Morgunblaðið - 18.06.2019, Side 20

Morgunblaðið - 18.06.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Bridge kl. 12.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-15.30. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Þriðjudagur: Bridge og Kanasta kl. 13.00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Salatbar kl. 11.30-12.15. Hádegismatur kl. 11.30. Bridge kl. 13-15. Enska kl. 13-15. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Garðabæ Vatnsleikfimi. Sjál kl. 08.00 og 13.00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 13.00 Handavinna, kl. 13.30 Alkort. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13, gönguferð um hverfið með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.10, Spjaldtölvunámskeið kl. 10, Kaffispjall í króknum kl. 10:30, pútt á golfvellinum kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.00. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Annast liðveislu við bókhaldslausnir o.fl. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 ✝ Heimir BjörnIngimarsson, fæddist á Bíldudal 19. janúar 1937. Hann lést 7. júní 2019 í sumarbústað sínum. Foreldrar Ingi- mar Jóhannes Sig- urður Júlíusson, f. 12. desember 1911, d. 12. júlí 1987, og Ósk Laufey Hall- grímsdóttir, f. 31. október 1910, d. 28. desember 1988 Systkini: Hlynur Jóhannes Ingimarsson, f. 5. apríl 1935, d. 18. mars 2016, Grétar Ingi- marsson, f. 5. ágúst 1942, d. 12. júlí 1990. Jón Gunnar Ingimars- Dröfn og Guðgeir Ingi. Sigþór Heimisson, f. 6. ágúst 1960, maki Hildur Óladóttir, börn Sigþórs Atli, Olga og Einar. Lára Ósk Heimisdóttir, f. 22. febrúar 1963, maki Björn Krist- inn Björnsson, börn þeirra Heimir, Björk og Laufey. Haf- þór Ingi Heimisson, f. 4. mars 1966, maki Jenný Valdimars- dóttir, börn þeirra Össur og María. Heimir og Rósa áttu sjö barnabarnabörn, Sigríði Karen, Guðgeir Rúnar, Fenri Inga, Stefníu, Iðunni Birnu, Atla Hrafn og Atla. Heimir og Rósa bjuggu lengst af á Akureyri eða í 43 ár. Heimirvar menntaður húsa- smiður. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri og til 12 ára var hann bæjarfulltrúi fyrir Al- þýðubandalagið á Akureyri. Útför hans fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 18. júní 2019, klukkan 13.30. son, f. 12. janúar 1946, Ísleifur Ingi- marsson, f. 5. apríl 1949, Hallveig Guðbjört Ingimars- dóttir, f. 30. júní 1950, Óttarr Ingi- marsson, 4. októ- ber 1951. Eiginkona Heim- is til 61 árs var Stefanía Rósa Sig- urjónsdóttir, f. 28. janúar 1940, d. 15. febrúar 2019. Börn þeirra Guðgeir Hallur Heimisson, f. 26. september 1956, d. 1. júní 2014, maki Sig- ríður Benjamínsdóttir, barn hans Þröstur og þeirra Rósa Það verður ekki sagt að vind- arnir hafi blásið með þeim sem stóðu að stofnun húsnæðissam- vinnufélaga hér á landi undir lok síðustu aldar. Árum saman var barist fyrir löggjöf um þetta hús- næðisform og þær voru margar ferðirnar í Alþingishúsið. Að lokum tókst þó að tryggja þessum húsnæðiskosti tilveru- rétt í húsnæðiskerfinu. Einn af þeim sem stóðu vaktina var Heimir Ingimarsson. Eitt af fyrstu húsnæðissamvinnufélög- unum sem stofnuð voru undir merkjum Búseta var félagið á Akureyri. Þar gerðist Heimir fljótlega forystumaður. Hann tók líka sæti í stjórn Búseta lands- sambands og jafnan kallaður rit- arinn. Áður en fundi lauk var Heimir oftast búinn að klára fundargerðina og þar þurfti ekki að hnika til staf. Svo var Heimir listaskrifari. Það munaði svo sannarlega um félaga Heimi á þessum árum og það kom sér vel, reynsla hans í sveitarstjórnarmálum og þjóð- málum. Svo var Heimir svo skemmtilegur að fundir og ferða- lög lyftust á hærra plan. Heimir stýrði skrifstofu Bú- seta á Akureyri í fjölda ára og hann kom einnig við sögu Hús- næðissamvinnufélagsins Bú- manna á fyrstu árum félagsins á Akureyri. Heimir var félagsmálamaður í bestu merkingu þess orðs og hjartað sló með þeim sem áttu undir högg að sækja í þjóðfélag- inu. Að eiga slíkan mann að sam- starfsmanni og vini var mikið gæfuspor. Innilegar samúðarkveðjur til allra aðstandenda. Reynir Ingibjartsson. Heimir Björn Ingimarsson Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR KARLSDÓTTIR, Rúrí, Mosabarði 8, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 9. júní. