Morgunblaðið - 01.07.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.07.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 Orf úr áli 25.980 Orf úr tré 17.400 Ljár 7.980 Heyhrífa 4.880 Orf og ljár augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár Bjarni Jónsson rafmagnsverk-fræðingur skrifar um orku- pakkana: „Orkupakki #4 (OP#4) kom út úr ofni Evrópusambandsins, ESB, 8. maí 2019 eftir innbyrðis deil- ur í bakaríinu um uppskriftina. Auk- in miðstýring orkumálanna með við- bótar valdtilfærslu frá aðildarríkjunum til ACER olli deil- unum og er jafnframt megineinkenni OP#4. Fyrirvari Íslands við OP#3 um bann við tengingu landsins við innri raforkumarkað ESB og nokkr- ir af ólögfestum, bréflegum óskafyr- irvörum Norðmanna við hann eru í algeru uppnámi eftir útkomu OP#4 og stríða beinlínis gegn honum.“    Bjarni segir að með fjórða orku-pakkanum hafi „rafmagns- tilskipun OP#3 verið endurskoðuð þannig, að nýjar valdheimildir eru færðar frá ríkisvaldi aðildarland- anna og til framkvæmdastjórnar ESB, orkustofnunarinnar ACER og útibús ACER í hverju aðildarlandi, Landsreglarans (National Energy Regulator). Einkum á þetta við um þróun og rekstur millilandateng- inga, en einnig um stjórnun orku- mála innanlands.“    Og hann bætir við að í nýjastaorkupakkanum komi fram að aðildarríkin eigi meðal annars að sjá til þess að innlend löggjöf hindri ekki á óeðlilegan hátt (og ESB meti hvað sé óeðlilegt) nýjar millilandateng- ingar og raforkuviðskipti á milli landa.    Getur verið að stjórnvöld teljienga ástæðu til að skoða þenn- an nýjasta pakka rækilega áður en sá þriðji verður afgreiddur? Á að horfa framhjá fjórða pakkanum? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Klamydíusmit á Íslandi voru 649,6 á hverja 100 þúsund íbúa árið 2017 og er Ísland efst þeirra landa sem um er fjallað í tölum sóttvarnastofnunar Evrópu. Samkvæmt þeim er með- altíðnin í ríkjum ESB og EES 146,2 tilfelli á hverja 100 þúsund íbúa. Heildarfjöldi klamydíusmita í þess- um löndum var 409.646 og á Íslandi smituðust 2.198 þetta ár. Ísland er í hópi sex landa þar sem tíðni smita er yfir 200 á hverja 100 þúsund íbúa. Þessi lönd eru Norður- löndin öll auk Bretlands. Fram kem- ur í úttektinni að þessi lönd eigi það sameiginlegt að þar séu prófanir á sýnum tíðar. Fleiri próf aðeins ein skýring Þórólfur Guðnason, sóttvarna- læknir hjá embætti landlæknis, seg- ir að lengi hafi tíðni smita á Íslandi verið með því hæsta sem þekkist. „Við vitum ekki nákvæmlega hver skýringin á því er, en tíðnin hefur verið svipuð milli ára. Það sem af er þessu ári virðist hún þó vera heldur lægri en t.d. í fyrra,“ segir hann, en tíðnin er að jafnaði hæst hjá fólki á aldrinum 18-25 ára. „Það er erfitt að segja til um af hverju við erum svona há í sam- anburði við aðra. Hvort það er meira prófað hér, hvort ungt fólk er duglegra að leita til heilbrigðis- kerfisins til að fá greiningu, það er ekki alveg ljóst,“ segir hann og nefnir að öflugri próf- anir hér á landi séu aðeins ein mögu- leg skýring á miklum fjölda klamyd- íusmita hér á landi. „Önnur skýring er síðan einfald- lega að það sé bara hærri tíðni hér en annars staðar. Það er hugsanlegt, en það er erfitt að segja til um þetta,“ segir hann, en nefnir að fjöldi prófa sem sendur sé áfram í „test“ sé meiri hér en annars staðar. „Við erum að prófa svolítið mikið. En er það vegna þess að fólk er með ein- kenni eða ekki? Það vitum við ekki nákvæmlega. Sumar þessara sýk- inga eru einkennalausar eða -litlar, þannig að skýringin á því að við séum með fleiri tilfelli gæti verið að við prófum meira,“ segir hann. Klamydía hlutfalls- lega algengust hér  Um 650 smit á hverja 100 þúsund íbúa Þórólfur Guðnason Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að auglýsa eftir aðilum til þess að reka deilihjólaleigu í borg- inni. Aðkoma borgarinnar verður fyrst og fremst fólgin í að skapa að- stöðu og leggja til land, en rekstr- araðilum látið eftir að sjá um upp- setningu og allan rekstur. Á vefsíðu opinberra útboða kemur m.a. fram að framlag borgarinnar til verkefn- isins verði að hámarki sem nemur fimm milljónum króna á ári. Síðastliðin ár sá flugfélagið WOW air um rekstur deilihjólaleigunnar, en flugfélagið varð gjaldþrota í vor og því er leitað eftir nýjum aðila til að reka hjólaleiguna. Í svari Bjarna Brynjólfssonar, upp- lýsingastjóra Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn Morgunblaðsins um málið segir að um sé að ræða 100 hjól á átta stöðvum sem WOW hjólaleigan hafði yfir að ráða. Meðal annars sé það hluti af hjólastefnu Reykjavíkur- borgar að borgin stuðli að rekstri slíkrar leigu og segir að markmiðið með því að borgin greiði að hámarki fimm milljónir á ári sé að gera deili- hjólaleiguna að samstarfsverkefni þannig að borgin hafi aðgang að töl- um og hafi um staðsetningu stöðv- anna að segja. Þá segir hann að í nær öllum borgum þar sem deili- hjólaleigur eru reknar með hag- kvæmum hætti hafi framlög viðkom- andi borgar þurft að koma til. Leita eftir rekstraraðila í stað WOW  Ákveðið að auglýsa eftir aðilum til að reka deilihjólaleigu í Reykjavík Morgunblaðið/Hari Deilihjól Við Lækjargötu í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.