Morgunblaðið - 18.06.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019
Uppblásið fortjald
Frábært
verð
Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449 og 778 2294,
hjolhysi.com og á netfangið kriben@simnet.is
hjolhysi.com • Bæjarhraun 24, Hafnarfirði • Opið mánud.-föstud. kl. 11-18 og laugard. kl. 12-16
TRIGANO
Lima 410
Eftirfarandi aukahlutir fylgja með:
• Dúkur í fortjald
• Þak klæðning-Roof lining
• Pumpa, svunta, stangir o.fl.
159.000
Dagfinnur Stefánsson,
flugstjóri og einn af
stofnendum Loftleiða,
lést á sunnudag, 93 ára
að aldri.
Dagfinnur fæddist
22. nóvember 1925, en
foreldrar hans voru
Stefán Ingimar Dag-
finnsson skipstjóri og
Júníana Stefánsdóttir
húsmóðir. Hann fór ut-
an til flugnáms í Spart-
an School of Aeronau-
tics í Tulsa í Oklahoma-
ríki árið 1945 og hlaut
atvinnuflugmannsréttindi 1946.
Dagfinnur var frumkvöðull í ís-
lenskri flugsögu og flaug vel yfir
30.000 flugtíma á ævi sinni. Hann
starfaði sem flugstjóri fyrir meðal
annars Loftleiðir, síðar Flugleiðir og
Air Bahama og Cargolux, dótt-
urfélag Loftleiða, en Dagfinnur var
flugstjóri í fyrstu ferð þess félags.
Dagfinnur flaug víða um heim og
sinnti meðal annars sjálfboðastarfi
sem flugstjóri fyrir hjálparsamtökin
Orbis, sem eru alþjóðleg hjálp-
arsamtök á sviði augnlækninga og
fljúga til þróunarlanda á sérútbúnni
þotu og veita fátækum ókeypis
lækningar við augnsjúkdómum.
Hann flaug einnig önnur hjálp-
artengd flug svo sem með matvæli
til Biafra.
Þá átti Dagfinnur
hugmyndina að því að
nota DC3-vél Flug-
félags Íslands, sem síð-
ar var nefnd Páll
Sveinsson, til land-
græðslu, eftir að vélin
hafði lokið hlutverki
sínu sem farþegavél.
Dagfinnur sat í
stjórnum ýmissa fé-
laga og nefnda, svo
sem Loftleiða, Flug-
leiða, Félags íslenskra
atvinnuflugmanna og
Lífeyrissjóðs flug-
manna. Þá var hann þátttakandi í
samstarfi nefndar og verkfræðistofu
JC Buckley, sem skipuð var af ráð-
herra 1960, þar sem komist var að
þeirri niðurstöðu að bestu aðstæður
nýs flugvallar væru á Álftanesi, sem
var einnig meðal valkosta Rögnu-
nefndarinnar 2013-2015. Dagfinnur
var í áhöfn Geysis, sem brotlenti á
Bárðarbungu 1950, en hann var sá
síðasti úr áhöfninni sem enn var á
lífi.
Dagfinnur var sæmdur heið-
ursmerki hinnar íslensku fálkaorðu
þann 17. júní 2014 fyrir brautryðj-
andastörf á vettvangi flug- og sam-
göngumála.
Börn Dagfinns eru Inga Björk,
Stefán og Leifur Björn, barnabörn
eru fimm og barnabarnabörn þrjú.
Andlát
Dagfinnur Stefánsson
Haraldur Jónsson myndlistarmaður
var í gær útnefndur Borgarlistmað-
ur Reykjavíkur 2019. Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri sá um útnefn-
inguna við hátíðlega athöfn í Höfða.
Í tilkynningu frá Reykjavík-
urborg segir að útnefningin sé heið-
ursviðurkenning til listamanns sem
með listsköpun sinni hefur skarað
fram úr og markað sérstök spor í ís-
lensku listalífi.