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. júní klukkan 13. Árni Rosenkjær Karl Rosenkjær Selma Guðnadóttir Guðrún Hildur Rosenkjær Ásmundur Kristjánsson Ágústa Ýr Rosenkjær Jóhann Viðarsson Guðný Birna Rosenkjær Sigurjón Einarsson ömmubörn og langömmubörn ✝ Grímur Mar-inó Stein- dórsson fæddist í Vestmannaeyjum 25. maí 1933 og ólst þar upp til sex ára aldurs. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 5. júní 2019. Grímur fór í Laugarvatnsskól- ann 14 ára. Hann var í síma- vinnu á sumrin og skóla á vetrum. Hann sótti líka nám í Myndlista- og handíðaskól- anum. Grímur var lærður járn- smiður og vann sem slíkur um árabil. Hann lagði stund á mál- aralist og höggmyndagerð. Listaverk Gríms Marinós eru víða um land, meðal annars Súlurnar á Hörgaeyrargarði í Eyjum, skútan við höfnina í Stykkishólmi, Beðið í von á Hellissandi, Vor við Fjöl- brautaskólann á Húsavík og Friður, verðlaunaverkið um fund þeirra Gorbatsjov og Reagan í Reykjavík. Þá var verk hans Landpóstar vígt með athöfn við Staðarskála í togafundinum sem haldinn var í Reykjavík eins og áður segir. Grímur var í hópi þekkt- ustu manna á sínu sviði. Hann hélt fjölda sýninga, bæði einn og með öðrum. Einkasýningar m.a. í Stöðlakoti, í Vest- mannaeyjum, Lions-heimilinu Kópavogi, Safnahúsi Borgar- fjarðar, áhaldahúsi Kópavogs, Listasafni Kópavogs, Perl- unni, Bókasafni Kópavogs, Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, safnaðarheimilinu Borgum, FÍM-salnum auk fjölda sam- sýninga, m.a. í Alþjóðlegri bóka- og listamessu, Sviss, Kongens Have, Skulpturbi- ennalen, Kaupmannahöfn, Ny- borg í Danmörku, Kjarvals- stöðum, Gallerí Langbrók. Verk hans eru í opinberri eigu víða um land. Hann myndskreytti einnig bækur. Grímur Marinó var kvæntur Rósu Jónsdóttur, f. 13. októ- ber 1942, d. 9. nóvember 2015. Börn hans eru Gríma Sóley, f. 9. júní 1974, og Jón Þór, f. 10. janúar 1965, d. 23. september 2018. Maður Grímu er Viðar Guðmundsson, f. 9. mars 1973 og eiga þau Stein- rós Birtu Kolbeins og Kormák Mána Kolbeins. Útför Gríms Marinós fór fram frá Kópavogskirkju 12. júní 2019. Hrútafirði að við- stöddu fjölmenni. Í Kópavogi er eitt fegursta úti- listaverk bæjarins eftir Grím en það er Freyjublómið við Boðaþing. Grímur Marinó hefur hlotið marg- ar viðurkenningar fyrir listaverk sín, m.a. hlaut hann fyrstu verðlaun í samkeppni vegna leiðtogafundar Gorbat- sjov og Reagan í Höfða árið 1986. Grímur bjó í Kópavogi um áratugaskeið, var útnefnd- ur bæjarlistamaður Kópavogs. Grímur sótti sjóinn frá unga aldri. Hann átti og gerði út trillur og átti kvóta. Grímur Marinó Steindórsson tók tvisvar þátt í lista- samkeppni og hefur jafnoft fengið viðurkenningu fyrir verk sín. Hann fékk önnur verðlaun í samkeppni Listahá- tíðar um merki hátíðarinnar 1988 og sama ár fékk hann fyrstu verðlaun í samkeppni ferðamálanefndar Reykjavíkur um minjagrip í tilefni af leið- Kæri Grímur. Þegar við Jón Þór byrjuðum saman haustið 2011 og fórum að búa leið ekki á löngu áður en þú fórst að droppa við til að vita hvernig við hefðum það. Ekki var þó um að ræða að setjast niður, mesta lagi að þiggja hálf- an kaffibolla í forstofunni ef til var á könnunni. Svo varstu rok- inn, alltaf nóg að gera að hitta fólk, skjótast í Garðinn með kleinur eða kanilsnúða eða jafn- vel skjótast austur að Skógum að hitta meistara Þórð, sem þú hafðir mikið dálæti á. Að ætla að kynnast þér var ekki auðvelt, enda varstu af- skaplega orðspar maður, en síð- ar meir náðum við stundum á spjall og ég komst að því að þú hafðir óskaplega lúmskan húm- or. Þá laumaðir þú einhverju út úr þér, leist svo til hliðar og glottir út í annað. Er við stóðum uppi húsnæð- islaus bauðstu mér að dvelja á þínu heimili. Eitthvað voru nú ekki allir sáttir við það og var okkur vísað á dyr af utanað- komandi aðilum. Sama sagan endurtók sig sl. haust með hörmulegum afleiðingum. Þér leist nú ekki allskostar á blikuna þegar ég fór að ráðast í tiltekt heima hjá þér því allt var dýrmætt og engu mátti henda. Það leið þó ekki á löngu áður en þú fórst að koma skæl- brosandi inn úr dyrunum, líta yfir svæðið og spyrja: „Hvað, á ég heima hér?