Morgunblaðið - 09.07.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.07.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fækkað verður í framkvæmda- stjórn Landspítalans að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra Landspít- alans. Í pistli hans á vef spítalans sl. fimmtudag kom fram að þrátt fyr- ir að fjárframlög til heilbrigðis- þjónustunnar hefðu aukist væru þau ekki í samræmi við þá hratt vaxandi þjónustuþörf sem spítalinn þyrfti að mæta. Því væru hafnar aðgerðir til þess að draga úr rekstrarkostn- aði. Í þessu felst m.a. að ný verkefni verði ekki hafin nema fjármögnun þeirra sé tryggð, dregið verði úr ferðakostnaði og yfirvinna verði tek- in sérstaklega til skoðunar. Þá verði ekki ráðið í nýjar stöður nema þar sem brýn klínísk þörf krefji. Spurður hvort í aðgerðunum felist fækkun starfsfólks segir Páll að erf- itt sé að segja til um það. „Við ætl- um að sýna aðhald og reyna að nýta starfsmannaveltu í störfum sem ekki lúta beint að klíník, þ.e. þjón- ustu við sjúklinga. Á sama tíma er- um við áfram að berjast við að fá fagfólk, sérstaklega í hjúkrun, inn í klíníska þjónustu þar sem víða bráð- vantar,“ segir Páll. Lengi hafi verið vitað að mögulegt sé að draga úr breytilegri yfirvinnu starfsfólks við hjúkrun með því að manna betur. „Þá þarf ekki að borga fólki fyrir að sinna veikum einstaklingum með yfirvinnu ef það er hægt að manna með fullnægjandi hætti. Það er ódýrara, það vitum við og öruggara, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk,“ segir hann. Spurður hvort starfsfólki verði fækkað á sviðum þar sem ekki megi hagræða með nýráðningum segir hann að fyrst og fremst sé ráðgert að nýta starfsmannaveltu á þeim sviðum þar sem það sé mögulegt. Fækkað í yfirstjórn Fram kemur í pistli Páls að viss tækifæri séu til hagræðingar í end- urröðun skipurits spítalans. Af hálfu framkvæmdastjórnar sé þessi vinna þegar hafin og hún muni halda áfram í sumar. Spurður hvort þetta sé til marks um að fækkað verði í yf- irstjórn spítalans segir Páll að svo sé. „Það er enn í vinnslu hvað þetta felur í sér, en þetta beinist sérstak- lega að framkvæmdastjórn,“ segir Páll sem segir aðspurður að fækkað verði í framkvæmdastjórninni, en í henni sitja fimmtán manns að Páli meðtöldum. Spurður hvort spítalinn þarfnist aukins fjár frá ríkinu segir Páll að umfang verkefnanna vaxi og fjár- þörf þar með. „Á þessum tímapunkti erum við hins vegar að beina sjónum að okkar innri rekstri. Sérstaklega í því sem snýr ekki beint að þjónustu við sjúklinga. Síðan gerum við ráð fyrir að eiga samtal við stjórnvöld í framhaldinu,“ segir hann. Fækka í framkvæmdastjórn LSH  Hagræðing í yfirstjórn Landspítalans  Reyna að nýta starfsmannaveltuna  Enn er þörf á fleirum í hjúkrun  Fé aukið, en umfang verkefnanna hefur vaxið Morgunblaðið/Árni Sæberg LSH Í pistli forstjórans kom fram að hagræðing gæti falist í endurröðun skipurits. Fækkun í framkvæmdastjórn verður hluti hagræðingarinnar. Páll Matthíasson Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Dæmi eru um að konur sem leita til Landspítala vegna fósturláts eða meðgöngurofs verði fyrir áfalli á biðstofu kvennadeildarinnar, sem nú er sameiginleg öllu kvennadeildar- húsinu, en þar eru m.a. kvenlækn- ingadeild 21A og fósturgreiningar- deild. Konurnar þurfa því oft að bíða á biðstofunni með konum á leið í óm- skoðun á meðgöngu og eru dæmi um að þær hitti þar kunningja og séu spurðar óþægilegra spurninga um komu þeirra á spítalann. Þetta stað- festir Kristín Rut Haraldsdóttir, sérfræðiljósmóðir á fósturgreining- ardeild Landspítala. Kristín Rut segir að konum sem missa fóstur eða þurfa að taka ákvörðun um að fara í fóstureyðingu líði oftast ákaflega illa og að fólk á biðstofunni gangi stundum að því vísu að þær séu þungaðar þó að þar séu konur í ýmsum erindagjörðum. „Þetta er svo erfiður tími, maður vill bara alls ekki hitta neinn og hvað þá að einhver óski manni til hamingju eða eitthvað,“ segir hún. Breytt vegna plássleysis Kristín Rut segir að áður hafi sér- stök biðstofa verið fyrir tilfelli af þessu tagi en vegna plássleysis hafi móttökunni verið breytt og hún gerð sameiginleg. Var nýja móttöku- svæðið tekið í notkun í október 2015 en nýja móttakan var hönnuð með það í huga að skapa róandi and- rúmsloft á kvennadeildinni en Krist- ín Rut segir að margt hafi verið orð- ið gamalt og lúið á gömlu biðstofunum. Segir hún að fyrir sameininguna hafi konur sem misstu fóstur farið inn um annan inngang og ekki þurft að bíða með þunguðum konum á leið í fóstur- skoðun. „En við höfðum áhyggjur af því að svona myndi gerast, þetta er svo lít- ið land að þetta getur verið mjög óheppilegt. Konunum finnst vont að sitja frammi,“ segir Kristín Rut. „Þú lendir þarna hlið við hlið, önnur með gleðifréttirnar og hin með sorgar- fréttirnar. Svo hittir maður kannski skólasystur úr menntaskólanum. Þetta er mjög erfitt.