Morgunblaðið - 04.06.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 04.06.2019, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingumumáhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is Ofnæmið burt! Zensitin 10mg töflur -10, 30 og 100 stk Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is Nú um stundir sýn- ist mér sem flokksfor- ystunni þyki helst við hæfi að hnýta í þann formann sem verið hefir þjóðinni og flokknum drýgstur og bestur. Mér stendur stuggur af ykkur því ég hefi þungar áhyggjur af flokknum. Ég hef rætt við hundruð félagsmanna sem hugnast ekki ferðalag ykkar og hyggjast ekki slást í þá för. Ég stikla aðeins á stóru er ég nefni nokkur atriði sem eru núver- andi forystu til vansa, svo vægt sé til orða tekið. Þið hafið nánast ekkert gert til að tálga niður þá ofurskatta sem Stein- grímur lagði á þjóðina því „það varð hér hrun“. Þið hafið ekkert gert til að af- nema hinn þrepaskipta tekjuskatt þeirra Steingríms og Jóhönnu þótt við hefðum áður verið með skatt- kerfi sem aðrar þjóðir öfunduðu okkur af. Þið dragið óendanlega lappirnar með að lækka tryggingagjaldið. Þið réðuð Má Guðmundsson sem seðlabankastjóra, ekki einu sinni heldur tvisvar. Þið svikust undan merkjum með því að samþykkja Icesave. Þið hafið þrátt fyrir langa stjórn- arsetu heykst á að afturkalla ESB- umsóknina. Þið hyggist gegn vilja flokksins og meirihluta þjóðarinnar troða inn á okkur orkupökkum framtíð- arinnar. Þið takið fullan þátt í stimpilp- úðaafgreiðslu alþingis á öllu sem frá ESB kemur. Ekki er annað að sjá en ætlun ykkar sé að troða okkur þar inn bakdyramegin, þvert á vilja flokks og þjóðar. Þið gerið ekkert til að slá á þá gerræðislegu hugmynd að færa Reykjavíkurflugvöll. Þið gerið heldur ekkert til að hamla brautargengi hinnar fárán- legu Borgarlínu. Þið gerið ekkert til að koma böndum á borgina sem á örfáum árum hækkar fast- eignagjöld um tæp 50% auk þess að vera með útsvarið uppi í rjáfri. Þið styðjið nánast takmarkalausar fóstur- eyðingar og kallið það „að móta framtíðina“. Þið gerið ekkert til að koma böndum á fjársóun og fáránleika í heilbrigðisráðuneytinu. Þið gerðuð ekkert til að koma a.m.k. einhverju skikki á opin- gáttarflæði hælisleitenda. Þið köstuðuð fyrir róða eina ráð- herranum sem sýnt hefur staðfestu, þor og dug. Þið hafið tekið ríkan þátt í að þenja út ríkisbáknið og hítina þá, þrátt fyrir allt önnur fyrirheit. Eng- inn flokkur annar hefur verið leng- ur og oftar við völd undanfarna ára- tugi. Það hefir því ekki verið skortur á tækifærum til að efna eitthvað af loforðunum um að minnka fitulagið á bákninu. Þið takið fullan þátt í að reka kaupfélag í Leifsstöð þrátt fyrir gömlu góðu heitin um einkarekstur og einstaklingsframtak. Þið berið mesta ábyrgð allra flokka á RÚV en hafið hvorki kjark né döngun til að kveða niður þá ós- vinnu sem þar ríður húsum. Þið eruð um þessar mundir með áætlun um að afnema millifæranleg skattþrep milli hjóna þótt fjöl- skyldan og velferð hennar hafi frá upphafi verið eitt grunnstefja flokksins. Ég velti fyrir mér hvort ekki væri farsælla að þið færuð frá flokknum fremur en að flokkurinn fari frá ykkur. Til forystu Sjálf- stæðisflokksins Eftir Jón Hjaltason Jón Hjaltason »Ég óttast að flokk- urinn okkar eigi sér lengri fortíð