Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 9. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  159. tölublað  107. árgangur  SPILAR MEÐ ÞREMUR HEIMS- MEISTURUM LJÓÐ UM KONUR Í KIRKJUGARÐI VINNUR MEÐ KRAFTA VATNAJÖKULS DAGLEGT LÍF 11 HALLDÓR Á HÖFN 28DAGNÝ LEIKUR Í USA 25 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Vísindamenn í árlegum jarðfræði- leiðangri til Surtseyjar hyggjast búa til þrívíddarlíkan af Surtsey í því skyni að fylgjast með rofi eyjunnar með nákvæmum hætti. Í þessu skyni verða tveir drónar með í för að þessu sinni, annar þeirra vængjaður og forritaður til þess að fljúga sjálfur fram og aftur um eyjuna. Kristján Jónasson, jarðfræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands og leiðangursstjóri, segir að með þess- um hætti megi fylgjast betur með þróuninni en ef notast er við hefð- bundnar loftmyndir. Ný loft- ljósmyndastofa Náttúrufræðistofn- unar geri þetta kleift. Nokkur fjöldi vísindamanna verð- ur með í för en meðal annars verður jarðhiti mældur og tilraunir gerðar við borholur sem í eynni eru. Þá verða sérfræðingar Landmælinga Íslands með í för og munu mæla fastmerki í eyjunni og tengja við ís- lenska landshnitakerfið. »2 Mynda Surtsey með drónum  Vísindamenn kortleggja eyjuna og búa til þrívíddarlíkan Vísindi Surtsey vel vöktuð af vís- indamönnum á hverju ári. „Ég er bara auðmjúkur og þakklátur fyrir þetta,“ sagði Björgvin Halldórsson sem í gærkvöldi fékk fyrstur íslenskra listamanna stjörnu í gangstéttina fyrir framan Bæjarbíó í Hafnarfirði. Athöfnin markaði upphaf bæjarhátíðarinnar Hjartað í Hafn- arfirði sem stendur út þessa viku. Björgvin og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri afhjúpuðu frægðar- stjörnuna en verkið var unnið hjá S. Helgasyni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Björgvin fyrstur á frægðarstéttina Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Niðurstöðu Bankasýslu ríkisins um hvort selja eigi ríkisbankana, Íslandsbanka og Landsbanka, er að vænta á allra næstu vikum. Þetta segir Lárus L. Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu rík- isins. Vinna geng- ur samkvæmt áætlun en skammt er þar til gefin verður út ítarleg skýrsla um stöðu á bankamarkaði eða tillaga um söluferli bank- anna. Að sögn Lárusar er mik- ilvægt að stjórn- völd verði í kjöl- farið tilbúin að grípa til nauðsyn- legra aðgerða. „Þetta tekur allt tíma og þá ekki síst fyrir stjórnvöld sem þurfa að vera reiðubúin að stíga þau skref sem þarf að stíga. Við förum ekki út í það að vinna umfangsmikla tillögu án þess að vita að menn séu að komast á þann stað að hlíta þeirri tillögu. Sér- staklega ef hún yrði í þá átt að selja bankana,“ segir Lárus sem kveðst sann- færður um að bankarnir séu betri sölu- vara nú en á toppi hagsveiflunnar fyrir þremur árum. „Að mínu mati eru bankarnir tilbúnari til sölu núna þannig að við erum ekki bú- in að missa af neinu í þessum efnum held- ur þvert á móti,“ segir Lárus. Að hans sögn miðar áætlun Bankasýslunnar, verði niðurstaðan sú að selja eigi bankana eða hluta þeirra, við að hægt sé að hefja sölu- ferlið á þessu ári og ljúka því árið 2020. Bankar nú betri söluvara  Söluferli gæti verið lokið innan tveggja ára Ríkisbankar » Ákvörðunar um framtíð ís- lensku ríkisbank- anna að vænta á næstu vikum. » Komi fram til- laga um söluferli miðar áætlun Bankasýslu rík- isins við að hægt verði að ljúka því á næsta ári. MSöluferli geti lokið … »12  Tíu börn á aldrinum 5 mán- aða til 12 ára hafa á undan- förnum dögum verið greind með sýkingu af völd- um E. coli- bakteríunnar. Eiga börnin öll það sameiginlegt að hafa verið á ferðinni í Bláskógabyggð á síðustu vikum. Tvö börn voru lögð inn á Barnaspítala Hringsins með nýrna- bilun, annað hefur verið útskrifað og hitt er á batavegi. Embætti landlæknis og Heil- brigðiseftirlit Suðurlands ráðgera að senda frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem mögulega verður upp- lýst um smitvaldinn. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins berast böndin að einum fjölsóttum stað í sveitarfélaginu en yfirvöld hafa ekki viljað upplýsa um hvaða stað er að ræða fyrr en nánari nið- urstöður og rannsóknir liggja fyr- ir. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði við mbl.is í gær að til- kynning yrði send út í dag að lokn- um samráðsfundi. Taldi Þórólfur líklegast að smitið kæmi frá mat- vælum eða dýrum en búið er að taka sýni á nokkrum stöðum. Böndin berast að einum stað í Bláskógabyggð Þórólfur Guðnason  Fækkað verð- ur í fram- kvæmdastjórn Landspítalans að sögn Páls Matt- híassonar for- stjóra, sem boðað hefur hagræð- ingu í rekstri spítalans. Spurð- ur hvort starfs- fólki verði fækk- að segir Páll að fyrst og fremst verði starfsmannavelta nýtt þar sem það sé mögulegt. Nánara fyrirkomulag hagræð- ingarinnar liggur fyrir í ágúst, en ljóst er að hún tekur til yfirstjórnar spítalans. »11 Fækka í yfirstjórn vegna hagræðingar Páll Matthíasson Íbúum fjölgaði lítilsháttar í öllum landshlutum, nema á Vestfjörðum, frá 1. desember 2018 til 1. júlí 2019. Á Vestfjörðum fækkaði íbúum um níu á þessu tímabili. Fjölgun íbúa varð hlutfallslega mest á Suður- landi. Þar fjölgaði um 600 eða 2%. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölg- aði um 2.396 eða um 1,1%. Þetta kemur fram hjá Þjóðskrá Íslands. Reykvíkingum fjölgaði um 1.161 á tímabilinu eða um 0,9%. Næst komu Kópavogur með fjölgun upp á 473 íbúa (1,3%) og Mosfellsbær þar sem fjölgaði um 377 íbúa (3,3%). Sé litið til alls landsins þá fjölg- aði íbúum Skagabyggðar hlutfalls- lega mest eða um 10,2%. Þar fjölg- aði íbúum úr 88 í 97. Íbúum fækkaði í 20 af 72 sveitarfélögum landsins á tímabilinu. Af 72 sveit- arfélögum eru 39 með færri en 1.000 íbúa. Íbúum fækkaði í 16 þessara sveitarfélaga. Alls eru 23 sveitarfélög með 1.000-5.000 íbúa hvert. Á tímabilinu fækkaði í fjór- um þeirra. » 14 Fjölgun varð í flest- um landshlutum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.