Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.06.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019 60 ára Lárus er frá Kirkjubóli í Norðfirði en býr í Reykjavík. Hann er kjötiðnaðarmaður að mennt og vann í Melabúðinni þar til í vor og hefur síðan verið dagfaðir. Maki: Hildur Elísabet Kolbeins, f. 1962, dagmóðir. Börn: Ásthildur Jóna, f. 1979, Sveinn Ólafur, f. 1981, Óttar Freyr, f. 1984, og Hugrún Ösp, f. 1987. Barnabörn eru orð- in þrettán og það fjórtánda kemur eftir mánuð. Foreldrar: Þórhallur Einarsson, f. 1906, d. 1984, og Agnes Árnadóttir, f. 1919, d. 2008, bændur á Kirkjubóli. Lárus Þorsteinn Þórhallsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu ekki fagurgala villa þér sýn. Haltu þínu striki en mundu að ekki er allt gull sem glóir. 20. apríl - 20. maí  Naut Það gengur ekki lengur að sitja með hendur í skauti og láta tímann líða án þess að aðhafast nokkuð, þú þarft að ganga frá nokkrum málum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt aldrei eftir að sjá eftir því að styðja einhvern sem þarf á að- stoð þinni að halda. Finndu til allt það dót sem þú notar ekki lengur og gefðu það til að styðja gott málefni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hreinskilni þín er oft hárbeitt en aldrei særandi. Þú færð fréttir af fjölgun í fjölskyldunni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að sýna mikla þolinmæði í samskiptum þínum við aðra í dag. Hegðun annarra skýtur þér oft skelk í bringu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það hentar þér best að vinna ein/n í dag því aðrir munu bara tefja þig. Allt er best í hófi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Stundum er allt í lagi að fara eftir fyrstu tilfinningu þótt yfirleitt sé skyn- samlegt að tékka hana af til öryggis. Breyttu nú til og skrifaðu hjá þér það sem þér dettur í hug. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Deilur við náinn vin gætu gert lífið erfitt í dag. Njóttu hinna smærri sigra, þeir skipta meira máli en þú gerir þér grein fyrir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er komið að því að vinur þinn verður að endurgjalda þér greiða. Þú færð vinning af einhverju tagi í dag. Einhver stígur á tærnar á þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert eirðarlaus og óþol- inmóð/ur í dag og því er þér hætt við einhvers konar óhöppum. Vinnan göfgar manninn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér finnst þú sitja á tíma- sprengju, en þú verður að hemja þig. Þú hefur öll tromp á hendi, nýttu þér það. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur haldið þig til hlés í ákveðnu máli en nú kemstu ekki lengur hjá því að taka afstöðu og láta hana í ljós. Dagurinn er kjörinn fyrir teiti. knattleiksdeildar FH og fjölda ára sem meðstjórnandi og formaður skíðadeildar Fram. Þau hjónin hafa ferðast mikið á framandi slóðum en eyða nú frítíma sínum að mestu við byggingu sumarbústaðar síns við Úlfljótsvatn. Fjölskylda Gunnar kvæntist 11.11. 1966 Valdísi Bjarnadóttur, f. 8.3. 1946, arkitekt frá Technische Hochschule Darmstadt. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Bæringsson, f. 12.9. 1906, d. 5.11. 1949, sjómaður á Drangsnesi, og Anna Ólafsdóttir, f. 22.4. 1909, d. 29.8. 1999, húsfreyja. Börn Gunnars og Valdísar eru 1) Orri, f. 24.11. 1977, skipulagsfræð- ingur MUP frá University of Mic- higan í Bandaríkjunum, rekur fyrir- tækið Orto ehf. en starfar nú við uppsetningu sjúkrahúss í flótta- mannabúðum í Sýrlandi á vegum al- þjóðaráðs Rauða krossins; 2) Tinna, f. 20.6. 