Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Velkomin til okkar
ÚTSALA
20-80% afsláttur
Langar þig í ný gleraugu!
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur
Samtaka iðnaðarins, segir nýhafna
niðursveiflu enn eitt dæmið um
óstöðugt efnahagsumhverfi á Ís-
landi.
„Óstöðugleiki er afar óæskilegur,
ekki síst fyrir fyrirtæki í byggingar-
iðnaði, en niðursveiflan birtist nú
m.a. í eftirspurn eftir íbúðum á
höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni
þess. Það er mjög óhentugt fyrir að-
ila sem eru í stórum langtímaverk-
efnum á þessu sviði að lenda í svona
óstöðugleika. Það geta liðið nokkur
ár frá því byggingaverkefni eru
skipulögð þar til þau eru komin í
söluvænlegt horf. Efnahagssam-
drátturinn […] kemur meðal annars
fram í því að íbúðir á svæðum þar
sem ferðaþjónustan hefur verið um-
svifamikil, ekki síst í miðbæ Reykja-
víkur og á Suðurnesjum, seljast hæg-
ar. Efnahagsstaða og efnahags-
horfur kaupendahópsins hafa breyst
talsvert. Það gerir það að verkum að
það sem leit vel út í sölu þegar menn
hófu íbúðaframkvæmdir lítur nú ekki
eins vel út.“
Úr útleigu til ferðamanna
Spurður hvers vegna spurn eftir
íbúðum sé að breytast svona hratt
bendir Ingólfur á að samdrátturinn í
ferðaþjónustunni hafi víðtæk áhrif.
Hann segir atvinnuleysi aukast
hratt, samanber nýjar tölur frá Hag-
stofunni um að 10 þúsund manns hafi
verið án vinnu í maí. Hægt hafi á
vexti kaupmáttar ráðstöfunartekna
og væntingar um hag heimilanna litið
til næstu missera einnig breyst.
Einnig hafi spár um áframhaldandi
fjölgun ferðamanna snúist í fækkun
og því hafi m.a. margar íbúðir sem
leigðar hafi verið til ferðamanna
komið í almenna sölu eða leigu.
„Með breyttum efnahagsaðstæð-
um og efnahagshorfum er kaupenda-
hópur fyrir íbúðir á þessum svæðum
ekki jafn stór og gert var ráð fyrir.
Þessi breyting á umhverfinu á
skömmum tíma er því mjög óhentug
fyrir greinina,“ segir Ingólfur.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að ein af hverjum þremur nýjum
íbúðum í miðborginni sé seld.
Þegar spurn eftir íbúðum er
áætluð fram í tímann er horft til
margra þátta, á borð við íbúafjölgun,
kaupmátt, vaxtastig, verðbólgu og
þróun fjölskyldustærðar.
Spurður hvers vegna menn hafi
misreiknað spurnina eftir íbúðum í
miðborg Reykjavíkur bendir Ingólf-
ur á að verkefni á þessu sviði taki oft
mörg ár og sveiflurnar í íslensku
hagkerfi komi yfirleitt ekki með
löngum fyrirvara. Að þessu sinni
samdráttur í ferðaþjónustu í aðdrag-
anda og í kjölfar falls WOW air.
Stöðugleikann skortir
„Við verðum að auka stöðugleik-
ann. Núna er verkefni hagstjórnar að
milda niðursveifluna. Ríkið og ekki
síst sveitarfélögin þurfa að gæta þess
að mæta henni með hagstjórnarað-
gerðum í gegnum ríkisfjármálin og
sveitarfélögin í gegnum sín fjármál.
Við höfum t.d. bent á að nú sé rétti
tíminn til að fara í innviðafram-
kvæmdir og lækka álögur á fyrirtæki
á borð við fasteignaskatta. Verkefnið
er að mæta þessum bráðavanda.“
Hagspár hljóða flestar upp á að
hagkerfið taki nokkuð kröftuglega
við sér á næsta ári. Ingólfur segir það
ekki sjálfgefið heldur háð því með
hvaða hætti hagstjórnin bregst við.
„Hættan er að í hagstjórninni van-
meti menn kraftinn í niðursveiflunni
sem verði hugsanlega lengri og dýpri
en nú er reiknað með í þeim spám
sem lagðar eru til grundvallar
ákvarðana í peningamálum og opin-
berum fjármálum. Áhyggjur okkar
[hjá Samtökum iðnaðarins] eru að
viðbrögðin séu ekki nægilega sterk
og komi of seint til að bregðast við
þessari stöðu,“ segir Ingólfur.
Hægir á uppbyggingu hótela
Landsbankinn birti í vikunni
greiningu á verðlækkunum hjá hót-
elum og gististöðum síðustu ár.
Bendir hún til að verðið í maí hafi
verið 21,9% lægra í evrum en í maí í
fyrra. Verðið í krónum hafi hins
vegar verið 12,4% lægra og skýrist
mismunurinn af veikingu krónunnar
milli sömu tímapunkta.
Gústaf Steingrímsson, hagfræð-
ingur í hagfræðideild Landsbankans,
segir verð á gistingu næmt fyrir eft-
irspurn. Árið 2017 hafi nýting gisti-
rýma á Íslandi verið mjög góð og
mun betri en víðast annars staðar.
Því hafi ekki verið óeðlilegt að ráðast
í byggingu fleiri hótela sem varð svo
reyndin. Herbergjanýting hafi auk-
ist fram til ársins 2017. Hins vegar
hafi sú þróun snúist við árin 2018 og
2019 þegar nýtingin tók að lækka á
ný. Að sögn Gústafs skýrist minni
nýting árin 2018 og 2019 einfaldlega
af því að fjölgun hótelherbergja var
meiri en fjölgun gistinátta.
„Með brotthvarfi WOW air má
ætla að það fari uggur um marga sem
eru að byggja ný hótel hér á landi.
Það má gera ráð fyrir að öll ný plön
um frekari hóteluppbyggingu hafi
verið sett á ís eftir að WOW air fór í
þrot. Það er líka orðið mun erfiðara
að sækja lánsfjármögnun í slík verk-
efni. Þó verður að teljast líklegt að
haldið verði áfram með þau verkefni
sem voru komin vel af stað áður en
WOW air fór í þrot og þau kláruð,“
segir Gústaf.
Færri kaupendur en áætlað var
SI segja niðursveifluna bitna hart á íbúðamarkaði Hagvöxtur næsta árs sé mögulega ofmetinn
Sérfræðingur hjá Landsbankanum segir lækkandi verð á gistingu munu draga úr hótelfjárfestingu
Verð á gistingu og herbergjanýting
Hótel og gistiheimili, 2003-2019
350
300
250
200
150
100
50
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19
Verðvísitala, 2003=100 Herbergjanýting
Verð í krónum, vísitala
Verð í evrum, vísitala
Herbergjanýting*
*Meðaltal fyrstu fjóra mánuði hvers árs
Heimild: Hagfræðideild Landsbankans
Gústaf
Steingrímsson
Ingólfur
Bender