“ Þú varst óskaplega bóngóður maður, kannski einum of, og margur var greiðinn sem þú gerðir okkur Jóni Þór. Ég veit líka hversu vænt þér þótti um hann og hvað þú varst búinn að leggja á þig í gegnum árin til að greiða götu hans. Sem betur fer gátum við aðeins greitt til baka síðasta árið, þó ekki væri nema með kaffisopa áður en þú raukst út á morgnana eða með ætum bita að kveldi eftir eitt- hvert seigildið í mötuneytinu. Þú varst ótrúlegur listamað- ur, bæði í málverkum og eins járni og grjóti. Þau verk sem hæst standa í mínum huga eru Jötnar, fyrir utan Fjarðarkaup í Hafnarfirði, Beðið í von á Hellissandi, Landpóstar á Stað í Hrútafirði og innsiglingarvit- inn í Vestmannaeyjum. Þú varst óskaplega stoltur af verkum þínum, það sýna enda- lausar myndir sem þú tókst af þeim, en vanmast líka eigin hæfni og ég held að það hafi skapað þessa þörf fyrir að gefa eitt og annað til að fá viður- kenningu. Þau eru ófá lista- verkin og málverkin sem þú gafst m.a. til Vestmannaeyja. Arna Björg dóttir mín tók fljótlega upp á því að kalla þig afa og knúsa þig í bak og fyrir og hlaut sólskinsbros að laun- um. Þið náðuð einstaklega vel saman og ég hef aldrei heyrt þig spjalla eins mikið eins og þegar þið sátuð saman í Sunnu- hlíð og skoðuðuð eitthvert myndaalbúmanna sem ég kom með. Það var þér óskaplega þungt áfall þegar elsku Jón Þór okkar fór langt fyrir aldur fram. Hann elskaði þig mun meira en hann sýndi nokkurn tímann og er eflaust glaður yfir endur- fundunum. Nú verða hylki ykk- ar sameinuð í sömu gröf við hliðina á Steindóri föður þínum. Það er sko maður sem ég vildi hafa kynnst. Hafðu þökk fyrir allt. Ég kveð þig með orðunum sem þú sagðir alltaf við okkur Jón Þór: „Gangi þér vel.“ Þín tengdadóttir, Sigurlaug og börn. Ég kynntist Grími Marinó á 9. áratugnum og við urðum strax miklir mátar. Amma hans, Jóhanna Magnúsdóttir og langamma mín Sigríður, voru systur. Grímur var rækt- arsamur um ættir sínar. Árið 1992 hélt hann mikla og glæsi- lega sýningu í Perlunni í Reykjavík, með undursamlega fallegum verkum úr stáli og grjóti. Ljóð mín við verkin á veggjum. Grímur hafði kynnt mig góðum vini, meistara Gunnari Reyni Sveinssyni, tón- skáldi og mynduðum við þrír teymið Alletre og gáfum út bókina Tónmyndaljóð, hönnuð af Birgi Andréssyni. Síðar þýdd á ensku, endurprentuð og nú uppseld. Grímur stóð fyrir annarri sýningu í Perlunni og í bæði skiptin boðið upp á tónlist Gunnars Reynis, m.a. verkið Málmgrímur og söngvasveigar hans við ljóð mín, Hlér og Tón- myndaljóð. Allt var þetta mikið ævintýri fyrir mig sem ég fæ aldrei fullþakkað Grími Mar- inó. Við brölluðum fleira saman á næstu árum og áttum góðar stundir. Hann var tíður gestur í vinnu minni á Bókasafni Kópavogs og duglegur að skutlast til mín suður í Garð eftir að ég flutti þangað. Ég hef saknað hans eftir að hann veiktist og týndi heiminum, nú er hann kominn í annan heim og þar mun ég hitta hann aftur og við bröllum eitthvað saman. Ég sendi fjölskyldu Gríms sam- úðarkveðjur og sérstaklega yndi hans, dótturinni Grímu Sóleyju og hennar fjölskyldu. Ég set hér brag í minningu vin- ar míns „Grímur“ Grímur hafsins og grettur lífs og gæfu mörkuðu störf og stíl í stál og grjót Gáski í list og glettur í gleði og sorg harka og mýkt mæltu sér mót Kristur hans klettur og kærleikur klappaður í stein og stálsins vinarhót Ein er hans Gríma og heill er hann enn genginn í birtunnar sal eilífðar heilsu bót Félagi Jarðar og frændi einlægur vinur kvaddur þakklæti og vissu um endurmót Hrafn Andrés Harðarson. Grímur Marinó Steindórsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.