Morgunblaðið - 18.06.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚNÍ 2019
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
fyrir heimilið
VifturHitarar
LofthreinsitækiRakatæki
Inkasso-deild karla
Víkingur Ó. – Keflavík............................ 0:1
Adam Árni Róbertsson 64.
Staðan:
Þór 7 5 0 2 15:6 15
Keflavík 7 4 1 2 13:7 13
Fjölnir 7 4 1 2 13:9 13
Víkingur Ó. 7 4 1 2 9:5 13
Fram 7 3 2 2 12:10 11
Grótta 7 3 2 2 12:12 11
Þróttur R. 7 3 1 3 15:12 10
Leiknir R. 7 3 0 4 11:13 9
Njarðvík 7 2 1 4 7:10 7
Haukar 7 1 3 3 7:12 6
Afturelding 7 2 0 5 10:18 6
Magni 7 1 2 4 9:19 5
Markahæstir:
Alvaro Montejo, Þór ....................................7
Gunnar Örvar Stefánsson, Magna..............5
Adam Árni Róbertsson, Keflavík .............. 5
Rafael Romao, Þrótti .................................. 4
Hans Viktor Guðmundsson, Fjölni............ 4
Albert B. Ingason, Fjölni............................ 4
Frederico Bello, Fram................................ 4
Helgi Guðjónsson, Fram ............................ 4
HM kvenna í Frakklandi
A-RIÐILL:
Suður-Kórea – Noregur ......................... 1:2
Yeo Min-Ji 78. – Caroline Hansen 5. (víti),
Isabell Herlovsen 51. (víti)
Nígería – Frakkland ............................... 0:1
Ngozi Ebere, rautt spjald 75. – Wendie
Renard 79. (víti)
Lokastaðan:
Frakkland 3 3 0 0 7:1 9
Noregur 3 2 0 1 6:3 6
Nígería 3 1 0 2 2:4 3
Suður-Kórea 3 0 0 3 1:8 0
Frakkland og Noregur í 16-liða úrslit,
Nígería bíður niðurstöðu í öðrum riðlum.
B-RIÐILL:
Kína – Spánn............................................. 0:0
Suður-Afríka – Þýskaland...................... 0:4
Melanie Leupolz 14., Sara Daebritz 29.,
Alexandra Popp 40., Lina Magull 58.
Lokastaðan:
Þýskaland 3 3 0 0 6:0 9
Spánn 3 1 1 1 3:2 4
Kína 3 1 1 1 1:1 4
Suður-Afríka 3 0 0 3 1:8 0
Þýskaland, Spánn og Kína eru komin í
16-liða úrslit.
Ameríkubikarinn
A-riðill:
Brasilía – Bólivía ...................................... 3:0
Venesúela – Perú...................................... 0:0
B-riðill:
Argentína – Kólumbía.............................. 0:2
Paragvæ – Katar ...................................... 2:2
C-riðill:
Úrúgvæ – Ekvador .................................. 4:0
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Samsungv.: Stjarnan – Breiðablik...... 19.15
Í KVÖLD!
Á PEBBLE BEACH
Gunnar Valgeirsson
gval@mbl.is
Bandaríkjamaðurinn Gary Woodl-
and vann Opna Bandaríska Meist-
aramótið í golfi hér á Pebble Beach
vellinum í Kaliforníu með þremur
skotum eftir harða keppni við landa
sinn Brooks Koepka, sem hafði
unnið þessa keppni síðustu tvö ár,
og Englendinginn Justin Rose á
síðasta hringnum á sunnudag. Þetta
var fyrsti sigur Woodlands á einum
af fjórum stórmótunum í golfi og
kom sigur hans nokkuð á óvart þar
sem hann er orðinn 35 ára og er
númer 27 á heimslistanum í íþrótt-
inni.
Þessir þrír kylfingar hófu loka-
daginn með frábærum leik á fyrstu
sjö holunum, en þær gefa besta
tækifærið á skor undir pari á vell-
inum. Aðrir leikmenn höfðu einnig
byrjað vel, en þeir náðu aldrei þess-
um þrímenningahóp, sem hélt
áfram að leika vel hverja holuna af
annarri.
Lykilholan reyndist sú fjórtánda,
en þá var munurinn á Woodland og
Koepka aðeins eitt skot. Woodland
kom boltanum í mjög góða stöðu á
flötinni frá 220 metrum úr glompu.
Hann náði því fugli á holunni og gaf
honum tveggja högga forystu, sem
hann varði með öruggum leik rest-
ina af leiðinni. Hann lék völlinn á
tveimur undir pari (69) þennan síð-
asta dag, þar á meðal fugl á síðustu
holunni.
„Kaddíinn minn hafði traustatrú
á því að ég gæti komið boltanum á
flötina. Höggið gaf mér aukaskotið
gegn Brooks sem gerði mér kleift
að takast á við næstu holur án eins
mikillar spennu, sagði meistarinn
eftir mótslok um skotið á fjórtándu
holunni.
Fyrir þetta meistaramót var
besti árangur Woodlands 23ja sæti
á mótinu þannig að fáir gátu séð
fyrir frammistöðu hans á mótinu.
