Morgunblaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 32
Gagnrýnandinn Amanda Holloway
fer fögrum orðum um uppfærslu Ís-
lensku óperunnar á La traviata í júlí-
blaði hins virta óperutímarits Opera.
Ber hún lof á frammistöðu söngvara
og þá sérstaklega Herdísar Önnu
Jónasdóttur og Elmars Gilberts-
sonar í hlutverkum elskenda. Mynd-
bandsupptaka af sýningunni er nú
aðgengileg á vef OperaVison, á slóð-
inni operavision.eu, þannig að þeir
sem misstu af henni í Hörpu geta
séð hana þar fram til loka október.
Ber lof á La traviata
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
fagnaði 2:0 sigri í síðari vináttu-
leiknum gegn Finnum í Espoo í
Finnlandi í gær. Hlín Eiríksdóttir og
Dagný Brynjarsdóttir skoruðu mörk
íslenska liðsins í fyrri hálfleik en
þetta var síðasti leikur landsliðsins
fyrir undankeppni EM en Ísland
mætir Ungverjalandi í fyrsta leik
sínum þann 29.ágúst. »27
Sigur á Finnum
í annarri tilraun
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Það er aldrei sjálfsagt að fá að
spila fyrir landslið. Eftir alla þessa
leiki með yngri landsliðunum var
maður þó alltaf að bíða eftir því að
vera kallaður inn í hópinn með
stóru strákunum. Núna
hef ég fengið að vera með
þeim síðustu þrjú ár og
fylgjast með öllu, og
það er frábært að ná
að koma inn núna
og eiga góðan leik
eins og liðið allt,“
segir Hjörtur
Hermannsson
sem tók stöðu Birkis
Más Sævarsson sem
hægri bakvörður í
leikjunum gegn
Albaníu og
Tyrklandi. »26
Aldrei sjálfsagt að fá
að spila fyrir landslið
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Kvæðakonan góða“, hópur ellefu kvæðakvenna, kvað
rímur og flutti stemmur á torgum og götuhornum í Berl-
ín í Þýskalandi undanfarna daga. „Þetta er byrjunin á yf-
irferð hópsins um útlönd,“ segir Ingibjörg Hjartardóttir.
Mágkonurnar Ingibjörg og Hallgerður Gísladóttir
þjóðháttafræðingur, sem lést 2007, fóru á rímna-
námskeið hjá Kvæðamannafélaginu Iðunni skömmu eftir
aldamót og upp úr því spratt hugmyndin að kvæða-
kvennahópnum, að sögn Ingibjargar. Markmið hans yrði
það að halda á lofti kveðskaparforminu, þessum gamla
menningararfi en jafnframt að endurnýja hann og end-
urskapa. Nafnið „Kvæðakonan góða“ varð til strax í upp-
hafi. En örlögin höguðu því þannig að þegar Hallgerður
veiktist og dó voru áformin sett á ís þar til í vetur sem
leið.
Ingibjörg segir að „Kvæðakonan góða“ hafi vaknað til
lífsins þegar Ragnheiður Ólafsdóttir, sérfræðingur í
hefðbundnum íslenskum rímnakveðskap, hafi komið í
Reykjavíkurakademíuna, þar sem þrjár úr hópnum hafa
aðstöðu. Hún hafi verið nýútskrifaður doktor frá Ástr-
alíu, haldið námskeið í rímum og stemmum í Akademí-
unni, konurnar hafi sótt það og ákveðið að fara í þessa
ferð undir stjórn hennar í minningu Höllu.
Dagskráin úti í Berlín var ekki ákveðin fyrirfram held-
ur höfðu konurnar þann háttinn á, eins og íslensk veðr-
átta, að bresta óvænt í kveðanda á ólíklegustu stöðum og
stundum. Þær hófu kveðskapinn á Alexanderplatz og
síðan leiddi eitt af öðru. „Við tróðum þrisvar til fjórum
sinnum upp á dag og tilviljun réð hvar,“ segir Ingibjörg.
Í því sambandi nefnir hún að ein konan hafi átt stefnu-
mót við gamlan vin á veitingastað og þá hafi hinar notað
tækifærið og kveðið fyrir utan og þannig styrkt þessi
gömlu vináttubönd.
Markmiði náð
Ingibjörg áréttar að gjörningurinn flokkist hvorki
undir söng né tónleika. „Heldur kveðum við. Ef einhver í
hópnum mismælir sig og segir syngja í staðinn fyrir
kveða, þarf sú hin sama að borga þúsundkall í sekt. Þeg-
ar við vorum í miðri stemmu undir Brandenburgarhlið-
inu kom vörður aðvífandi og gaf okkur merki um að við
mættum þetta ekki en við kláruðum kvæðið sem við vor-
um að kveða. Það var eitt af markmiðum okkar, að
standa í þessu forna hliði, sem var á einskis manns landi
þegar múrinn var og hét, og kveða.“
Klæðnaðurinn fólst í nokkuð frjálslegum tilbrigðum
við upphlutinn. Margar voru í vesti, sumar aðeins með
skotthúfur eða svuntu. „Fólk stoppaði og horfði undr-
unaraugum á okkur en skildi auðvitað ekki neitt,“ segir
Ingibjörg og bætir við að þær hafi fengið mikil viðbrögð
á fésbókinni, þar sem þær héldu úti dagbók í máli og
myndum um gang mála. „Þetta er bara byrjunin á fleiri
ferðum,“ áréttar hún.
Ljósmynd/Sigrún Jónsdóttir
Í Berlín Hópurinn í „Kvæðakonunni góðu“. Frá vinstri: Ragnheiður Ólafsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Þuríður Jó-
hannsdóttir, Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Elísa Björg Þor-
steinsdóttir, Ingibjörg Hjartardóttir, Steinunn Hjartardóttir, Sigrún Hjartardóttir og Ingunn Ásdísardóttir.
Sektaðar fyrir mismæli
„Kvæðakonan góða“ kvað rímur og flutti stemmur á
torgum í Berlín Byrjun á yfirferð hópsins um útlönd
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900
Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í
gluggatjöldum
TWIN LIGHT RÚLLUGRDÍNA
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
GLUGGATJÖLD
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR