Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Sveppaeyðing Lasermeðferð Lasermeðferð sem losar þig við svepp í nögl er byltingarkennd meðferð byggð á nýjustu tækni á markaðnum. Tímapantanir í síma5331320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla 2 Unnið var að því hörðum höndum í vikunni að setja upp sirkustjaldið Jöklu í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Síðdegis í dag er fyrsta sýning af fjöl- skyldusýningunni „Áratugur af sirkus“ hjá Sirk- us Íslands. Fimm sýningar verða í Reykjavík en í kjölfarið verður sýnt á Ísafirði. Afmælissýning Sirkuss Íslands í Vatnsmýrinni og á Ísafirði í sumar Morgunblaðið/Hari Sirkusinn kominn í bæinn Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Vaðlaheiðargöng hf. eru rekin af hlutafélagi sem er að mestu í eigu ríkisins. Erfitt hefur reynst að ljúka uppgjöri vegna ágreinings Vaðla- heiðarganga við Ósafl um hvað eigi að greiða fyrir aukaverk. Endanlega kostnaðartala við göngin mun ráðast af því hvaða niðurstaða fæst í ágreinginn við verktakana um auka- verkin en mikið ber á milli aðila. Hilmar Gunnlaugsson er stjórnar- formaður Vaðlaheiðarganga. „Við erum lengi búin að vera í ágreiningi við Ósafl. Eftir að við gáfum út fréttatilkynningu síðasta haust hafa komið fram frekari kröfur frá Ósafli. Það hefur verið fyrirséð frá því um áramót að ekki var búið að gera allt upp, eins og alvanalegt er í fram- kvæmdum sem þessum, enda voru þá ákveðnir verkþættir enn eftir,“ sagði Hilmar í samtali við Morgun- blaðið í gær Umframkeyrsla enn ekki ljós Hilmar segir að á þessu stigi sé ekki hægt að segja til um hversu mikil umframkeyrsla kostnaðar verður miðað við þá 17 milljarða sem áætlað var að göngin myndu kosta. Lánsheim- ildin hjá ríkinu vegna Vaðlaheið- arganga nam 14,4 milljörðum króna miðað við verðlag í lok árs 2016. Aðspurður hvort félagið hafi burði til frekari greiðslna til Ósafls tapist málið fyrir dómstólum sagði Hilmar að láns- heimildir hafi ekki verið fullnýttar og þannig sé eitthvað svigrúm fyrir hendi. „Auðvitað er það bara staða sem þarf að meta ef félagið á ekki fyrir einhverjum niðurstöðum dóm- stóla. En ég bendi á að það getur verið í hina áttina líka, að við eigum beinlínis kröfu á Ósafl. En það er alla vega engin ríkisábyrgð á slíku, þann- ig að það yrði þá stjórnar og hluthafa að taka ákvörðun um framhaldið,“ sagði Hilmar. „Ég geri ráð fyrir að ágreiningur okkar sé á leið til dómstóla. Það ber mikið á milli og það lá fyrir strax síð- asta haust að menn voru sammála um að vera ósammála og ágreinings- mál yrðu leyst fyrir dómstólum. Það er hagur beggja aðila að þetta fáist á hreint sem fyrst,“ sagði Hilmar. Vaskurinn lækkaður Hæstiréttur dæmdi í fyrradag í ágreiningsmáli Ósafls sf. og Vaðla- heiðarganga, vegna uppgjörs á virð- isaukaskatti á ákveðnu tímabili vegna lækkunar á virðisaukaskatts- hlutfalli úr 25,5% í 24%. Var krafa Ósafls tekin til greina að hluta og Vaðlaheiðargöng dæmd til að greiða Ósafli 37 milljónir króna en kröfu Ósafls um vexti á upphæðina var vís- að frá. Ágreiningur á leið til dómstóla  Mikið ber á milli krafna Ósafls sf. og Vaðlaheiðarganga hf.  