Morgunblaðið - 09.07.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Vélar fyrir
atvinnumenn
og
handverksfólk
Yfir 40 ára frábær
reynsla á Íslandi
Rennibekkur
Lata
Verð 158.300
Opið virka daga 9-18
laugardaga 10-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Spónsuga 2 stærðir
Verð frá 89.800
Slípivél BTS800
Verð 38.490
Borabrýni
DBS800
Verð 11.110
Súluborvél
DP16
Verð 53.360
Smergill BG150
Verð 19.960
Rennibekkur DMT 460
Verð 69.340
Iðnaðarsuga
HA1000
Verð 27.490
Bandsög
Basa1
Verð frá 54.660
Slípivél
OSM100
Verð 52.920
Borðsög TS310
Verð 79.800
Loftpressa HC250
Verð 19.980
Borðsög HS80
Verð 34.210
Hefill
2 stærðir
Verð frá 64.290
Tifsög 2 stærðir
Verð frá 22.620
Slípivél
OSM600
Verð 59.800
Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár
AFP
Forverðir í Rijksmuseum í Amsterdam virða hér fyrir
sér hið fræga verk Rembrandts, „Næturvaktin“, en við-
gerðir hófust á því í gær. Stórt glerbúr var reist utan
um málverkið, svo að almenningur geti fylgst með for-
vörðunum að störfum, en fjörutíu ár eru liðin síðan
verkið var síðast tekið til forvörslu.
Gera við verkið fyrir opnum tjöldum
Stjórnvöld í Bretlandi leita nú ákaft
að þeim sem lak á netið skýrslum frá
sendiráði sínu í Washington, þar sem
meðal annars kom í ljós að Sir Kim
Darroch, sendiherra Bretlands í
Bandaríkjunum, sagði Donald
Trump Bandaríkjaforseta vera „van-
hæfan“ og „óöruggan“ í starfi.
Upplýsingalekinn olli úlfúð í Bret-
landi, en brot úr skýrslunum voru
birt í breska slúðurblaðinu Mail on
Sunday um helgina.
Trump svaraði
fyrir sig í gær og
sagði að stuðn-
ingsmenn sínir í
ríkisstjórn væru
ekki „aðdáendur“
Darrochs og að
hann hefði ekki
sinnt hagsmunum
Bretlands vel.
Jeremy Hunt,
utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði að sá sem
hefði lekið skjölunum mætti eiga von
á „alvarlegum afleiðingum“, en tals-
maður Theresu May forsætisráð-
herra varði Darroch og sagði hann
bara hafa gegnt þeirri skyldu sinni
að gefa sitt „heiðarlega“ mat á stöðu
mála. Hins vegar var tekið sérstak-
lega fram að May væri ósammála
mati Darrochs á Trump. Eftirmaður
May mun skipa nýjan sendiherra í
janúar næstkomandi. sgs@mbl.is
Leitað að uppruna lekans
Sendiherra Bretlands kallaði Trump „vanhæfan“
Kim
Darroch
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
staðfesti í gær að Íranar hefðu rofið
skilmála samkomulags síns við al-
þjóðasamfélagið frá 2015 með því að
auðga úran umfram 3,67%, sem eru
þau mörk sem samkomulagið kveður
á um. Tilkynntu Íranar fyrr um dag-
inn að þeir hefðu auðgað úran upp í
hlutfallið 4,5% en úran sem nýtt er í
kjarnorkuvopn er auðgað upp að um
90%. Vöruðu stjórnvöld í Teheran
jafnframt ríki Evrópusambandsins
við afleiðingum þess að grípa til
refsiaðgerða.
Behrouz Kamalvandi, forstöðu-
maður írönsku kjarnorkumálastofn-
unarinnar, sagði að 4,5% markið
væri nóg til þess að mæta þörfum Ír-
ans varðandi orkuframleiðslu, og gaf
til kynna að Íranar myndu halda sig
þar næstu misserin, frekar en að
hækka hlutfallið nær þeim 90% sem
þarf í kjarnorkuvopn.
Íranar rufu fyrr í mánuðinum
ákvæði samningsins um leyfilegt
magn auðgaðs úrans, og hótaði utan-
ríkisráðuneyti landsins því á sunnu-
daginn, að ef lausn yrði ekki fundin á
deilunni innan tveggja mánaða gætu
Íranar „stigið þriðja skrefið“, án
þess þó að geta hvað það yrði. Hass-
an Rouhani, forseti Írans, sagði hins
vegar í maí síðastliðnum að Íranar
gætu dregið sig alveg úr samkomu-
laginu, nema Bandaríkjastjórn kæmi
aftur að því og létti á refsiaðgerðum
sínum.
Hafa þungar áhyggjur
Evrópusambandið lýsti yfir
„þungum áhyggjum“ sínum vegna
aðgerða Írana og hvöttu stjórnvöld í
Teheran til þess að snúa við blaðinu
og hlíta á ný ákvæðum kjarnorku-
samkomulagsins frá 2015. Þrjú af að-
ildarríkjum sambandsins, Bretland,
Frakkland og Þýskaland, undirrit-
uðu það af hálfu alþjóðasamfélags-
ins, og hafa þau öll hvatt Írana til
þess að hugsa sinn gang.
Rússar og Kínverjar, sem einnig
eru aðilar að samkomulaginu, lýstu
einnig yfir áhyggjum sínum af stöðu
mála, en þeir sögðu Bandaríkja-
stjórn bera ábyrgðina þar sem hún
hefði beitt Írana fantabrögðum sem
hefðu neytt þá til aðgerða.
Staðfesta brot á
samkomulaginu
Íranar auðga
úran umfram
3,67%-markið
AFP
Kjarnorkuver Íranar hafa rofið
fleiri skilmála samkomulagsins.