Morgunblaðið - 17.06.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 17.06.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚNÍ 2019 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt HANDBOLTI Undankeppni EM karla 2020 1. riðill: Pólland – Ísrael..................................... 26:23 Þýskaland – Kósóvó ............................. 28:17  Lokastaðan: Þýskaland 12 stig, Pólland 5, Ísrael 4, Kósóvó 3.  Þýskaland og Pólland á EM. 2. riðill: Serbía – Sviss........................................ 32:31 Króatía – Belgía.................................... 28:19  Lokastaðan: Króatía 11 stig, Sviss 6, Serbía 6, Belgía 1.  Króatía og Sviss á EM. 3. riðill: Ísland – Tyrkland................................. 32:22 Norður-Makedónía – Grikkland ......... 27:23  Lokastaðan: Norður-Makedónía 9 stig, Ísland 8, Tyrkland 4, Grikkland 3.  Norður-Makedónía og Ísland á EM. 4. riðill: Holland – Lettland .............................. 25:21  Erlingur Richardsson þjálfar Holland. Slóvenía – Eistland............................... 32:28  Lokastaðan: Slóvenía 10 stig, Lettland 8, Holland 6, Eistland 0.  Slóvenía og Lettland EM. 5. riðill: Tékkland – Bosnía................................ 23:24 Hvíta-Rússland – Finnland ................. 40:15  Lokastaðan: Hvíta-Rússland 8, Tékkland 8, Bosnía 8, Finnland 0.  Hvíta-Rússland og Tékkland á EM. 6. riðill: Portúgal – Litháen ............................... 28:28 Frakkland – Rúmenía .......................... 34:25  Lokastaðan: Frakkland 10 stig, Portúgal 9, Litháen 3, Rúmenía 2.  Frakkland og Portúgal á EM. 7. riðill: Ungverjaland – Ítalía........................... 32:29 Rússland – Slóvakía ............................. 30:20  Lokastaðan: Ungverjaland 11 stig, Rúss- land 9, Ítalía 4, Slóvakía 0.  Ungverjaland og Rússland á EM. 8. riðill: Svartfjallaland – Úkraína.................... 27:21 Danmörk – Færeyjar........................... 31:24  Lokastaðan: Danmörk 10 stig, Svart- fjalland 7, Úkraína 6, Færeyjar 1.  Danmörk og Svartfjallaland á EM.  Serbía, Holland, Bosnía og Úkraína náðu bestum árangri í 3. sæti riðlanna og fara einnig á EM. EHF-keppni karla Svíþjóð – Austurríki............................ 33:32  Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð. Noregur – Spánn .................................. 30:31  Lokastaðan: Spánn 10, Noregur 8, Sví- þjóð 4, Austurríki 2.  Spánn fer á EM sem Evrópumeistari og hinar þrjár þjóðirnar sem gestgjafar. KNATTSPYRNA 1. deild karla, Inkasso-deildin: Ólafsvík: Víkingur Ó. – Keflavík .............. 16 Í KVÖLD! Í HÖLLINNI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í handknatt- leik tryggði sér sæti í lokakeppni EM í Austurríki, Noregi og Svíþjóð þegar liðið vann öruggan tíu marka sigur gegn Tyrklandi í lokaleik sín- um í 3. riðli undankeppninnar í Laugardalshöll í gær en leiknum lauk með 32:22-sigri íslenska liðsins. Liðin voru lengi í gang í Höllinni í gær en Elvar Örn Jónsson skoraði fyrsta mark leiksins á 4. mínútu og íslenska liðið fylgdi því marki vel eftir og náði fjögurra marka forskoti eftir tíu mínútna leik. Tyrkir neituðu að gefast upp og gerðu vel í að halda í við íslenska liðið og var staðan 12:9, Íslandi í vil, í hálfleik. Íslenska liðið byrjaði seinni hálf- leikinn af miklum krafti, náði fimm marka forskoti, eftir 40. mínútna og og hélt áfram að auka forskot sitt jafnt og þétt. Munurinn á liðunum var sex mörk þegar tíu mínútur voru til leiksloka og þá setti íslenska liðið aftur í annan gír og var munurinn á liðunum tíu mörk þegar sjö mínútur voru til leiksloka. Þann mun náði Tyrkir ekki að brúa og íslenska liðið fagnaði þægilegum sigri. Bjarki og Viktor frábærir Íslenska liðið var langt frá því að vera sannfærandi í fyrri hálfleik og ef ekki hefði verið fyrri Viktor Gísla Hallgrímsson, sem átti stórleik í marki íslenska liðsins, hefði liðið að öllum líkindum verið undir í hálfleik. Sóknarleikurinn var heilt yfir slak- ur, liðinu gekk illa að finna opnanir í villtri vörn Tyrkjanna, og stór- skyttur liðsins náðu sér ekki á strik. Þá fór Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði liðsins, illa með nokkur upp- lögð dauðafæri. Viktor varði tvívegis í röð frá Tyrkjunum undir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 11:9 og eftir á að hyggja voru það algjörar lyk- ilvörslur í leiknum. Í seinni hálfleik mætti