en framtíð Höfundur er frumkvöðull. jon@haspenna.is Einhvern tíma hafði de Gaulle Frakklands- forseti orð á því að sér fyndist Bretland varla tilheyra Evrópu. Nú, ef svo er, hversu mjög má þá segja að Ísland til- heyri Evrópu, eyríki hér langt norður í ball- arhafi „yst á Ránar- slóðum langt frá öðrum þjóðum“ eins og þjóð- skáldið sr. Matthías orti forðum tíð, ef Bretland er það varla sem er steinsnar frá ströndum Frakklands? Það má alltaf velta því fyrir sér nú. Þegar það átti að skylda þjóðina til að taka á sig þær byrðar sem í Ice- save fólust þá vorum við svo lánsöm að hafa þann forseta á Bessastöðum, lýðveldisbarnið og stjórnmálafræð- inginn Ólaf Ragnar Grímsson, sem fannst hótanir ráðamanna í Brussel út úr öllu korti og ekki svaraverðar og tók slaginn við þá um þá reikninga með þeim rökum að við værum ekki í neinum þeim tengslum við ESB sem skylduðu okkur til að taka á okkur þessar byrðar að okkur forspurðum og minnti þá á að við værum ekki bundin ESB að neinu öðru leyti en sem varðaði EES-samninginn, og guggnaði hvergi andstætt þingheimi og ríkisstjórn hvernig sem ESB dró úr þjóðinni kjarkinn. Síðan lét hann þjóðina sjálfa ákveða um framhald málsins þó að ráðamenn ESB segðu líkt og nú að þetta myndi hafa alvar- legar afleiðingar fyrir EES- samninginn og létu annað álíka smekklegt dynja á okkur. Því var ekki ansað enda gerðist ekkert þótt þjóðin neitaði að greiða þessa reikn- ingana. Það höfum við reynsluna af nú. Við getum því ávallt þakkað þess- um ágæta forseta okkar, Ólafi Ragn- ari Grímssyni, fyrir það. Betur væri að hann sæti enn á Bessastöðum í dag þegar sagan er að endurtaka sig í formi orkupakkanna. Svo ætlar rík- isstjórnin loksins að láta setja þá klá- súlu inn í stjórnarskrána sem nauð- synlegt er að sé þar og segir að allar auðlindir landsins á sjó og landi skuli vera eign þjóðarinnar og var meira en kominn tími til. Þar með getur Al- þingi eitt ekki ákvarðað um örlög náttúru- auðlindanna, hvorki fallvatna né fiskimiða, án þess að spyrja þjóð- ina því að þá væri það hennar að eiga síðasta orðið í þeim efnum samkvæmt stjórnar- skránni og orkupakka- dæmið sett í þjóðar- atkvæði líkt og Icesave. Nauðsyn þess er brýn nú. Þetta svokallaða Ríkisútvarp þarf svo að miðla þessum hótunum frá ESB til okkar – nema hvað? Það hef- ur verið ein helsta málpípa ESB ásamt ESB-flokkunum hér á landi. Eigum við að guggna á að neita orku- pökkunum vegna þess? Nei, segi ég, fjarri því. Fréttastofa Rúv er svo hlutdræg að það er tæpast marktækt sem þaðan kemur, a.m.k. hvað ESB varðar. Það er vitað mál enda dynur á okkur áróðurinn fyrir að sam- þykkja orkupakkana og selja auð- lindirnar úr höndum okkar til Bruss- el, og hótanirnar frá hinum og þessum ESB-sinnum og kommissör- unum á þeim bænum svo að mörgum ofbýður að útvarp í eigu þjóðarinnar skuli vera tekið undir slíkt og þar með orðið eins og sovéska ríkis- útvarpið og aðrar álíka útvarps- stöðvar í kommúnistaríkjum eru. Fyrr má nú rota en dauðrota, segi ég nú bara. Ég endurtek að betur væri að á Bessastöðum sæti enn í dag sá for- seti til að verja þjóðarhagsmuni okk- ar hvað náttúruauðlindirnar varðar sem við höfðum hér í landi á tímum Icesave og blés á slíkt áróðursbull og varði land og þjóð fyrir ásælni og frekju ESB og bauð bæði