Morgunblaðið - 28.05.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
Það hafa eflaust fáir átt von á
því að Íslandsmót karla í knatt-
spyrnu færi af stað eins og raun-
in hefur orðið. Margir spáðu því
að varla þyrfti að spila um titilinn
því Valsmenn ættu hann vísan.
Eina baráttan í efri hlutanum
yrði um næstu sætin þar á eftir.
Jafnvel var því slegið fram að
Hlíðarendaliðið myndi ekki fá á
sig nema 10-12 mörk í sumar.
Óhætt er að segja að raunin
hafi verið allt önnur og Valur hef-
ur þegar fengið á sig 10 mörk í
fyrstu sex leikjunum. Fjögur töp í
fyrstu sex umferðunum og eng-
inn sigur á heimavelli er eitthvað
sem enginn átti von á og ekki
bætti allt uppnámið í kringum
mál framherjans Gary Martin úr
skák. Tímabilið er vissulega ný-
hafið, en það er eitthvað mikið í
gangi hjá Valsliðinu sem erfitt er
að greina.
Umræðan í kringum Val
skyggir svolítið á gott gengi ný-
liða ÍA, sem hafa heldur betur
stolið senunni það sem af er. Ég
hugsa að hinn almenni áhuga-
maður gleðjist ekki síður yfir
framgöngu Skagamanna, með
marga unga stráka og lið sem
enginn var búinn að nefna í um-
ræðunni um toppbaráttuna fyrir
mótið.
Það er ekki jafn óvænt staða
uppi á teningnum á Íslandsmóti
kvenna, þar sem ríkjandi meist-
arar Breiðabliks eru með fullt
hús stiga. Fyrir fram var helst
búist við baráttu Blika og Vals
um titilinn og það stendur heima
enn sem komið er. Þau mætast
ekki innbyrðis fyrr en í byrjun júlí
og svo aftur um miðjan sept-
ember og margir spá því að þeir
leikir muni jafnvel ráða úrslitum
um titilinn.
En þeim spádómum skal nú
taka með fyrirvara, eins og
spárnar karlamegin undirstrika.
Það er meira en nóg eftir.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
LC02 hægindastóll
Leður
Verð 285.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Eftir þriggja ára dvöl í ensku B-
deildinni í knattspyrnu leikur lið
Aston Villa í úrvalsdeildinni á næstu
leiktíð eftir sigur á Derby County,
2:1, í úrslitaleik liðanna um úrvals-
deildarsætið á Wembley í gær.
Leikurinn í umspili um sæti í úr-
valsdeildinni er talinn verða dýr-
mætasti fótboltaleikurinn í heimi en
hann ætti að tryggja Aston Villa um
170 milljónir punda, jafnvirði um 27
milljarða króna, vegna þeirra gríð-
arlegu tekna sem fylgja þátttöku í
úrvalsdeildinni.
Anwar El-Ghaz kom Aston Villa
í forystu á 44. mín. og John
McGinn tvöfaldaði forystu Villa
þegar hann skoraði á 59. mínútu
eftir mikil mistök markvarðar
Derby.
Jack Marriott minnkaði muninn
fyrir Derby á 81. mínútu en Aston
Villa tókst að halda fengnum hlut
þrátt fyrir hetjulega tilburði
Derby-manna til að jafna metin.
Birkir Bjarnason var ekki í leik-
mannahópi Aston Villa í leiknum
fremur en upp á síðkastið.
AFP
Hressir Leikmenn Aston Villa glaðir í bragði eftir sigurinn á Wembley.
Aston Villa sterkara
í dýrmæta leiknum
Spretthlauparanum Guðbjörgu Jónu
Bjarnadóttur úr ÍR hlotnaðist sá
heiður að bera fána Íslands á setn-
ingarhátíð Smáþjóðaleikanna í
Svartfjallalandi í gærkvöldi.
Guðbjörg Jóna er aðeins 17 ára
gömul en hún keppir í frjálsum
íþróttum á leikunum. Hún er skráð
til keppni í 100 og 200 metra hlaupi,
sem og boðhlaupi. Þrátt fyrir ungan
aldur hefur Guðbjörg Jóna þegar
sett Íslandsmet í 200 metra hlaupi
en hún bætti metið í greininni þrisv-
ar á síðasta ári.
