Morgunblaðið - 28.06.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Bretar ákváðu í gær að setja sér
markmið um að minnka mengun
með jarðefnaeldsneyti þannig að
árið 2050 verði slík mengun engin.
Bretland er fyrst stærstu hagkerfa
í heimi til þess að innleiða þessa
stefnu.
Áætlunin er metnaðarfyllri en
fyrrverandi stefna stjórnvalda um
að minnka mengunina um 80%, en
Bretar eru þegar á góðri leið með
að framleiða meira en helming raf-
magns í landinu með vistvænum
leiðum á borð við sólar- og vind-
orku.
Chris Skidmore, orkumálaráð-
herra Breta, sagði í gær að Bretar
hefðu byrjað iðnbyltinguna og að
nú leiddu þeir á heimsvísu í því að
minnka mengun.
Mengunin verði
engin eftir 2050
London Mótmælt vegna loftslagsmála.
BRETLAND
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hitabylgja hefur riðið yfir Evrópu
undanfarna daga, einkum um suður-
hluta álfunnar, en hitamet hafa fallið
á ýmsum stöðum um álfuna. Í gær
fór hiti víða yfir fjörutíu stig í suður-
hluta álfunnar, t.a.m. á Spáni, Ítalíu,
Grikklandi og í Frakklandi. Þá féll
hitamet í Þýskalandi á miðvikudag
þegar hiti þar mældist 38,6 stig. Í
Póllandi féll einnig met þar sem hiti
mældist 38,2 stig. Þá mældist hiti í
Tékklandi 38,9 sem er einnig met.
Þegar hefur hitamet í júnímánuði
verið slegið á ótal stöðum í Evrópu.
Veðurfræðingar segja heitt loft úr
Sahara-eyðimörkinni eiga sök á hit-
anum gríðarlega í Evrópu og veð-
urspár benda til þess að hitabylgjan
haldi áfram næstu daga. Þá þykir
hún óvenjuleg fyrir þær sakir að hún
er fyrr á ferðinni nú heldur en áður.
Víða hefur fólk leitað leiða til að
kæla sig niður, til dæmis með því að
baða sig í gosbrunnum. Þá hefur
eldri borgurum verið hleypt inn í
loftkæld rými hótela endurgjalds-
laust. Símtölum til sjúkrahúsa hefur
fjölgað og yfirvöld gert fjölda ráð-
stafana til verndar fólki.
Viðamiklar ráðstafanir
Í Frakklandi hefur verið heitara
en nokkru sinni í júní frá því ná-
kvæmar mælingar hófust árið 1947.
Þar hefur verið hætt við samræmd
próf sem halda átti í vikunni, skólum
var lokað í gær og verða þeir einnig
lokaðir í dag. Í nokkrum borgum, þ.á
m. París og Lyon hafa hömlur verið
settar á umferð til að takmarka upp-
söfnun mengunar í borgunum.
Frakkar hafa vaðið fyrir neðan sig
og hafa komið upplýsingum um hita-
bylgjuna áleiðis til almennings, en
eftir hitabylgju árið 2003 var stjórn-
völdum kennt um dauða 15 þúsund
borgara af hennar sökum.
Í Grikklandi hefur hiti verið um 45
gráður um landið allt, en þar hafa
sjúkrahús verið sett á hæsta viðbún-
aðarstig. Skógareldar sem geisað
hafa í Norðaustur-Katalóníu á Spáni
hafa farið úr böndunum, en eldarnir
höfðu í gær eytt meira en 5.500 hekt-
urum lands. Hundruð slökkviliðs-
manna hafa lítið ráðið við eldana
meðan hitabylgjan hefur staðið yfir.
Heitara en nokkru sinni fyrr
Hitabylgja í Evrópu slær met víða um álfuna Minnka umferð og loka skólum
Skógareldar fóru úr böndunum á Spáni Áframhaldandi hiti næstu daga
AFP
Heitt Íbúar Evrópu leita allra leiða
til að kæla sig niður í hitabylgjunni.
Heimsmeistarinn í skák, Magnus
Carlsen, stofnaði nýtt skákfélag á
þriðjudag sem hefur vakið ólgu í
Noregi. Markmið félagsins er að
hafa áhrif á breytingar innan
norska skáksambandsins.