liðið mun sterkari til leiks með Bjarka Má El- ísson fremstan í flokki en hann leysti Guðjón Val Sigurðsson af hólmi í vinstra horninu. Viktor Gísli hélt áfram að verja frá Tyrkjunum og átti hverja stoðsendinguna á fæt- ur annarri fram völlinn á Bjarka Má sem skoraði nánast undantekn- ingalaust en hann endaði með 11 mörk í leiknum og var markahæsti leikmaður íslenska liðsins. Þá gekk sóknarleikurin betur í seinni hálfleik en þegar allt kemur til alls voru það fyrst og fremst hraðaupphlaupin sem skiluðu íslenskum sigri í gær. Besta liðið mun spila Íslenska liðið er á leið á enn eitt stórmótið og það verður ákveðinn höfuðverkur fyrir Guðmund Þórð Guðmundsson, þjálfari liðsins, að stilla upp sínu besta byrjunarliði í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Guð- mundur veðjaði svo sannarlega á réttan hest þegar hann ákvað að velja Viktor Gísla og Ágúst Elí Björgvinsson fram yfir þá Björgvin Pál Gústafsson og Aron Rafn Eð- varðsson fyrir útileikinn gegn Makedóníu þann 14. apríl síðastlið- inn. Þá hljóta menn að spyrja sig hvort Bjarki Már Elísson eigi skilið sæti í byrjunarliðinu á kostnað landsliðsfyrirliðans eftir nokkrar mjög góðar innkomur í und- anförnum leikjum. Haukur Þrast- arson hefur lítið fengið að spila enda ungur að árum og Janus Daði Smárason sýndi það í leiknum í gær hversu öflugur hann er að brjóta sér leið í gegnum varnir andstæðing- anna en þetta eru leikmenn sem stuðningsmenn liðsins vilja að fái fleiri tækifæri. „Þetta er ákveðið lúxusvandamál og þetta mun gerast í ákveðnum skrefum. Við höfum gert mjög mikl- ar breytingar á hópnum frá því ég tók við liðinu. Það er alltaf erfitt að ganga í gegnum kynslóðaskipti og við munum misstíga okkur á leið- inni. Liðið þarf tíma til þess að spila sig saman og við erum að vinna eftir ákveðnu þriggja ára plani. Það er alltaf þannig þegar að þú þjálfar landslið að þú stillir upp þínu besta liði, sama hvað, en við þurfum líka að huga að ungu strákunum og gefa þeim tækifæri og þetta er blanda sem er vandmeð farið með,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið í Laug- ardalshöll í gær. Þjálfarinn með hausverk eftir sannfærandi sigur  Mikill munur á fyrri og seinni hálfleik  Minni spámenn minntu á sig Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Markahæstur Bjarki Már Elísson var magnaður gegn Tyrkjum og skoraði ellefu mörk í síðari hálfleik. Laugardalshöll, undankeppni EM karla, sunnudaginn 16. júní 2019. Gangur leiksins: 1:0, 6:2, 7:4, 8:5, 11:8, 12:9, 15:12, 19:13, 23:17, 26:20, 30:21, 32:22.. Mörk Ísland: Bjarki Már Elísson 11, Arnór Þór Gunnarsson 6/1, Aron Pálmarsson 3, Teitur Örn Einarsson 3, Janus Daði Smárason 2, Sigvaldi Björn Guðjónsson 2, Elvar Örn Jóns- son 2, Guðjón Valur Sigurðsson 2, Atli Ævar Ingólfsson 1. Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson 19. Ísland – Tyrkland 32:22 Utan vallar: 4 mínútur Mörk Tyrkland: Doruk Pehlivan 5/3, Caglayan Öztürk 5, Alp Eren Pektas 3, Onur Ersin 3, Can Celebi 1, Ömer Ozan Arifoglu 1, Özgür Sarak 1, Bar- an Nalbantoglu 1, Hali Ibrahim Özt- ürk 1, Ygit Eröz 1. Varin skot: Yunus Özmusul 7, Cosk- un Göktepe 5. Utan vallar: 8 mínútur Dómarar: Ivars Cernavskis og Ed- munds Bogdanovs, Lettlandi. Áhorfendur: 2100. Eyjamaðurinn Erlingur Rich- ardsson ritaði nafn sitt í sögubæk- urnar í hollenskum íþróttum í gær þegar hann stýrði hollenska liðinu til 25:21-sigurs á Lettlandi á heima- velli og tryggði liðið sér sæti í loka- keppni EM karla í handknattleik fyrir vikið. Er þetta í fyrsta skipti sem hol- lenskt karlalið verður með í loka- móti EM en kvennalandslið Hol- lands hefur náð talsverðum árangri í íþróttinni. Erlingur tók við hol- lenska liðinu í október 2017 og hef- ur því verið fljótur að ná árangri en lokakeppni Evrópumótsins fer fram í Austurríki, Noregi og Sví- þjóð í janúar á næsta ári. Hollenska liðið kom sterkt til leiks og var staðan 13:11 í hálfleik. Hollendingar hleyptu Lettum ekki of nálægt sér í seinni hálfleik og tryggðu sér að lokum góðan sigur. Holland hafnaði í þriðja sæti rið- ilsins með sex stig og er eitt þeirra fjögurra liða sem eru með bestan árangur í þriðja sæti og fá þar með þátttökurétt á Evrópumótinu. Slóv- enía endaði í efsta sæti með 10 stig og Lettland í öðru sæti með 8 stig. Holland á EM undir stjórn Erlings

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.