Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu og svo fer ég í Kjarrá á hverju ári. Við erum með sumarbústað við Þingvallavatn og þar veiði ég urriða í apríl og maí. Í skotveiðinni er ég í hreindýrum og hef farið til Græn- lands að veiða sauðnaut, til Póllands og Spánar að veiða villisvín og ýmis dádýr og til Skotlands að veiða krónhjört. Í fyrra fór ég á túnfisk- veiðar í Kanada þar sem við veidd- um einn 400 punda og annan 600 punda, það var geggjuð upplifun.“ Fjölskylda Eiginkona Björns er Hafdís Jóns- dóttir, f. 6.11. 1961, framkvæmda- stjóri. Foreldrar hennar: Jón Boði Björnsson, f. 4.12. 1931, mat- reiðslumeistari, búsettur í Garðabæ, og Erna Sigurbjörg Ragnarsdóttir, f. 28.5. 1929, d. 30.6. 2006, hár- greiðslumeistari. Börn Björns og Hafdísar eru 1) Birgitta Líf Björnsdóttir, f. 19.10. 1992, markaðsstjóri, búsett í Reykjavík, og 2) Björn Boði Björns- son, f. 24.2. 1999, nemi, búsettur í Reykjavík. Systkini Björns eru Sigurður Júl- íus Leifsson, f. 6.3. 1961, smiður, búsettur í Kópavogi; Dagbjört Hrönn Leifsdóttir, f. 21.6. 1965, íþróttakennari, búsett í Hafnarfirði; María Bjarney Leifsdóttir, f. 24.3. 1969, íþróttakennari, búsett í Ólafs- firði. Foreldrar Björns eru hjónin Leif- ur Björnsson, f. 14.6. 1935, vélstjóri og fyrrverandi útgerðarmaður á Flateyri, og Margrét Jóna Haga- línsdóttir, f. 28.10. 1937, húsfreyja og fyrrverandi fiskverkakona á Flateyri. Þau eru búsett í Reykja- vík. Björn Kristmann Leifsson Guðrún Pálína Jónsdóttir húsfreyja á Gemlufalli og í Miðhlíð Jón Magnússon bóndi á Gemlufalli og í Miðhlíð í Dýrafi rði Magnea Kristjana Jónsdóttir húsfreyja í Hrauni Guðmundur Hagalín Guðmundsson bóndi í Hrauni á Ingjaldssandi Margrét Jóna Hagalínsdóttir fv. fi skverkakona á Flateyri, bús. í Reykjavík María Bjarney Sigmundsdóttir húsfreyja í Miðhlíð og á Lækjarósi Guðmundur Jón Jónsson bóndi í Miðhlíð og á Lækjarósi í Dýrafi rði Friðþjófur B. Guðmundsson athafnamaður í Rifi Svanheiður Friðþjófsdóttir húsfreyja á Akranesi Erlingur Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði við HÍ og Íslandsmethafi í 800 m hlaupi Guðmundur Björn Hagalínsson fyrrv. bóndi í Hrauni Guðmundur Hagalín Guðmundsson svæðisstjóri hjá HS Orku Jófríður Jónsdóttir húsfreyja í Rifi Guðmundur Guðmundsson útvegsbóndi í Rifi Kristný Guðmundsdóttir húsfreyja í Rifi Björn Kristjánsson sjómaður og oddviti í Rifi á Snæfellsnesi Þóranna Sigurðardóttir húsfreyja á Ósi Kristján Guðmundsson bóndi á Ósi á Skógarströnd Úr frændgarði Björns Leifssonar Leifur Björnsson vélstjóri og fv. útgerðarmaður á Flateyri, bús. í Reykjavík Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „PASSAÐU ÞIG Á STÓLNUM. HANN ER BROTINN.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... í ýmsum myndum og aðstæðum. ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÞÚ ÆTLIR AÐ EYÐA DEGINUM Í BÓLINU! VEL GERT! ER ÞETTA EINHVERS KONAR GILDRA? FRÖKENIN VAR AÐ RÍFAST VIÐ KÆRASTANN SINN. ÉG BAUÐ HENNI Í TUNGLSKINSGÖNGU! SLÆM HUGMYND! ÓKEI - EN BÍDDU ÞAR TIL EIRÍKUR KEMUR SVO HANN SJÁI OKKUR FARA SAMAN! KÓR- RÉTT! „ÉG ER Í SAMBANDI VIÐ HINA LÁTNU. AÐ MINNSTA KOSTI HELD ÉG AÐ ÞAU SÉU LÁTIN – ÞAU GÆTU VERIÐ NETTRÖLL.” Jón Ingvar Jónsson yrkir á Boðn-armiði: Að limran sé landsmönnum kær lætur víst fjarri en nær. Hún hlustirnar sker í hausnum á mér og enn verri’ en ein eru tvær. „Sunnlenskt regn“ segir Guð- mundur Arnfinnsson og yrkir á miðvikudag: Nú er komin blessuð bleyta, burtu hverfa slen og þreyta, gleymt er regnið frá í fyrra, flesta sem var þá að pirra. Pétur Stefánsson er glaður í bragði: Geðið skánar, glaðnar brá, gleðst ég eftir megni er gráum himni fellur frá feikn af þráðu regni. Gunnar J. Straumland er í öðrum og háleitari hugleiðingum: Yfir landi, yfir sjá, yfir mannsins lífi, léttir ástin löngum á leiðindum og kífi. Ástin getur, unaðshlý, ör í tilfinningum, leikið sér, þá lægir í lífsins umhleypingum. Ásdís Stefánsdóttir er góð bú- kona: Tætti ég sundur tröllasúru og tróð í frysti. Áður setti oní poka er mér tókst með basli að loka. Seinna þegar líða fer að löngum vetri ég laga graut af list og sóma ljúffengan með sykri og rjóma. Pétur Stefánsson veltir vöngum yfir jarðvist sinni: Um mig kannski stendur styrr og stefin mjúku og hörðu. Ekki verð ég frægur fyrr en fúnar hold í jörðu. Jón Ingvar Jónsson dregur sínar ályktanir, – réttar eða rangar: Eins og hrakið ýlustrá enginn missir verður konum, þegar Pétur fellur frá fúnar moldin yfir honum. Þessar yrkingar kölluðu fram í huga minn vísu eftir Káinn úr „Sól- skinið í Dakota“: Þegar ég er fallinn frá, og fúna í jörðu beinin verður fögur sjón að sjá sólina skína á steininn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sunnlenskt regn og lífsins umhleypingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.