Morgunblaðið - 28.05.2019, Page 32

Morgunblaðið - 28.05.2019, Page 32
JÁ kvartett, kvartett gítarleikarans Jóns Ómars Árnasonar, kemur fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30 og leikur lög úr amerísku söngbókinni auk laga eftir Jón, Bill Frisell, A.C. Jobim og fleiri. Auk Jóns skipa kvartettinn Sunna Gunnlaugsdóttir á píanó, Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. JÁ kvartett leikur djass á Kex hosteli ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 148. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Ekkert lát er á sigurgöngu Valskvenna í Pepsi Max- deildinni í knattspyrnu. Valur vann lið Selfoss, 4:1, á heimavelli í gær- kvöld þar sem Elín Metta Jensen skoraði þrennu. ÍBV vann stóran sigur á Stjörnunni, 5:0, í Eyjum og HK/Víkingur sótti þrjú stig í Ár- bær, 2:1, gegn Fylki. »26 Elín Metta skoraði þrennu í sigri Vals ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Skagamenn halda áfram að raka saman stigunum í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu. Í 6. umferðinni sem gerð er upp í blaðinu í dag lagði ÍA lið Stjörn- unnar að velli. Skagamenn eiga tvo fulltrúa í liði um- ferðarinnar hjá Morgunblaðinu; miðvörðinn Einar Loga Einarsson sem skorað hefur tvö mörk nú þeg- ar og Stefán Teit Þórðarson sem nú er í þriðja sinn í liði umferðar í sumar. »24 Tveir Skagamenn í liði umferðarinnar Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hvort sem búið er á Húsavík eða í Reykjavík er bíll nauðsynlegt far- artæki. Jafnvel rafbíll. Kári Arn- órsson, fyrrverandi skólastjóri og formaður Landssambands hesta- mannafélaga, hefur reynslu af því. Hann verður 88 ára í sumar og ek- ur um á nýlegum rafbíl, Nissan Leaf árgerð 2018, auk þess sem hann er með jeppa vegna hesta- mennsku, en hann er með hrossa- rækt á Vindási við Hvolsvöll. „Kannski er ég elsti maðurinn á rafbíl, en ég hef átt hann síðan í nóvember,“ segir Kári. „Ég var með annan frá Nissan en eftir að keyrt var utan í hann og hann skemmdur fékk ég þennan í stað- inn.“ Hann bætir við að eigin- konan, Ingibjörg Áskelsdóttir, hafi stungið upp á því að rafbílavæðast. „Ég er mjög sáttur við það vegna þess að það er miklu ódýrara að aka um á svona bíl en bensín- eða dísilbíl auk þess sem kolefnis- sporin, sem allir tala um, eru mun færri.“ Vegna hestamennskunnar fara þau mikið austur fyrir fjall og Kári segist finna fyrir hvað aksturinn sé miklu ódýrari en áður. „Ég er samt ekki með neina bíladellu og hef aðeins átt átta bíla.“ Löng bið á hleðslustöðvum Kári segir að fyrri rafbíllinn hafi fyrst og fremst verið innanbæjar- bíll. Hann hafi átt að komast 140 km á hleðslunni en hafi sjaldnast komist lengra en um 100 km. Nýi bíllinn eigi að komast 250 km á hleðslunni og það láti nærri að vera rétt tala. „Uppgefnar tölur miðast gjarnan við akstur á jafn- sléttu og engan mótvind, en nýi bíllinn er með mun stærri geymi en hinn.“ Hjónin eru frá Húsavík og þar keypti Kári fyrsta bílinn, Volks- wagen bjöllu, 1963. Hann segir að býsna margir bíleigendur hafi ver- ið fyrir í bænum. „Þó að Húsavík sé ekki stór bær fara menn þar flestra ferða sinna í bíl,“ segir hann. Kennsla Kára hófst á Þórshöfn á Langanesi. „Ég lærði hjá Tryggva á Bakka 1953 eins og aðrir á staðnum. Tíu árum síðar vorum við flutt til Húsavíkur og Svavar bif- reiðaeftirlitsmaður sá um kennslu til meiraprófsins. Hann fékk inni með námskeiðið í skólanum hjá mér og vildi endilega fá mig í hóp- inn því hann hefði aldrei verið með skólastjóra í meiraprófi. Ég tók prófið en árétta að ég er enginn sérstakur áhugamaður um bíla.“ Kári segir lítið vandamál að hlaða geyminn á höfuðborgarsvæð- inu. „Það er heldur ódýrara að hlaða rafhlöðuna í bílskúrnum hjá mér í Fossvoginum heldur en á hleðslustöðvum. Það kostar mig um 1.600 krónur að fullhlaða hann á hleðslustöð en áfylling á jeppann, sem ég geymi fyrir austan, kostar 12 til 16 þúsund krónur.“ Hjónin heimsækja ættingja og vini fyrir norðan á hverju ári. Kári segir að hleðslustöðvar séu komnar víða og því eigi að vera hægt að fara á rafbílnum hringveginn, en það geti tekið mun lengri tíma en áður. „Gallinn er sá að ökumenn nokkurra bíla geta verið að bíða eftir hleðslu á hleðslustöðvunum þannig að maður lendir gjarnan í röð auk þess sem það tekur tíma að hlaða þessa bíla.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stoltur rafbílaeigandi Kári Arnórsson verður 88 ára í sumar og ekur um á nýlegum rafbíl. Tileinkar sér tæknina  Kári Arnórsson er tæplega níræður og ekur um á nýleg- um rafbíl  Segir það ódýrara en mun tímafrekara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.