Morgunblaðið - 28.06.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
HM kvenna í Frakklandi
8-liða úrslit:
Noregur – England ................................. 0:3
Jill Scott 3., Ellen White 40., Lucy Bronze
57.
England mætir Frakklandi eða Banda-
ríkjunum í undanúrslitum.
EM U21 árs karla
Undanúrslit á Ítalíu:
Þýskaland – Rúmenía .............................. 4:2
Spánn – Frakkland................................... 4:1
Þýskaland og Spánn mætast í úrslitaleik
á sunnudagskvöldið.
Evrópudeild UEFA
Forkeppni, fyrri leikur:
Ballymena United – NSÍ Runavík ......... 2:0
Guðjón Þórðarson þjálfar NSÍ.
EM kvenna
Leikið í Lettlandi og Serbíu:
A-riðill:
Bretland – Lettland ............................. 74:60
Úkraína – Spánn................................... 77:95
B-riðill:
Svíþjóð – Svartfjallaland ..................... 67:51
Frakkland – Tékkland ......................... 74:61
C-riðill:
Ungverjaland – Slóvenía ..................... 88:84
Tyrkland – Ítalía................................... 54:57
D-riðill:
Rússland – Belgía................................. 54:67
Hvíta-Rússland – Serbía...................... 53:55
Veera Pirttinen, finnsk landsliðs-
kona í körfuknattleik, hefur samið
við Snæfell úr Stykkishólmi um að
leika með liðinu á næstu leiktíð.
Pirttinen er 22 ára gömul, leikur
sem bakvörður og framherji og á
níu landsleiki að baki. Hún lék með
liði ChemCats Chemnitz í þýsku A-
deildinni á síðustu leiktíð.
Landsliðskona
í Stykkishólm
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, 8-liða úrslit:
Meistaravellir: KR – Tindastóll ............... 18
Norðurálsvöllur: ÍA – Fylkir............... 19.15
2. deild karla:
Jáverkvöllur: Selfoss – Þróttur V ....... 19.15
Nesfiskvöllur: Víðir – ÍR ..................... 19.15
Boginn: Dalvík/Rey. – Fjarðabyggð... 20.30
Í KVÖLD!
England er komið í undanúrslit HM kvenna í fótbolta,
annað skiptið í röð, eftir að hafa rúllað yfir Noreg í gær,
3:0. Enska liðið sýndi sínar bestu hliðar og tókst að láta
Maríu Þórisdóttur og stöllur hennar í norska liðinu líta
illa út, sérstaklega í fyrri hálfleik. England mætir Frakk-
landi eða Bandaríkjunum í undanúrslitum en liðið freist-
ar þess að ná enn lengra en í Kanada fyrir fjórum árum,
þegar England vann til bronsverðlauna í fyrsta sinn, og á
EM 2017 þegar liðið féll út í undanúrslitum.
Í bæði einkunnagjöf TV2 og kosningu lesenda fékk
María aðeins 3 af 10 mögulegum í einkunn fyrir frammi-
stöðu sína í gær, enda átti hún sinn langversta leik á
mótinu og sinn þátt í fyrstu tveimur mörkum Englands.
Þá fékk hún dæmda á sig vítaspyrnu sem Englendingar
nýttu þó ekki. Einkunnir liðsfélaga hennar voru á svip-
uðum nótum.
Jill Scott kom Englandi yfir strax á 3. mínútu og Ellen
White bætti við öðru á 40. mínútu. Í báðum tilvikum átti
Lucy Bronze lykilsendingar og hún fullkomnaði sinn leik
með marki úr þrumuskoti í seinni hálfleiknum. Þessi 27
ára hægri bakvörður kann vel við sig í Frakklandi en
hún hefur orðið Evrópumeistari með Lyon síðustu tvö ár
auk þess að vinna fleiri titla með félaginu. Áður varð hún
Englandsmeistari með Manchester City og Liverpool,
þar sem hún lék með KR-ingnum Katrínu Ómarsdóttur.
„Ég er búin að láta mig dreyma um að komast í und-
anúrslitin í Lyon. Öll ástríða mín kristallaðist í þessu
skoti. Ég var einmitt að æfa þessi skot í morgun. Æfing-
in skapar meistarann,“ sagði Bronze sigurreif í gær-
kvöld.
