Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Heiðarvegur 38, Vestmannaeyjar, fnr. 218-3777, þingl. eig. Ása Hrönn Ásmundsdóttir og Ingimar Ágúst Guðmarsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 3. júlí nk. kl. 14:30. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 26. júní 2019 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Lundargata 5, Akureyri, fnr. 214-8923, þingl. eig. Lárus Hinriksson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Akureyrarkaupstaður, fimmtudaginn 4. júlí nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 27. júní 2019 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Opið hús kl. 13-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Áskirkja Sumarferð sunnudaginn 7. júlí, leggjum af stað frá Áskirkju kl. 8.30. Heimsækjum Pál listamann á Húsafelli. Hádegisverður á Brúarási. Sr. Sigurður Jónsson mun síðan messa í Reykholti kl. 14. Kaffistopp á Hvanneyri á heimleið. Áætluð heimkoma kl. 18.30. Verð 9000 kr. Skráning hjá Petreu í s. 891-8165 fyrir 1. júli. Allir velkomnir. Safnaðarfélag Áskirkju. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Hug- myndabanki opinn kl. 9-16. Listasmiðja opin kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur í dag. Heitt á könnunni fyrir hádegi og nýjustu dagblöðin liggja frammi. Kíkið inn í spjall og félagsskap til okkar. Hádegisverður frá 11.30-12.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Hittumst í móttökunni við aðalinnganginn og förum saman í göngutúrinn. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Verið velkomin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59, síminn er 411-9450. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 20 félagsvist. Gullsmári Handavinna kl. 9. ATH. leikfimi / fluguhnýtingar / ljós- myndaklúbbur / bingó og Gleðigjafarnir eru komin í sumar frí. Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag, gengið frá Borgum. Opið hús í dag í Borgum frá kl. 13 til 16; félagsvist, hannyrðir, spjallhópur og gleðileg samvera, kaffi á könnunni og kaffimeðlæti. Allir velkomnir. Frá 25. júní til 28. júní 2019 er samsýning á listaverkum í listasmiðjunni í Borgum, þar sem m.a. listamennirnir Jóhann Þór, Davíð, Bergsteinn, Gylfi, Magnús Helgi og fleiri sýna verk sín sem eru til sýnis og sölu. Opið frá kl. 8 til 16 alla þessa viku og gaman væri að sjá ykkur sem alllra felst. Kolbrún Lorange verður einnig með á listsýningu, sam- sýningu Korpúlfa á listaverkum í Borgum í þessari viku frá kl. 8 til 16 alla daga, allir hjartanlega velkomnir í Borgir Spönginni 43, Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest- ur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, bingó kl. 13.30, síðegiskaffi kl. 14.30 Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, Leikfimi í salnum Skóla- braut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. 200 mílur ✝ Sigurjón Rós-ants Stef- ánsson fæddist í Hafnarfirði 30. ágúst 1946. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. júní 2019. Foreldrar hans voru Stefán Jóns- son, f. 9. mars 1912, d. 3. ágúst 1973, og Jóhanna Rósants Júlíusdóttir, f. 9. sept- ember 1905, d. 5. febrúar 1992. Systkini Sigurjóns eru Sig- urður Stefánsson, f. 19. febrúar 1935, d. 7. mars 1969, Ingibjörg Ólafía R. Stefánsdóttir, f. 19. febrúar 1945, d. 17. apríl 2017, Guðbjörg R. Stefánsdóttir, f. þeirra eru Sóley, Sigurjón Uggi og Margrét María. Dóttir Sól- eyjar er Lára Dís Daníelsdóttir. Kolbrún Sigurjónsdóttir, f. 1975, maki Sigurður Þór Sæ- mundsson. Börn þeirra eru Birna og Nadía. Valgeir Sigurjónsson, f. 1983. Börn hans eru Hrefna Dís og Arnar Elí. Sigurjón vann hin ýmsu störf framan af, þar með talið bú- störf og sjómennsku. Hann var lærður rafsuðumaður og starf- aði um nokkurn tíma í Stálvík. Lengstan hluta ævi sinnar var hann með eigin atvinnurekstur við akstur vörubifreiða, fyrst um sinn við Vörubílastöð Hafn- arfjarðar en eftir það sjálf- stætt, mest í kringum fyrirtæki sem tengdust sjávarútvegi. Hann var virkur félagi í Kiw- anisklúbbnum Eldborg í Hafn- arfirði til margra ára. Útförin fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, 28. júní 2019, kl. 13. 