Hann er hinsvegar mjög vinsæll
sigurvegari í augum annarra kepp-
enda, enda Woodland annálaður
meðal þeirra sem góður félagi og
keppnismaður. Þótt hann ynni aldr-
ei annað stórmót, er hann nú
bandarískur meistari í golfi og 2,2
milljónum dala ríkari.
Pebble Beach skartar
sínu fínasta
Það var ekkert annað að gera fyr-
ir mig hér á Morgunblaðinu en aka
tvo klukkutíma suður til Pebble
Beach golfvallarins á opna banda-
ríska meistaramótið eftir að hafa
fylgst með lokaúrslitunum í NBA í
Oakland fyrr í vikunni. Þessi golf-
völlur er sjálfsagt einn sá fallegasti í
heiminum, enda er gríðaleg eft-
irsókn fyrir golfara allsstaðar að úr
heiminum að spila á honum. Það á
einnig við um atvinnumennina. Þeir
höfðu allir orð á því fyrir keppnina
og á meðan henni stóð – hvílík
reynsla það væri að leika stórmót á
honum, en fyrir kappa eins og Tiger
Woods og Phil Mickelson er þetta
þeirra uppáhaldsvöllur. Woods kall-
ar hann heimavöll sinn.
Ég hafði ekið framhjá golfvell-
inum í nokkur skipti með íslenskt
ferðafólk í gegnum árin, en maður
fær allt annað sjónarhorn á lands-
lagið að vera á honum sjálfum.
Það skemmtilega við uppsetningu
keppninnar er að flest áhorf-
endastæði og göngustígar eru
landsmegin vallarins, þannig að
leikmenn og kaddíar eru þeir einu
sem eru sjávarmegin. Þetta sást vel
í sjónvarpsútsendingunni af keppn-
inni, þar sem myndavélar sýndu oft
keppendur einangraða á brautum
eða flötum vallarins með þetta stór-
kostlega landslag í bakgrunni.
Völlurinn er einnig hannaður í
kringum tvær húsaþyrpingar, þann-
ig að hann er bæði við ströndina og
inn í íbúðarhverfi. Rúmlega sjö
hundruð blaðamannapassar voru
gefnir út fyrir þessa keppni og var
aðbúnaður fyrir okkur sá besti sem
ég hef upplifað í langan tíma. Golf-
fréttaritarar fá bæði mun betri
vinnuaðstöðu og mat en aðrir
íþróttafréttaritarar. Ekki amalegt
það.
Golfsambandið gerir kepp-
endum erfitt fyrir
Öll mót atvinnukylfinga (PGA)
hér í Bandaríkjunum eru skipulögð
og rekin af PGA sambandinu nema
opna meistaramótið sem er rekið af
Golfsambandi Bandaríkjanna
(USGA) - það er samt hluti af PGA
mótaröðinni ár hvert. Þetta mót er
venjulega talið það strembnasta af
öllum mótum ársins þar sem USGA
leggur upp vellina fyrir þetta mót
með því marki að skor bestu at-
vinnumanna heimsins væri að bestu
sem nálægast pari – mun hærra
skor en á venjulegum PGA mótum.
Tvennt kemur hér mest til.
USGA reynir venjulega að hafa
kargann við hlið brautanna sem
hæstan – mun hærri en á venjuleg-
um PGA mótum – og setja síðan
holurnar sjálfar á staði á flötinni til
að gera leikrými keppenda sem
þrengst. Afraksturinn er venjulega
sá að skor sigurvegarans er venju-
lega það hæsta yfir allt árið á PGA
mótum.
Undanfarin fjögur ár hafa at-
vinnumennirnir kvartað sáran yfir
því að USGA hafi gengið allt of
langt í að gera meistaravöllinn sem
erfiðastan. Það sem hefur angrað þá
mest er að uppsetning vallanna á
þessum tíma hafi ekki launað góð
skot. Þetta átti ekki við mótið nú á
Pebble Beach, því að þótt karginn
hafi vissulega verið jafn hár og
venjulega, verðlaunaði staða hol-
anna á brautunum góð skot. Þetta
geta atvinnumennirnir lifað við,
enda lofuðu þeir gæði vallarins við
fréttafólk yfir helgina.
Af þeim sökum var skorið hjá
keppendum lægra en undanfarin ár,
en hluti af því hafði að gera með
veðrið við Carmel flóann þessa vik-
una. Fyrir Ísleding virkaði veðrið
eins og fallegt, milt sumarveður.
Skýjað var alla daga og vindur hæg-
ur ef einhver var. Þetta hélt grasinu
votu og það gaf kylfingunum tæki-
færi á að sýna getu sína á þessu
meistaramóti, mun meira en verið
hefur undanfarin ár.
Það var vissulega gaman að fylgj-
ast með þessu móti á svo fallegum
stað, en frá sjónarhóli mínu er þetta
þó íþrótt þar sem mun betra er að
geta fylgst með keppninni í sjón-
varpi en á golfvellinum. Veran á
vellinum gefur manni hinsvegar
mun betra tækifæri á að sjá keppn-
ina í sínu náttúrulega samhengi.
Woodland endar
sigurgöngu Koepka
Pebble Beach gaf bestu kylfingum heimsins tækifæri til að sýna klassagolf
AFP
Sigurkossinn Gary Woodland smellir kossi á bikarinn eftir sigurinn á opna bandaríska meistaramótinu.