Þá hefur gagnrýni hans á norska
skáksambandið orðið til þess að
skáksambandið ákvað í gær að
sækja ekki um að HM einstaklinga
yrði haldið í Stafangri. Carlsen
hafði gagnrýnt umsóknina harðlega
og ýjað að því að hann tæki ekki
þátt í mótinu, yrði það haldið í Staf-
angri í Noregi.
Megintilgangur nýja skákfélags
Carlsens, Offerspill Sjakklubb, er
að þrýsta á norska skáksambandið
að tala fyrir lagalegum breytingum,
til dæmis heimilun veðmála í Nor-
egi og breytingum á reglum sem
gilda um styrktaraðila íþrótta-
manna og -félaga.
Veðmálafyrirtækið Kindret, sem
rekur m.a. Unibet hefur lýst yfir
áhuga á því að styðja norska skák-
sambandið um það sem nemur 730
milljónum íslenskra króna, tali
sambandið fyrir lagabreytingunum.
Carlsen bauð fyrstu þúsund með-
limum hins nýstofnaða skákfélags
ókeypis félagsaðild og greiddi því
fyrir hina nýju félaga aðildargjöld
sem nema um 8 milljónum ís-
lenskra króna, til norska skák-
sambandsins.
Fái Offerspill þúsund félaga, fá
félagsmenn 40 fundarsæti á aðal-
fundi norska skáksambandsins og
getur félagið því haft mikil áhrif á
niðurstöðu fundarins sem tekur
málið fyrir 7. júlí. veronika@mbl.is
AFP
Heimsmeistarinn Nýja skákfélag Magnusar Carlsen hefur vissan tilgang.
Nýtt félag Carlsens
vekur mikil viðbrögð
Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands, fékk öðru
sinni skjálftakast
á opinberum við-
burði við athöfn
þar sem nýr
dómsmálaráð-
herra landsins
var formlega
skipaður í emb-
ætti. Í kjölfarið
hafa fjölmiðlar velt upp spurningum
um heilsufar kanslarans, en starfs-
menn skrifstofu hennar segja hana
við fulla heilsu.
Í gær flaug Merkel til fundar við
aðra þjóðarleiðtoga á G20-
ráðstefnunni í Japan þar sem hún
mun ræða við marga þeirra. Á
þriðjudag í síðustu viku skalf kansl-
arinn mjög þegar hún tók á móti ný-
kjörnum forseta Úkraínu sem var þá
í opinberri heimsókn í Þýskalandi.
Annað skjálftakast-
ið á tveimur vikum
Angela
Merkel
ÞÝSKALAND
Mette Frederiksen, nýr forsætisráðherra Dan-
merkur og sá yngsti í sögu landsins, kynnti nýja
ríkisstjórn Jafnaðarmanna við konungshöllina
Amalienborg í gær. Ríkisstjórnina skipa 20 ráð-
herrar úr flokki hennar, en minnihlutastjórn
Jafnaðarmanna er studd af þingmönnum Ein-
ingarlistans, Sósíalíska þjóðarflokksins og
miðjuflokksins Radikale Venstre.
Frederiksen tók við lyklum að forsætisráðu-
neyti Danmerkur úr höndum Lars Løkke, for-
vera síns og formanni hægri flokksins Venstre.
Við tilefnið afhenti hann henni bláar verka-
mannabuxur og hanska. „Taktu eftir litnum,“
sagði hann og vísaði síðan til vinnuþreks dönsku
þjóðarinnar og hvernig hún vaknaði á hverjum
morgni til að sjá fyrir sér og sínum. „Nú ferð þú
í vinnufötin. Til hamingju og gangi þér vel. Ég
held þú verðir afbragðsforsætisráðherra,“ sagði
Løkke.
Frederiksen færði forsætisráðherranum fyrr-
verandi hjólreiðatreyju að gjöf, en hann er mik-
ill hjólreiðamaður. „Ég vona að þú nýtir tímann
í framtíðinni meira til þess að hjóla. Þó að við
höfum ekki endað saman í ríkisstjórn vona ég að
sjálfsögðu að við getum haldið áfram samstarfi
okkar í góðum anda,“ sagði hún.
Lyklaskipti í danska forsætisráðuneytinu
Ný ríkisstjórn
Danmerkur
AFP