„Við erum stoltar af því sem við gerðum og þó að þetta
hafi farið svona er ég viss um að við getum barist um
verðlaun á næstu mótum,“ sagði Caroline Graham Han-
sen, leikmaður Noregs. sindris@mbl.is
Bronze með gullframmistöðu
England sendi Maríu og stöllur í norska liðinu heim af HM með öruggum sigri
AFP
Frábærar Lucy Bronze og félagar í enska liðinu voru afar sannfærandi gegn Noregi í gær.
Tvö félög með íslenska körfubolta-
menn tefla fram liðum í Euroleague,
hinni einkareknu bestu félagsliðadeild
Evrópu, á næstu leiktíð. Martin Her-
mannsson leikur með Alba Berlín og
Hilmar Smári Henningsson gæti feng-
ið tækifæri með sínu nýja liði Valencia.
Í keppninni leika einnig Barcelona,
Real Madrid, Baskonia, Olympiacs,
Panathinaikos, Maccabi Tel Aviv, Ana-
dolu Efes, Fenerbahce, Olimpia Míl-
anó, Zalgiris, Bayern München, Rauða
stjarnan, Lyon, CSKA Moskva, Khimki
og Zenit sem í gær fékk síðasta lausa
plássið.
Ljóst hvaða liðum
Martin mætir
Ljósmynd/FIBA
Silfur Alba Berlín náði 2. sæti í
Þýskalandi og komst í Euroleague.
Ríkjandi Evrópumeistarar Spánar
hófu EM kvenna í körfubolta í gær-
kvöld á öruggum sigri gegn Úkra-
ínu, 95:77. Mótið fer að þessu sinni
fram í Serbíu og Lettlandi en nýir
Evrópumeistarar verða krýndir 7.
júlí.
Svartfjallaland, sem vann undan-
riðilinn sem Ísland lék í fyrir mótið,
mátti þola sextán stiga tap gegn
Svíþjóð í fyrsta leik, 67:51. Amanda
Zahui, úr New York Liberty í
WNBA-deildinni, var atkvæðamest
í leiknum en hún skoraði 21 stig
fyrir Svíþjóð og tók 12 fráköst.
EM hafið í Serbíu
og Lettlandi
AFP
Titilvörn Astou Ndour skorar fyrir
Spán sem er ríkjandi meistari.
Eftir þrjá sigra í röð eru Gróttu-
menn, sem komust upp úr 2. deild í
fyrra, komnir á topp 1. deildar
karla í fótbolta. Grótta skoraði öll
þrjú mörk sín á lokamínútunum í
Mosfellsbæ í gær þegar liðið vann
3:0-sigur á hinum nýliðunum í
deildinni, Aftureldingu, sem sitja
eftir í 10. sæti aðeins tveimur stig-
um frá fallsæti.
Grótta er á toppnum vegna betri
markatölu en Fram, en missir
væntanlega Þór eða Fjölni upp fyr-
ir sig á morgun þegar 9. umferð
deildarinnar lýkur með leik þeirra
liða í Grafarvogi. Engu að síður er
staða Seltirninga athyglisverð en
þeir hafa aldrei átt lið í efstu deild.
Axel Freyr Harðarson braut ísinn
fyrir þá á 87. mínútu í gærkvöld en
Pétur Theódór Árnason náði að
bæta við tveimur mörkum til við-
bótar áður en yfir lauk og er nú
markahæstur í deildinni með 7
mörk ásamt Alvaro Montejo hjá
Þór.
Keppnin um sætin tvö í úrvals-
deild er afar jöfn og er Keflavík til
að mynda aðeins þremur stigum frá
toppnum þrátt fyrir 3:1-tap gegn
Leikni R. á heimavelli í gærkvöld.
Leiknismenn, sem léku sinn fyrsta
leik eftir að Stefán Gíslason kvaddi
og Sigurður Heiðar Höskuldsson
varð aðalþjálfari, komust í 2:0 með
mörkum snemma í seinni hálfleik.
Hinn 18 ára Vuk Oskar Dimitrijevic
skoraði það fyrra og Sævar Atli
Magnússon, 19 ára, það seinna.
Adolf Bitegeko minnkaði muninn
en Sólon Breki Leifsson innsiglaði
sigur Leiknis. sindris@mbl.is
Nýliðar Gróttu
komnir á toppinn
Ljósmynd/@grottafc
Efstir Gróttumönnum gengur allt í
hag þessa dagana í 1. deildinni.