Ágreiningurinn snýst um lokauppgjör aukaverka Endanleg kostnaðartala við göngin ræðst af því hverjar verða niðurstöður dómstóla Hilmar Gunnlaugsson Sala á Íslandspósti hefur ekki komið til tals innan ríkisstjórnarinnar að sögn Katrínar Jakobsdóttur forsætis- ráðherra og Sigurðar Inga Jóhanns- sonar, samgöngu- og sveitarstjórn- arráðherra. Haft var eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahags- ráðherra, í Fréttablaðinu í gær að hann vilji selja Íslandspóst til einka- aðila við fyrsta tækifæri. „Þetta hefur ekki verið rætt innan ríkisstjórnarinnar en þessi skoðun fjármálaráðherra þarf að sjálfsögðu ekki að koma á óvart. Það er nú það góða við þessa ríkisstjórn að við höf- um ólíkar skoðanir,“ segir Katrín í samtali við mbl.is. Sigurður Ingi tók í sama streng í samtali við Morgunblaðið. ,,Þetta var hvorki rætt í stjórnarsáttmálanum né hefur verið til umræðu við ríkisstjórn- arborðið,“ segir hann. „Mín skoðun er sú að við séum í umbreytingarfasa og eðlilegt sé að láta á það reyna hvort Íslandspósti takist eins og t.a.m. koll- egum þeirra bæði í Færeyjum og Sví- þjóð að gera hlutina vel og á hag- kvæman hátt en tryggja á sama tíma jafna þjónustu um allt land áður en við förum að ræða slíka hluti. Þegar allt þetta er frágengið og við erum komin inn í annað umhverfi, er ekki bara gott að taka umræðuna þá?“ Sala Íslandspóst ekki komið til tals Hollvinasamtök Elliðaárdals hyggjast kæra samþykkt meirihlutans í skipu- lags- og samgönguráði á deiliskipulagi í Elliðaárdalnum. Þar er áætluð upp- bygging á um 43.000 fermetra lóð þar sem meðal annars er gert er ráð fyrir að gróðurhús, bílastæði og verslunarrými rísi. Halldór Páll Gíslason, formaður sam- takanna, segir að samtökin muni kæra ákvörðunina til Skipulagsstofnunar: „Þetta fer í gegn á röngum forsend- um. Borgin biður um álit þegar húsið er sagt vera 1.500 fermetrar en síðan var ekki beðið um álit þegar húsnæðið stækkar í 4.500 fermetra,“ segir hann. Halldór segir jafnframt að fram- ganga borgarstjórnar sé „skrítin frá A til Ö“ í tengslum við uppbyggingu í El- liðaárdal. „Fjöldi fólks nýtir sér dalinn daglega í samgöngur. Þetta er ekkert smámál og það að það eigi að þrengja byggðina þarna og annað - þetta er alveg skelfileg þróun,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. Borgaryfirvöld samþykktu nýtt deili- skipulag fyrir nýtt þróunarsvæði á Stekkjabakka í skipulags- og sam- gönguráði í fyrradag. Fulltrúar minni- hlutans greiddu atkvæði gegn deili- skipulaginu. Áætlað er að 4.500 fermetra gróð- urhús og 4.432 fermetra bílastæði rísi í dalnum. Að auki er fyrirhugað að versl- unarrými, 18 þúsund fermetrar að stærð, rísi í dalnum. Lóðirnar allar eru 43.000 fermetrar en það er líkt og tvær og hálf Laugardalshöll. Náttúrustofnun gegn deiliskipulaginu Halldór segir að félagið hyggist láta reyna á íbúakosningu, en slíkt er ekki hægt fyrr en borgarráð hefur sam- þykkt tillöguna. Þá þarf um 20% borg- arbúa til þess að knýja fram kosningu. Í niðurlagi umsagnar Umhverfis- stofnunar um deiliskipulagið segir: „Að mati Umhverfisstofnunar er með nýrri deiliskipulagstillögu gengið á þetta græna svæði, niðurgrafnar byggingar munu skapa mikið rask, upplýstar byggingar munu rýra útsýni það sem nærliggjandi íbúar hafa nú.“ „Þessu máli er bara þrýst í gegn. Í gegnum tíðina hafa Hollvinasamtökin reynt að fá fund um afmörkun dalsins en það varð aldrei af því,“ segir Halldór. Kæra ákvörðun meirihlutans  Hollvinasamtök Elliðaárdals gegn uppbyggingu á 43 þúsund fermetra svæði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.