Morgunblaðið - 04.06.2019, Síða 25
MAÍ
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Cloé Lacasse, leikmaður ÍBV, er
leikmaður maímánaðar í Pepsi
Max-deild kvenna í knattspyrnu
að mati Morgunblaðsins. Cloé er
efst í einkunnargjöf blaðsins með
átta M í fyrstu fimm leikjum
deildarinnar og er eini leikmað-
urinn á tímabilinu sem hefur feng-
ið fullt hús, þrjú M, í leik. Það
fékk hún eftir 5:0-sigur ÍBV á
Stjörnunni þar sem hún skoraði
þrennu.
Cloé hefur fengið M í öllum
fimm umferðunum eins og þær
Agla María Albertsdóttir,
Breiðabliki, og Elín Metta
Jensen, Val. Þær fengu
báðar sjö M í mánuðinum
og eru einnig í liði mán-
aðarins, en Breiðablik á
flesta fulltrúa í liðinu eða
fimm talsins. Fylkir,
Keflavík, Stjarnan og Þór/
KA eiga svo öll einn full-
trúa.
Cloé hefur skorað fimm
mörk fyrir ÍBV, sem er í
fimmta sæti deildarinnar
með sex stig og hefur vantað
stöðugleika það sem af er. Liðið
tapaði til að mynda fyrir KR eftir
að hafa verið lengi manni fleiri, en
svaraði því með 5:0-sigri á Stjörn-
unni áður en liðið tapaði svo stórt
gegn Val í bikarnum.
„Við erum búnar að lenda í
leiðinlegum aðstæðum varð-
andi meiðsli í liðinu og höf-
um því notað leikmenn
sem hafa ekki spilað mik-
ið áður með okkur. Það
eru ungir leikmenn
að koma inn, 15
og 16 ára, sem
hafa staðið sig
vel en eru auð-
vitað að spila
í fyrsta sinn í
efstu deild.
Það er ný áskorun fyrir þær og
það vantar bara reynslu sem á
eftir að koma. Við erum því svo-
lítið að fylla í götin og höfum ekki
náð í þau úrslit sem við vildum.
En við gerum það sem við getum
með það sem við höfum,“ segir
Cloé við Morgunblaðið.
„Ég elska eyjuna“
Hin kan-
adíska Cloé
er 25 ára
gömul og
nú að spila
sitt
fimmta tíma-
bil með ÍBV.
Með þrennunni
á dögunum jafn-
aði hún við Mar-
gréti Láru Viðars-
dóttur í öðru sæti yfir
markahæstu leikmenn
liðsins í efstu deild frá
upphafi með 48 mörk.
Cloé var samningslaus eft-
ir tímabilið í fyrra og hugs-
aði sig aðeins um áður en
hún ákvað að vera
áfram, en Ian
Jeffs hætti með
liðið eftir tíma-
bilið og Jón
Ólafur Daní-
elsson tók við.
„Ég átti eftir að tala við nýja
þjálfarann, talaði svo við liðið og
stjórnina og ég fékk skýra mynd
af því sem átti að gerast hjá liðinu
svo ég ákvað að vera áfram,“
sagði Cloé, sem hefur ávallt liðið
afar vel í Vestmannaeyjum.
„Í fótboltanum hefur þetta verið
krefjandi tímabil. En ég elska eyj-
una, það hafa verið margir sólríkir
dagar núna svo það er ekki hægt
að kvarta yfir því, sem er annað
en hægt er að segja um síðasta
sumar,“ segir Cloé og hlær.
Veit ekki hver staðan er
Cloé var efst í einkunnagjöf
Morgunblaðsins eftir tímabilið í
fyrra. Í viðtali við það tilefni lýsti
hún því yfir að hún vonaðist til
þess að öðlast íslenskan ríkisborg-
ararétt og var opin fyrir því að
gefa kost á sér í íslenska lands-
liðið ef sá möguleiki kæmi upp.
Hún getur lítið tjáð sig um mögu-
legan ríkisborgararétt á þessari
stundu, það eigi allt að vera í
ferli.
„Ég veit það eiginlega ekki
sjálf, við erum enn að vinna í
þessu og ég bíð bara og sé til
hvernig það fer,“ segir Cloé, sem
reynir að gefa af sér utan vallar í
Eyjum og hefur meðal annars
boðist til þess að hjálpa ungum
stelpum í boltanum. Hvað varðar
framhaldið á tímabilinu hjá ÍBV
segir hún liðið taka einn leik fyrir
einu og að deildin sé jafnari en oft
áður.
„Ég held að deildin muni verða
jöfn, mér finnst bilið milli liðanna
í neðri helmingnum og topp-
liðanna vera að minnka og skilin
eru ekki alveg jafn skörp. Það er
gaman að sjá. Við munum halda
áfram að gefa allt í þetta og von-
andi mun það skila okkur fleiri
sigrum,“ segir Cloé Lacasse við
Morgunblaðið.