19. febrúar 1948, d. 14. júlí 2015 og Guðný S.R. Stef- ánsdóttir Baum- ann, f. 15. apríl 1950, búsett í Dan- mörku. Sigurjón kvænt- ist Margréti Björg- vinsdóttur 25. jan- úar 1970. Margrét er fædd á Hvols- velli 25. apríl 1949. Börn Sigurjóns og Margrétar eru: Kristín Dóra Sigurjónsdóttir, f. 1966, maki Pétur Óskarsson. Börn þeirra eru Diljá, Ísold og Óskar. Guðný Sigurjónsdóttir, f. 1971, maki Ívar Pálsson. Börn Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Í dag kveð ég elskulegan pabba minn. Hann er tekinn frá okkur allt of snemma. Þegar veikindi eru annars vegar er ekki spurt um ald- ur né fyrri störf. Ég var ótrúlega heppinn að fá að kynnast honum í þessu lífi en að sama skapi var ótrúlega erfitt að horfa upp á hann fara í gegnum erfið og alvarleg veikindi. Hann hefur verið mér stoð og stytta alla tíð ásamt því að vera fyrirmynd mín. Ég man ekki eftir öðru en hann hafi alltaf unnið mikið og lagt ríka áherslu á að sinna vinnu sinni vel. Hann kenndi mér að maður upp- sker eins og maður sáir bæði í vinnu, vináttu og í lífinu almennt. Þó pabbi hafi verið duglegur að vinna gaf hann sér tíma til að ferðast með okkur fjölskyldunni og varð þá hálendið oftast fyrir valinu eða Þórsmörk. Hann var mikill fjölskyldumað- ur og var ávallt til staðar fyrir mig og fjölskyldu mína í einu og öllu. Pabbi hefur verið frábær pabbi, tengdapabbi, afi og langafi. Takk pabbi fyrir þann tíma sem við áttum saman og fyrir þá lífs- speki sem þú gafst mér. Minningin um þig verður alltaf í hjarta mér. Ástarkveðja, þín dóttir, Guðný. Elsku hjartans pabbi minn. Mikið sakna ég þín. Þú varst mér svo góður og alltaf var hægt að leita til þín sama hvað var. Ég hlýja mér við margar góðar minn- ingar og samverustundir sem við áttum saman. Með þakklæti og söknuð í hjarta kveð ég þig að sinni, elsku pabbi minn, ég og fjöl- skyldan mín þökkum þér fyrir all- ar góðu og skemmtilegu stundirn- ar sem við áttum saman og biðjum góðan guð að geyma þig. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu, er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Kveðja, Kolbrún. Ætli ég hafi ekki verið í kring- um níunda árið mitt, er ég man eftir mér þar sem ég stóð uppi í fremstu röð sæta í gula trukknum, hristi móður mína til og grátbað hana um að opna neyðarútganginn sem var í loftinu. Við vorum stödd úti í miðri Krossá, vatnið flæddi inn um gólf og fann maður að dekkin voru hætt að ná gripi í ár- farveginum og læddist þarna niður með henni fljótandi trukkur, ekk- ert skárri en mótorlaus banani. Litla hjartað var á útopnu en svip föður míns gleymi ég seint þar sem hann sat undir stýri, horfði á mig og hló dátt. Líklega sló hjarta hans á fullu um þessar mundir en í ró- legheitunum sneri hann sér við, horfði út um framrúðuna, setti í gír og viti menn framhjólin náðu gripi og byrjaði bíllinn að læðast upp ár- bakkann hinum megin. Litli strák- urinn ég missti aldrei trú á föður sínum, en mikið var gott að vera í mömmu fangi er hann var í þess- um strákaleik. Hann var af kynslóðinni sem vann myrkranna á milli. Ég minn- ist þess oft er ég lá í afturkojunni í vöruflutningabílnum hjá honum niðri á bryggju og hlustaði á hljóð- snældur, meðan aftakaveður dundi á honum fyrir utan. Og oftar en ekki kom hann rennblautur inn í bíl til að halda áfram ferð sinni, þarna vissi ég að áður en næsta stað yrði náð, myndi hann stoppa