Morgunblaðið - 28.06.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.06.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Velkomin til okkar ÚTSALA 20-80% afsláttur Langar þig í ný gleraugu! Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir nýhafna niðursveiflu enn eitt dæmið um óstöðugt efnahagsumhverfi á Ís- landi. „Óstöðugleiki er afar óæskilegur, ekki síst fyrir fyrirtæki í byggingar- iðnaði, en niðursveiflan birtist nú m.a. í eftirspurn eftir íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Það er mjög óhentugt fyrir að- ila sem eru í stórum langtímaverk- efnum á þessu sviði að lenda í svona óstöðugleika. Það geta liðið nokkur ár frá því byggingaverkefni eru skipulögð þar til þau eru komin í söluvænlegt horf. Efnahagssam- drátturinn […] kemur meðal annars fram í því að íbúðir á svæðum þar sem ferðaþjónustan hefur verið um- svifamikil, ekki síst í miðbæ Reykja- víkur og á Suðurnesjum, seljast hæg- ar. Efnahagsstaða og efnahags- horfur kaupendahópsins hafa breyst talsvert. Það gerir það að verkum að það sem leit vel út í sölu þegar menn hófu íbúðaframkvæmdir lítur nú ekki eins vel út.“ Úr útleigu til ferðamanna Spurður hvers vegna spurn eftir íbúðum sé að breytast svona hratt bendir Ingólfur á að samdrátturinn í ferðaþjónustunni hafi víðtæk áhrif. Hann segir atvinnuleysi aukast hratt, samanber nýjar tölur frá Hag- stofunni um að 10 þúsund manns hafi verið án vinnu í maí. Hægt hafi á vexti kaupmáttar ráðstöfunartekna og væntingar um hag heimilanna litið til næstu missera einnig breyst. Einnig hafi spár um áframhaldandi fjölgun ferðamanna snúist í fækkun og því hafi m.a. margar íbúðir sem leigðar hafi verið til ferðamanna komið í almenna sölu eða leigu. „Með breyttum efnahagsaðstæð- um og efnahagshorfum er kaupenda- hópur fyrir íbúðir á þessum svæðum ekki jafn stór og gert var ráð fyrir. Þessi breyting á umhverfinu á skömmum tíma er því mjög óhentug fyrir greinina,“ segir Ingólfur. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að ein af hverjum þremur nýjum íbúðum í miðborginni sé seld. Þegar spurn eftir íbúðum er áætluð fram í tímann er horft til margra þátta, á borð við íbúafjölgun, kaupmátt, vaxtastig, verðbólgu og þróun fjölskyldustærðar. Spurður hvers vegna menn hafi misreiknað spurnina eftir íbúðum í miðborg Reykjavíkur bendir Ingólf- ur á að verkefni á þessu sviði taki oft mörg ár og sveiflurnar í íslensku hagkerfi komi yfirleitt ekki með löngum fyrirvara. Að þessu sinni samdráttur í ferðaþjónustu í aðdrag- anda og í kjölfar falls WOW air. Stöðugleikann skortir „Við verðum að auka stöðugleik- ann. Núna er verkefni hagstjórnar að milda niðursveifluna. Ríkið og ekki síst sveitarfélögin þurfa að gæta þess að mæta henni með hagstjórnarað- gerðum í gegnum ríkisfjármálin og sveitarfélögin í gegnum sín fjármál. Við höfum t.d. bent á að nú sé rétti tíminn til að fara í innviðafram- kvæmdir og lækka álögur á fyrirtæki á borð við fasteignaskatta. Verkefnið er að mæta þessum bráðavanda.“ Hagspár hljóða flestar upp á að hagkerfið taki nokkuð kröftuglega við sér á næsta ári. Ingólfur segir það ekki sjálfgefið heldur háð því með hvaða hætti hagstjórnin bregst við. „Hættan er að í hagstjórninni van- meti menn kraftinn í niðursveiflunni sem verði hugsanlega lengri og dýpri en nú er reiknað með í þeim spám sem lagðar eru til grundvallar ákvarðana í peningamálum og opin- berum fjármálum. Áhyggjur okkar [hjá Samtökum iðnaðarins] eru að viðbrögðin séu ekki nægilega sterk og komi of seint til að bregðast við þessari stöðu,“ segir Ingólfur. Hægir á uppbyggingu hótela Landsbankinn birti í vikunni greiningu á verðlækkunum hjá hót- elum og gististöðum síðustu ár. Bendir hún til að verðið í maí hafi verið 21,9% lægra í evrum en í maí í fyrra. Verðið í krónum hafi hins vegar verið 12,4% lægra og skýrist mismunurinn af veikingu krónunnar milli sömu tímapunkta. Gústaf Steingrímsson, hagfræð- ingur í hagfræðideild Landsbankans, segir verð á gistingu næmt fyrir eft- irspurn. Árið 2017 hafi nýting gisti- rýma á Íslandi verið mjög góð og mun betri en víðast annars staðar. Því hafi ekki verið óeðlilegt að ráðast í byggingu fleiri hótela sem varð svo reyndin. Herbergjanýting hafi auk- ist fram til ársins 2017. Hins vegar hafi sú þróun snúist við árin 2018 og 2019 þegar nýtingin tók að lækka á ný. Að sögn Gústafs skýrist minni nýting árin 2018 og 2019 einfaldlega af því að fjölgun hótelherbergja var meiri en fjölgun gistinátta. „Með brotthvarfi WOW air má ætla að það fari uggur um marga sem eru að byggja ný hótel hér á landi. Það má gera ráð fyrir að öll ný plön um frekari hóteluppbyggingu hafi verið sett á ís eftir að WOW air fór í þrot. Það er líka orðið mun erfiðara að sækja lánsfjármögnun í slík verk- efni. Þó verður að teljast líklegt að haldið verði áfram með þau verkefni sem voru komin vel af stað áður en WOW air fór í þrot og þau kláruð,“ segir Gústaf. Færri kaupendur en áætlað var  SI segja niðursveifluna bitna hart á íbúðamarkaði  Hagvöxtur næsta árs sé mögulega ofmetinn  Sérfræðingur hjá Landsbankanum segir lækkandi verð á gistingu munu draga úr hótelfjárfestingu Verð á gistingu og herbergjanýting Hótel og gistiheimili, 2003-2019 350 300 250 200 150 100 50 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 Verðvísitala, 2003=100 Herbergjanýting Verð í krónum, vísitala Verð í evrum, vísitala Herbergjanýting* *Meðaltal fyrstu fjóra mánuði hvers árs Heimild: Hagfræðideild Landsbankans Gústaf Steingrímsson Ingólfur Bender

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.