Morgunblaðið - 09.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019
Jón Magnússon lögmaður hann-ar dæmisögu og kannar hvort
hún falli að íslenskum lögum. Það
skuggalega er að hún smell-
passar:
Þegar Múhameð Páll Omar binLaden kom til landsins og
bað um alþjóðlega
vernd neitaði hann
að vera skráður
karlmaður og
sagðist vera kona.
Embættismað-urinn sagði:
„Þú ert karlmaður skv. skilríkjum
auk þess ertu karlmannlegur í út-
liti og með mikið skegg. Þú ert
karl og ég skrái þig þannig.“
Þá kæri ég þig, sagði Múham-eð. Gaman væri að sjá það,
sagði embættismaðurinn.
Seinna um daginn lagði Mú-
hameð fram kæru þar sem brotið
hefði verið gegn kynrænu sjálf-
ræði hans og sagði í kærunni að
brotið varðaði við 10. gr. laga frá
Alþingi þ. 18. júní 2019 um kyn-
rænt sjálfræði en þar segir:
„Einstaklingur sem sótt hefur
um alþjóðlega vernd hér á landi
getur óskað eftir því að í
skráningarskírteini sbr. 34. gr.
laga um útlendinga nr. 80/2016
verði kyn hans skráð í samræmi
við kynvitund hans enda þótt það
samræmist ekki skilríkjum hans
frá heimaríki.“
Einboðið er að Múhameð vinnimálið og verði skráð kona
þar sem hann segir að kynvitund
sín sé sú að hann sé kona.
Með lagafrumvarpi um kyn-rænt sjálfræði greiddu 45
þingmenn atkvæði þ.á m. allir
ráðherrar. Enginn greiddi at-
kvæði á móti.“
Jón Magnússon
Vita kjósendur
þetta?
STAKSTEINAR
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ríkisstjórnin áformar lagasetningu
um landshöfuðlénið .is.
Fram kemur í samráðsgátt ríkis-
stjórnarinnar að hér á landi er að-
eins eitt fyrirtæki, ISNIC hf., sem
sinnir skráningu léna undir lands-
höfuðléninu .is samkvæmt heimild
frá ICANN í Bandaríkjunum. Á ár-
unum 2010-2012 hafi verið lögð fram
þrjú frumvörp um landshöfuðlénið
.is.sem ekki náðu fram að ganga en
með þeim átti gera starfsemi ISNIC
háða starfsleyfi.
Í áformum samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneytisins sem kynnt
eru í samráðsgáttinni er lagt til að
samið verði nýtt frumvarp um lands-
höfuðlénið .is og að settar verði
skýrar lágmarksreglur um skrán-
ingu léna undir landshöfuðléninu .is.
Líta verði á landshöfuðlénið .is sem
mikilvæga innviði fyrir íslenskt sam-
félag og því verði að telja bæði tíma-
bært og nauðsynlegt að sett verði
lágmarks lagaumgjörð um skráning-
arstofu landshöfuðlénsins .is.
Hvergi minnst á lén
Orðrétt segir um ástæður þess að
gildandi lög og reglur duga ekki til:
„Hér á landi er ekki að finna heild-
stæða löggjöf um landshöfuðlénið
.is. Þá er hvergi minnst á lén í ís-
lenskri löggjöf. Í dag byggist fram-
kvæmdin á reglum sem ISNIC hf.
hefur sett. Með tilliti til öryggissjón-
armiða, neytendaverndar og þess að
.is hefur áhrif á ímynd Íslands út á
við þá þykir nauðsynlegt að setja í
lög helstu reglur er varða landshöf-
uðlénið og skráningu léna undir
því.“
Þá segir um markmið lagasetn-
ingarinnar að með frumvarpinu sé
verið að setja skýrar reglur um
skráningu léna undir landshöfuðlén-
inu .is og mæla fyrir um almenna
heimild til að starfrækja skráning-
arstofu í því augnamiði að bæta ör-
yggi, gæta að jafnræði og auka
traust. Þá er gert ráð fyrir að mæla
fyrir um úrlausn deilumála.
Loks sé markmið með frumvarp-
inu að koma á fót vettvangi fyrir
ólíka aðila, svo sem stjórnvöld,
tæknisérfræðinga, notendur nets-
ins, fyrirtæki og netsamfélagið, til
að hittast og ræða um lénamál á Ís-
landi og framþróun netsins. Gert sé
ráð fyrir því að sett verði á fót fag-
ráð um lénamál með fyrirmynd í
regluverki Evrópusambandsins um
.eu lénið.
Lög um landshöfuð-
lén auka öryggi
Ríkisstjórnin áformar lagasetningu
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hefur verið ráðinn í
nýtt starf aðstoðarbankastjóra Arion banka. Þetta
var tilkynnt í gær en nýverið var Benedikt Gíslason
ráðinn bankastjóri í stað Höskuldar H. Ólafssonar.
Ásgeir er lögfræðingur að mennt en hefur frá
árinu 2012 gegnt störfum á vettvangi Kviku banka,
síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs fyrir-
tækisins.
Áður starfaði hann hjá LOGOS lögmannsþjónustu
í Reykjavík og London og Straumi fjárfestingar-
banka. Ásgeir og Benedikt áttu báðir sæti í fram-
kvæmdahópi um losun fjármagnshafta árið 2015.
Frá Kviku til Arion
Tekur við stöðu aðstoðarbankastjóra
Ásgeir Helgi
R. Gylfason
Vátryggingafélag Íslands sendi eftir
lokun markaða í gær frá sér tilkynn-
ingu um að hagnaður á öðrum árs-
fjórðungi verði mun meiri en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Þannig sýni
drög að árshlutauppgjöri að í stað
814 milljóna króna hagnaðar, sem
afkomuspá gerði ráð fyrir, stefni í að
hagnaðurinn nemi 1.400-1.450 millj-
ónum króna. Segir félagið að hinn
stóraukni hagnaður frá fyrri áætlun-
um sé til kominn vegna hærri ávöxt-
unar á fjáreignum félagsins á tíma-
bilinu.
Stefnir í 3,3 milljarða hagnað
Miðað við fyrirliggjandi forsendur
áætlar félagið að hagnaður ársins
verði fyrir skatt um 3.300 milljónir
króna. Hagnaður VÍS á öðrum árs-
fjórðungi síðasta árs nam 552 millj-
ónum króna. Hagnaður félagsins
fyrir skatt á árinu 2018 nam 2.375
milljónum króna.
Stefnir í mun meiri
hagnað hjá VÍS