Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.07.2019, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það vakti at-hygli fyrirhelgi þegar stjórnvöld í Gí- braltar tilkynntu að þau hefðu stöðv- að risastórt olíu- flutningaskip Írana. Rök- studdur grunur leikur á að það hafi verið að flytja hráolíu frá Íran til olíuhreinsistöðvar á vegum stjórnvalda í Sýrlandi. Áfangastaðurinn væri svo sem ekki í frásögur færandi, fyrir utan að Evrópusambandið og fleiri hafa lagt innflutnings- bann á olíu til sýrlenskra stjórnvalda í refsiskyni fyrir grimmilegt framferði þeirra í borgarastríðinu sem geisað hefur bróðurpartinn af þessum áratug. Ekki þarf að koma á óvart að Íranar skuli hafa reynt að koma hráolíu til Sýrlands. Refsiaðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran hafa stórskaðað olíu- útflutninginn, auk þess sem Ír- anar hafa notfært sér ástandið í Sýrlandi til þess að koma sér upp bækistöðvum þar, í næsta nágrenni við höfuðóvininn Ísr- ael. Þá er þetta framferði í samræmi við fyrri athafnir Ír- ana, sem nýttu sér það fjár- magn sem kjarnorkusam- komulagið frá 2015 færði þeim til þess að kaupa sér ítök og völd og ýta undir ófrið vítt og breitt um Mið-Austurlönd en ekki til að hressa upp á dapra stöðu í efnahagsmálum innan- lands. Viðbrögð íranskra stjórn- valda við aðgerðum Gíbraltar- stjórnarinnar og Breta hafa einnig verið athyglisverð. Þau halda því fram að olíuflutn- ingaskipið hafi verið á al- þjóðlegu hafsvæði, en hóta því um leið að verði skipinu ekki sleppt sé það heilög skylda ír- anskra sérsveita að grípa bresk olíuflutningaskip í hefndarskyni. Þá er því haldið fram að skipið hafi verið tekið að fyrir- mælum Bandaríkjanna, sem stjórnvöld í Gíbraltar harð- neita. En sú kenning kemur ekki á óvart því að Íranar hafa síðustu daga verið að brjóta gegn kjarnorkusamkomulag- inu, fyrst með því að safna of miklu af auðguðu úrani og svo með því í gær að fara yfir þau mörk sem þeim er heimilt að auðga úranið. Írönsk stjórn- völd vita því upp á sig skömm- ina í þeim efnum og halda upp- teknum hætti að kenna Bandaríkjunum um og hóta öðrum þjóðum öllu illu. Allt styður þetta að núver- andi stjórnvöldum í Teheran sé einfaldlega ekki treystandi til þess að standa við gerða samn- inga og að leiðin til að draga úr hættunni sem af þeim stafar sé að mæta þeim af fullri festu. Og raunar mátti það vera al- gjörlega ljóst af framferði landsins á þeim fjörutíu árum sem núverandi stjórnvöld hafa haldið þar um taumana. Framferði og við- brögð Írana segir sína sögu um trú- verðugleikann} Gripnir í Gíbraltarsundi Borgaryfirvöldmega hvergi sjá lausa spildu eða grænan blett í borginni án þess að vilja þétta. Stefnan um þétt- ingu byggðar er rekin áfram af miklum ofsa, eins og sjá má á áformum um byggingu tuga íbúða við Bú- staðaveginn, þar sem áður var aðeins gert ráð fyrir fáeinum íbúðum. Þar er íbúum svarað með því að þeir geti ferðast á reiðhjólum fyrst ekki er pláss fyrir bíla og að tekið hafi verið tillit til athugasemda þeirra með því að fækka um tvær íbúðir – breyting sem engu breytir. Síðustu daga hafa borgar- búar svo fengið að fylgjast með borgaryfirvöldum hamast við að hefja þéttingu í Elliðaár- dalnum. Meðal þess sem haldið er fram til stuðnings áform- unum er að sá hluti Elliðaár- dalsins sem samþykkt hefur verið að byggja á sé í raun ekki Elliðaárdalurinn og auk þess eyðimörk! Staðreyndin er sú að Elliðaárdal- urinn er gríð- arlega mikilvægt útivistarsvæði borgarbúa með fjölbreyttri og fal- legri náttúru. Borgir eiga að verja slíkar náttúruperlur í stað þess að skerða þær og rýra. Og borgaryfirvöld í Reykjavík mættu leiða hugann að því að borgir batna ekki með því að þrengja stöðugt að íbúunum, auka byggingamagn og fækka opnum og grænum svæðum. Þvert á móti eru opin og græn