Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019
Mjólkurbikar karla
8-liða úrslit:
Breiðablik – Fylkir................ (e. framl.) 4:2
Thomas Mikkelsen 33. (víti), 59. (víti),
Höskuldur Gunnlaugsson 104., 106. –
Valdimar Þór Ingimundarson 12., 61.
KR – Njarðvík .......................................... 3:0
Ægir Jarl Jónsson 21., 25., Ástbjörn Þórð-
arson 62.
FH – Grindavík ........................................ 7:1
Hjörtur Logi Valgarðsson 19., Steven Len-
non 25., 30. (víti), 44., Halldór Orri Björns-
son 33., Pétur Viðarsson 65., Brynjar Ás-
geir Guðmundsson 90. – Marc McAusland
82. Rautt: Vladimir Tufegdzic (Gri.) 29.
Inkasso-deild karla
Keflavík – Leiknir R................................ 1:3
Adolf Bitegeko 61. – Vuk Oskar Dimitrij-
evic 47., Sævar Atli Magnússon 53., Sólon
Breki Leifsson 65.
Afturelding – Grótta ............................... 0:3
Axel Freyr Harðarson 87., Pétur Theódór
Árnason 90., 90.
Staðan:
Grótta 9 5 2 2 19:13 17
Fram 9 5 2 2 15:11 17
Þór 8 5 1 2 15:6 16
Fjölnir 8 5 1 2 14:9 16
Leiknir R. 9 5 0 4 16:15 15
Keflavík 9 4 2 3 14:10 14
Víkingur Ó. 8 4 1 3 9:6 13
Þróttur R. 9 3 1 5 16:15 10
Haukar 9 2 3 4 13:15 9
Afturelding 9 3 0 6 12:21 9
Njarðvík 9 2 1 6 8:17 7
Magni 8 1 2 5 10:23 5
2. deild karla
Tindastóll – Völsungur ........................... 0:0
Staðan:
Leiknir F. 8 5 3 0 15:7 18
Selfoss 8 5 1 2 19:8 16
Vestri 8 5 0 3 11:10 15
Völsungur 9 4 2 3 11:12 14
Víðir 8 4 1 3 16:13 13
Fjarðabyggð 8 4 0 4 13:11 12
ÍR 8 3 2 3 10:9 11
Dalvík/Reynir 8 2 4 2 10:10 10
Þróttur V. 8 2 3 3 9:12 9
KFG 8 3 0 5 11:18 9
Kári 8 2 2 4 15:16 8
Tindastóll 9 0 2 7 8:22 2
3. deild karla
Augnablik – Reynir S............................... 1:3
KH – KV.................................................... 0:1
Skallagrímur – Kórdrengir .................... 1:5
Sindri – Höttur/Huginn ........................... 3:2
Staðan:
KV 9 8 0 1 21:8 24
Kórdrengir 9 6 2 1 23:9 20
KF 8 6 1 1 18:7 19
Reynir S. 9 4 3 2 15:11 15
Vængir Júpiters 8 5 0 3 13:9 15
Sindri 9 4 1 4 18:18 13
Einherji 8 3 1 4 10:10 10
Álftanes 8 2 3 3 12:13 9
Höttur/Huginn 9 2 3 4 14:17 9
Augnablik 9 1 3 5 13:21 6
Skallagrímur 9 2 0 7 12:27 6
KH 9 0 1 8 11:30 1
KNATTSPYRNA
KÓPAVOGUR/KAPLA-
KRIKI/VESTURBÆR
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bjarni Helgason
Björn Már Ólafsson
Fjögur lið eru enn með í baráttunni
um bikarmeistaratitil karla í fótbolta
og verða í skálinni þegar dregið verður
til undanúrslita á mánudaginn. Þetta
eru lið KR, FH, Breiðabliks og Vík-
ings R. Öll hafa þau einhvern tímann
orðið bikarmeistarar en KR hefur
unnið titilinn oftast eða 14 sinnum, FH
tvisvar og Breiðablik og Víkingur einu
sinni hvort.
Breiðablik vann 4:2-sigur á Fylki í
framlengdum leik á Kópavogsvelli.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var
2:2, en Höskuldur Gunnlaugsson skaut
Breiðabliki áfram með tveimur mörk-
um í framlengingu. Einar Ingi Jó-
hannsson, dómari leiksins og aðstoð-
armenn hans, áttu ekki góðan dag.
Fyrra mark Höskulds var kolólöglegt,
þar sem hann var bæði í rangstöðu og
brotlegur í markinu. Þrátt fyrir það
stóð markið og eftirleikurinn var auð-
veldur hjá Breiðabliki gegn svekktum
Fylkismönnum. Leikurinn var annars
jafn og skemmtilegur. Fylkismenn
byrjuðu af miklum krafti, en eftir að
þeir komust í 1:0 snemma í fyrri hálf-
leik tók Breiðablik yfir leikinn. Heima-
mönnum tókst að jafna í 1:1 og voru
óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var hnífjafn og
kom ekki á óvart að staðan var jöfn
eftir venjulegan leiktíma.
Það er algjör synd að ákvörðun
dómara skyldi hafa svo mikil áhrif á
jafnan og skemmtilegan bikarslag.
