Einar Logi Einarsson ÍA Finnur Orri Margeirsson, KR 4 Hannes Þór Halldórsson, Val 4 Marcus Johansson, ÍA 4 Sölvi Geir Ottesen, Víkingi R. 4 2 2 3 2 2 2 Kapphlaup við Skagann  Skagamenn hafa unnið fjögur af liðunum fimm sem spáð var efstu sætunum  Íslandsmeistararnir enn í tómu basli  Tveir markaskorarar í söguleg fótspor Ljósmynd/Þórir Tryggvason KA Nökkvi Þeyr Þórisson fagnar fyrsta marki sínu í efstu deild. Morgunblaðið/Eggert Fylkir Kolbeinn Birgir Finnsson hefur fetað í fótspor föður síns. Svíþjóð Sävehof – Alingsås ...............................32:29  Ágúst Elí Björgvinsson varði 14 skot í marki Sävehof, 35,9% markvarsla.  Staðan er jöfn, 2:2. 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.