Guðbjörg Jóna var einnig fána-
beri á Ólympíuleikum ungmenna í
Buenos Aires í fyrrahaust þar sem
hún vann til gullverðlauna í 200
metra hlaupi. Í fyrra varð hún einn-
ig Evrópumeistari U18 ára í 100
metra hlaupi og vann til brons-
verðlauna í 200 metra hlaupi á sama
móti.
Um er að ræða átjándu Smá-
þjóðaleikana sem haldnir eru. Leik-
arnir eru hluti af ólympíuhreyfing-
unni og var komið á fót til að bjóða
þjóðum í Evrópu með færri en millj-
ón íbúa upp á slíkt verkefni. Fá-
mennisins vegna eru litlar líkur á
því að fulltrúar þessara þjóða komist
á Ólympíuleikana í vinsælum
íþróttagreinum þótt auðvitað sé
ekkert útilokað í þeim efnum eins og
Íslendingar hafa sýnt í gegnum árin.
Í dag hefst keppni á leikunum í
átta greinum af tíu. Bæði körfu-
boltalandsliðin hefja keppni fyrri
hluta dags. Kvennalandsliðið mætir
Möltu og þar er um tímamótaleik að
ræða því þetta verður fyrsti leikur
landsliðsins undir stjórn Benedikts
Guðmundssonar. Karlaliðið mætir
hins vegar Lúxemborg en í íslenska
hópinn vantar flesta atvinnumenn-
ina. Sumir þeirra eru ennþá upp-
teknir með sínum félagsliðum eins
og Haukur Helgi Pálsson og Martin
Hermannsson.
Í dag verður fyrri keppnisdag-
urinn í júdói en einnig verður keppt í
greininni á miðvikudag. Íslenskt
júdófólk gerði það gott fyrir tveimur
árum og þá sigruðu til að mynda
Þormóður Árni Jónsson og Anna
Soffía Víkingsdóttir í sínum þyngd-
arflokkum.
Keppni í sundi hefst í dag og verð-
ur fyrstu þrjá dagana. Blaklands-
liðin keppa bæði í dag. Konurnar
fara snemma á fætur og keppa kl. 9
að staðartíma gegn Kýpur en karl-
arnir seinni partinn gegn heima-
mönnum. sport@mbl.is
17 ára fánaberi í Svartfjallalandi
Keppni á Smáþjóðaleikunum fer af
stað í dag í átta greinum af tíu
Ljósmynd/montenegro2019.me
Eldur Að vanda var kveiktur eldur við setningarathöfn leikanna í gærkvöld.
Ágúst Elí Björgvinsson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, og fé-
lagar hans í Sävehof knúðu í gær-
kvöld fram oddaleik um sænska
meistaratitilinn í handknattleik
þegar þeir unnu Alingsås á heima-
velli, 32:29, í framlengdum leik.
Staðan var jöfn, 26:26, eftir
venjulegan leiktíma eftir að Säve-
hof hafði haft yfirhöndina lengst af.
Oddaleikurinn fer fram á heima-
velli Alingsås á fimmtudaginn.
Ágúst Elí lék vel í leiknum í gær.
Hann varði 14 skot sem var 35,9%
hlutfallsmarkvarsla. iben@mbl.is
Ágúst og félagar
fara í úrslitaleik
Ljósmynd/IK Sävehof
Oddaleikur Ágúst Elí Björgvinsson
hafði ástæðu til að gleðjast í gær.
Ívar Ásgrímsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari kvenna í körfu-
knattleik, hefur verið ráðinn þjálf-
ari kvennaliðs Breiðabliks í körfu-
knattleik. Hann mun einnig þjálfa
drengja- og unglingaflokk félagsins
og taka við starfi yfirþjálfara yngri
flokka félagsins.
Ívar hefur þjálfað karlalið Hauka
undanfarin ár en sagði starfi sínu
lausu við lok síðustu leiktíðar. Hann
hefur einnig þjálfað kvennalið
Hauka og þá þjálfaði hann kvenna-
landsliðið árin 2004-2005 og 2014-
2018. iben@mbl.is
Ívar tekur við
þjálfun Blika
Morgunblaðið/Hari
Þjálfari Ívar Ásgrímsson flytur sig
frá Haukum til Breiðabliks.