1979, markaðs- og viðskipta- verkfræðideildar Verkfræðinga- félags Íslands sem varaformaður 1994 og sem formaður 1995-1996. Hann hefur alla tíð verið mikil íþrótta- og áhugamaður, var í stjórn íþróttafélags MR, í stjórn hand- G unnar Ingi Ragnarsson fæddist 28. júní 1944 í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá stærðfræðideild MR 1965. Hann starfaði síðan eitt ár hjá Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins en flutti 1966 til Þýskalands. Þar lauk hann prófi í byggingaverkfræði frá Technische Hochschule Darm- stadt 1973, með sérhæfingu á sviði vegagerðar, umferðarverkfræði og borgarskipulags. Gunnar var verkfræðingur hjá Ing. Waldhof í Darmstadt 1973-74, hjá Billinger u. Partner í Stuttgart 1974 og hjá umferðardeild Reykja- víkurborgar 1975-80. Hann hefur ásamt konu sinni Valdísi rekið sjálf- stæða arkitekta- og verkfræðistofu frá 1980. Árið 1982 keyptu þau hjón húsið Þverá við Laufásveg þar sem þau bjuggu og ráku samnefnda vinnustofu til ársins 2007 þegar þau fluttu stofuna á Skólavörðustíg 12 þar sem þau ráku hana einnig undir heitinu VAV, vinnustofa arkitekta og verkfræðinga (arkverk). Starfsvettvangur Gunnars Inga hefur í nálægt hálfa öld verið á því sviði sem hann menntaði sig til og hefur hann verið ráðgjafi og unnið að verkefnum á stofu sinni fyrir fjölda sveitarfélaga á Íslandi og í Noregi. Hann hefur m.a. hannað flestöll umferðarljós á höfuðborg- arsvæðinu. Hann hefur einnig komið að arkitektúr- og skipulagsverk- efnum sem eiginkona hans hefur unnið að. Samstarf þeirra hjóna hef- ur alla tíð verið ákaflega farsælt. Þau eru oft spurð hvernig sé hægt að vinna saman alla daga og búa jafnframt saman í yfir hálfa öld. „Okkur finnst lykillinn vera að þó svo verksviðin séu nátengd berum við hvort um sig ábyrgð á okkar sér- sviði, Valdís á arkitektúrnum og fag- urfræðinni en Gunnar á verkfræð- inni og tækninni. Skipulagsmálin flétta svo svið okkar saman. Með því að bera virðingu fyrir skoðunum hvors annars og samstarfsmanna okkar, þá hefur samvinnan alltaf verið leikur einn.“ Gunnar var í stjórn bygginga- fræðingur frá Maastricht í Hollandi, starfar nú sem markaðsstjóri hjá Buggy Adventures. Maki: Michel van Tol, f. 7.1. 1975, forstöðumaður fjárfestinga og meðstofnandi Huddlestock Capital, staðsett í London, Noregi og víðar. 3) Nanna, f. 20.11. 1984, leikkona frá Rose Bru- ford College í London, starfar nú sem leikkona og framleiðandi ásamt því að vera hátíðarstjóri fyrir fjöl- listahátíðina Reykjavík Fringe Festival. Maki: Owen Hindley f. 19.3. 1985, stafrænn listamaður, sem rekur fyrirtækið Horizons Studio staðsett í London. Saman stýra Nanna og Owen listhópnum Huldu- fugl. Systkini Gunnars eru Ragnheið- ur, f. 27.10. 1947, fóstra í Hafnar- firði; Anna Birna f. 13.5. 1949, hjúkr- unarfræðingur í Hafnarfirði; Ásgrímur, f. 17.10. 1950, yfirlæknir í Osló; Einar, f. 3.3. 1959, bygginga- tæknifræðingur hjá Mannviti; Ingi- björg, f. 20.1.1962, hjúkrunarfræð- Gunnar Ingi Ragnarsson verkfræðingur – 75 ára Fjölskyldan Valdís og Gunnar ásamt börnum sínum, Tinnu, Nönnu og Orra. Farsælt samstarf hjónanna Hjónin Gunnar og Valdís. 40 ára Ellen er Árbæ- ingur en býr í Grafar- vogi. Hún er viður- kenndur bókari og starfar hjá Eignar- haldsfélaginu Horn- steini. Maki: Ólafur Sverris- son, f. 1965, verkfræðingur hjá Lands- virkjun. Börn: Sindri Ríkharðsson, f. 1993, og María Ríkharðsdóttir, f. 1995. Stjúpbörn eru Gríma Katrín, f. 1996, Dagur Adam, f. 1997, og Mirra Kristín, f. 1999. Foreldrar: Símon Ægir Gunnarsson, f. 1941, járnsmiður, og Rannveig Guð- mundsdóttir, f. 1945, húsmóðir. Þau eru búsett í Grafarvogi. Ellen Símonardóttir Til hamingju með daginn Auður Óttarsdóttir og Arney Ívars- dóttir perluðu handverk og seldu fyrir framan Krónuna í Garðabæ. Ágóðann færðu þær Rauða krossinum að upp- hæð 8.138 kr. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir frumlegt framtak. Hlutavelta ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.