“ Alltaf einhver kostnaður á móti Kristín Jónsdóttir, yfirlæknir á kvennadeild Landspítala, segir að það hafi komið til umræðu að sam- eining móttökunnar gæti valdið óþægindum en segir að önnur lausn hafi ekki fundist vegna plássleysis. „Þetta var í raun bara plássleysið. Við þurftum fleiri skoðunarstofur til að hlutir gætu gengið hraðar fyrir sig. Konur þurftu oft að bíða lengi eftir göngudeildartímum og við vor- um að reyna að koma til móts við það að geta sinnt þeim hraðar og betur. En það verður alltaf einhver kostnaður á móti. Húsnæðið er ekk- ert stærra en það er,“ segir Kristín. „Það mun væntanlega ekki verða breyting á fyrr en við fáum nýjan spítala. Við bíðum bara spennt eftir því. Þá verður töluverð uppstokkun en þangað til erum við bundin af því húsnæði sem við erum í.“ Þurfa að bíða með konum á leið í ómskoðun  Biðstofurnar voru áður aðskildar EPA Fósturlát Konur sem missa fóstur upplifa oft á tíðum mikla sorg. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Katla jarðvangur á Suðurlandi hef- ur opnað sitt fyrsta upplýsinga- og fræðslusetur. Gestastofan er í húsi sem áður hýsti sýningu um eldgosið í Eyjafjallajökli og stendur við þjóð- veginn, skammt frá bænum Þor- valdseyri undir Eyjafjöllum. Berglind Sigmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Kötlu jarðvangs, seg- ir að gestastofan sé jafnframt höfuðstöðvar jarðvangsins. Þarna komist starfsmennirnir í beint sam- band við ferðafólk og veiti fræðslu um jarðvanginn. Auk einstaklinga sem koma við í gestastofunni er tek- ið á móti hópum. 80 jarðvætti í jarðvangnum Jarðvangurinn nær yfir þrjú sveitarfélög á Suðurlandi, Rang- árþing eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. Þetta er með allra fjölbreyttustu og mest jarð- fræðilega spennandi svæðum heimsins. Innan jarðvangsins eru um 80 jarðvætti sem skipast í þrjá flokka, jarðfræði, menningu og flokk þar sem jarðfræði og menning koma saman. Gestir fá upplýsingar um staði til að skoða og upplifa, gönguleiðir og fleira. Starfseminni svipar um margt til starfsemi þjóðgarða þótt hugmyndafræðin sé ólík. Jarð- vangar byggja á styrkleika svæð- anna, bæði náttúru og mannauði. „Markmið okkar er að vinna með einstaklingum og fyrirtækjum á svæðinu og gefa þeim kost á að kynna sig,“ segir Berglind. Staðsetningin er ákveðin til reynslu í ár og segir Berglind að sumarið verði notað til að móta starfsemina. „Okkur langar til að leggja áherslu á loftslagsmálin, til dæmis áhrif hlýnunar á jöklana sem eru mikilvægir í jarðvangnum. Eng- inn er að hugsa um þá og við tökum það hlutverk að okkur,“ segir hún. Kaffisala og verslun Gestastofan er undir Eyja- fjallajökli. Það kemur því ekki á óvart að flestir erlendu gestanna sem þangað leggja leið sína spyrja um jökulinn. Hvernig þeir geti kom- ist í snertingu við hann. Berglind segir að eitthvað af gögnum Eyja- fjallajökulssýningarinnar nýtist áfram í gestastofunni þótt sýningin sjálf hafi verið tekin niður. Í gestastofunni er kaffisala ásamt verslun með vörur úr héraði. Búið er að koma upp salernum og verið er að stækka bílastæðin. Þá er búið að loka vinsælu bílastæði við af- leggjarann heim að Þorvaldseyri vegna slysahættu og segir Berglind að ætlunin sé að beina fólki að stæð- unum við gestastofuna. Þá þarf að vinna að úrbótum á merkingum húss og stæða. Katla jarðvangur opnar gestastofu  Katla jarðvangur setur upp upplýsinga- og fræðslusetur í sýningarhúsi undir Eyjafjöllum og þar eru höfuðstöðvarnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Starfsfólk Berglind Sigmundsdóttir framkvæmdastjóri, Jóhannes Marteinn Jóhannesson fræðslufulltrúi, Hörður Bjarni Harðarson, umsjónarmaður jarðvangsskóla, og Leszek Kaczorowski starfsmaður halda á fána jarðvangsins. Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 7.900 Str. 36-52 • Fleiri litir Ný sending

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.