Sólríkt en krefjandi í Eyjum
Cloé Lacasse hefur farið fyrir liði ÍBV og er leikmaður Morgunblaðsins í maí-
mánuði Lítill stöðugleiki í liðinu vegna meiðsla Elskar að vera í Eyjum
3-4-3
Lið maímánaðar hjá Morgunblaðinu
Pepsi Max-deild kvenna 2019
Birta Guðlaugsdóttir
Stjörnunni
Agla María
Albertsdóttir
Breiðabliki
Elín Metta Jensen
Val
Hildur
Antonsdóttir
Breiðabliki
Cloé Lacasse
ÍBV
Alexandra
Jóhannsdóttir
Breiðabliki
Berglind Björg
Þorvaldsdóttir
Breiðabliki
Ída Marín
Hermannsdóttir
Fylki
Natasha Moraa
Anasi
Kefl avík
Stephany Mayor
Þór/KA
Kristín Dís Árnadóttir
Breiðabliki
Fjöldi sem leikmaður
fékk í mánuðinum
5
5
4 3
5
8
7 4
4
7
44
Best
Cloé La-
casse
fékk átta
M fyrir
frammi-
stöðu sína í
maímánuði.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is
Íþróttir og íþróttafélög eru
ekkert án fólksins sem stendur
þeim að baki. Starfsfólk, sjálf-
boðaliðar og stuðningsmenn
mynda órjúfanlega heild sem
stendur saman, félaginu sínu til
heilla. Æði oft myndast sterk
tilfinningabönd milli félaganna
og fólksins. Þessa tengingu er
bæði erfitt að útskýra, en ekki
síður erfitt að rjúfa.
Þessi tengsl halda í blíðu
og stríðu og oft yfir móðuna
miklu. Einmitt þess vegna er
svo mikilvægt að íþróttafélögin
og liðin sem leika undir þeirra
merkjum gleymi ekki þeim sem
standa þar að baki. Það er fólk-
ið sem skiptir öllu máli.
Á sunnudaginn var lék
knattspyrnulið Þórs með sorg-
arbönd til minningar um Bald-
vin Rúnarsson sem lést á föstu-
dag eftir erfið veikindi, aðeins
25 ára gamall. Til greina kom
að fresta deildarleik Þórs og
Þróttar, en eins og sagt er frá á
heimasíðu Þórs þá sneru leik-
menn bökum saman og sögðu:
„Vinnum leikinn fyrir vin okkar
og félaga Baldvin Rúnarsson.“
Það var fallegt að sjá hvernig
leikmenn minntust hans, fögn-
uðu mörkum sínum með því að
benda til himins og tileinkuðu
honum sigurinn. „Við tókum
það með inn á völlinn í dag sem
hann kenndi okkur með lífinu.
Hann gafst aldrei upp,“ sagði
Jónas Björgvin Sigurbergsson
eftir leik.
Sjálfur veit ég það að
Baldvin var skilgreiningin á gall-
hörðum Þórsara og gott dæmi
um hin órjúfanlegu tengsl sem
geta myndast á milli ein-
staklings og íþróttafélags. Það
eina sem skiptir máli er fólkið
sem stendur að baki félaginu,
og það gerði Baldvin svo sann-
arlega hjá Þór. Blessuð sé
minning hans.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Bjarni Ólafur Eiríksson, reyndasti
leikmaður Íslandsmeistara Vals,
náði stórum áfanga á sunnudags-
kvöldið þegar lið hans sótti Stjörn-
una heim í sjöundu umferð úrvals-
deildar karla í fótbolta. Hann lék
þar sinn 400. deildaleik á ferlinum
en þetta er tuttugasta ár Bjarna í
meistaraflokki, frá því hann lék
fyrst með Valsmönnum í 1. deild-
inni árið 2000.
Af þessum 400 leikjum Bjarna
eru 272 á Íslandi og allir með Val.
Þar af 233 í efstu deild og 39 í 1.
deild. Bjarna vantar átta leiki enn
til að slá félagsmet Sigurbjörns
Hreiðarssonar sem lék 240 leiki
fyrir Val í efstu deild. Bjarni lék
þar að auki 41 leik með Silkeborg í
dönsku úrvalsdeildinni á árunum
2005 til 2007 og 87 leiki með Sta-
bæk í norsku úrvalsdeildinni á ár-
unum 2010 til 2012.
Bjarni er aðeins 24. íslenski
knattspyrnumaðurinn frá upphafi
sem nær því að spila 400 deildaleiki
á ferlinum, heima og erlendis. Met-
hafinn er Arnór Guðjohnsen, sem
lék 523 leiki, og efstur þeirra sem
eru enn að spila er Kári Árnason
sem er í fjórtánda sæti með 436
deildaleiki. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reyndur Bjarni Ólafur Eiríksson með boltann í leik gegn Fylki á dögunum.
Bjarni kominn í 400