Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Mest seldu fjórhjól á Íslandi síðastliðin 4 ár! Verð frá 1.480.000 með vsk. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Áætlað er í dag að landa um 200 tonnum af makríl úr bátnum Hugin VE 55 að sögn Guðmundar Hugins Guðmundssonar skipstjóra, en Hug- inn hélt út á föstudag og hefur verið sunnan við Vestmannaeyjar síðan þá. Sökum brælu var ekkert veitt í um sólarhring frá því á laugardag. Makrílkvóti íslenskra fiskiskipa verður 140 þúsund tonn í ár, sam- kvæmt reglugerð sjávarútvegs- ráðherra, eða rúmlega 32 þúsund tonnum meiri en hann hefði orðið með þeirri viðmiðun sem notuð hef- ur verið undanfarin ár. Aflamark á einstök skip var gefið út á föstudag. 200 tonn til að byrja með „Við vorum að hífa sjötíu tonn áð- an,“ sagði Guðmundur Huginn í samtali við Morgunblaðið skömmu eftir hádegi í gær, en makrílleitin fer rólega af stað að hans sögn. „Það var austanbræla í sólarhring þangað til í morgun, þetta fór rólega af stað. Við erum að leita á þessu svæði og förum ekkert lengra í bili af því við ætlum að landa fyrsta túrnum í nótt eða fyrramálið,“ segir hann. Lítið kom upp úr krafsinu til að byrja með, að sögn Guðmundar Hugins. „Við köstuðum fyrst rétt fyrir miðnætti aðfaranótt laugar- dags og fengum eitt tonn, þá var bara áta, enginn fiskur. Síðan köst- uðum við aftur og fengum lítið. Helmingurinn var síld og við feng- um tíu tonn inn. Þegar við vorum komnir með 30 tonn var bara bræla. Það var ekkert gert í gær og í nótt,“ segir hann, en áformað var að landa 150 til 200 tonnum eftir fyrsta túr. „Við ætlum að reyna að vera með 200 tonn í fyrramálið. Þeir í verk- smiðjunni þurfa líka að keyra hana upp og vilja ekki fá meira í bili,“ segir Guðmundur Huginn. „Síðan förum við og leitum víðar. Það hefur verið mjög gott veður undanfarið, það þurfti endilega að gera brælu. Það veiðist aldrei neinn makríll í svona, það finnst ekkert,“ segir hann, en ómögulegt er að segja til um framhaldið í sumar að hans sögn. „Maður hefur heyrt að menn verði minna varir við þetta á ýmsum stöðum á landinu. Það er ekkert að marka það strax. Þegar einhverjir fleiri fara af stað, þá finnst þetta.“ Stefna að löndun í dag eftir fyrstu ferð í makrílveiðum  Bræla í sólarhring í fyrsta túr Hugins VE 55 um helgina Ljósmynd/Guðmundur Huginn Guðmundsson Huginn VE 55 Haldið var til veiða síðdegis á föstudag í góðu veðri. Huginn hefur verið sunnan við Vestmannaeyjar og stefnt er að því að landa í dag. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Nokkur hópur Íslendinga á lífeyr- isréttindi hjá SL Lífeyrissjóði, áð- ur Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda (SL), vegna reglugerðar sem var sett af félagsmálaráðuneytinu á miðjum níunda áratug síðustu ald- ar. Sumir sem eru komnir á efri ár starfsævinnar, og farnir að spá í lífeyrismálin, hafa tekið eftir því að þeir eigi umrædd réttindi, en kannast kannski ekki við að hafa greitt til SL lífeyrissjóðs. Í samtali við Morgunblaðið út- skýrir Sigurbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmda- stjóri SL, að þetta tengist því þegar ríkið ákvað að hætta að greiða orlofs- greiðslur með ávísunum einu sinni á ári. „Á árum áður voru gefnar út orlofsávísanir einu sinni á ári til þeirra sem voru ekki fastráðnir hjá ríkinu. Ríkið ákvað í kringum 1987 að hætta þessu kerfi,“ segir hann en nú eru orlofsgreiðslur ýmist lagðar inn á þar til gerðan orlofsreikning eða greiddar samhliða mánaðarlaun- um. Áttu ekki að verða verðlausar Segir Sigurbjörn að þegar síð- ustu ávísanirnar voru gefnar út hafi fólki gefist kostur á að leysa þær út í banka með venjubundnum hætti, en síðan hafi verið ákveðið að verðmæti óútleystra orlofs- ávísana yrði breytt í lífeyrisrétt- indi. Í langflestum tilvikum var um mjög lágar fjárhæðir að ræða. „Þetta var samkvæmt reglugerð sem félagsmálaráðuneytið