Morgunblaðið - 28.05.2019, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Your Shoes strigaskór
Margar gerðir
Leður
Leðurstrigaskór
Verð 12.995
Stærðir 36-42
1:0 Cloé Lacasse 9.
2:0 Emma Kelly 29.
3:0 Cloé Lacasse 54.
4:0 Calara Sigurðardóttir 66.
5:0 Cloé Lacasse 69.
I Gul spjöldLacase, ÍBV, Sesselja Líf Val-
geirsdóttir, ÍBV, Birta Guðlaugsdóttir,
Stjörnunni, Edda María Birgisdóttir,
Stjörnunni, María Eva Eyjólfsdóttir,
Stjörnunni.
ÍBV – Stjarnan 5:0
MMM
Cloé Lacasse (ÍBV)
M
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Emma Kelly (ÍBV)
Sesselja Líf Valgeirsdóttir (ÍBV)
Helena Jónsdóttir (ÍBV)
Guðný Geirsdóttir (ÍBV)
Renae Cuéllar (Stjörnunni)
Dilja Ýr Zomers (Stjörnunni)
Dómari: Gunnar O. Hafliðason, 7.
Áhorfendur: 127.
1:0 Ída Marín Hermannsdóttir 44.
1:1 Karólína Jack 54.
1:2 Sjálfsmark 85.
I Gul spjöldTinna Óðinsdóttir, Anna Ei-
ríksdóttir (HK/Víkingi)
M
Ída Marín Hermannsdóttir (Fylki)
Marija Radojicic (Fylki)
Stefanía Ragnarsdóttir (Fylki)
FYLKIR – HK/Víkingur 1:2
Fatma Kara (HK/Víkingi)
Isabella Eva Aradóttir (HK/Vík.)
Karólína Jack (HK/Víkingi)
Guðrún Gyða Haralz (HK/Vík.)
Gígja V. Harðardóttir (HK/Víkingi)
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson -
8.
Áhorfendur: 230.
Strákarnir hans Guðjóns Þórðarsonar í NSÍ unnu í gær-
kvöld sjötta leik sinn í röð í færeysku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu þegar þeir höfðu betur á heimavelli gegn
Skála, 3:0. Þeir hefðu getað bætt við fleiri mörkum en
létu þar við sitja.
Í þessum sex leikjum hefur NSÍ skorað 24 mörk en
hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk. Með sigrinum
endurheimti NSÍ annað sætið í deildinni. Liðið er með 25
stig eftir 11 leiki og er stigi á eftir KÍ í toppsætinu.
NSÍ gerði út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan eftir
hann var 3:0. Klæmint Olsen skoraði eitt af mörkum NSÍ
og er hann markahæstur í deildinni með 13 mörk. Hann
skoraði m.a. fimm mörk í leik á dögunum.
Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í meistaraliðinu HB máttu bíta í það
súra epli að tapa, 1:0, fyrir Viking á útivelli. Þetta var þriðja tap HB í
fyrstu 11 umferðunum í deildinni og eru meistararnir í fimmta sæti deild-
arinnar, átta stigum á eftir toppliði KÍ. Brynjar Hlöðversson lék ekki með
HB að þessu sinni.
sport@mbl.is
Guðjón er áfram á sigurbraut
Guðjón
Þórðarson
Línumaðurinn Valdimar Sigurðsson
hefur framlengt samning sinn við
handknattleikslið Fram til tveggja ára,
fram til ársins 2021. Valdimar hefur
leikið stórt hlutverk hjá Fram um
nokkurt skeið og verið með aðsóps-
meiri línumönnum Olís-deildarinnar.
Valdimar skoraði m.a. 64 mörk í 22
leikjum í Olís-deildinni á nýliðinni leik-
tíð þegar Fram hafnaði í tíunda sæti af
tólf liðum.
HK, sem verður nýliði í úrvalsdeild
karla í handknattleik á næsta keppn-
istímabili, heldur áfram að stækka hóp
sinn fyrir átökin á komandi vetri. Eirík-
ur Guðni Þórarinsson, 19 ára gamall
línumaður úr Val, er genginn til liðs við
HK og hefur skrifað undir tveggja ára
samning. Eiríkur lék með ungmenna-
liði Vals í 1. deildinni á nýliðnu tímabili
og hefur spilað með yngri landsliðum
Íslands.
Körfuknattleiksmaðurinn Emil
Barja er snúinn aftur til Hauka eftir
eins árs dvöl hjá KR þar sem hann
varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Emil
hefur skrifað undir samning til tveggja
ára en hann er uppalinn hjá félag-
inu og var fyrirliði áður en hann
fór til KR.
Emil mun ásamt því að
spila fyrir Hauka gegna
stöðu yf-
irþjálf-
ara yngri
flokka hjá fé-
laginu en
hann er
menntaður
íþróttafræð-
ingur.
Eitt
ogannað
Stórsigur á Hásteinsvelli
Viðureign ÍBV og Stjörnunnar á
Hásteinsvelli var afar fjörug en alls
voru skoruð fimm mörk. Öll þeirra
skoruðu leikmenn ÍBV.
Eyjastelpur byrjuðu mjög hressi-
lega en Cloé Lacasse lagði boltann í
mark Stjörnunnar strax á 9. mín-
útu. Hún kom svo aftur við sögu
þegar Edda María Birgisdóttir
braut á Lacasse innan vítateigs og
dæmd var vítaspyrna. Sigríður
Lára Garðarsdóttir tók spyrnuna
en brást bogalistin.
Emma Kelly kom sér á blað að-
eins tveimur mínútum eftir vítið.
Lacasse bætti svo við tveimur öðr-
um mörkum og tók með sér boltann
heim. Clara Sigurðardóttir skoraði
síðan annað mark sitt í Pepsi Max-
deild á milli marka Cloé í síðari
hálfleik.
Óhætt er að segja að þetta hafi
verið mikilvægur sigur hjá ÍBV þar
sem þær færast nú upp í 5. sætið
með 6 stig og fara þær með mikið
sjálfstraust þegar þær mæta HK/
Víking í næstu umferð.
Stjarnan aftur á móti þarf að laga
aðeins til ef liðið ætlar að eiga ein-
hvern möguleika gegn Breiðabliki.
ÍBV stillti upp frekar ungu liði og
fengu Helena Jónsdóttir og Ragna
Sara Magnúsdóttir að spila sína
fyrstu leiki fyrir ÍBV en þær eru
fæddar 2004 og 2003. Óhætt er að
hrósa ÍBV-liðinu fyrir fína frammi-
stöðu á móti reynslumeiri Stjörnu-
liði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Hari
Þrenna Elín Metta Jensen, leikmaður
Vals, fagnar einu af þremur mörkum
sínum í sigurleiknum gegn liði Selfoss.