Morgunblaðið - 17.06.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.06.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Léttur dúnjakki • 90% dúnn/10% fiður, þéttvafið nylon efni • Einstaklega þægilegir, hlýir og léttir, ferðapoki fylgir hverjum dúnjakka • 5 mismunandi litir • Stærðir: XS - 4XL – henta báðum kynjum Vnr: 1899 707 Verð: 13.480 kr. Pepsi Max-deild karla ÍA – KR ..................................................... 1:3 Valur – ÍBV............................................... 5:1 KA – Grindavík......................................... 2:1 Staðan: KR 8 5 2 1 14:7 17 Breiðablik 8 5 1 2 16:9 16 ÍA 8 5 1 2 15:10 16 Fylkir 8 3 3 2 14:11 12 KA 8 4 0 4 10:9 12 FH 8 3 3 2 14:15 12 Stjarnan 8 3 3 2 11:12 12 Grindavík 8 2 4 2 7:8 10 Valur 8 2 1 5 13:13 7 Víkingur R. 8 1 4 3 11:14 7 HK 8 1 2 5 8:12 5 ÍBV 8 1 2 5 7:20 5 Inkasso-deild karla Leiknir R. – Þór ....................................... 0:3 Alvaro Calleja 31., 65., Ármann Pétur Æv- arsson 61. Staðan: Þór 7 5 0 2 15:6 15 Víkingur Ó. 6 4 1 1 9:4 13 Fjölnir 7 4 1 2 13:9 13 Fram 7 3 2 2 12:10 11 Grótta 7 3 2 2 12:12 11 Keflavík 6 3 1 2 12:7 10 Þróttur R. 7 3 1 3 15:12 10 Leiknir R. 7 3 0 4 11:13 9 Njarðvík 7 2 1 4 7:10 7 Haukar 7 1 3 3 7:12 6 Afturelding 7 2 0 5 10:18 6 Magni 7 1 2 4 9:19 5 Svíþjóð B-deild: Brage – Trelleborg ................................. 2:0  Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn með Brage. Halmstad – Mjällby ................................. 2:0  Óttar Magnús Karlsson kom inn á eftir 66. mínútur en Gísli Eyjólfsson sat á vara- mannabekknum. KNATTSPYRNA HLÍÐARENDI / AKRANES/ AKUREYRI Bjarni Helgason Stefán Stefánsson Baldvin Kári Magnússon Valsmenn höfðu ekki unnið deild- arleik í tæpan mánuð þegar liðið fékk ÍBV í heimsókn í 8. umferð úr- valsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á Origo- vellinum á Hlíðarenda á laugardag- inn. Leiknum lauk með stórsigri Vals, 5:1, þar sem þeir Lasse Petry og Ólafur Karl Finsen skoruðu tvívegis fyrir Valsmenn og Andri Adolphs- son skoraði eitt mark. Sigurður Arn- ar Magnússon skoraði mark Eyja- manna í upphafi síðari hálfleiks. Valsmenn voru fastir í fyrsta gír allan fyrri hálfleikinn en eftir að Sig- urður Arnar jafnar fyrir Eyjamenn í upphafi síðari hálfleiks hrökk liðið í gang og lék á als oddi með Kristin Frey Sigurðsson í broddi fylkingar. Allur léttleiki í Valsliðinu fer í gegn- um Kidda og hann gerir aðra í kring- um sig svo miklu, miklu betri. Frammistaða Eyjamanna á laug- ardaginn var hreinasta hörmung og liðið leit út eins og slakt 1. deildarlið oft á köflum. Jonathan Glenn gat ekki unnið skallabolta þótt líf hans lægi við, varnarmenn liðsins gátu ekki tekið á móti einföldum send- ingum og það var alltof langt á milli manna, þrátt fyrir að liðið hafi spilað 5-4-1. Hvort Valsmenn séu hrokknir í gang skal látið ósasgt enda mót- spyrnan í leiknum á laugardaginn engin. Frammistaða Eyjamanna í leiknum öskrar á fall enda gæðin í liðinu ekki samboðin efstu deild á Ís- landi í dag. bjarnih@mbl.is Engin galdraformúla „Ég hef enga galdraformúlu hvernig á að vinna Skagamenn, við leggjum bara leikinn upp út frá því hvað þeir hafa verið að gera í síðustu leikjum. Þeir hafa verið að gera frá- bæra hluti gegn svokölluðum stórum liðum svo við þurfum að finna ein- hverja veikleika í þeirra leik og ég held að við höfum fundið nokkra og náð að nýta það. Stundum heppnast það hjá þjálfurum og stundum ekki,“ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 3:1 sigur á ÍA þegar liðin mætt- ust á Akranesi á laugardaginn en þá lauk 8. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu. Orð að sönnu því eftir að KR- ingar leyfðu Skagamönnum að ham- ast í byrjun leiksins tóku þeir við stjórninni og héldu góðum tökum á leiknum. Auðvitað ekki algerlega og Akurnesingar áttu sín færi en í liði KR er Óskar Örn Hauksson, sem hélt þeim algerlega við efnið. Alltaf hætta þegar hann fékk boltann og það fór mikil vinna og einbeiting að hemja hann. Sigurinn kom KR á topp deild- arinnar og liðið er til alls líklegt en eins og Rúnar bendir á er engin galdraformúla. Skagamenn byrjuðu deildina með látum og önnur lið hljóta að hafa spáð í það. Þá stendur eftir hvort Akurnesingar nái vopn- um sínum og finni svör – þá reynir á leikmenn og þjálfara. stes@mbl.is KA í efri hlutanum KA-menn unnu 2:1 sigur á Grindavík þar sem þjálfarar liðanna mættu báðir sínum fyrrverandi lið- um. Kristijan Jajalo spilaði í marki KA gegn sínum gömlu félögum, vegna meiðsla Aron Dags og stóð sig vel. Einnig spilaði Bjarni Að- alsteinsson allan leikinn fyrir KA en hann var kallaður úr láni frá Magna nú á dögum. Sigurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir KA-menn þar sem deildin er afar jöfn og fá stig á milli liðanna. Það var í raun ekki mikið sem skildi að á milli liðanna í leiknum en þó voru heimamenn sterkari aðilinn. Grindvíkingar fengu sín færi en tókst ekki að nýta þau nægilega vel. Það þurfti glæsilegt langskot frá Hrannari Birni til þess að brjóta nið- ur varnarmúr gestanna. Seinni hálf- leikurinn var opnari og fengu bæði liðin færi. KA brugðust vel við jöfn- unarmarki gestanna og náðu að sigla sigrinum heim. Ásgeir Sigurgeirsson kom inn á fyrir KA í seinni hálfleiknum og hefði getað skorað. Þetta var hans fyrsti leikur síðan hann sleit kross- band í fyrra. Þetta eru góðar fréttir fyrir KA en Ásgeir gefur sóknarleik KA aðra vídd með sínum hraða. sport@mbl.is KR á toppinn eftir sigur á Skaganum  Valsmenn tóku við sér og skoruðu fimm mörk  Endurfundir á Akureyri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hlíðarendi Víðir Þorvarðarson, fyrirliði ÍBV, og Sigurður Egill Lárusson. 1:0 Hrannar B. Steingrímsson 45. 1:1 Alexander V. Þórarinsson 66. 2:1 Elfar Árni Aðalsteinsson 70. I Gul spjöldSteinþór Freyr Þorsteinsson, Alexander Groven og Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA). Réne Joensen, Marc McAusland og Gunnar Þor- steinsson (Grindavík). Dómari: Pétur Guðmundsson, 8. Áhorfendur: 855. KA – Grindavík 2:1 M Hallgrímur M. Steingrímsson (KA) Hrannar Björn Steingrímsson (KA) Alexander Groven (KA) Kristijan Jajalo (KA) Hallgrímur Jónasson (KA) Aron Jóhannsson (Grindavík) Alexander V. Þórarinsson (Grind.) Elias Tamborini (Grindavík) Vladan Djogatovic (Grindavík) 0:1 Pálmi Rafn Pálmason 15.(víti) 0:2 Óskar Örn Hauksson 23. 0:3 Tobias Thomsen 80. 1:3 Viktor Jónsson 83. I Gul spjöldAlex Freyr Hilmarsson (KR). Einar Logi Einarsson, Marcus Joh- ansson og Hörður Ingi Gunnarsson (ÍA). Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 8. Áhorfendur: 1.281. ÍA – KR 1:3 MM Óskar Örn Hauksson, KR M Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA Marcus Johansson, ÍA Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA Finnur Tómas Pálmason, KR Gunnar Þór Gunnarsson, KR Kristinn Jónsson, KR Atli Sigurjónsson, KR 1:0 Lasse Petry 20. 1:1 Sigurður Arnar Magnússon 52. 2:1 Andri Adolphsson 55. 3:1 Ólafur Karl Finsen 59. 4:1 Lasse Petry 64. 5:1 Ólafur Karl Finsen 84. I Gul spjöldLasse Petry (Val). Óskar Elías Zoëga og Sindri Snær Magnússon (ÍBV). Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 7. VALUR – ÍBV 5:1 Áhorfendur: 828. MM Ólafur Karl Finsen (Val) Andri Adolphsson (Val) M Lasse Petry (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Birkir Már Sævarsson (Val) Felix Örn Friðriksson (ÍBV) Evariste Ngolok (ÍBV) Knattspyrnu- stjórinn Maurizio Sarri hefur verið ráðinn sem stjóri Juventus en þetta tilkynnti ítalska félagið í gær. Sarri tekur við liðinu af Mas- similiano Allegri sem hætti á dög- unum og gerir þriggja ára samning. Sarri tók við liði Chelsea síðasta sumar af Anton- io Conte. sport@mbl.is Sarri tekinn við Juventus Maurizio Sarri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.