Pawel Bartoszek, formaður menn-
ingar-, íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar, gerði grein fyr-
ir einhuga vali ráðsins á Haraldi og
sagði hann undanfarin 30 ár hafa
markað afgerandi spor í íslenska
listasögu. „Hann hefur með ein-
stökum hætti og af einurð skoðað
tengsl vitundarinnar eins og hún
birtist okkur sem farvegur ytra
áreitis og innra lífs,“ sagði hann.
Haraldur Jónsson er fæddur í
Helsinki árið 1961. Að loknu stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík fluttist hann til Frakk-
lands hvar hann nam franskar bók-
menntir og menningarsögu við Paul
Valéry háskólann í Montpellier, og
síðan myndlist við háskólann í Aix
en Provence. Hann lauk Meis-
terschüler gráðu frá Listaakademí-
unni í Düsseldorf 1990.
Haraldur Jónsson
Borgarlistamaður
Ráðið einhuga um valið á Haraldi
Ljósmynd/Aðsend
Verðlaunaður Haraldur ásamt Degi
B. og Pawel Bartoszek við Höfða.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fjöldi íbúða er í byggingu í nýju
íbúðahverfi á Hellu, Ölduhverfi.
Andri Leó Egilsson, verktaki hjá
Naglafari ehf., segir að vel hafi gengið
að selja. Þótt nú sé heldur þyngra yfir
sölu sé ekki ástæða til að kvarta.
Töluverð uppbygging hefur verið í
íbúðabyggingu á Hellu og raunar
einnig í sveitunum á síðustu árum.
Andri hefur lokið byggingu fjögurra
íbúða í raðhúsi í nýju hverfi, Öldu-
hverfi á Hellu, og er nú að byggja
annað eins hús. Jötunn byggingar á
Selfossi eru að byggja fimm íbúða
raðhús við hliðina og Stracta hótel
átta íbúðir í hverfinu auk þess sem
tveir einstaklingar eru að byggja sér
íbúðarhús þar.
Alls eru 24 íbúðir nú í byggingu á
Hellu og verða tilbúnar í sumar, sam-
kvæmt upplýsingum sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Rangárþing ytra
hefur stuðlað að þessari uppbyggingu
með því að kaupa fáeinar íbúðir í
hverfinu enda benti íbúðakönnun til
þess að húsnæði vantaði á staðnum.
Spyr um langtímaleigu
Andri hefur verið að byggja og
selja íbúðir með hléum í rúman ára-
tug. Hann segist hafa tekið önnur
verkefni með, bæði á Hellu og í sveit-
unum. Á síðustu tveimur árum hefur
hann byggt tólf íbúðir á Hellu og á að-
eins þrjár óseldar.
„Það er misjafnt hvað þetta selst
hratt. Margir hafa áhuga á að kaupa
en því miður ná því ekki allir. Salan er
heldur þyngri nú en verið hefur en ég
kvarta ekki. Fólk er að spyrja um
langtímaleigu og vill vera tryggt í
þrjú ár. Það hefur ekki verið mikið í
boði. Maður leigir kannski um tíma, á
meðan íbúðir eru í sölu en svo seljast
þær á endanum,“ segir Andri. Aukin
umsvif í ferðaþjónustu eru væntan-
lega ástæðan fyrir byggingu margra
íbúða á Hellu. Svo var þar uppsöfnuð
þörf þar sem lítið hafði verið byggt í
langan tíma.
Töluverð uppbygging er einnig í
sumarhúsahverfum við Ytri-Rangá
og ásókn í að gera þar aðstöðu til
heilsársbúsetu með fullri þjónustu.
Nokkrar stórframkvæmdir eru á
svæðinu, að sögn Andra. Meðal þeirra
eru stórt hótel, hestabúgarður og
stórt fjós.