komm- issörunum þar og þingi og ríkisstjórn hér heima byrginn, þegar á þurfti að halda og stóð fast með þjóð sinni í því stríði sem háð var um Icesave og mundi eflaust gera það líka nú þegar nauðsyn ber til að hafa slíkan for- ingja í brúnni í orkupakkastríðinu. Ég væri líka illa svikin ef hann talaði ekki fyrir málstað þjóðarinnar í þessu máli þar sem hann getur kom- ið því við, traustur þjóð sinni að vanda. Annað væri ólíkt honum. Von- andi fær þjóðin að láta sitt álit í ljós í þjóðaratkvæðagreiðslu hvað sem áróðursmeistarar ESB hérlendis og erlendis eru að þvæla. Minnist þess að við erum ekki í ESB sem betur fer og sá félagsskapur hefur því ekkert um okkar innri málefni að segja eða krefjast eins eða neins af okkur í þessum efnum. Þjóðin hefur lifað Icesave af þrátt fyrir hótanir frá Brussel og við getum lifað þetta stríð af og átt okkar auðlindir í friði fyrir frekjunum á þeim bænum. Frétta- stofa Rúv má skammast sín fyrir áróðurinn. Slíkt hefur ekkert upp á sig nema leiðindin ein. Við erum frjáls þjóð sem vill eiga sínar auð- lindir í friði fyrir ásælni ESB. Leyf- um þeim bara að rífa EES- samninginn í bræði sinni yfir því að geta ekki komist yfir eitt stykki sæ- streng héðan og heim til sín ef þá langar til þess. Það verður verst fyrir þá sjálfa. Ég leyfi mér bara að vona að meðal þingmanna og almennings sé engan þann að finna sem hægt væri að lýsa með orðum þjóðskálds- ins um álit manna á landinu í enda þess erindis sem ég vitnaði til hér að ofan: „sykki það í myrkan mar, mundu fáir gráta“, og Íslendingum í dag þætti ekki vænna um landið sitt og náttúruauðlindir en svo og vildu endilega selja þær í hendur útlend- inga og frelsi okkar um leið enda hér á ferðinni sami grauturinn í sömu skálinni og Icesave var og hvor öðr- um verri. Icesave og orkupakkarnir – sami grauturinn í sömu skálinni Eftir Guðbjörgu Snót Jónsdóttur » Þjóðin hefur lifað Icesave af þrátt fyrir hótanir frá Brussel og við getum lifað þetta stríð af og átt okkar auð- lindir í friði fyrir frekj- unum á þeim bænum Guðbjörg Snót Jónsdóttir Höfundur er guðfræðingur og félagi í Heimssýn. „Nú kynntist ég manni, sem var mikill al- vörumaður, vildi kanna og skilja hvert mál til hlítar, bar saman sínar skoðanir og annarra, var augljóslega að leita að réttri lausn á hverju máli, en hafði þó gert sér fullkomna grein fyrir því, að á sviði efnahagsmála skiptir fleira máli en fjármunir og hagsmunir. Þar þarf einnig að leiða hugann að tilfinningum og réttlæti.“ „Æ nánari kynni af Ólafi Thors sem for- sætisráðherra í ríkisstjórn færðu mér heim sanninn um, að hann væri ekki aðeins sá tölu- glöggi og athuguli alvörumaður, sem ég hafði kynnst, er verið var að undirbúa nýja og ger- breytta stjórnarstefnu. Hann var jafnframt af- burða sanngjarn maður. Ég komst að raun um, að kannski var það helsta aðalsmerki hans, hversu gott hjarta sló í brjósti hans. Það var þess vegna, sem mér fór smám saman að þykja vænt um hann, mjög vænt um hann.“ (Úr frásögn dr. Gylfa Þ. Gíslasonar. Sjá Matthías Johannessen, Ólafur Thors 1 og 2.) Auðunn vestfirski. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Ólafur Thors og fordæmi hans Á kjörstað Ingibjörg og Ólafur Thors á kjörstað 1963. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.