Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 32
Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran,
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó-
leikari og Trausti Jónsson veður-
fræðingur koma fram á fyrstu sum-
artónleikum Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar á þessu ári sem haldnir
verða annað kvöld kl. 20.30. Tón-
leikarnir eru helgaðir elstu íslensku
einsöngslögunum og átti Trausti
hugmyndina að tónleikunum og
flytur inngangsorð.
Helgaðir elstu íslensku
einsöngslögunum
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 182. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Birnir Snær Ingason skoraði sigur-
mark Vals úr síðustu spyrnu leiksins
þegar Íslandsmeistararnir unnu HK
2:1 í úrvalsdeild karla í fótbolta í
gærkvöld. Með sigrinum komst Val-
ur upp í 6. sæti en liðið er enn tíu
stigum frá toppliði KR sem á auk
þess leik til góða. Stjarnan er í 3.
sæti eftir sigur á ÍBV og Fylkir vann
mikilvægan sigur á KA. »26
Birnir Snær bjargaði
Íslandsmeisturunum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fjósið á Hlíðarenda var formlega
opnað í maí í fyrra eftir gagngerar
endurbætur. Að sjálfsögðu ræður
Gunnar á Hlíðarenda þar ríkjum,
stundum kallaður fjósameistarinn
eða fjósi, en hann heitir fullu nafni
Gunnar Kristjánsson. „Það er ekki
slæmt að vera á launum við að horfa
á fótbolta með öðru,“ segir Valsar-
inn síkáti.
Þótt Fjósið sé fyrst og fremst fé-
lagsheimili Vals og opið í kringum
alla meistaraflokksleiki Vals í körfu,
handbolta og fótbolta karla og
kvenna er vinsælt að leigja það fyrir
alls kyns veislur, fundi og ráð-
stefnur enda hægt að vera með um
100 manns í sæti og standandi mót-
tökur fyrir allt að 200 manns. „Það
er enginn formlegur afgreiðslutími
en ég miða við að vera alltaf á staðn-
um frá klukkan fimm á daginn,
nema óskað sé eftir aðstöðunni fyrr,
og það er alltaf hægt að ná í mig,“
segir Gunnar. Fálkarnir, sem
styrkja barna- og unglingastarf
Vals, grilla gjarnan fyrir leiki og
menn ræða málin í Fjósinu fyrir
leik, í hálfleik og eftir leik. „Svo
horfum við á leiki í enska fótbolt-
anum og Evrópuleiki og til dæmis
komust færri að en vildu þegar við
sýndum beint útileik Vals á móti
Rosenborg í Meistaradeildinni í
fyrra.“
Glæsilegur staður
Kristján Ásgeirsson arkitekt
hannaði staðinn, vel hefur tekist til
við endurgerð Fjóssins og Gunnar
smellpassar inn í innréttinguna rétt
eins og annað á staðnum. Hann seg-
ist reyndar ætla að taka sér vikufrí í
sumar. „Ég fann viku þar sem engir
leikir eru í gangi, en svo er Sigurður
Haraldsson alltaf boðinn og búinn
að leysa mig af þegar á þarf að
halda.“ Hann segir að álagið sé mest
í kringum leiki og þá bætist sjálf-
boðaliðar í starfsmannahópinn. „Það
er enginn hörgull á sjálfboðaliðum
og til dæmis hafa þjálfararnir Óskar
Bjarni Óskarsson og Dagur Sig-
urðsson verið duglegir á posanum –
þeim finnst sport að hjálpa til.“
Gunnar segir að til að byrja með
hafi hann rennt blint í sjóinn.
„Fyrsta kvöldið seldist allt upp,“
rifjar hann upp. „Það var líka eini
sólardagurinn í fyrrasumar en nú er
ég reynslunni ríkari.“
Gunnar er lærður framreiðslu-
maður og með meistarapróf í hótel-
og veitingahúsastjórnun frá háskóla
í Flórída í Bandaríkjunum. Hann
hefur komið víða við í faginu frá því
hann var fyrsti framkvæmdastjóri
Hard Rock Café á Íslandi, hefur
rekið hótel og veitingastaði í nær 40
ár. Hann og Lárus Loftsson hafa
séð um veitingaþjónustu á heima-
leikjum Vals í fótboltanum í sjálf-
boðaliðavinnu í mörg ár og þegar
honum var boðið að taka við rekstri
Fjóssins þurfti hann ekki að hugsa
sig um lengi. „Þetta er draumastarf
og algjör forréttindi að starfa við
áhugamálið,“ segir hann.
Morgunblaðið/Hari
Allir velkomnir Framreiðslumaðurinn Gunnar á Hlíðarenda Kristjánsson ræður ríkjum í fjósinu.
Gunnar á Hlíðarenda
er reynslunni ríkari
Fjósið í endurnýjun lífdaga og sagan uppi um alla veggi
Eftir að hafa mistekist það í ellefu
leikjum á síðustu 24 árum tókst
Svíþjóð loks að leggja Þýskaland
að velli í fótbolta kvenna á heims-
meistaramótinu í
Frakklandi um
helgina. Svíar,
sem verða and-
stæðingar Íslands
í undankeppni
næsta stórmóts,
eru þar með komnir
í undanúrslit móts-
ins. Holland er sömu-
leiðis komið í undan-
úrslit, í fyrsta sinn frá
upphafi, og báðar þjóð-
ir hafa nú tryggt sér
sæti á Ólympíuleikunum
sem fram fara í Tókýó á
næsta ári. »25
Verðandi mótherjar
Íslands í undanúrslit