Fylkismenn gerðu mjög vel stóran
hluta leiks og voru síst lakari aðilinn á
einum erfiðasta útivelli landsins. Það
gekk vel að hafa Ólaf Inga Skúlason og
Sam Hewson saman í skítverkunum á
miðjunni og aðra yngri og sprækari
menn þar fyrir framan. Það skapaðist
oft hætta þegar Fylkismenn sóttu og
Valdimar Þór Ingimundarson heldur
áfram að vaxa og verða betri. Hjá
Breiðabliki var Höskuldur Gunn-
laugsson sterkur og Thomas Mikkels-
en nýtti tvær vítaspyrnur vel og lét
finna fyrir sér. Breiðablik fór alla leið í
bikarúrslit á síðasta ári, en þurfti þá að
sætta sig við tap gegn Stjörnunni.
Blikar ætla sér einu skrefi lengra.
johanningi@mbl.is
FH hefði getað skorað 10
FH tók rænulausa Grindvíkinga í
kennslustund á Kaplakrikavelli í Hafn-
arfirði en leiknum lauk með 7:1-sigri
Hafnfirðinga. Steven Lennon skoraði
þrennu fyrir FH og þeir Hjörtur Logi
Valgarðsson, Halldór Orri Björnsson,
Pétur Viðarsson og Brynjar Ásgeir
Guðmundsson sitt markið hver. Marc
McAusland skoraði mark Grindvík-
inga þegar hann minnkaði muninn í 6:1
á 83. mínútu en staðan í hálfleik var
5:0, FH í vil.
FH-ingar mættu gríðarlega öflgur
til leiks. Björn Daníel Sverrisson spil-
aði í holunni og Brandur Olsen fór aft-
ar á miðjuna og þessi tilfærsla svín-
virkaði hjá Ólafi Kristjánssyni, þjálfari
liðsins. Liðið lék á als oddi og hefði
hæglega getað skorað tíu mörk í leikn-
um.
Grindvíkingar byrjuðu leikinn ágæt-
lega en eftir að þeir lentu undir hrundi
leikur liðsins. Þeir virkuðu hálf-
rænulausir og á köflum var eins og
ákveðnir leikmenn liðsins væru hrein-
lega undir áhrifum áfengis, svo slæm
var ákvarðanatakan á stórum köflum.
Tímabilið var undir hjá FH í gær og
þeir svöruðu mörgum gagnrýn-
isröddum með stórsigri sínum og eru
komnir áfram í undanúrslit bik-
arkeppninnar. Grindvíkingar þurfa að
gyrða sig alvarlega í brók og liðið að
fara skora einhver mörk því þú vinnur
ekki marga leiki ef þú kemur boltanum
ekki í netið.
bjarnih@mbl.is
Ægir nýtti tækifærið
KR vann öruggan sigur á Njarðvík í
miklum rigningarleik í Vesturbænum.
Eftir fyrri hálfleik var staðan orðin 2:0
fyrir KR en leikurinn hefði hæglega
getað þróast öðruvísi. Strax eftir 5
mínútna leik fengu Njarðvíkingar tvö
dauðafæri. En Beitir Ólafsson í marki
KR var vel á verði og í kjölfarið tóku
KR-ingar öll tök á vellinum og voru í
litlum vandræðum. Ægir Jarl Jón-
asson, sem lítið hefur fengið að spila
hingað til á tímabilinu, átti góðan leik
og gerði tvö mörk og síðasta markið
skoraði annar leikmaður sem ekki hef-
ur átt fast sæti í byrjunarliðinu, Ást-
björn Þórðarson.
Njarðvíkingar geta vel við unað
enda eru átta liða úrslit í bikarnum
besti bikarárangur í sögu félagsins.
Þeir mættu vel stemmdir til leiks í
gær, agaðir varnarlega auðvitað en
spiluðu fínan fótbolta á köflum. Þeir
gripu aldrei til örþrifaráða heldur
spiluðu boltanum meðfram jörðinni og
sköpuðu sér færi til þess að skora, að
minnsta kosti 2-3 mörk. En svo dræm
færanýting er kostnaðarsöm gegn liði
eins og KR og því fór sem fór. Njarð-
víkingar vonast til að frammistaðan
verði vítamínsprauta sem muni hjálpa
þeim í botnbaráttunni í Inkasso-
deildinni á meðan KR-ingar eru strax
farnir að einbeita sér að næsta leik sín-
um – toppslag gegn Breiðablik í deild-
inni á mánudaginn. Svo ólík eru örlög
liðanna eftir þennan leik.
bjornmarolafs@gmail.com
Fjögur eftir í bikarnum
Dýrkeypt mistök dómaranna í framlengingu í Kópavogi Lennon skoraði
þrennu fyrir FH sem slátraði Grindavík KR afgreiddi síðasta 1. deildarliðið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Færi Aron Bjarnason reynir að leika á Andrés Má Jóhannesson og býr sér til færi í leik Breiðabliks og Fylkis.
Niðurlæging Halldór Orri Björnsson sækir að marki Grindavíkur en hann
skoraði stórglæsilegt mark í sannkölluðum risasigri FH-inga í gær.