svæði mikils virði fyr- ir þá sem búa í borg. Borgaryfirvöld ættu einnig að hlusta á þá sem gagnrýnt hafa þau vinnubrögð að af- greiða svo stórt mál á lokuðum fundi borgarráðs að sumarlagi í stað þess að fara með þetta hefðbundna og opna leið í gegnum borgarstjórn. Það lýs- ir slæmri samvisku og styður við þá kröfu að fram fari íbúa- kosning um málið. Borgaryfirvöld ættu að verja opin og græn svæði í stað þess að gera lítið úr þeim} Atlaga að Elliðaárdal S tundum gleymist að þakka það sem vel er gert. Gunnar Bragi Sveinsson var ráðherra í ríkisstjórn undir for- ystu Framsóknarmanna árin 2013 til ’16. Björn Bjarnason hefur rakið skilmerkilega hvernig Gunnar Bragi sem utan- ríkisráðherra undirbjó feril 3. orkupakkans, m.a. með minnisblaði sem staðfestir áframhald- andi sjálfstæði Íslands í orkumálum. Jafnframt má minna á samning við Evrópu- sambandið um landbúnaðarmál sem var frá- genginn í tíð Gunnars Braga sem utanríkis- ráðherra árið 2015. Meginefni samningsins er að tollfrjálsir innflutningskvótar Íslands fyrir skyr og lambakjöt til sambandsins voru stór- auknir, auk nýrra kvóta fyrir aðrar kjötteg- undir. Jafnframt jukust gildandi tollfrjálsir kvótar til innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópusambandinu til Íslands. Einnig falla allir tollar nið- ur nema á jógúrt, smjörva og ís. Þessi samningur Gunnars Braga felur í sér mikla kjarabót fyrir neytendur, þegar áhrif hans koma fram. Ríkisstjórnin sem Gunnar Bragi sat í felldi líka niður hinn svonefnda sykurskatt sem vinstri stjórnin 2009-13 setti á og núverandi vinstri stjórn hyggst nú innleiða á ný. Allt hin bestu mál. Takk fyrir það. Samkvæmt nýlegri grein Gunnars Braga hafa viðhorf hans þó breyst nokkuð síðan hann var ráðherra. Til dæmis segir hann nú: „Spá fræðimanna um að sýkla- lyfjaónæmi eitt og sér verði stærri valdur að dauða en krabbamein eftir um þrjátíu ár virðist altént ekki ná þeirra athygli. Það mætti segja að hægt hefði verið að sjá þetta fyrir.“ Sú spurning hlýtur að vakna hvort þessi „spá fræðimanna“ kom eftir að utanríkisráðherrann gekk frá áðurnefndum samningi árið 2015. Jafnframt gleymir hann viðvörun formanns síns um bogfrymil í útlend- um mat, veiru sem „getur leitt til breytinga á hegðunarmynstri, þannig að menn hafa jafnvel velt upp þeirri spurningu og rannsakað hvort þetta kunni að breyta hegðun heilu þjóðanna“. Ekki kom fram í greininni að nýlegar rann- sóknir á íslensku kjöti sýna að shigatoxín- myndandi E. coli sé hluti af náttúrulegri ör- veruflóru íslenskra nautgripa og sauðfjár. STEC fannst í 30% sýna af lambakjöti og 11,5% sýna af nautgripakjöti. Bendir þingmað- urinn þó réttilega á að hagsmunir neytenda felast á endanum ekki í ódýrum vafasömum matvælum heldur heilbrigði og langlífi, en tekur ekki fram hvort dýr og vafasöm matvæli séu neytendum hagfelld. Athygli vekur að ráðherrann fyrrverandi vefengir sjón- armið heilbrigðis- og lýðheilsusérfræðinga sem hvetja til sykurskatts á sama tíma og hann gagnrýnir aðra sem eru ósammála þessum nýju álögum. Hann er þó samkvæmur sjálfum sér í sykurskattsmálinu, ólíkt hinum sem hér eru nefnd. Sérstaklega verður að fagna hræsnislausum varnaðar- orðum í greininni gegn aukinni áfengisneyslu. Takk fyrir þau. Benedikt Jóhannesson Pistill Tímarnir breytast og skoðanir með Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íbúum fjölgaði lítilsháttar í öll-um landshlutum, nema áVestfjörðum, frá 1. desember2018 til 1. júlí 2019. Á Vest- fjörðum fækkaði íbúum um níu á þessu tímabili. Fjölgun íbúa varð hlutfallslega mest á Suðurlandi á tímabilinu. Þar fjölgaði íbúunum um 600 eða 2%. Íbúum á höfuðborgar- svæðinu fjölgaði um 2.396 eða um 1,1% og íbúum á Suðurnesjum fjölg- aði um 508 eða 1,9%. Þetta kemur fram á heimasíðu Þjóðskrár Íslands. Reykvíkingum