gaf út. Þessi hugmynd varð til hjá ríkinu til að þær ávísanir sem menn kannski týndu, eða leystu ekki út af einhverri ástæðu, yrðu ekki verðlausar,“ segir Sigurbjörn. Veldur ekki usla í dag Aðspurður segir hann að um til- tölulega lítinn hóp fólks sé að ræða enda hafi langflestir leyst ávísan- irnar út áður en reglugerðin tók gildi og nefnir, eins og áður segir, að kerfinu hafi verið breytt í kring- um 1987 en reglugerðin, þ.e. tíma- markið sem ávísanirnar breyttust í lífeyrisréttindi, hafi miðast við árið 1991. „Menn höfðu því ágætan tíma til að leysa þessar ávísanir út,“ segir hann. Sigurbjörn segir að málið og innistæðurnar valdi ekki neinum usla í dag, enda fái fólk reglulega tilkynningar um þau lífeyrisrétt- indi sem það á inni. „Við sendum út tilkynningar þegar fólk er 65 ára, 70 ára og áttrætt og minnum á að hjá sjóðnum sé réttur til líf- eyris,“ segir hann. Þá bætir hann við að lífeyrissjóðir séu í samstarfi svo ef fólk á þessa einu innistæðu hjá SL, en sé með önnur lífeyris- réttindi sín annars staðar, þá fær SL afrit af umsókn sem berst öðr- um lífeyrissjóðum. Eiga réttindin vegna reglugerðar  Einstaklingar á efri árum starfsævinnar hafa sumir tekið eftir lífeyrisréttindum sem þeir kannast ekki við að hafa greitt inn á  Um er að ræða óútleystar ávísanir sem breyttust í innistæður hjá SL Sigurbjörn Sigurbjörnsson Jarðskjálfti, 3,6 að stærð, varð um 15 kílómetra austnorðaustur af strönd- um Grímseyjar um hádegisbil í gær og fylgdu nokkrir minni skjálftar í kjölfarið. Einhverjir urðu skjálft- anna varir, en í samtali við Morg- unblaðið segir Halla Ingólfsdóttir, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Trip í Grímsey, að hún og ferðamenn sem voru í leiðangri með henni hafi ekki fundið fyrir skjálft- anum. „Við erum orðin svo hrikalega vön þessu,“ segir Halla og hlær, en jörð skelfur með reglulegu millibili á svæðinu og verða eyjarskeggjar þess gjarnan varir. Margt er í Grímsey þessa daga og segir Halla að um 100 farþegar hafi komið með bátnum á föstudag. Þá er útlitið gott fyrir júlímánuð og flest hótelherbergi uppbókuð. Sólstöðu- hátíð var haldin í bænum fyrir viku og lögðu margir leið sína til þessa nyrsta odda landsins til að berja mið- nætursólina augum; tækifæri sem ekki gefst annars staðar á landinu. Segir Halla það hafa komið skemmtilega á óvart hve mikið var um Íslendinga, í bland við erlenda gesti. alexander@mbl.is Jarðskjálfti upp á 3,6 í Grímsey  Grímseyingar kippa sér lítið upp við enn einn skjálftann Sólarstundir í Reykjavík í júní- mánuði voru margar í sögulegu ljósi, þó að metið yfir sólarstundir frá upphafi hafi ekki fallið. „Það er nú merkilegt út af fyrir sig að stundirnar hafi farið yfir þrjú hundruð,“ sagði Trausti Jónsson veðurfræðingur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld spurður um sólarstundirnar í júnímánuði. Um miðja síðustu viku höfðu mælst 296,3 sólarstundir í Reykjavík og vantaði þá 42 stund- ir til að jafna júnímetið frá 1928. Eins og áður segir tókst ekki að jafna metið en í fyrrakvöld stóð talan í 301, og hefði því verið mögulegt að ná upp í þriðja sæti yfir júnímánuði, en í fjórða og fimmta sæti eru nú júnímán- uðirnir árin 1924 og 2008 með 313,2 og 313 sólarstundir. Trausti sagðist telja að sólar- stundir hefðu hugsanlega verið í kringum átta í gær. Því væri lík- legra að júnímánuður 2019 hefði endað í fimmta sæti yfir sólar- stundir í júní og í áttunda sæti yf- ir alla mánuði frá upphafi. „Maður veit það samt ekki ennþá. Það er ennþá sólskin þótt sólin sé orðin svolítið dauf,“ sagði Trausti, enda var sólin ekki hnig- in til viðar þegar blaðamaður sló á þráðinn í gærkvöldi. Morgunblaðið/Hari Vaðið Drengir sem léku sér í sólinni í fjörunni við Grafarvog í gær. Sólin lét oft sjá sig en metið féll ekki  Júní 2019 mögulega í fimmta sæti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.