með litla strákinn sinn og gefa hon- um pylsu og kók, ef maður var mjög stilltur fékk maður jafnvel lakkrísrör. Það voru ófáar stundir á ferð og flugi um landið þar sem mér var sagt frá hinum og þessum heitum fjalla, hóla og hæða og oftast en ekki fylgdu einhverjar sögur með. En við þekkjum öll kynslóð til kynslóðar að þegar maður dettur á unglingsárin og hormónarnir fara að flæða, þá þykir manni maður orðinn of töff til þess að heyra fleiri staðarheiti. En nú einhverjum tuttugu árum seinna stend ég sjálf- an mig að því að gera nákvæmlega hið sama við börnin mín og hef gaman að, sérstaklega þegar ég er að styðjast við sögur hans. Margar eru minningarnar sem við áttum saman. En fram úr öllu stóðu þær stundir sem börnin mín fengu með honum, þar var ekkert til sparað og allt látið eftir þeim, rétt eins og góðum afa sæmir. Minning hans mun lifa með okk- ur um ókomin ár, og þurfa líklega börn mín og afabörn seinna meir að hlusta á mig mæla orð hans af og til á ferð okkar í gegnum lífið. Valgeir Sigurjónsson. Sigurjón Stefánsson, vinur minn, tengdafaðir, afi barnanna minna og langafi barnabarns míns hefur kvatt allt of snemma. Ef ég á að vera hreinskilinn þá er ég enn svolítið reiður og sár vegna þess. Sigurjón eða Sjonni sólarhring- ur eins og hann var stundum kall- aður, en viðurnefnið fékk hann þegar hann var að byggja húsið sitt, og vann á daginn og byggði á nóttunni. Sigurjón hætti að vinna og seldi vörubifreiðar sínar haustið 2016. Maðurinn sem hafði unnið lang- an dag ákvað loks að njóta ávaxta erfiðis síns. Sigurjón fékk sér hjól, spilaði boccia o.fl. Ekkert eirðar- leysi eða verkefnaleysi þar. Við áttum flest von á að njóta samvista við Sigurjón lengi enn enda hafði manninum varla orðið misdægurt. Skömmu eftir að hann hætti að vinna greindist hann með krabbamein. Eftir erfiða meðferð hafði hann betur. Stríðið var hins vegar ekki unnið. Síðastliðið haust greindist Sigurjón með sjaldgæf- an fylgikvilla meðferðarinnar. Líkja má þessum fylgikvilla, sem er í raun veirusjúkdómur, við hrörnunarsjúkdóm. Engin lækn- ing er til og heilsu hans hrakaði hratt. Á Þorláksmessu gerðist kraftaverk. Sigurjóni heilsaðist mun betur og gat á ný notið sam- vista við fjölskylduna og kynntist nýfæddu langafabarni sínu. Við fengum því bestu jólagjöfina þessi jólin. Batinn var hins vegar skammgóður og heilsu hans hrak- aði á ný. Sigurjón var félagslyndur, glaðlyndur, jafnlyndur, æðrulaus, hugaður, ósérhlífinn og vinnusam- ur að endemum. Alltaf virtist vera nóg að gera hjá Sigurjóni þó minna væri stundum hjá öðrum. Þrátt fyrir þetta taldi hann ekki eftir sér að hjálpa sínum nánustu eftir langan vinnudag. Hann var ótrúlega handlaginn, með afburða verksvit og fráleitt þjáðist hann af verkkvíða. Það var því gott að vinna með Sigurjóni. Sigurjón hafði gaman að því að braska. Það voru því ófá Vökuuppboðin þar sem keyptir voru bílar svo ekki sé nú minnst á glervasa, jólaplatta eða bílfarm af súkkulaði sem stundum fylgdu úr slíkum ferðum. Sigurjón var mikill fjölskyldu- maður og sinnti sínum nánustu vel þ.m.t. barnabörnunum. Þau nutu sannarlega að vera í samvistum við afa sinn. Sigurjón hafði mjög gaman af því að ferðast og átti hann tjaldvagna, fellihýsi og ferðabíl áður en þau hjónin byggðu sér sumarhús þar sem þau nutu samvista við hvort annað. Sigurjón var sagnamaður og sagði skemmtilega frá. Virtist hann hafa lent í fleiri æsilegum ævintýrum í gegnum lífið en flest- ir sem ég þekki. Sennilega eru ekki ýkjur að segja að hann hafi verið uppátækjasamur á yngri ár- um. þegar ég hélt ég væri búinn að heyra allar sögurnar kom alltaf ein til. Ein saga Sigurjóns lýsir líklega skapgerð hans vel. Hún segir frá því þegar hann, í kringum fimm ára aldur, strauk úr vist á bæ ein- um á Skagaströnd, eftir