fjölgaði um 1.161 á tímabilinu og var það hlut- fallsleg fjölgun upp á 0,9%. Næst komu sveitarfélögin Kópavogur með fjölgun upp á 473 íbúa (1,3%) og Mosfellsbær þar sem fjölgaði um 377 íbúa (3,3%). Fækkun í 20 sveitarfélögum Sé litið til alls landsins þá fjölg- aði íbúum Skagabyggðar hlutfalls- lega mest eða um 10,2%. Þar fjölgaði íbúum úr 88 í 97 eða um níu íbúa. Sveitarfélagið Skagabyggð er á vestanverðum Skaga, milli Húnaflóa og Skagafjarðar. Það varð til árið 2002 við sameiningu Skagahrepps og Vindhælishrepps. Sveitarfélagið liggur að sveitarfélaginu Skaga- strönd að norðan og sunnan. Íbúum fækkaði í 20 af 72 sveitarfélögum landsins á tíma- bilinu. Af 72 sveitarfélögum í land- inu eru 39 með færri en 1.000 íbúa. Íbúum fækkaði í 16 þessara sveitar- félaga eða í 41% þeirra frá 1. desem- ber síðastliðnum. Hlutfallslega mest fækkun íbúa varð í Eyja- og Mikla- holtshreppi þar sem íbúum fækkaði um 6,8%. Í Árneshreppi varð 5,0% fækkun íbúa á þessu tímabili. Alls eru 23 sveitarfélög með 1.000-5.000 íbúa hvert. Á tímabilinu fækkaði í fjórum þeirra eða 17% sveitarfélaga. Engin fækkun varð í sveitarfélögum með yfir 5.000 íbúa á umræddu tímabili. Sveitarfélög í deiglunni Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra hyggst leggja fram á haustþingi þingsályktunartillögu um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga. Stefnumót- unin verður til fimmtán ára og jafn- framt verður mörkuð aðgerðaáætl- un til fimm ára. Þetta verður í fyrsta sinn sem ríkið mótar slíka stefnu í málefnum sveitarfélaga. Ráðuneytið lagði fram Græn- bók, stefnu um málefni sveitarfé- laga, til umsagnar í vor. Þar er m.a. fjallað um fjölda og stærð sveitarfé- laga. Fram kemur að þeim hafi fækkað um 125 á síðustu 27 árum, aðallega í frjálsum sameiningum. Ljóst er að íbúaþróun er mjög óhagstæð fámennustu svæðunum. Íbúum á Norðurlandi vestra hefur fækkað um 31% síðan 1990 og um 28% á Vestfjörðum á sama tíma. Mikil fækkun leiðir til óhagkvæmni í rekstri sveitarfélaganna. Um 84% íbúa landsins tilheyra atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins. Fólksfækkun í litlum sveitarfélögum 230.358 227.962 222.377 27.557 27.049 25.711 16.549 16.547 16.229 7.309 7.227 7.180 7.055 7.064 6.992 30.540 30.441 30.506 10.72610.691 10.488 30.290 29.690 28.737 Íbúafjöldi eftir landshlutum 2017-2019 1. desember 2017 1. desember 2018 1. júlí 2019 Heimild: Þjóðskrá Íslands Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurl. vestra Norðurl. eystra Austurland Suðurland Höfuðborgarsvæðið Landið allt 1. desember 2017 348.220 1. desember 2018 356.67 1 1. júlí 2019 360.384 Fjölgun 1.12. ’18 - 1.7. ’19: 1,0% Fjölgun 1.12. ’18 - 1.7. ’19 Suðurnes, 1,9% Höfuðborgarsvæðið, 1,1% Norðurland vestra, 1,1% Norðurland eystra, 0,3% Austurland, 0,3% Suðurland, 2,0% Vesturland, 0,0% Vestfirðir, -0,1% Umræðuskjalið Grænbók, stefna um málefni sveitarfé- laga, var til umsagnar í Sam- ráðsgátt í vor. Umsagnir voru birtar jafnóðum. Í Grænbókinni er vitnað í skýrslu verkefnisstjórnar frá 2017 um stöðu og framtíð ís- lenskra sveitarfélaga. Verkefn- isstjórnin taldi að til að efla sveitarstjórnarstigið þyrftu sveitarfélög að vera sjálfbærar þjónustu- og rekstrareiningar. Fækka þyrfti sveitarfélögum og skilgreina þau verkefni sem þau verða að geta sinnt ein og óstudd. Lagt er til að lágmarks- íbúafjöldi sveitarfélaga verði 1.000 íbúar 1. janúar 2026. Gef- inn verði aðlögunartími og lág- marksíbúafjöldi hækkaður í þrepum. Af umsögnum um Grænbók- ina að dæma er ljóst að ekki eru allir sáttir við kvöð um lág- marksíbúafjölda í hverju sveitarfélagi. Næsta skref er gerð hvít- bókar, eða draga að opinberri stefnu, og verður hún einnig lögð fram til umsagnar. Sjálfbær sveitarfélög SAMRÁÐ VIÐHAFT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.