Vel gengur að selja íbúðir
24 íbúðir í byggingu á Hellu Andri Leó Egilsson verktaki
hefur byggt 12 íbúðir á tveimur árum og náð að selja flestar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verktaki Andri Leó Egilsson stend-
ur við íbúð sem hann hefur lokið við.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Möguleiki er á að umhverfismat
klárist á þessu ári og hægt verði að
hefja framkvæmdir á því næsta við
uppbyggingu baðlóns í Stóradal,
nærri skíðaskálanum í Hveradölum,
en þar eru einnig áformuð viðbygg-
ing við skíðaskálann, gróðurhús með
söluaðstöðu og þjónustuhús fyrir úti-
vistarfólk. Þetta segir Þórir Garð-
arsson, stjórnarformaður ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Gray Line, en
Skipulagsstofnun hefur nú í kynn-
ingu tillögu að matsáætlun vegna
mats á umhverfisáhrifum fyrirhug-
aðrar uppbyggingar.
Félagið Hveradalir ehf. stendur
að uppbyggingunni, en það er í eigu
ferðaþjónustufyrirtækisins Gray
Line og Heklubyggðar ehf., sem er í
eigu Grettis Rúnarssonar.
Spurður hve langur tími líði þar til
framkvæmdin verði tilbúin segist
Þórir ekki þora að fullyrða það. „Við
erum nú að láta vinna kostnaðarmat
á þessu og greiningu á verkefninu
niður í smáatriði. Þegar það liggur
fyrir, nú um mitt sumar, þá gerir
maður sér betur grein fyrir þessu,“
segir hann. Áformað er að bjóða
fyrst út framkvæmdir við baðlónið
og hefja þar fyrst framkvæmdir.
Hætt við hótelbyggingu
Upphaflega var gert ráð fyrir að
120 herbergja hótel yrði hluti fram-
kvæmdarinnar, en hætt hefur við
þann hluta auk áhaldahúsa sem áttu
að rísa við Skíðaskálann. „Við felld-
um út hótelið og áhaldahús sem áttu
að koma framan við skíðaskálann.
Við minnkuðum umfangið án þess að
skaða stærstu framkvæmdina sem
er auðvitað baðlónið sjálft,“ segir
Þórir. Ekki sé þó útilokað að í fram-
tíðinni rísi á svæðinu hótel. „Eins og
staðan er í dag teljum við ekki skyn-
samlegt að fara í hótelrekstur á
þessu svæði, hvað sem framtíðin
kann að bera í skauti sér. Ef það
verður einhvern tímann, þá fer það
bara í sérstakt matsferli. Þessi
ákvörðun var ekki tekin vegna nið-
ursveiflunnar sem er núna enda eru
hótelbyggingar margra ára verkefni
og þar horfa menn til lengri tíma,“
segir Þórir.
Á fyrri stigum málsins lýstu for-
svarsmenn verkefnisins yfir
óánægju með það hve langan tíma
tók að ákveða hvort verkið færi í um-
hverfismat eða ekki. Þórir segir að
ákveðið hafi verið að una þeirri
ákvörðun. „Af fenginni reynslu
ályktuðum við að það fæli í sér mun
skemmri málsmeðferð að fara með
þetta í umhverfismat. Ég tel engin
vandkvæði þar á, við erum með svör
við öllum þeim spurningum sem
kunna að koma upp í því ferli,“ segir
Þórir.
„Tafir eru tjón,“ segir Þórir,
spurður hvort félagið hafi skaðast
vegna tafanna. „Hvort þær séu rétt-
lætanlegar, það ætla ég að láta aðra
dæma um. Við erum allavega bjart-
sýnir og teljum að þessu máli verði
lokið í skipulagsferli á þessu ári.“
Umhverfismati gæti lokið á árinu
Uppbyggingaráform í Hveradölum mjakast áfram Mögulegt að framkvæmdir hefjist á næsta ári
Fyrst verði boðnar út framkvæmdir við baðlón í Stóradal Hætt við byggingu 120 herbergja hótels
Tölvuteikning/Stúdíó Grandi
Svæðið Baðlón, viðbygging og
gróðurhús eru m.a. áformuð.