Morgunblaðið - 09.07.2019, Side 17

Morgunblaðið - 09.07.2019, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2019 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Í gegnum aldirnar hefur María Magda- lena, saga hennar og helgisögur sem henni tengjast, orðið óþrjót- andi uppspretta lista- manna. Í öllum list- greinum hefur hún verið látin túlka kenn- ingar, hugmyndir og tilfinningar lista- mannanna. Þar má sjá hana sem hina bljúgu konu er þvær fætur frelsarans, systur Mörtu er situr íhugul og hæglát við fætur Jesú, hinn trúfasta lærisvein við krossinn, vitnið sem mætir Jesú upprisnum í Getsemane, predikar- ann, iðrandi syndarann, í englafans og þannig mætti lengi telja. Hún er gjarnan tekin út úr hópi kvenna af listamönnum á þann hátt, að þegar allar aðrar konur myndverksins bera slæðu eða hylja höfuð sitt, þá er hún berhöfða. Táknar það fortíð hennar sem fallinnar konu. Einnig er hún iðulega sýnd með rautt hár en rauði háraliturinn á að undir- strika ólguna og baráttuna sem hún stendur í við sjálfa sig. Ekki hefur áhuginn minnkað á Maríu Magdalenu á síðari tímum. María Magdalena er orðin eins- konar poppstjarna. Það er að segja, popplistamenn hafa nýtt sér minni hennar og sögu. En sjaldan er þó litið til hinnar upprunalegu myndar þeirrar sögu. Fjöldi kvik- mynda og sjónvarpsmynda hafa verið gerðar þar sem María Magdalena kemur fyrir eða leikur megin hlutverkið. Elstu myndirnar eru frá upphafsdögum kvikmynda- gerðarinnar. Í flestum þessara mynda er sleginn svipaður tónn. María Magdalena er gjarnan sýnd þar sem syndarinn, hóran, sem snýr af rangri leið eft- ir að hafa mætt Jesú og notar það sem eftir er af lífi sínu til að gera yfirbót. Einnig er hún túlkuð ástkona Jesú og jafnvel freist- arinn sjálfur, hin fallna Eva. Sjaldan er sýnd hin Biblíulega mynd af pre- dikaranum og postulanum Maríu Magdalenu. Hvort heldur er, þá er það synd hennar sem yfirgnæfir allt annað í frásögninni – og ástir hennar. En er ef til vill eitthvað til í því að samband Maríu Magdalenu og Jesú hafi fyrst og fremst byggst á erótískri ást, eins og popp- listamenn samtímans vilja meina? Fjölmörg listaverk slá þann streng eins og til dæmis hinn þekkti söng- leikur Andrew Loyd Webber og Tim Rice, Jesus Christ Superstar. Í raun má segja að allur sá mikli áhugi sem beinist að Maríu Magda- lenu snúist fyrst og fremst um þessa spurningu. Vangaveltan um ástir og erótíkst samband Maríu Magdalenu og Jesú er þannig eng- an veginn ný af nálinni. Kirkjan er ótrúlega snauð af allri erótík í sögu sinni þó að Biblían sé það ekki. Enda er erótíkin einn sterkasti þráðurinn í eðli okkar. María Magdalena hefur löngum svarað þessari þörf mannsins fyrir erótík og erótíska ást sem kirkjan hefur forðast. Í kristninni sem var svo oft bæld gagnvart eðlilegum hlut eins og kynlífi varð það hlutverk Maríu Magdalenu að endurspegla erótík- ina – eða vekja erótískar kenndir. Hvort sem menn nú trúa því að erótískt samband hafi verið í milli Jesú og Maríu Magdalenu eða ekki, þá hefði slíkt samband í sjálfu sér ekki breytt neinu um hlutverk Maríu Magdalenu – eða Jesú. Úr því að Jesús bar í brjósti mannlegar tilfinningar eins og reiði, gleði, hamingju og sorg, bar hann þá ekki líka í brjósti þörfina fyrir þá gleði sem erótísk ást vissu- lega vekur meðal manna? Hefði hann verið sannur maður án þess? Það var vegna hins erótíska hlutverks sem María Magdalena varð dýrlingur snyrtifræðinga mið- aldanna. Hún var líka verndar- dýrlingur þeirra sem framleiddu tískuvörur fyrir konur eins og töskur, hanska, greiður og svo framvegis. Málarar miðaldanna máluðu hana gjarnan íklædda glæsilegum kjólum, skreyttum dýrum steinum og öðrum dýr- gripum. Þegar komið er fram á 16. og 17. öld er hún aftur á móti gjarnan máluð hálfnakin. Á mál- verkum þessara tíma sést hún gjarnan sitja með spegil í hönd eða starandi í tæra lind, upptekin af eigin fegurð. Þessu öllu hefur kirkjan reynt að ýta undir stólinn í aldanna rás. Kaþólskir listamenn voru látnir mála hana í hópi kvenna sem trúar fylgja biskupi sínum. Hjá mótmæl- endum varð hún hin prúða og und- irgefna mótmælendakona sem heldur aftur af sér og geislar um- fram allt af andlegum dyggðum. En ást Maríu Magdalenu var á engan hátt dulin, dulræn, leynd eða táknræn. Marteinn Lúter, leiðtogi siðbreytingarnar í Þýskalandi og á Norðurlöndum á 16. öld hafði þetta að segja um ást Maríu Magdalenu á Jesú: „Allt sem hún getur hugsað um, allt sem hana getur dreymt, allt sem hún getur sagt er þetta eitt: „Ef aðeins ég gæti eignast þennan mann fyrir eiginmann, ástkæran gest minn og meistara, þá yrði hjarta mitt ánægt.“ Hún elskaði hann heitt og af miklum tilfinn- ingaþunga, hjarta hennar brann fyrir hann einan“. (Luther, Martin: Werke, Weimarer Ausgabe bls. 28.). Ef til vill segir Lúter hér allt sem segja þarf. Og er hann þó ekki þekktur af tilfinningasemi. Lesend- ur verða síðan hver fyrir sig að túlka þessi orð Lúters – trúa því sem þeir vilja trúa og draga sínar eigin ályktanir. Eftir Þórhall Heimisson »Kirkjan er ótrúlega snauð af allri erótík í sögu sinni þó að Biblían sé það ekki. Enda er erótíkin einn sterkasti þráðurinn í eðli okkar. Þórhallur Heimisson Höfundur er prestur og starfar í Svíþjóð. thorhallur33@gmail.com Alexander Andreyevich Ivanov/Wikimedia Commons Ástkona? María Magdalena var fyrst til að sjá Jesús eftir upprisuna. María Magdalena – ástkona Jesú?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.