að bónd- inn sveik hann um kaupstaðaferð sem bóndinn hafði lofað. Þegar rofar til og reiðiþokunni léttir um stund og kemur fyrst upp í hugann þakklæti fyrir sam- vistir og vináttu Sigurjóns. Það er mikil gæfa í lífinu að fá njóta sam- vista við jafn góðan mann og þig. Þakka samfylgdina og heiðra minningu þína. Ívar Pálsson. Elskulegi afi Sigurjón! Vá hvað við erum heppin að eiga svona margar góðar minningar um þig. Það er margt sem hefur farið í gegnum huga okkar síðustu daga. Allar vörubílaferðirnar, sunnu- dagsbíltúrarnir, fiskveiðarnar og ferðirnar í sumarbústaðinn Heið- arból. Frídagar í skólanum voru í miklu uppáhaldi hjá okkur systk- inunum því þá fengum við stund- um að fara í vinnuna með afa á vörubílnum. Þar gátum við setið aftur í og leikið okkur, spjallað við afa um allt milli himins og jarðar, prófað lyftara og alltaf var stutt í góðan mat. Eins og afi sagði: „Þið voruð alltaf orðin svöng áður en lagt var af stað.“ Svo eru það sunnudags- bíltúrarnir með afa og ömmu þar sem iðulega var komið við á bryggjunni í Hafnarfirði, stoppað og fengið sér ís og að lokum Kola- portið þar sem við systkinin vor- um leyst út með gjöfum. Sum- arbústaðurinn geymir svo margar minningar. Þegar verið var að byggja bústaðinn vorum við þar oft og alltaf var afi tilbúinn að leyfa okkur að hjálpa og treysti okkur fyrir hinum ýmsu verkefn- um. Svo eru það pottaferðirnar seint á kvöldin, göngutúrarnir, veiðiferðirnar og kósístundirnar með allt nammið. Allt sem afi tók sér fyrir hendur gerði hann af fullum krafti og við tökum það okkur til fyrirmyndar. Til að mynda þá var hann stuðn- ingsmaður okkar númer eitt þeg- ar kom að skóla, vinnu, íþróttum og öðrum áhugamálum. Hann hvatti okkur ávallt áfram og alltaf fundum við hvað hann var stoltur af okkur. Þegar við vorum yngri í pössun hjá ömmu og afa sá afi yfirleitt um sögustund fyrir svefninn. Þar fengum við að heyra söguna af Bú- kollu ásamt sögum af prakkara- strikum afa úr sveitinni. Með afa var alltaf stutt í prakkarann og bjuggum við því saman til margar sögur sem hvorki mamma, pabbi né amma þurfa að heyra. Afi, við elskum þig og þökkum þér samfylgdina. Við vitum að þú verður áfram með okkur. Sóley, Sigurjón Uggi og Margrét María. Sigurjón hennar Maddýjar frænku er dáinn, kvaddi á falleg- um júnídegi eftir erfið veikindi. Við systkinin vorum svo heppin að hafa þekkt hann frá bernsku. Við minnumst hans með hlýju og gleði. Við eigum margar góðar minningar af Marargrundinni þar sem við iðulega gistum í heim- sóknum okkar í höfuðborgina. Þar var alltaf tekið vel á móti okkur og upplifðum við mikla gestrisni. Við minnumst skemmti- legra ferðalaga, ættarmóta og ekki má gleyma hinu árlegu systramóti í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgina sem var fastur liður á hverju ári. Minning hans mun lifa með okkur sem og þakklæti. Undir bláhimni blíðsumars nætur, barstu í arma mér rósfagra mey. Þar sem döggin á grasinu grætur, gárast tjörnin í suðrænum þey. Ég var snortinn af yndisleik þínum, ástarþráin er vonunum felld. Þú varst ljósblik á lífshimni mínum, þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld. Ég skal dansa við þig meðan dunar þetta draumblíða lag sem ég ann. Meðan fjörið í æðunum funar, og af fögnuði hjartans sem brann. Og svo dönsum við dátt, þá er gaman meðan dagur í austrinu rís. Og þá leiðumst við syngjandi saman út í sumarsins paradís. (Magnús K. Gíslason) Elsku Maddý, Dóra, Pétur, Guðný, Ívar, Kolla, Siggi, Valgeir, barnabörn og barnabarnabarn, ykkar missir er mikill og sendum við ykkur okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Þráinn, Susanne, Anna Kristín, Nikki, Friðbjörg, Björgvin, Tinna og fjölskyldur. Sigurjón Rósants Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.